Tíminn - 19.02.1986, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 19. febrúar 1986
Bogdan velur 16 menn til þátttöku á HM:
Þorbergur og Alfred
- þeir koma til móts við landsliðið í Sviss um helgina - Fjölmennt fylgilið
Bjarni Gudmundsson hornamaður er einn íslensku strákanna sem þurfa að
standa undir miklum væntingum á HM. Hann hefur verið í lægð að undan-
förnu en hressist vonandi. Tímamynd: Svcrrir
Bogdan Kowalczyk, landsliðs-
þjálfari í handknattleik hefur valið
þá 16 leikmenn sem taka þátt í HM í
handknattleik í Sviss. Eins og kunn-
ugt er þá verður fyrsti leikurinn á
þriðjudaginn kemur og verður þá
leikið gegn S-Kóreu. Landsliðshóp-
ur Bogdans kemur ekkert á óvart.
Þorbergur Aðalsteinsson og Alfreð
Gíslason eru báðir tilbúnir í slaginn
og munu koma til liðs við íslenska
landsliðið í Sviss á laugardaginn
kemur. Með tilkomu þessara manna
verður ekki pláss fyrir Júlíus Jónas-
son enda mikið af skyttum í liðinu.
Annars lítur Hópurinn þannig út:
Einar Þorvarðarson, Tres de Mayo
Kristjan Sigmundsson, Víkingi
Ellert Vigfússon, Val
Þorgils Ottar Mathiesen, FH
Atli Hilmarsson, Gunzburg
Bjarni Guðmundsson, Wanne
Steinar Birgisson, Víkingi
Sigurdur Gunnarsson, Tres de Mayo
Alfreð Gíslason, Essen
Páll Ólafsson, Dankersen
Guðmundur Guðmundsson, Víkingi
Kristján Arason, Hameln
Þorbjörn Jensson, Val
Jakob Sigurðsson, Val
Geir Sveinsson, Val
Þorbergur Aðalsteinsson, Saab
Þeir landsliðsmenn sem æft hafa
með liðinu og tekið þátt í undirbún-
ingnum og ekki eru í 16 manna hóp
eru Júlíus Jónasson, Val, Jón Árni
Rúnarsson Fram, Egill Jóhannesson
Fram, Valdimar Grímsson, Val,
Guðmundur Albertsson, Víkingi,og
Brynjar Kvaran.Stjörnunni.
Það kemur nánast ekkert á óvarr í
þessu vali Bogdans. Slagurinn var
sennilega jafnastur um þriðja mark-
vörðinn cn Ellert hafði vinninginn í
vali Bogdans.
Auk þessara 16 leikmanna þá fara
Bogdan landsliðsþjálfari og hans að-
stoðarmenn þeir Guðjón Guð-
mundsson liðsstjóri, Gunnar Þór
Jónsson Iæknir og Andrés Kristjáns-
son sjúkraþjálfi. Þá eru í fararstjórn
íslenska liðsins þeir Jón Hjaltalín
Magnússon formaður HSÍ sem verð-
ur aðalfararstjóri og honum til að-
stoðar verða Ingvar Viktorsson,
Þórður Sigurðsson og Davíð B. Sig-
urðsson. Þá er áætlað að þjálfarar
kvenna- og yngri landsliða okkar fari
á HM og verði Bogdan innan handar
með njósnir um önnur lið og sitthvað
fleira. Þá eru tveir dómarar með í
förinni til að fylgjast með fram-
kvæmd og dómgæslu þessa stórmóts.
Félagsskipti í knattspyrnu:
Ámundi í Val
Valsmönnum hefur bæst liðsstyrk-
ur í knattspyrnunni. Árnundi Sig-
mundsson, miðvallar- og sóknar-
leikmaður, hefur tilkynnt fclaga-
skipti úr Víking yfir í Val. Hann
verður löglegur með félaginu eftir
mánaðartíma þannig að hann ætti að
geta spilað með í Rcykjavíkurmót-
inu. Hann á reyndar enn við dálítil
meiðsl að stríða á læri eftir síðasta
keppnistímabil en sagði í viðtali við
Tímann að hann vonaðist til að fara
að ná sér góðum. Ámundi er ekki
eini liðsstyrkurinn sem Valsmenn fá
fyrir næsta keppnistímabil því bæði
Ársæll Kristjánsson og Sigurjón
Kristjánsson hafa tilkynnt félaga-
skipti yl'ir í Val.
Gráðumót í júdó:
Fjölmennt og fjörugt
Körfuknattleikur, bikarkeppnin:
Ósigurinn áhrifalaus
- Valur sigraði Njarðvík 76-71 - Suðurnesjamennirnir eru samt komnir í
Um síðustu helgi fór fram svokall-
að Gráðumót í júdó. Á þessu móti
kepptu eingöngu kyu-gráðaðir júdó-
menn. Þessar kyu-gráður fá menn
fyrir júdóæfingar og keppni en byrj-
að er með 6 kyu og síðan unnið sig
upp í 1 kyu. Þá tekur við 1 dan og
þaðan liggur leiðin uppí 10 dan. All-
ar þessar gráður eru táknaðar á
keppanda með mismunandi lit á
beitum.
Á þessu gráðumóti kepptu 30
keppendur frá fimnt félögum m.a.
Grindavík, UMFSvarfdæla, Dalvík.
Urslit urðu sem hér segir:
úrslitin - Mæta Haukum
Njarðvíkingar eru komnir í úrslit
bikarkeppninnar í körfu þrátt fyrir
76-71 tap gegn Val í Seljaskóla í gær-
kvöldi. Njarðvík vann nefnilegafyrri
leikinn með 19 stiga mun og tapinu
Almennartryggja
Almcnnar Tryggingar hafa gef-
ið íslcnska landsliðinu í hand-
knattleik nauðsynlegar trygging-
ar vegna þátttökunnar á HM í
handknattlcik. Hér er um að
ræða farangurstryggingu og víð-
tæka slysatryggingu sem gildir
fyrir leikmenn jafnt utan vallar
sem innan.
Það þarf ekki að hugsa mikið til
að sjá h versu góð gjöf þetta er fy r-
ir HSÍ sem er að leggja í jafn erf-
iða keppni sem HM.
eða Keflavík
tóku því Suðurnesjamennirnir frek-
ar létt. Staðan í hálfleik var 36-26
fyrir Val.
Valsmenn byrjuðu leikinn af
krafti og Sturla Örlygsson og Krist-
ján Ágústsson voru báðir iðnir við
körfuskorunina í byrjun. En er líða
tók á jafnaðist viðureignin og fimm
þriggja stiga körfur Vals Ingimund-
arsonar í síðari hálfleik sáu til þess
að Njarðvíkingar héldu sig í kristi-
legri nálægð við Hlíðarendapiltana.
Valur skoraði langmest fyrir
Njarðvík eða 31 stig en eyddi samt
sem áður mörgum skotum í vitleysu.
Tómas Holton (14 stig) og Torfi
Magnússon (13 stig) voru atkvæða-
mestir í liði Vals.
Með Arnarflugi á HM
Uruguay marði jafntefli
Uruguay og Pólland gerðu jafn-
tefli í vináttulandsleik í knattspyrnu
sem fram fór í Uruguay í fyrradag.
Leikurinn endaði 2-2 en Pólverjar
voru fyrr til að skora. Baran náði for-
ystu fyrir þá á 7. mín.en Bossio jafn-
aði. Baran skoraði aftur en rétt fyrir
leikslok jafnaði Zalazar fyrir heima-
menn. Það voru 50 þúsund manns
sem fylgdust með Ieiknum á Centen-
ario-leikvanginum í Montevideo.
Liverpool áfram
Liverpool er komið áfram í
bikarkeppninni ensku og
mætir annað hvort Watford
ellegar Buryíátta liða úrslit-
um keppninnar.
Liverpool lék gegn York í
gærkvöldi á Anfield leikvell-
inum í Liverpool og bjuggust
flestir við auðveldum sigri
heimamanna. Annað var þó
upp á teningnum. Jórvíkurbú-
arnir sýndu mikla mótstöðu
og var jafnt 1-1 eftir venjuleg-
an leiktíma. í framlenging-
unni hafði Liverpool hins
vegar betur og sigraði 3-1.
Þá sigraði Stoke lið Fulham
1-0 í 2. deildarleik sem háður
var í gærkvöldi á Victoría
Ground.
-r 60 kg n.
1. Eiríkur Ingi Kristinsson 1. kyu Ármanni
2. Helgi Júlíusson 1. kyu Ármanni
3. Magnús Kristinsson 2. kyu Ármanni
3. Þór Kjartansson 4. kyu Ármanni
-f 65 kg. fl.
1. Gunnar Jónasson 1. kyu Gerplu
2. Þorsteinn L. Jóhannesson 3. kyu
Ármanni
3. Ólafur V. Sigurvinsson 6. kyu UMFG
3. Gudmundur Haraldsson 5. kyu UMFSv.
-í- 71 kg fl.
1. Brynjar Adalsteinsson 2. kyu UMFSv.
2. Karel Halldórsson 3. kyu Ármanni
3. Baldvin Á. Þórisson 4. kyu Ármanni
3. Jón Geir Stefánsson 4. kyu UMFSv.
-£- 78 kg. fl.
1. Páll M. Jónsson 1. kyu Ármanni
2. Halldór Hafsteinsson 1. kyu Ármanni
3. Egill Sigurgeirsson 3. kyu Ármanni
- 86 kg fl.
1. Arnar Marteinsson 1. kyu Ármanni
2. Gísli Wíum 1. kyu Ármanni
3. Sigurdur Sverrisson 4. kyu Ármanni
3. Jón Atli Eðvarðsson 4. kyu Ármanni
Getraunir1x2 Getraunir1x2 Getraunir1x2 Getraunir1x2 Getraunir 1x2
Það verður að viðurkennast að
árangur okkar hér á Tímanum í síð-
ustu viku var ekkert til að hrópa
húrra fyrir. Við höfum að vísu þá af-
sökun að flestir lcikirnir voru á-
kveðnir með vitlausum tcningi og
röðinn varð alveg fráleit. Það var að
vísu vitað inál að flcstum leikjanna
yrði frestað um síðustu helgi þannig
að öll spádómsviðleitni fauk út í
veðrið eins og leikirnir. Nú, spámað-
ur okkar í síðustu viku var betri
veðurfræðingur en við. Karl Gauti
var með fjóra rétta sem ekki dugði
honum samt til vinnings í getraunun-
um.
Enginn var með 12 rétta í síðustu
viku en þrjár raðir komu fram með
11 rétta og gaf hver röð rúmar 310
þúsund krónur í báðar hendur. Fyrir^
tíu rétta voru veittar rúmar 7 þúsund
krónur úr pottinum sem var 3 millj-
ónir rúmar.
Seöillinn framundan er jafn erfið-
ur og sá síðasti þar sem veðrið virðist
ekki ætla að slota þarna á eyjaklas-
anum sem kallast Stóra-Bretland.
Hér kemur þó veðurspá helgarinnar:
Aston Villa-Ipswich............. 1
Norðan hvellur með tilheyrandi
markaregni og hálum ís sem Ipswich
gengur illa að fóta sig á. Heimasigur.
Coventry-Southampton.............X
Hér er eingöngu stílað uppá það
að teningurinn komi rétt niður. Jafn-
tefli eru þó líka afar líkleg úrslit.
Leicester-Birmingham .......... 1
Birmingham er á uppleið enda
varla hægt annað. Leicesterþarf hins
vegar á öllum stigunum að halda til
að komast úr botnströgli.
Liverpool-Everton............X
Stór leikur dagsins. Sjónvarpað ef
að líkum lætur én einnig er nokkuð
víst að honum verði frestað vegna
snjókomu. Hvað sem gerist þá er um
jafntefli að ræða.
Oxford-Newcastle............. 1
Oxford getur spilað góða knatt-
spyrnu þegar svo liggur á þeim.
Newcastle er miðlungslið á útivelli.
QPR-Luton................... . 2
Luton er gott lið og á gerfigrasinu í
Lundúnum eru þeir eins og á heima-
velli. Með Hill og Stein sem bestu
menn vinnst auðveldur sigur.
Sheff.Wed-Tottenham ......... 1
Því miður þá er Tottenham alveg
heillum horfið lið sem bara mun ein-
beita sér að bikarnum (ef sigur
vinnst á Everton). Heimasigur þó
okkur sé illa við að spá því.
Watford-Nott.Forest ........... 2
Lykilleikur á seðlinum. Tryggir
tólf ef rétt er spáð. Vonandi kemur
tveir uppá teningnum.
West Ham-Man.City ............. 1
Hér á ekki að vera spurning um
úrslit.
Fulham-Blackburn............... 1
Fulham kemur á óvart og vinnur
sér inn stig í botnslag 2. deildar -
ekki veitir af.
Grimsby-Barnsley............... 1
Þetta er lúmskur heimasigur.
Barnsley gengur vel með Sigurð
Jónsson í fararbroddi en nú falla
þeir.
Stoke-Charlton..................X
Jafntefli er mjög algeng niður-
staða í síðasta leik hvers seðils. Við
treystum á það.
ívar Ásgrímsson.
Spámaður
vikunnar
Spámaður vikunnar að þessu sinni
er einn af okkar efnilegustu körfu-
knattleiksspilurum. Sá heitir ívar
Ásgrímsson og spilar með Haukum í
Hafnarfirði. ívar er ekki gamall að
árum en hcfur sýnt í leikjum sínum
með Haukunum að mikils má af
honum vænta. Hvort hann er eins
góður spámaður og hann er körfu-
karl verður að koma í ljós en hér er
spá hans:
Aston Villa-Ipswich........... 1
Coventry-Southampton...........2
Leicester-Birmingham ......... 1
Liverpool-Everton............. 1
Oxford-Newcastle ..............X
QPR-Luton .................... 1
Sheff. Wed-Tottenham ......... 1
Watford-Nott.Forest ...........2
West Ham-Man.City ............ 1
Fulham-Blackburn...............X
Grimsby-Barnsley...............2
Stoke-Charlton................ 1