Tíminn - 26.03.1986, Blaðsíða 5
Miövikudagur 26. mars 1986
Tíminn 5
ÚTLÖND
Átök Bandaríkjahers og Líbýuhers:
Astandið ótryggt
í Sirteflóanum
- Hvorugur aðilinn hefuríhyggjuað gefaeftir
- Hermdarverk gætu fylgt í kjölfarið
Washington-Reuter
Bandarísk herskip og herflugvélar
skutu á tvö líbýsk varðskip og beindu
spjótum sínum einnig að flugskeyta-
palli í gær á þessum öðrum degi
átakanna milli Bandaríkjahers og
Lýbíuhers í Sirteflóanum undan
ströndum Líbýu.
Átökin hófust í fyrrakvöld er
flugskeytum var skotið að banda-
fískum herflugvélum. Bandaríkja-
her hefur verið að heræfingum út af
ströndum Líbýu síðan í janúar og
segja sumir þær hafa verið tálbeitu
til að fá Gaddafi Líbýuleiðtoga í
hernaðarátök.
Gaddafi sjálfur hafði áður dregið
svokallaða „dauða-línu'f yfir Sirtefló-
ann og telur þjóð sína hafa full yfirráð
yfir svæði því sem innan línunnar er.
Hinsvegar nær það sjávarsvæði allt
að 120 mílum en samkvæmt alþjóða-
lögum eru alþjóðlegar siglingaleiðir
leyfðar að 12 mílna landhelgi ríkja.
Bandaríkjastjórn ásamt sijórnvöld-
um flestra ríkja hafa því ekki viður-
kennt kröfu Líbýustjórnar um yfir-
ráð yfir Sirteflóanum ölium.
Samskipti stjórna ríkjanna
tveggja hafa vægast sagt verið stirð
undanfarin ár. Síðustu beinu hern-
aðarátök milli ríkjanna voru árið
1981 en þá skutu bandarískar her-
þotur niður tvær líbýskar herþotur.
Viðbrögð stjórnvalda annarra ríkja
vegna átakanna í Sirteflóanum hafa
verið mismunandi. Bettino Craxi
forsætisráðherra ítalíu hefur harð-
lega gangrýnt hernaðaraðgerðir
Bandaríkjahers í Miðjarðarhafinu
og telur þær mikla ógnun við öryggi
svæðisins. Israelsstjórn hefur hins-
vegar lýst fullum stuðningi við að-
gerðir Bandaríkjamanna.
Sovétstjórnin sakaði Bandaríkja-
her um að brjóta öll alþjóðalög með
aðgerðum sínum. f heildina hefur
gagnrýnin austan frá þó verið nokk-
uð keimlík þeirri sem gefin var út
eftirátökinmilliríkjannaáriðl981.
Margir, þ.á m. George Shultz
utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
hafa látið í ljós ótta við að hermdar-
verk gegn bandarískum borgurum
gætu fylgt í kjölfar átakanna í Sirte-
flóa. Það fer þó mikið eftir hvernig
úr deilunni leystist. í gær virtist
lausn ekki vera í sjónmáli og ástand-
ið var vægast sagt ótryggt.
Filippseyjar:
Þing rof ið um sinn
meðan unnið er að gerð nýrrar stjórnarskrár
Manila-Reuter
Corazon Aquino forseti Filipps-
eyja rauf þing í gær og tilkynnti um
setningu nýrra bráðabirgðarlaga.
Sagði hún þau vera í gildi þar til
almenn atkvæðagreiðsla hefði farið
fram um nýja stjórnarskrá og yrði
það vonandi innan árs.
Forsetinn forðaðist þó að nefna
„byltingu" ellegar „umskipti" í
sambandi við hin nýju bráðabirgðar-
lög eins og margir höfðu gert ráð.
fyrir í síðustu viku er ljóst varð að
Aquino og stjórn hennar ætluðu sér
að breyta stjórnarskránni.
I raun er stjórnarskráin frá því
árið 1973 fallin úr gildi og Aquino og
hin nýja ríkisstjórn hefur öíl völd í
höndum sér.
Aquino sagðist ætla að skipa
nefnd innan sextíu daga og yrði
verkefni hennar að semja nýja
stjórnarskrá til handa Filippseying-
BANDARIKIN:
Varasamt lyf
Chicago-Reuter
Bandarískur dómstóll hefur dæmt
lyfjafyrirtæki eitt til að greiða manni
skaðabætur er hljóða uppá 1,6 millj-
arða íslenskra króna. Maðurinn
sagði blóðþynnulyf það er hann tók
hafa vaiið. því að taka varð báða
fætur hans af.
E.I. Du Pont De Nemours heitir
lyfjafyrirtækið og í tilkynningu sem
eigendur þess létu frá sér fara eftir
að dómurinn féll var tekið fram að
fyrirtækið féllist ekki á fjárupphæð-
ina sem það þyrfti að greiða og
hygðist það áfrýja dómnum.
George Chelos frá Illinojsríki fór
í mál við áðurnefnt lyfjafyrirtæki út
frá eftirfarandi forsendum: Hann
tók inn lyfið Coumandin árið 1977
eftir að hafa gengist undir aðgerð
vegna kransæðarstíflu. Lyfið hafði
aftur á móti þau aukaáhrif að vöðvar
í fótum Chelos rýrnuðu svo mjög að
taka varð þá báða.
Coumandin er notað af 750.000
einstaklingum víðs vegar um heim
og er framleitt af áðurnefndu lyfja-
fyrirtæki. Það hefur hins vegar þau
dapurlegu áhrif á dulítinn hluta
fólks að það leiðir til missis útlima.
Chelos var einn hinna óheppnu því
ekki kaupir hann fætur sína aftur
þrátt fyrir væntanlega dollaraeign.
„Það er von mín að nefndin Ijúki
verki sínu'innan níutíu daga þannig
að fólkið í landinu geti innan árs
kosið til þings samkvæmt nýrri stjórn-
arskrá," sagði Aquino í beinni sjón-
varpsútsendingu frá forsetahöllinni í
Manila.
I tilkynningu ríkisstjórnarinnar
sem kom út samhliða ávarpi Aquino
var að vísu ekki minnst á sérstök
tímamörk til handa hinni 30 til 50
manna nefnd sem fær það verkefni
að semja stjórnarskrána. Hins veg-
ar fékk forsetinn tveggja mánaða
frest til aðkoma með breytingartil-
lögur áður en gengið yrði til þjóðar-
atkvæðagreiðslu um stjórnar-
skrána.
Almennt hafði verið búist við að
Aquino og stjórn hennar færu ofan-
greinda leið eftir að ljóst var að
valdakerfi það sem Marcos fyrrum
forseti kom á myndi reynast þungt í
vöfum og hindra framgang lýðræðis
í landinu.
Ekki er víst að Contra-skæruliðarnir hafi mikið iðkað armréttur í gær
þegar hermenn sandinistasljórnarinnar í Nicaragua fóruyfir landamærin
til Hondúras til að ráðast á stöðvar Contra-skæruliðanna þar.
SANDINISTAR í HONDÚRAS
Bandankjastjórn
sendir aðstoð
Washington-Reuter
Bandaríkjastjórn mun að öllum
líkindum veita stjórnvölduirT í
Hondúras um 20 milljóna dollara
hernaðaraðstoð. Að sögn Larry
Speakes talsmanns Bandaríkja-
stjórnar fór Jose Azcona forseti
hinnar nýju stjórnar fram á aðstoð-
ina eftir að staðfesting hafði fengist
á fréttum um að hermenn sandin-
istastjórnarinnar í nágrannaríkinu
Nicaragua höfðu farið yfir landa-
mærin inní Hondúras.
„Hermenn sandinista fóru yfir
landamærin og rcðust á búðir.
æfingastöðvar og sjúkrahús," sagði
Seakes. Liðsmenn Contra-skæru^
liðanna, scm berjast gcgn stjórn-
völdunum í Nicaragua, halda til í
Hondúras og skipuleggja þaðan
árásarferðir inn í Nicaragua.
Speakes sagði við fréttamenn að
1500 hermenn sandinistastjórnar-
innar hcfðu farið yfir landamærin
sem cr stærsti hópur stjórnarher-
manna Nicaragua scm fer yfir
landamærin í fjögurra ára deilii
Nicaraguastjórnar og Contra-
skæruliðanna.
Kína:
Grænn Kínamúr
Corazon Aquino og stjórn hennar
ráða öllu á Filippseyjum um tíma.
Það varð Ijóst í gær er ný bráðabirgð-
arlög voru sett.
Peking-Rcutcr
Fréttastofan Nýja Kína hafði ný-
lega eftir veðurfræðingi einum þar í
landi að á síðustu 25 árum helðu um
40 þúsund ferkílómetrar kínvcrsks
lands orðið eyðimörk að bráð.
Ástæða cyðingarinnar er sosum
ekki ókunn. Ofbeit og trjáfelling cru
helstu undanfarar hennar.
Ástandið er að sögn veðurfræð-
ingsins verst í Norður-Kína þar sem
mörg landsvæði hal'a orðið illa úti
vegna mikillar jafnvægisröskunar á
náttúru landsins.
Að sögn fréttastofunnar cr ríkis-
stjórnin nú öll að vilja gerö til að
byggja „grænan Kínamúr" á sumum
landsvæðum Norður-Kína til að
verja landbúnaðarsvæðin þar fyrir
frckari eyðingu.
ÓSKARSVERÐLAUNIN:
Page og Ameche slógu í gegn
Þau rosknu nældu sér í „Óskar"- Myndin Jörð í Afríku safnaði að sér sjö verðlaunum
Los Angeles-Reuter.
Mynd Sydney Pollacks „Out of
Africa" (Jörð í Afríku) safnaði að
sér sjö Oskarsverðlaunum á hinni
árlegu afhendingarhátíð kvik-
myndajöfranna í Holjywood vestur
í Ameríku. Sú hátíð fór fram í
fyrrakvöld og vakti eins og ávallt
geysilega athygli sem og umræður
um réttmæti útnefninganna.
Mestu fagnaðarlætin brutust þó
ekki út vegna „Out of Africa"
heldur þegar hinir gamalkunnu
leikarar Geraldine Page og Don
Ameche fóru upp á svið til að taka
við „Óskurum" sínum.
Page var kjörin besta leikkonan
fyrir túlkun sína á konu sem ákveð-
in er í að snúa til heimabæjar síns
í Texas í myndinni „The Trip to
Bountiful". Page er nú 61 árs
gömul og hefur löngum verið talin
ein besta leikkona þeirra Banda-
ríkjamanna á sviði sem og í kvik-
myndum. Þetta var f áttunda skipt-
ið sem hún var útnefnd til Óskars-
verðlauna.
Verðlaunaafhendingin var hátíð
hinna eldri því Óskar fyrir besta
Meryl Streep í hlutverki Karenar Blixen í hinni sjöföldu Oskars verðlauna-
mynd „Jðrð í Afríku".
leik í aukakarlhlutverki fékk hinn
75 ára gamli Don Ameche. Sá
„breikaði" f myndinni „Cocoon"
sem sýnd var í Bíóhöliinni fyrr í
vetur.
William Hurt var valinn besti
karlleikarinn fyrir hlutverk sitt í
myndinni „Kiss of the Spider
Woman". Þar leikur Hurt kyn-
hverfan gluggaskreytingarmann
sem lendir í fangelsisklefa með
byltingarsinna. Myndin var tekin í
Brasilíu.
Besta leikkonan í aukahlutverki
var kjörin Anjelica Huston er lék
í „Prizzi's Honour". Sú mynd var
tilnefnd til fjölda Óskarsverðlauna
en fékk aðeins ein. Það var þó
einum „Óskar" meira en myndin
„The Colour Purple" fékk en þessi
mynd Stevens Spielbergs um of-
beldisgjarnt hjónaband fátækrar
svertingjakonu var útnefnd til 11
Óskarsverðlauna.
Ekki fóru leikararnir Meryl Stre-
ep og Klaus Maria Brandauer heim
með „Óskar" í fanginu þrátt fyrir
útnefningu beggja fyrir hlutverk
sín í „Out of Africa". Hins vegar
var Sydney Pollack kjörinn besti
leikstjórinn fyrir þessa mynd sem
einnig fékk ýmar tæknilegar viður-
kenningar.
Argentíska myndin „The Offici-
al Story" varvalin besta erlenda
myndin en hún fjallar um erfiðleika
konu á tímum „óhreina stríðsins"
í Argentínu.
Af öðrum myndum sem komu út
með „Óskara eftir verðlaunahá-
tfðina má nefna „Witness", mynd
Peters Weir og myndina „Back to
the Future".