Tíminn - 19.02.1986, Side 7
Tíminn 7
Miðvikudagur 19. febrúar 1986
VETTVANGUR
illllll
Bjarni Hannesson:
„Skjól og skjöldur frelsisins!“
wui-eytxxr Dorgarar sem
falliO hafa vegna aðgerða
dauðasveita og hers K1
Salvador frá 1978 til 1984
Mánaöarlegt mannfall
mnnm
J FMAMJ J AS'O
Dánir frá 1978
til oktobor 1984
Bœndur 14.629.
Iðnaðar
verkamenn 2.255.
Studentar 1.783.
Aðrir 25.789.
er hann kom til landsins úr útlegð.
Nú berst ekkja hans Corazon gegn
Marcosi helsta „vini“ USA á þessu
svæði. Kosningar eru nýafstaðnar
með gífurlcgu kosningasvindli ríkj-
andi valdhafa og framtíðin getur
vart orðið önnur en borgarastyrj-
öld, nema USA læri loks að betra
er að styðja alþýðuna og fulltrúa
hennar en þann þorparalýð sem
þeir virðast helst hafa stutt til valda
víða um heim, hingað til.
Afstaða USSR
USA hefir nú þegar komið
málstað sínum það illa hér á þess-
um hnetti að þeir eiga það einungis
undir stefnu USSR hvort þeir lialda
áhrifum sínum í fjölda ríkja. Al-
þýðu vfðá um heim vantar ckki
„Skjól og skjöldur
frelsisins!“
Mat manna á frelsi er ærið mis-
jafnt og lengi hægt að deila um for-
sendur o.fl. Það ríki sem helst hefir
talið sig vera til fyrirmyndar í
„frelsisást" er USA. í verki hefir
„frelsisást" Bandaríkjamanna snú-
ist upp í andhverfu sína og verið
framkvæmd á ýmsan heldur ógeðs-
legan hátt og ætla ég að greina það í
a.m.k. 5 svæðisbundna megin-
þætti.
1. Innanlandsmál. 2. Viðhorf
USA gagnvart Evrópu. 3. Viðhorf
gagnvart Afríku og Austurlöndum
nær og fjær. 4. Viðhorf gagnvart
USSR og vinaþjóðum þeirra. Um
þessa þætti hef ég áður fjallað og
ætla ekki að gera það hér, en taka
fyrir 5. þáttinn en það eru viðhorf
USA gagnvart Mið og Suður Am-
eríku ásamt Filippseyjum.
Hin algera tvöfeldni
Annáll afskipta USA af Róm-
önsku Ameríku og Filippseyjum er
ærið langur og næsta ljótur miðað
við stjórnarskrá USA og eigin
„annálaða frelsisást". Hin raun-
verulega afskipti USA af stjórnum
og mannlífi í flestum þessara ríkja
hafa verið þau að styðja auðstéttir
til valda og berjast gegn stjórnum
sem hafa reynt að bæta kjör alþýð-
unnar, oft með hinum svívirðileg-
ustu „fimmtu herdeildar" aðgerð-
um.
Afleiöing er sú að misskifting
auðs og áhrifa er gífurleg og þegar
alþýðan og alþýðuforingjar reyna
að berjast fyrir bættri stöðu, oftast í
byrjun með friösamlegum aðgerð-
um, þá hefur því oftast verið svarað
með ógnum, opinberum morðum,
en þó aðallega með launmorðum
og má segja að pyntingar af sví-
virðilegasta tagi, ásamt kerfis-
bundnum launniorðum sé liluti af
„opinberri þjónustu" í fjöldamörg-
um ríkjum á þessum svæðum og má
áætla að allt að 120 til 180 þús.
manns hafi látið lífið á þann hátt
hin síðari ár.
Þessa „opinberu og leynilegu
þjónustu“ þykjast stjórnvöld í
USA fordæma, en styðja í reynd
með beinum og/eða óbeinum hætti
þær stjórnir er veita þessa sér-
kennilegu þjónustu.
Frelsisást í framkvæmd
Vil ég benda á meðfylgjandi
skýringarmynd sem sýnir mannfall
hjá óbreyttum borgurum, flestir
hafa þeir verið myrtir á laun í E1
Salvador, en þar hefir USA bak-
tryggt ógnarstjórn með hergögnum
og miklum fjárframlögum. Einnig
hefir verið stutt við fyrrverandi
liðsmenn Somosa í Nicaragua (20-
30.000 þús. féllu er honum var
steypt) til að stunda morð og
skemmdarverk innan landamæra
þess ríkis. Því má fullyrða með tals-
vert gildum rökum að USA sýnir af
sér lítið eða ekkert betri ásýnd en
Hitler á sínum tíma. Þetta mat
byggist á hernaðarafskiptum í Víet
Nam o.fl. st. og nú hin síðari ár
staðfest á fjárlögum USA og gífur-
lega aukinni hergagnaframleiðslu,
ásamt pólitískum þrýstingi alls-
staðarþarsem þeirgeta viö komið.
Ennfremur er ein af aðferðum
þeirra, að reyna að beita hinni
svokölluðu „frjálsu fjölmiðlun“ til
að réttlæta geröir sínar, eru þar
ýmsar aðferðir notaðar þó lítt sé
hægt að sanna þær.
Morð sem
stjórnunarþáttur
Þó að viðhorf og gerðir USA
ættu að vera fullreynd í Mið og
Suður Ameríku með ömurlegum
afleiðingum, eru þau enn einu sinni
að lenda í þeirri aðstööu að verða
að velja á milli gjörspilltrar „eigin"
leppstjórnar og baráttu alþýðunn-
ar, en það er á Filippseyjum, þar
ætlaði B.S. Aquino að berjast með
lýðræðislegum aðferöum gegn ríkj-
andi valdhafa, en var myrtur strax
baráttukjark cða tilefni til að
berjast, en vopnin vantar aö mestu
og hvort þau fást í nægjanlegu
rnagni er að mestu á valdi USSR.
Stjórn þess ríkis virðist hafa tekið
þá afstöðu að takmarka aðstoð viö
fá ríki, cn styðja þau því betur,
enda tekur það að öðru jöfnu ára-
tugi að brcyta þjóðfélögum í viðun-
andi horf eftir áþján auðvaldssinna
og „slátrarastjórna" er of oft hcfir
ERLENT YFIRLIT
kostað meðfylgjandi borgarastyrj-
aldir til að losna við, getur tekið
einn til tvo áratugi að bæta fyrir
efnislegt tjón af slíkum átökum.
Stjórn USSR virðist hafa reynt
að teygj a sig eins langt og hægt var í
síðustu afvopnunartillögum til
USA, en það ríki virðist ekki ætla
að láta af hervæðingarstefnu sinni
og aðstoð við „slátrarastjórnir1* og
að óbreyttri þeirri stefnu hlýtur það
að verða andsvar USSR að láta af
hinni gætnu utanríkismálastefnu
og fara að efla andstöðuöfl sem fyr-
ir eru gegn „leppuin“ USA. Þar
eru Filippseyjar „kjörsvæði“ og
sama „siðfræðileg, pólitísk og
hernaðarleg dauðagildra" og Víet
Nam var á sínum tíma, aðstoð ættu
þeir raunar að veita hvað sem
heildartillögum um afvopnunarmál
líður því að um þessa hluti ætti
aldrei að „versla“. Slíkt gera ein-
ungis kapitalistar.
ífótspor......?
Ef Gorbachev ætlar sér ekki að
verða einskonar rússneskur
Chamberlain hljóta stjórnvöld
'USSR og/eða vinaríki, nú þegar,
að fara að breyta stefnu sinni og
hefja og/eða auka aðstoð við bar-
áttu alþýðunnar og aðra andstæð-
inga „fjarstýrðra leppa" USA til
dæmis í El Salvador og á Filipps-
eyjum og víðar, þarerum réttlætis-
mál að ræða og einnig gagnkvæma
hagsmuni, allt annað væri skelfileg
mistök. Hvort þetta gcngur eftir í
reynd mun koma í ljós, en morðið á
B.S. Aquino ásamt aflciðingum
þess, gæti orðiö USA „jafndýrt cða
dýrara" en Víet Nam varð á sínum
tíma, því þar voru „lepparnir,. og
„herraþjóðin" sigraðir, keimlíkt og
nasistar voru sigraðir við Stalingr-
ad.
Aö síöustu tel ég vera inál til
komið að R.R. og aörir USA-búar
fari að lesa stjórnarskrá eigin ríkis
og breyta innan lands og utan eftir
því er þar er boðað heldur cn að
vera að baktryggja „slátrarastjórn-
ir“ vítt og breitt um heiminn.
Ritað 12/2 1986
Iljarni Hannesson
Þórarinn Þórarinsson skrifar:
Hægri menn taka ekki þátt í
þjóðaratkvæðagreiðslu um Nató
Það gerir úrslit þjóðar-atkvæðagreiðslunnar á Spáni óvissa
HINN 12. mars næstkomandi fer
fram þjóðaratkvæðagreiðsla á
Spáni um aðild Spánar að Atlants-
hafsbandalaginu. Þessi atkvæða-
greiðsla er á margan hátt ærið sér-
kennileg, og þó mest vegna þess,
að helstu ieiðtogar hægri flokkanna
hafa hvatt kjósendur til að taka
ekki þátt íhenni. Þarferfremsturí
flokki Manuel Fraga, formaður
stærsta hægri flokksins.
Ástæðan fyrir þessari afstöðu
hægri manna er í fyrsta lagi sú, að
þeir hafa verið frá upphafi andvígir
þcssari þjóðaratkvæðagreiðslu.
Hún væri óþörf að þeirra dómi. í
öðru lagi hvetja þcir til hjásetu
vegna þess, að atkvæðagreiðslan
snýst óbeint um framtíð ríkis-
stjórnarinnar. Gangi þjóðarat-
kvæðagreiðslan gegn Nató, muni
Felipe Gonzales neyðast til að
segja af sér og efna til þingkosninga
fyrr en ella, en reglulegar þing-
kosningar eigi hvort eð er að fara
fram í haust. Sennilega muni
Gonzales flýta þeim um nokkra
mánuði, ef atkvæðagreiðslan geng-
ur á móti honum.
Gonzales hefur lýst yfir því. að
þótt þjóðaratkvæðagreiðsian sé
ekki bindandi, muni hann faraeftir
henni og leggja fyrir þingið að
Spánn segi sig úr Nató, ef úrslit at-
kvæðagreiðslunnar verða á þann
veg. Hægri menn telja, að Gonza-
les muni vart gera þetta fyrir kosn-
ingarnar, heldur láti úrslit þeirra
ráða. Niðurstaða þingkosninganna
verði sú, að mcirihluti þingmanna
verði mótfallinn úrsögninni.
Flokkur Gonzales, Sósíalista-
flokkurinn, hefur meirihluta á
þingi. Gonzalcs getur því ráðið
því, hvað þingið gerir fyrir kosn-
inítarnar.
VERÐI útkoman sú, að kjós-
endur hægri flokkanna taki ekki
þátt í atkvæðagreiðslunni verður
hún barátta milli Sósíalistaflokks-
ins annars vegar og kommúnista og
græningja hins vegar, sem jafn-
framt munu njóta stuðnings ýmissa
samtaka sem eru á móti aðildinni. í
þeim hópi er m.a. að finna verka-
lýðræðissamtök, sem hafa fylgt sósíal-
istum að málum.
Fljótt á litið er afstaða Sósíalista-
flokksins nokkuð erfið. Hann
barðist á sínum tíma gegn aðildinni
að Nató og fór Gonzales þar
fremstur. Andstaða Sósíalista-
flokksins átti sinn þátt í því, að
ákveðið var, að Spánn tæki ekki
þátt í hernaðarnefnd Nató og fylgdi
þar fordæmi Frakka og Grikkja.
Fyrir þingkosningarnar síðustu
breytti Gonzales nokkuö um
stefnu. Hann lýsti sig að vísu and-
stæðan aðildinni, en myndi þó ekki
gera úrsögn að kosningamáli. í
staðinn myndi hann bera málið
undir þjóðina í allsherjaratkvæða-
greiðslu. Þetta hefur hann efnt.
Gonzales varð forsætisráðherra
eftir kosningarnar og hcfur það
haft áhrif á afstöðu hans. Hann
berst nú ákveðið fyrir aðildinni.
Rök hans fyrir skoðanaskiptunum
eru einkum þau, að Spánn sé orð-
inn aðili að Efnahagsbandalagi
Evrópu og þátttakan í því geri að-
ild að Nató eðlilega. Það sé líka
Spáni hagstæðast að tengjast Evr-
ópuþjóðunum sem traustustum
böndum.
Þetta virðist falla í býsna góðan
jarðveg, því að verulegrar andúðar
gætir á Spáni gegn Bandaríkjunum
og stafar það ekki síst af afskiptum
Bandaríkjanna af málum róm-
önsku Ameríku, en Spánverjar
hafa af sögulegum og þjóðernisleg-
um ástæðum nána samstöðu með
þjóðunum þar.
í BARÁTTUNNI fyrir þjóðar-
atkvæðagreiðslunni hefur þessi
andúð gegn Bandaríkjunum komið
bæði óbeint og beint í ljós. Eitt
dæmið um það er að skammstöfun-
in Nató, scm cr Otán á spönsku, er
nær aldrei nefnd af fylgismönnum
aðildarinnar, því að þeim finnst að
hún minni á tengslin við Bandarík-
in. I stað þess er bandalagið alltaf
nefnt fullu nafni.
Þá lýsa talsmenn aðildarinnar
yfir því, að Spánn muni áfram
hafna þátttöku í hernaðarnefnd
bandalagsins, að hafnað veröi stað-
setningu kjarnavopna á Spáni og
fækkað verði Bandaríkjamönnum
í herstöðvunum, sem Bandaríkj-
unum hafa verið leyfðar á Spáni.
Gonzales leggur ckki minnsta
áherslu á þetta atriði. Bandaríkja-
stjórn er talin hafa fallist á þetta
mcð nauðung og þá gegn því, að
Spánverjar leysi þá Bandaríkja-
menn af hólmi, sem kvaddir verða
heim. Bandaríkin hafa samt vfir-
stjórn herstöðvanna áfram. Ann-
ars virðast þau óttast, að þetta geti
orðið upphaf þess, að Spánverjar
krefðust síðar, að þeir taki rekstur
herstöðvanna alveg í sínar hendur.
Sumir fréttaskýrendur telja, að
eins og nú sé komið, snúist
atkvæðagreiðslan öll meira um
Gonzales en Nató. Það verði talinn
mikill sigur fyrir hann, ef úrslitin
verða jákvæð. Skoðanakannanir
hafa verið nokkuð á reiki um þetta
atriði, en hér eftir verða ekki úrslit
í þeim birt fyrr en eftir alkvæða-
greiðsluna.