Tíminn - 26.03.1986, Page 4

Tíminn - 26.03.1986, Page 4
4 Tíminn SPEGILL Miövikudagur 26. mars 1986 ÚTLÖND Þessar fallegu haf- meyjar sýndu nýjustu tísku í sundfatnaði á Florida nýlega og voru þær myndaðar neðan- sjávar. Sumir sundbol- irnir eru hentugir og sportlegir, en svo er þarna ýmislegt sem tískusérfræðingarnir sögðu að minnti á fyrstu „djörfu“ bikini- baðfötin frá 1940 og hneyksluðu þá suma. Nú þykja þau bara ósköp venjuleg. Þarna er Meíinda i silfurlitu bi kóratia um hálsinn, enda var „Hafmeyjan '. ^ ’ Melinda Flinn hoppar um i skærbleikum og svörtum sundbol Þarrta er 1940-stillinn kominn. Jana Cofer hafmeyja hangir í ankerinu og tekur sig vel ut í gulu og svörtu bikini, FRÉTTAYFIRLIT WASHINGTON - Robert Sims talsmaöur varnarmála- ráöuneytisins bandaríska sagöi herskip og flugvélar Bandaríkjahers hafa í gærgert árás á tvö strandgæsluskip og flugskeytapall á öörum degi átakanna í Sirteflóa milli Bandaríkjannaog Líbýu. Hann sagöi Líbýuher hafa skotið nokkrum flugskeytum að bandarískum flugvélum en engin þeirra heföi skemmst, hvorki í gær né fyrradag. CROSSROADS, Suð- ur-Afríka - Svartur lög- reglumaöur var skotinn til bana í krossgötubúöunum nálægt Höfðaborg en þar haföi hvítur lögreglumaður áður verið myrtur. LISSABON — Skæruliðar UNITA-hreyfingarinnar í Ang- óla sögöust hafa ráðist á og eyðilagt olíuvinnslustöð í eigu bandarískraaðila í norðurhluta landsins. Þetta er önnur árás skæruliðanna á efnahagslega mikilvæg mannvirki í Angóla. TOKYO — Heimatilbúnum sprengjuflaugum var skotið frá kyrrstæðum bíl að bandaríska sendiráðinu og lentu einnig á lóð keisarahallarinnar í Tokyo. Atburður þessi gaf merki um að strangrar öryggisgæslu sé þörf á væntanlegum fundi sjö iðnaðarríkja í Tokyo. AÞENA — George Shultz kom til Aþenu í gærkvöldi. Þar vonast hann eftir að Andreas Papandreou forsætisráðherra gefi honum loforð um að loka ekki herstöðvum Bandaríkja- manna í landinu eins og áætl- að er. LUNDÚNIR — í tilkynningu frá Buckingham höll var sagt að Andrew Bretaprins myndi giftast almúgastúlkunni Söru Ferugson þann 23. júlí næst- komandi. Brúðkaupið mun fara fram í Westminster Abbey. BERN — Svissneska ríkis- stjórnin sagði í tilkynningu að hún hefði látið loka öllum bankareikningum sem Ferdin- and Marcos fyrrum Filippsey- jaforseti hefði aðgang að. Ákvörðun þessi fylgir í kjölfar tilraunar í fyrradag til að ná út peningum í nafni Marcosar. Sérstök nefnd á vegum hinnar nýju stjórnar á Filippseyjum er væntanleg til Sviss í dag til að ræða leiðir til að koma pening- um Marcosar í löglega eigu filippseyskra stjórnvalda.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.