Tíminn - 26.03.1986, Side 3
Miðvikudagur 26. mars 1986
Tíminn 3
Sunnlenskir bændur miklir ræktunarmenn:
Hver bóndi hefur ræktað
um 20 hektara að jaf naði
- síðastliöin sex ár
Um 24.400 hektarar af túnum og
grænfóðurökrum hafa verið ræktaðir
á Suðurlandi á árunum 1980-85, sem
jafngildir um 20 hekturum á hvern
þeirra rúmlega 1.200 bænda sem þar
búa. Með ræktun um 4.000 hektara
nýrra túna hafa tún á Suðurlandi
stækkað um 10% á þessu árabili. En
því til viðbótar hafa Sunnlendingar
endurræktað aðra 4.000 hektara
Framangreindir 8 þús ha. eru um
40% af þeim samtals rúmlega 20
þús. ha. túnum sem ræktuð voru í
landinu á þessu árabili, þó aðeins
um fjórðungur byggðra jarða í land-
inu séu á Suðurlandi. Auk þess áttu
Sunnlendingar meira en helming,
eða 16 þús. af alls um 30 þús. ha.
grænfóðurrækt í landinu öllu. Bænd-
ur á Norðurlandi eystra eru t.d. ekki
hálfdrættingar á við þá sunnlensku -
með samtals um 3.500 ha. túnrækt
og um 3.500 hja. af grænfóðri.
Skiptist jarðræktarstyrkir í hlut-
falli við ræktunina má áætla að
Sunnlendingar hafi fengið um 72
millj. af þeim 179 millj. króna sem
veitt hefur verið í túnræktarstyrki á
þessu tímabili - reiknað til núver-
andi verðgildis - og um 43 af þeim
rúmlega 81 millj. króna sem græn-
fóðurræktin var styrkt á árunum
1980-1984. En hætt var að greiða
styrki til grænfóðurræktunar frá og
með 1985.
Upplýsingar þessar um jarðrækt-
ina og styrkina er að finna í svari
landbúnaðarráðherra við fyrirspurn
á Alþingi. Bæði grænfóðurræktin og
túnræktin hefur verið svipað mikil
frá ári til árs, nema hvað nokkru
minna var ræktað af túnum á síðasta
ári en 1980-84.
-HEI
Bóka-
markaður
Um þessar mundir stendur
hinn árlegi bókamarkaður Fé-
lags íslenskra bókaútgefenda
yfir. Að þessu sinni er hann
haldinn í húsi Vörumarkað-
arins við Eiðistorg. Bóka-
unnendum gefst tækifæri til
að bæta við safnið án mikils
tilkostnaðar. Á myndinni
sjást þau Anna Einarsdóttir
forstöðumaður Bókamark-
aðarins og Einar Sigurðsson
formaður Félags íslenskra
bókaútgefenda umkringd af
tugum titla. Mynd: Sverrír
Fynr utan Hliðabæ, hina nýju þjunustudeild Mulabæjar,
53, sem sérstaklega er ætluð altzheimersjúklingum.
Aðstaða opnuð fyrir
altzheimersjúklinga
Múlabær, þjónustumiðstöð aldr-
aðra og öryrkja opnaði formlega
s.l. laugardag þjónustudeild sér-
staklega ætlaða fyrir altzheimer-
sjúklinga. Þessi nýja deild er til
húsa að Flókagötu 53 og hefur
hlotið nafnið Hlíðabær.
Aðstandendur Múlabæjar
(Hlíðabæjar) eru þrenn félagasam-
tök, Reykjavíkurdeild Rauða
krossins, S.I.B.S., og Samtök aldr-
aðra, en þessi samtök hafa bent á
að alzheimersjúklingar hafi staðið
höllum fæti innan heilbrigðiskerfis-
ins. Eftir að hafa fengið stuðning
frá yfirvöldum í formi húsnæðis-
kaupa í október í fyrra hefur verið
unnið við nauðsynlegar breytingar
á húsinu og má í því sambandi
nefna að Samtök aðstandenda
fólks með altzheimer gekkst fyrir
söfnun á húsgögnum í húsið.
Fyrirhugað er að þjónustudeild-
in við Hlíðabæ muni starfa 5 daga
vikunnar, mánudag-föstudag og
verða opin frá kl. 7.30 til 17.00.
Pláss er fyrir 15 sjúklinga til að
byrja með og er hugsanlegt að sá
hópur verði stækkaður ef reynslan
sýnir að ástæða er til þess. í sumar
verður gerð tilraun með helgar-
þjónustu á grundvelli sólarhrings-
Kolbrún Agústsdóttir dcildarstjóri
Hlíðabæjar, og Guðjón S. Brjáns-
son forstöðuinaður Múlabæjar.
Tímamynd: Sverrir.
vistunar. Þá mun fólki verða boðin
þjónusta frá föstudegi til mánu-
dags, og þar með leitast við að lctta
undir með aðstandendum, en altz-
heimersjúklingar þurfa stöðuga og
mikla þjónustu.
Deildarstjóri við Hlíðabæ hefur
veriðráðinn Kolbrún Ágústsdóttir,
en yfirstjórn og fjármál erusameig-
inlcg með Múlabæ. Umsóknir
skulu berast öldrunarlækninga-
dcild Landspítalans, Hátúni l()B,
mcrktar Jóni G. Snædal lækni.
-BG
Suðureyri:
Ibúðarhús ekki
selst í 2 ár
„Hver er lausn ríkisstjórnarinnar
fyrir fólk úti á landsbyggðinni sem
vegna breyttra aðstæðna (svo sem
veikinda, atvinnu eða skólamála)
þarf að flytjast búferlum? Hér á
Suðureyri hefur íbúðarhúsnæði ekki
selst í tvö ár þannig að fólk er fjötrað
hér vegna fasteigna sem þar að auki
reynast svo verðlausar. Svar óskast
strax,“ segir m.a. í áskorun sem
fundur áhugamanna um úrbætur í
húsnæðismálum, sem haldinn var á
Suðureyri, sendir ríkisstjórn og al-
þingismönnum.
Auk þess að krefjast leiðréttinga
aftur í tímann, vegna peninga sem
búið sé að taka af fólki með órétt-
mætum hætti, telur hópurinn sig
eiga rétt á því að njóta allrar þeirrar
lánafyrirgreiðslu sem nýtt húsnæðis-
kerfi kunni að bjóða upp á.
Framsókn í Þorlákshöfn og Ölfusi:
Þórður og Ólafur
í efstu sætunum
Sunnudaginn 23. mars klukkan 13
var áður boðaður fundur Félags
Framsóknarflokks Þorlákshafnar og
Ölfuss haldinn í félagsheimilinu.
Þar til kjörin undirbúningsnefnd
skilaði af sér fjórtán manna lista til
væntanlegrasveitarstjórnarkosninga
og tveggja til sýslunefndarkjörs. Var
síðan gengið til skriflegra kosninga
og hlutu þessir kjör í sjö efstu sætin:
Þórður Ólafsson, Hjörtur Jónsson,
Ingibjörg Ketilsdóttir, Þorleifur
Björgvinsson, Hróðný Gunnarsdótt-
ir, Sveinn Jónsson og Baldur Lofts-
son skipar sjöunda sætið á listanum.
Til sýslunefndar: Benedikt Thor-
arensen og til vara Þorvarður Vil-
hjálmsson.
Fundurinn var allvel sóttur og fór
hið besta fram. Frambjóðendur
hvöttu til samstöðu og árvekni í
tilefni komandi sveitarstjórnarkosn-
inga, en ungt og efnilegt fólk skipar
nú efstu sæti listans. Tekið skal fram
að Þorvarður Vilhjálmsson og Þor-
leifur Björgvinsson sem nú sitja í
sveitarstjórn gáfu ekki kost á sér í
baráttusæti og voru þeim þökkuð vel
unnin störf á fundinum.
bened.
verslunin
Ný verslun á gömlum grunni
Páskaegg í miklu úrvali,
hvergi ódýrari.
Lifandi páskaungartil
sýnis fyrir börnin.
Opiðfrákl. 9-18.30 þriðjud.
og miðvikud. og
kl. 10-16 laugardag.
Opið í hádeginu,
verslunin
Starmýri 2, s. 30420-30425.
Svali á 69 kr., 6 í pakka.
Egg á kr. 39 kr.
Heildósir af niðursoðnum ávöxtum 75
kr.
Allt páskakjötið á mjög lágu verði