Tíminn - 19.02.1986, Side 15
Tíminn 15
Miövikudagur 19. febrúar 1986
IIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIII ÚTVARP/SJÓNVARP lll'. 'rll!:!ll. :H,ll!llllll
Sjónvarp kl. 22.25:
Einstæð móðir
og fórnarlamb
tilræðismanns
- meöal gesta á hótelinu
Undir fölsku flaggi nefnist þriðji
þáttur raðarinnar um Hótel heilags
Gregoríusar, sem sýndur verður í
Sjónvarpinu kl. 22.25 í kvöld.
Meðal gesta í þetta sinn er
embættismaður frá ísrael en setið
er um líf hans. Til hótelsins ieitar
einnig einstæð móðir í þeim til-
Með dyggri að-
stoð samstarfs-
fólksins leysa
hótelstjórinn
og aðstoðar-
hótelstjórinn
hvers inanns
vanda.
gangi að afla sér fjár og er ekki ó- kæru hóteli!
sennilegt aðsá ásetningurgeti vald- Þýðandi er Jóhanna Þráinsdótt-
ið einhverjum vandræðum á sóma- ir.
Sjónvarp kl. 20.35:
Hirðmenn
rokkkóngsins
Rokkkóngurinn sjálfur Elvis
Presley hefur nú legið í gröf sinni í
8 ár, en langt er í frá að hann sé
gleymdur þó að hann sé grafinn.
Hann á sér trygga aðdáendur, sem
enn þann dag í dag dýrka meistara
sinn á hina ýmsustu vegu.
Sjónvarpið sýnir í kvöld kl. 20.35
bandaríska heimildamynd þar sem
lýst er þeim sterku ítökum sem Elv-
is á enn í hugum þessara áhang-
enda sinna, sem sumir hverjir
virðst hafa helgað líf sitt dýrkun á
átrúnaðargoðinu. Þar er t.d. að
finna konu sem maðurinn skildi við
vegna þrælslegrar dýrkunar hennar
á rokkkónginum, tvíbura sem lifa í
þeirri trú að Elvis sé faðir þeirra og
nokkurs konar staðgengil hans sem
heldur því fram að Elvis vitji sín í
draumum!
Myndin hlaut ýmis verðlaun
1985 og þýðandi er Veturliði
Guðnason.
Viðskiptalíf á mannamáli!
I dag kl. 18, eins og endranær á
miðvikudögum og reyndar á mánu-
dögum líka, verður í útvarpi þátt-
urinn, Á markaði, fréttaskýringa-
þáttur um viðskipti, efnahag og at-
vinnurekstur. Umsjónarmaður er
Bjarni Sigtryggsson.
, Þessir þættir eiga sér ekki Ianga
sögu að baki og þess vegna er lík-
legt að þeir hafi farið framhjá
mörgum, en þeir eiga svo sannar-
lega erindi við almenning. Þar er
nefnilega fjallað um mál sem alla
varða, en margir standa í þeim
skilningi að sé þeim ofvaxið að
skilja! Þar má nefna atvinnurekst-
ur, efnahag einstaklinga og fyrir-
tækja, „jafnvel ríkisfjármál að svo
miklu leyti sem þau snerta atvinnu-
rekstur í landinu," segir Bjarni. En
kannski eru útflutningsmál efst á
lista þeirra einstöku sviða sem fjall-
að verður um.
Umsjónarmaður hefur sam-
vinnu við sérfróða menn í þessum
málum, blaðamenn og fréttamenn,
sem geta útskýrt hlutina svo að al-
menningur skilji, „talað um við-
skiptalíf á mannamáli," segir
Bjarni, enda er þáttunum ætlað að
vera almenningi til uppfræðslu.
f þættinum í dag verður fjallað
um ráðstefnu um útflutning og
þjónustuverkefni, sem haldin var í
Reykjavík í gær á vegum ýmissa
aðila.
Miðvikudagur
19.febrúar
7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn.
7.15 Morgunvaktin.
7.20 Morguntrimm.
7.30 Fréttir. Tilkynningar.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
8.15 Veðurfregnir.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: „Undir
regnboganum" eftir Bjarne Reuter
Ólafur Flaukur Simonarson les þýöingu
sina (7).
9.20 Morguntrimm. Tilkynningar. Tónleikar,
þulur velur og kynnir.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir.
10.05 Daglegt mál. Endurtekinn þáttur frá
kvöldinu áður sem Siguröur G. Tómas-
son flytur.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Lesið úr forustugreinum dagblað-
anna.
10.40 Land og saga Ragnar Ágústsson sér
um þáttinn.
11.10 Norðurlandanótur. Ólafur Þórðarson
kynnir.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar.
13.30 í dagsins önn - Unga fólkið og fíkni
efnin. Umsjón: Anna G. Magnúsdóttir og
Bogi Arnar Finnbogason.
14.00 Miðdegissagan: „Svaðilför á Græn-
landsjökul 1888“ eftir Friðþjóf Nansen
Kjartan Ragnars þýddi. Áslaug Ragnars
les (8)
14.30 Operettutónlist. a. Fílharmóníu-
sveitin í Vín leikur lög eftir Johann
Strauss; Lorin Maazel stjórnar. b. Nicolai
Gedda syngur með hljómsveitarundirleik
lög úróperettum eftir Kalman, Offenbach,
Zellerog Adam.
15.15 Hvað finnst ykkur. Umsjón:Örn Ingi.
(Frá Akureyri).
15.45 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Síðdegistónleikar - Tónlist eftir
Johann Sebastian Bach a. Fantasíaog
fúga í g-moll. Nicolas Kynaston leikur á
orgel. b. Chaconna í d-moll. Göran Sölls-
cher leikur á gítar. c. Konsert í c-moll fyrir
fiðlu, óbó og strenaiasveit.
17.00 Barnaútvarpið. Meðal efnis: „Stína“
eftir Babbis Friis Baastad í þýöingu Sig-
urðar Gunnarssonar. Helga Einarsdóttir
les (14). Stjórnandi: Kristín Helgadóttir.
17 40 Ur atvinnulífinu - Sjávarútvegur og
fiskvinnsla. Umsjón: Gísli Jón Kristjáns-
son.
18.00 Á markaði. Fréttaskýringaþáttur um
viðskipti, efnahag og atvinnurekstur i
umsjá Bjarna Sigtryggssonar.
18.15 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.40 Tilkynningar.
19.45 Málræktarþáttur. Helgi J. Halldórs-
son flytur þáttinn.
19.50 Eftir fréttir. Bernharður Guðmunds-
son flytur þáttinn.
20.00 Hálftíminn. Elín Kristinsdóttir kynnir
popptónlist.
20.30 Iþróttir. Umsjón: Samúel Örn Erlings-
son.
20.50 Hljómplöturabb Þorsteins Hannes-
sonar.
21.30 „Það var nú þá“, smásaga úr sam-
nefndri bók eftir Elias Mar Höfundur
les.
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Lestur Passíusálma (21)
22.30 Bókaþáttur. Umsjón:- Njörður P.
Njarðvík.
23.10 Á óperusviðinu. Leifur Þórarinsson
kynnir óperutónlist.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
MT
10.00 Morgunþáttur. Stjórnandi: Kristján
Sigurjónsson.
12.00 Hlé.
14.00 Eftir tvö. Stjórnandi: Jón Axel Ólafs-
son.
■ 15.00 Nú er lag. Gunnar Salvarsson kynnir
gömul og ný úrvalslög að hætti hússins.
16.00 Dægurflugur. Leopold Sveinsson
kynnir nýjustu dægurlögin.
17.00 Þræðir. Stjórnandi: Andrea Jónsdótt-
ir.
18.00 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagðar í þrjár mínútur kl.
11.00,15.00,16.00 og 17.00.
Svæðisútvarp virka daga vikunnar frá
mánudegi til föstudags.
17.03-18.00 Svæðisutvarp fyrir Reykjavík
og nágrenni - FM 90,1 MHz.
17.03-18.30 Svæðisútvarp fyir Akureyri
og nágrenni - FM 96,5 MHz.
Miðvikudagur
19. febrúar
19.00 Stundin okkar. Endursýndur þáttur
frá 16. febrúar.
19.30 Aftanstund Barnaþáttur með inn-
lendu og erlendu efni. Söguhornið -
Karlinn í tunglinu, sögukafli eftir Ern-
est Young. Guðjón Guðjónsson þýddi.
Sögumaður Brynhildur Ingvarsdóttir.
Myndir: Svanhildur Stefánsdóttir. Sögur
snáksins með fjaðrahaminn, spænskur
teiknimyndaflokkur, og Ferðir Gúllívers,
þýskur brúðumyndaflokkur. Sögumaður
Guðrún Gísladóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Hirðmenn rokkkóngsins (Rock'n
Roll Disciples) Bandarísk heimildamynd
sem sýnir hversu sterk ítök Elvis Presley á
enn í hugum nokkurratryggra aðdáenda.
Myndin hlaut ýmis verðlaun áriö 1985.
Þýðandi Veturliði Guðnason.
21.15 Á Ifðandi stundu Þáttur með blönd-
uðu efni. Bein útsending úr sjónvarpssal
eða þaðan sem atburðir líðandi stundar
eru að gerast ásamt ýmsum innskots-
atriðum. Umsjónarmenn Ómar Ragnars-
son, Agnes Bragadóttir og Sigmundur
Ernir Rúnarsson. Stjórn útsendingar og
upptöku: Tage Ammendrup og Oli Örn
Andreassen.
22.25 Hótel 2. Undir fölsku flaggi Banda-
rískur myndaflokkur í 22 þáttum. Aðal-
hlutverk: James Brolin, Connie Sellecca
og Anne Baxter. Tilræðismaður situr um
líf embættismanns frá Israel sem gistir á
hótelinu. Þangað leitar einnig einstæð
móðir til að afla sér fjár. Þýðandi Jóhanna
Þráinsdóttir.
23.15 Fréttir í dagskrárlok.
KVIKMYNDIR
Sho Kusugi horfir köldum augum á fórnarlambiö og hugsar um hverja
af hiiiiiin þúsund drápsaöferðum hann eigi að nota.
Einn á móti öllum
BIDDU ÞÉR DAUÐA (Pray for Death) *
Bandarisk 19B5
Leikstjóri: Gordon Hessler
Leikendur: Sho Kusugi og synir, James
Booth, Donna Kay Benz.
Hvenær ætla íslendingar að
framleiða glímu-myndir? Maður
hefur horft uppá Ameríkana gera
hetjur úr boxurum og asíumenn
leggja heilu herina að velli á jhvíta
tjaldinu, svo maður gæti ætlað að
kvikmyndahúsagestir tækju
íslenskri glímu fegins hendi. Það
væri hörkuspennandi að sjá tví-
burabræðurna Pétur og Ingva
Ingvasyni leggja til atlögu við heil-
an her af illa innrættum glæpa-
mönnum og gera þá óvíga með hæl-
krók eða sniðglímu á lofti. Þetta
gæti orðið góð landkynning, alla-
vega mundi búningurinn vekja at-
hygli og gæti eflaust skapað tísku-
fyrirbrigði.
Ein af þessuni bardagaíþrótta-
myndurn er nú sýnd í Laugarás-
bíói. Þar er í aðalhlutverki Sho
Kusugi sem er einn af þeim sem
kastar stjörnum, þó ekki kvik-
myndagagnrýnandi, heldur Ninja
og þeirra stjörnur eru öllu illskeytt-
ari en stjörnur gagnrýnenda, hvað
svo sem bíóstjórar segja.
Óljúgfróður hefur sagt mér að
Ninja sé eina bardagaíþróttin í
Asíu sem ekki getur kallast sjálfs-
varnaríþrótt, ef undan er skilið
thailenskt box sem ku víst vera að
einhverju leyti vestræn afurð.
Ninja er nafn á leigumorðingjum
sem tóku að sér sóðaleg verk sem
enginn maður með vott af sjálfsvirð-
ingu gat hugsað sér að gera. Eitt-
hvað hljóta þessi verk að hafa verið
sóðaleg því þessir ninjar voru uppi
á sautjándu öld í Japan og á þeim
tíma kölluðu Japanar ekki allt
ömmu sína.
En þegar Ninja-tæknin hafði leg-
ið í þagnargildi um aldir datt ein-
hverjum kvikmyndagerðarmanni í
hug að dusta af henni rykið því ein-
kunnarorð ninjanna, „þúsund að-
ferðir til þess að drepa", virtust
falla eins og flís við rass ofbeldis-
áhugamanna. Þegar vestrænir
sóðaheilar voru orðnir þurrausnir á
morðaðferðum komu hinir löngu
gleymdu ninjar eins og frelsandi
englar til þess að sjá blóðþyrstum
áhorfendum fyrir ferskum skammti
afofbeldi.
Sho Kusugi er ókrvndur konung-
ur ninjanna. Þetta er önnur mynd-
in á tæpum mánuði sem bíóin hér í
Reykjavík sýna með þessuni
kappa. Fyrri myndin var sýnd í
Regnboganuni og hét Hefnd víga-
mannsins og var allt að því óborg-
anlega Iéleg.
Biddu þér dauða er nær því hrein
endurgerð þessarar myndar. Báðar
fjalla þær um ninja frá Japan sem
orðinn er frábitinn drápum í heima-
landinu og flysl til Bandaríkjanna í
von um betri heim. En þegar þang-
að kemur er ekki allt eins og vænst
var. Þar vaða uppi allskyns ill-
menni sem vilja gera ninjanum og
fjölskyldu hans illt og því verður
hann að grípa aftur til Ninja-tækn-
innar. Og vei þeim er verða fyrir
honum.
Munurinn á þessum mvndum er
sá að það hefur einhvér lagt pen-
inga í framleiðslu á Biddu þér
dauða. Þeim hefur verið varið til
þess að kaupa skár skrifað handrit,
kaupa þokkalegri leikara og leik-
stjóra og verja meiri tíma til fram-
leiðslunnar. Við þetta tapar mynd-
in dálítið af hinum sérkennilega
sjarma lélegra mynda og verður
svipuð öðrum myndum í alþjóð-
legri dreifingu.
Fyrir utan Ninja-kappann tjaldar
þessi niynd einu versta illmenni
scm ég hef lengi séð. Hann er sam-
settur úr öllum klassískum eigin-
leikum skúrka og verður óhugnan-
legt tákn Bandaríkjanna í dag á
móti hjartahreinum innflytjandan-
um. Það er dálítið einkennilegt að
Bandaríkjamenn skuli vera farnir
að framleiða myndir þar sem
Bandaríkin eru það illa, en asískur
innflytjandi tákn hins góða og al-
máttuga. Öðruvísi mér áður brá.
En semsagt: Sho Kusugi er í
hraðri framför og næsta mynd hans
ætti að verða nokkuð góð, ef allir
verða ekki búnir að fá leið á Ninja
þegar þar að kemur.
★ STJÖRNUGJÖF TÍMANS
KAIRÓRÓSIN (The Purple Rose of Cairo)
HEIÐUR PRIZZIS (Prizzi's Honor)
í TRYLLTUM DANSI (Dance with a Stranger)
AFTUR TIL FRAMTÍÐAR (Back to the Future)
BYLTINGIN (Revolution)
ST. ELMOS FIRE
INDIANA JONES (and the Temple of Doom)
RAUÐI SKÓRINN (The Man with one red Shoe)
VEIÐIHÁR OG BAUNIR (Morrhár og ártor)
VÍSINDATRUFLUN (Wierd Science)
FOOTLOOSE
GRALLARARNIR(The Goonies)
LÖGGULÍF
ROCKY IV
SILVERADO
UNDRASTEINNINN (Cocoon)
BIDDU ÞÉR DAUÐA (Pray for Death)
BUCKAROO BANZAI
BOLERO
KÚREKAR I KLÍPU (Rustler’s Rhapsody)
NÁMUR SALÓMONS KONUNGS (King Solomon’s Mines)
ÆSILEG EFTIRFÖR (Shaker's run)
D.A.R.Y.L.
LÖGREGLUSKÓLINN (Police Academy II)
ÖKUSKÓLINN (Moving Violations)
★★★★★ = Frábær ★★★★ = Ágæt ★★★ = Góð
★★ = Þokkaleg ★ = Slæm O = Afleit ☆ = 1/z
★★★★☆
★★★★
★★★★
★★★
★★★
★★★
★★☆
★★☆
★★☆
★★☆
★★
★★
★★
★★
★★
★★
★☆
★☆
★
★
★
★
ÁÁ
O
O