Tíminn - 26.03.1986, Síða 1
W 0 STOFNAÐUR 1917
11 imnn
v
RAUSTIR
MENN
senDiBiLRsröDin
VÉLSLEÐAMENN sem leitaö var
að á svæöinu fyrir NA Vatnajökul komu til
byggða í gærdag. Þeirra haföi verið saknaö
frá því fyrir helgi. Vonsku veðurtaföi þá í þrjá
daga, og gistu þeir þann tíma í skála viö
Geldingafell. í gær þegar veðrinu slotaði
héldu þeir áleiöis til byggða og komust í
Breiðdal eftir áttavita. Þeir komu á bæinn
Höskuldstaðasel, og gátu gert leitarmönnum
viðvart. Þeir fjórmenningar urðu að skilja
einn sleðann eftir sökum ísingar. Þeir voru
allir vel á sig komnir enda vel útbúnir.
SKÁKKEPPNI stofnana og fyrir-
tækja fer fram í apríl frá þeim 7. til 30.
Þátttöku í keppnina má tilkynna í síma
taflfélaga á kvöldin.
SKYRR hefur lækkað taxta tölvuþjón-
ustu um 9% frá 1. mars að telja og er þessi
lækkun gerð í samræmi við þær breytingar
sem urðu í kjölfar nýgerðra kjarasamninga
og efnahagsráðstafana stjórnvalda. Taxti
útseldrar sérfræðiþjónustu fylgir aftur á móti
þeim breytingum á launum sem gert er ráð
fyrir í kjarasamningum.
MJÓLKURFRÆÐINGAR hótu
störf aftur í gær eftir að Alþingi stöðvaði
verkfall þeirra með lagasetningu aðfaranótt
þriðjudags. Því kemur ekki til mjólkurskorts
fyrir páska eins og óttast hafði verið.
SVEINN SNORRASON hri.var
kjörinn formaður Lögmannafélags Islands á
aðalfundi félagsins sem haldinn var um
síðustu helgi. Aðrir í stjórn félagsins eru
Hákon Árnason, hrl. Gestur Jónsson hrl.
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hdl. og Björgvin
Þorsteinsson hdl.
ÞJÓÐARBÓKHLÖÐUNNI verö-
ur komið upp á næstu þremur árum, með því
að setja sérstakan eignarskattsauka á, sam-
kvæmt frumvarpi sem Sverrir Hermannsson
menntamálaráðherra er nú með í smíðum.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að eignaskattsvið-
aukinn verði 0,25% af hreinni eign fram yfir
1,6 milljónir króna. Málið hefur verið sam-
þykkt í þingflokki sjálfstæðismanna en ekki
í þingflokki framsóknarmanna.
BANDARÍKJASTJÓRN hefur í
nógu að snúast þessa dagana þó ekki sé
það innan landamæra Bandaríkjannasjálfra.
í gær héldu átökin milli Bandaríkjahers og
Líbýuhers áfram í Sirteflóanum undan
ströndum Líbýu og þá hafa stjórnvöld í
Hondúras farið fram á fjárhagsaðstoð vegna
innrásar hermanna Sandinistastjórnarinnar í
Nicaragua yfir landamæri ríkjanna tveggja.
Að sögn talsmanns Bandaríkjastjórnar fóru
hermenn Sandinista yfir landamærin til að
ráðast á stöðvar Contra-skæruliðanna sem
þar hafast við.
LAGT HEFUR VERIÐ FRAM
á Alþingi stjórnarfrumvarp um selveiðar við
ísland. Frumvarpið var lagt fram á tveimur
síðustu þingum án þess að hljóta endanlega
afgreiðslu og er nú endurflutt að mestu leyti
óbreytt frá því sem áður var.
I greinargerð með frumvarpinu er greint
frá umfangi selveiða hérlendis frá árinu 1897
og þess getið að verðlaunagreiðslur Hring-
ormanefndar frá árinu 1982 hafi orðið til að
örva selveiðar mikið frá því sem var fyrir
nokkrum árum. Á árinu 1985 var heildarveið-
in komin upp í um 5900 dýr og er því nú 91 %
af meðalveiðinni á tímabilinu 1964-1977.
Mest hefur selveiði orðið árið 1963 þegar
7063 dýr voru veidd og minnst árið 1981
þegar 2974 dýr voru veidd.
KAUPMANNASAMTÖK is-
lands beina því til kaupmanna að þeir leiti
allra leiða til að halda vöruverði niðri. Jafn-
framt hvetja samtökin kaupmenn til að vera
á varðbergi gagnvart hugsanlegum verð-
hækkunum á vörum sem þeir kaupa inn
bæði frá innflytjendum og innlendum fram-
leiðendum.
■
KRUMMI
Heimsókn Carrington:
Til að kynnast ráða-
mönnum og aðstæðum
væri Keflavíkurstöðin mikilvægari
Carrington lávarður, aðalfram-
kvæmdastjóri Atlantshafsbanda-
lagsins, hélt í gær fund tneð frétta-
mönnum á Hótel Sögu í lok fjög-
urra daga opinberrar heimsóknar
hingað til lands.
Carrington sagðist vera ánægður
með að hafa fengið annað tækifæri
til að heimsækja ísland sem gestur
ríkisstjórnarinnar. Hann sagðist
hafa reynt að fara einu sinni á ári
til aðildarríkjanna 16 frá því að
hann tók við stöðu aðalfram-
kvæmdastjóra hjá Atlantshafs-
bandalaginu. Það væri honum
mikilvægt þar sem ckki gæfust
mörg tækifæri til að hitta aðra en
utanríkis- og varnarmálaráðherra í
höfuðstöðvunum í Brussel. Þar að
auki væri gott að kynnast aðstæð-
um í hverju landi fyrir sig.
Aðaiframkvæmdastjórinn benti
á að hér væri einnig herstöð At-
lantshafsbandalagsins sem honum
hefði nú gefist tækifæri til að
kynnast.
Aðspurður um afstöou hans til
atburðanna á Miðjarðarhafi síð-
ustu daga, sagði Carrington að
hann vissi ekki nákvæmlega hver
þróun átakanna hefði verið og því
væri ráðlegast að segja sem minnst
og bíða frekari fregna. Hins vegar
væri afstaða Bandaríkjastjórnar í
nrálinu í fyllsta samræmi viö al-
þjóðalög.
Hann svaraði spurningu um
hernaðaruppbyggingu á N-At-
lantshafi á þann veg að það væri
enginn vafi á því að sovéski flotinn
á þessum slóðunr hefði styrkst
nrjög á undanförnum árum og því
Atlantshafsbandalaginu en nokkru
sinni fyrr.
Unr deilur innan bandalagsins
t.d. milli Grikkja og Tyrkja sagði
Carrington að víst hefði oft skorist
í odda með aðildarþjóðum á
undanförnum áratugum og ágrein-
ingur hefði stundum verið með
Evrópuríkjum og Bandaríkjunum
innan þess. Hins vegar yrðu menn
að nruna að Atlantshafsbandalagið
hefði staðið slíkt af sér og að um
þessar mundir væri samstarf þjóð-
anna 16 einstaklega gott. Þessi
langa saga samstarfs væri svo mark-
verð í Ijósi þess að landfræðilegt og
menningarlegt bil væri æði langt á
milli t.d. íslands og Ítaiíu.
í framhaldi af svari sínu um
samstöðuna innan Atiantshafs-
bandalagsins var Carrington spurð-
ur um líkurnar á aukinni samræm-
ingu í vopnaframleiðslu aðildar-
þjóðanna. Hann svaraði á þá leið
að skorturinn á samræmingu væri
tvíþættur vandi. í fyrsta lagi varð-
aði hann yfirburöastöðu Banda-
ríkjanna gagnvart Evrópuríkjum
þar sem vopnaframleiðsla er ann-
ars vegar. í öðru lagi varðaði hann
samkeppni meðal Evrópuríkjanna
sjálfra. Unnið væri að lausn þessa
vanda.
Aðalframkvæmdastjórinn ræddi
einnig stuttlega um aukna þátttöku
íslendinga á varnarsamstarfinu og
tíðni hryðjuverka í Evrópu.
Að fréttamannafundinum lokn-
um hélt Carrington lyrirlestur á
fundi Samtaka um vestræna sam-
vinnu. -SS
Um 10% lækkun
fyrirfram-
greiðslu
Kjarabætur í formi lækkunar
fyrirframgreiðslu skatta eru að
detta inn um bréfarifurnar hjá fólki
þessa dagana. Greiðslur á þeim 3
gjalddögum scm eftir eru - apríl,
maí og júní - eru 10,23% lægri en
þær voru á tveinr fyrstu gjalddög-
um ársins.
Þannig lækkar mánaðargreiðsl-
an hjá þeim sem borgaði 40 þús. á
marsgjalddaga nú um tæplega
4.500 kr.. niöur í 35.910 kr. - hjá
þeim sem borgaði 15 þús. kr.
lækkar aprílgreiðslan í 13.465 eða
um 1.535 kr. og hjá þeim sem
borgaði 5 þús. kr. í mars nemur
lækkunin um 510 krónum og apríl-
greiðslan verður þá unr 4.490
krónur.
Fyrirframgreiðsla opinberra
gjalda (skatta og útsvars) nam
fyrstu 2 gjalddagana - febrúar og
mars - 13% af heildargjöldum
ársins 1985. Þetta hlutfall lækkaði
nú í 11,67% á þeim þrem gjalddög-
um sem eftir eru af fyrirfram-
greiðslunni í ár, þ.e. apríl maí og
júní, sem fyrr segir, eða um
10,23%.
-HEI
Heimsókn Carrington lávarðar hingað til lands lýkur í dag. í gær hélt hann m.a. fund með íslenskum
fréttamönnum og þar var nieðfylgjandi mynd tekin af þeim Matthíasi Á. Mathiesen utanríkisráðherra og
aðalframkvæmdastjóranum. Tímamynd: Svcrrír.
Kópavogur:
Barefli notað á sjötíu bíla
- þiggjum allar upplýsingar segir lögréglan
Rúmlega sjötíu bílar voru
skemmdir í Kópavogi í fyrrinótt.
Skemmdirnar voru unnar við
nokkrar götur í Austurbænum.
Rúður voru brotnar í bílunum,
þeir dældaðir, loftnetsstangir
brotnar og hliðarspeglar brotnir.
Talið er að þeir sem unnu
skemmdarverkin hafi notað við
það reiðhjólalás sem klipptur hafi
verið sundur og hann notaður
sem barefli. Reiðhjólalás fannst
skammt frá einum bílnum.
„Við höfum nokkrar lýsingar á
mönnum sem sáust á vappi við
bílana um nóttina, og erum við
nú að vinna að rannsókn málsins.
Allar upplýsingar eru vel þegnar
hjá lögreglunni í Kópavogi í síma
41200," sagði Eiríkur Tómasson
rannsóknarlögreglumaður í
Kópavogi í samtali við Tímann í
gær. Hann sagði einnig að enginn
hefði verið handtekinn vegna
málsins og enginn væri enn grun-
aður um verknaðinn. -ES
Það var ófögur sjón sem mætti sjötíu bifreiðaeigendum í Kópavogi í
gærmorgun, þegar þeir sáu bifreiðar sínar skemmdar eftir cinhvcrja
skemmdarvarga. Þessi maður kom að bílnum sínum með brotna
afturrúðu, við Lundarbrekku Kópavogi. Tíma-mynd: Róbert.