Tíminn - 26.03.1986, Síða 10
lOTíminn *
Miövikudagur 26. mars 1986
lllllllllllllllllllllllllill TÓNLIST llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
Fiðlukonsert Szymanovskis
Á sinfóhíutónleikunum 20. mars
stýrði Thomas Sanderling tónsprota
en Szymon Kuran lék einleik í 1.
fiðlukonsert Karols Szymanovskis.
Sanderling mun vera nýr á stjórn-
endapalli hér, en liann ólst upp í
Leningrad og Austur-Berlín og Öutt-
ist „vestur" um 1970. Sanderling
hefur sérkennilegan stíl, líkastan
því til að sjá sem hann sé í fang-
brögðum við ósýnilegan mótstöðu-
mann. Hins vegar er taktslag hans
nákvæmt, og hljómsveitarmenn
töldu sig læra mikið af honum.
Kunnugur sagði, að Sanderling sé
lítið fyrir að „leggja tilfinningu í
stjórn sína - það sé allt skrifað í
nóturnar", en þeim mun meiri
áherslu leggi hann á að útskýra það
sem skýra þurfi og vinna í mikilvæg-
um stöðum.
Fyrstur var forleikur að Meistara-
söngvurunum frá Nurnberg cftir
Wagner, og var mikill hljómur og
góður í hljómsveitinni. Þá kom fiðlu-
konsert Szymanovskis og einleikur
Szymonar Kuran, sem verið hefur
annar konsertmeistari Sinfóníu-
hljómsveitarinnarsíðan 1984. Kuran
er meiriháttar fiðlari, svo sem áður
hefur komið í ljós en al'drei greinileg-
ar en á þessum tónleikum, enda var
honum ákafar fagnað en venja er til.
Mátti jafnvel skilja þau fagnaðarlæti
svo, að menn vildu heyra allan
konsertinn aftur, en Kuran var tilbú-
inn með annað aukalag, litlu styttra
en konsertinn, einhvers konar fiðlu-
sónötu með píanóundirleik Guðríð-
ar St. Sigurðardóttur eftir Karol
Szymanovski.
Svo er að sjá, aö Szymon Kuran
hafi verið orðinn talsvert áberandi í
tónlistarlífi Póllands þrátt fyrir ung-
an aldur, t.d. varð hann konsert-
meistari í Baltísku fílharmoníunni
25 ára. Frá Póllandi fluttist hann
1983. Szymanovski (1882-1937) er
hins vegar eitt merkasta tónskáld
Thomas Sanderling.
Szymon Kuran.
Pólverja á þessari öld. Fiðlukonsert
þcssi er frá 1916, í einum þætti. og
mjög „nútímalegur“. Konsertinn
hefst með hálfgerðri óreiðu í hljóm-
sveitinni, síðan kemur einleiksfiðlan
inn mjög fallega og dregur hljóm-
sveitina smám saman á sitt band. í
einleikskadensunni nálægt lokum
konsertsins kemur eins konar yfirlit
yfir þessi átök, og flutti Kuran hana,
sem annað, mjög listilega. Eins og
áður sagði féll áheyrendum þessi
flutningur svo vel í geð, að margir
hefðu viljað heyra konsertinn allan
aftur.
Loks kom 8. sinfónía Beethovens,
sem aldrei er of oft flutt fremur en
aðrar sinfóníur hans. Þessi telst þó
ekki meðal hinna allra mestu, þykir
of vorleg og bjartsýn, til áð ná máli.
Hljómsveitin flutti þessa sinfóníu
ekki sérlega vel í þetta sinn, enda
hefur sjálfsagt mestur æfingakraftur-
inn farið í fiðlukonsertinn.
Sig. St.
Dagar knéfiðlunnar
Á síðustu háskólatónleikum fyrir
páska, hinn 12. marz, fluttu Inga
Rós Ingólfsdóttirog Hrefna Eggerts-
dóttir verk fyrir knéfiðlu og píanó
eftir Gabriel Fauré (1845-1924) og
Bohuslav Martinu (1890-1959). Þær
Inga Rós og Hrefna voru samtímis
við nám í Tónlistarskólanum í
Reykjavík og luku báðar einlcikara-
prófi þaðan vorið 1976. Síðan stund-
uðu þær framhaldsnám hvor á sínum
stað í Þýskalandi og Austurríki, og
komu heim til starfa 1982. Inga Rós
er knéfiðlari í Sinfóníuhljómsvcit
íslands en Hrefna stundar undirleik
og kennslu.
Efnisskráin skiptist talsvert í tvö
horn: Gabriel Fauré hefur lagrænan
stíl, enda stór hluti verka hans
sönglög að sögn efnisskrárinnar.’
Þær stöllur fluttu lög hans þrjú af
mikilli næmni og innlifum; Inga Rós
hefur fallegan og fremur bjartan og
kjarnmikinn tón og spilar af öryggi -
hjá hcnni gætir alls ekki þess votts af
fálmkenndri spilamennsku sem mér
hefur stundum þótt bera við hjá
strengleikurum sem lengi hafa setið
á afturbckkjum stórhljómsveita og
ekkcrt getur sigrazt á nema vera
duglegur að stunda kammermúsík.
Eftir Bohuslav Martinu (1890-
1959) léku þær Inga Rós og Hrefna
tilbrigði um slóvakískt stef, sem
skáldið samdi á síðasta æviári sínu.
Minnugir telja að Martinu hafi
heyrzt hér á landi á fyrstu tónleikum
Kammersveitar Reykjavíkur fyrir
rúmum áratug, og hafði þá enginn
heyrt hans getið áður, og síðan hcfur
hann ckki vcrið tíður gcstur í tón-
leikasölum vorum. Martinu var
Tékki scm bjó um tíma í París og
síðar í Bandaríkjunum, en endaöi
ævina sem prófessor í tónsmíðum í
Prag. „Verk hans bera sterkan þjóð-
legan blæ, en frönsk áhrif Icyna sér
þó ekki.“ Heldur eru tilbrigðin um
slóvakískt stcf knúsuð með köflum,
en prýðilcga voru þau llutt þarna, og
gerðu hlustendur góðan róm að.
List um landið
Hinn 5., 9. og 10. marz héldu
pólsku hljómlistarmennirnir Anna
Prabucka-Firlej, píanóleikari, og
Krzystof Sperski, scllólei kari,
hljómleika í Norræna húsinu í
Rcykjavík, í Þorlákskirkju á Þor-
lákshöfn, og í Gerðubergi í Breið-
holti. Á síðastnefndu tónleikunum,
í Gerðubcrgi, slógust Ágústa Ág-
ústsdóttir söngkona og Gunnar
Björnsson knéfiðlari í hópinn, en á
þeirra vegum voru hinir pólsku lista-
menn hingað komnir. Breiðhylting-
ar tóku þessari listrænu innrás fá-
lega, því áheyrendur voru 9 talsins,
og mun slík aðsókn ekki einsdæmi
þegar listamenn fara út til hinna
dreifðu byggða með æðri tónlist.
Vegna fámennis voru tónleikarnir
líkastir „húskonsert" í stofu tónclsks
betriborgara, og höfðu allir af hina
bcztu skcmmtun. Þau Ágústa og
Gunnar fluttu þarna verk, sem þau
hafa áður flutt á háskólatónleikum
fyrr í vetur. og lýst hefur verið hér í
blaðinu: Ágústa söng Ijóð eftir Sibe-
líus og Gunnar Gavottu eftir David
Popper. En fyrst fluttu pólsku lista-
mennirnir Glettur fyrir selló og píanó
eftir Eugeniusz Glowski (f. 1938),
sem hefur það umfram marga jafn-
aldra sína í stétt tónskálda að vera
bæði skemmtilcgur og skorinorður.
Bæði Sperski og Prabucka-Firlej eru
kennarar við tónlistarháskólann í
Gdansk; á þessum litlu tónleikum
kom knéfiðlarinn fyrir sem traustur
en óinnblásinn hljóðfæraleikari, en
píanistinn sem fcikna flínkurogtilþrifa-
mikill eldibrandur. Raunar má segja að
Prabucka-Firlej hafi „stolið senunni" í
flestum þeim vcrkum sem hún tók þátt í
að flytja (sem voru öll önnur en Sónata
fyrir 2 selló efir Josef Bodin de
Boismortier, samtímamann Sebastí-
ans Bach), bæði með spilamennsku
sinni og leikstíl, sem ég man tæplega
eftir öðrum eins. Stundum minnti
hún mest á skapanorn sem er að
hræra í örlagapotti þar sem hún lék
á flygilinn, með gneistandi tilþrifum
og gríðarlöngum og grönnum
fingrum.
Síðustu verkin á efnisskránni voru
eftir Chopin, sem ásamt Franz Liszt,
Koperníkusi og Madam Curie er
frægastur Pólverja, Ballaða í As-dúr
fyrir píanó, óp. 47, og Inngangur og
Polonaiser brillante fyrir knéfiðlu
og píanó, óp. 3. Bæði eru verkin
mest í píanóinu - að sjálfsögðu
ballaðan, sem gefur píanistanum öll
tækifæri til að gera stóra hluti - en
einnig op. 3, því í stuttri kynningu
sagði Gunnar Björnsson, að Chopin
hefði skrifað þctta æskuverk fyrir
yfirstéttarfeðgin; dóttirin varfeikna-
flínk ápíanóen faðirinn áhugasamur
knéfiðlari. Verkið virðist því vera
allt í píanóinu, eða þannig kom það
a.m.k. fyrir þarna.
Nafnið Anna Prabucka-Firlej er
að vísu ekki þannig, að það taki sér
átakalaust bólfestu í langtímaminni
íslendinga, en þó gæti vel farið svo
að vér ættum eftir að heyra hennar
gctið síðar, svo ágætur píanisti sem
hún er, bæði einleikari og undirleik-
ari.
Sig.St.
Framboðslistar til bæjar- og sveitarstjórnakosninga ’86
Framboðslisti
Alþýðubanda-
lagsins í
Hafnarfirði
Tillaga uppstillinganefndarum val
á framboðslista Alþýðubandalagsins
í Hafnarfirði við bæjarstjórnarkosn-
ingarnar í vor var einróma samþykkt
á félagsfundi miðvikudaginn 12.
mars sl.
1. Magnús Jón Árnason, kennari
2. Bergljót Soffía Kristjánsdóttir,
bókmenntafræðingur
3. Þorbjörg Samúelsdóttir, verka-
kona
4. Sigurður T. Sigurðsson, varafor-
maður VMF Hlífar
5. Unnur Runólfsdóttir, verslunar-
maður
6. Sólveig Brynja Grétarsdóttir,
bankamaður
7. Páll Árnason, vélvirki
8. Hulda Ásgeirsdóttir, fóstrunemi
9. Þráinn Hauksson, rafeindavirki
10. Sigurbjörg Sveinsdóttir, iðn-
verkakona
11. Reynir Sigurðsson, vélskólanemi
12. Ingibjörg Jónsdóttir, þjóðfélags-
fræðinemi
13. Bergþór Halldórsson, verk-
fræðingur
14. Jóhanna Eyfjörð, bankamaður
15. Þórarinn Sigurbergsson, hljóð-
færaleikari
16. Jón Rósant Þórarinsson, sjómað-
ur
17. Helga Gestsdóttir, verkakona
18. Sigrún Guðjónsdóttir, myndlist-
armaður
19. Valgeir Kristinsson, lögfræðing-
ur
20. ína Illugadóttir, húsmóðir
21. Örn Rúnarsson, verkamaður
22. Rannveig Traustadóttir, þjóðfé-
lagsfræðingur
Framboð krata
í Hafnarfirði
Á fundi fulltrúaráðs Alþýðu-
flokksfélaganna í Hafnarfirði 18.
mars sl. var framboðslisti Alþýðu-
flokksins vegna bæjarstjónarkosn-
inganna í vor, samþykktur einu
•hljóði. Opið prófkjör fór fram um
skipan fimm efstu sætanna á listan-
um. Framboðslistinn er þannig
skipaður:
1. Guðmundur Árni Stefánsson.
2. Jóna Ósk Guðjónsdóttir
3. Ingvar Viktorsson
4. Tryggvi Harðarson
5. Valgerður Guðmundsdóttir
6. Erlingur Kristensson
7. Þórunn Jóhannsdóttir
8. Sigrún Jonný Sigurðardóttir
9. Eyjólfur Sæmundsson
10. Brynhildur Skarphéðinsdóttir
11. Sigurður Jóhannsson
12. Guðrún Emilsdóttir
13. Svend Aage Malmberg
14. Ingibjörg Daníelsdóttir
15. Erna Fríða Berg
16. Gylfi Ingvarsson
17. Guðfinna Vigfúsdóttir
18. Guðrún Guðmundsdóttir
19. Grétar Þorleifsson
20. Guðríður Elíasdóttir
21. Hörður Zophaníasson
22. Þórður Þórðarson
Framboðslisti
Alþýðuflokks-
ins I Garðabæ
Á almennum félagsfundi í
Alþýðuflokksfélagi Garðabæjar og
Bessastaðahrepps hinn 17. mars sl.
var framboðslisti Alþýðuflokksins
til bæjarstjórnarkosninganna í
Garðabæ lagður fram af uppstill-
inganefnd og samþykktur sam-
hljóða. Listinn er þannig skipaður;
1. Helga Kristín Möller, kennari
2. Örn Eiðsson, fulltrúi
3. Gestur Geirsson, nemi,
4. Erna Aradóttir, fóstra
5. Finnbogi Sævar Guðmundsson,
byggingameistari
6. Magnús Stephensen, bygg.tækni-
fræðingur
7. Elín Guðjónsdóttir, háskólanemi,
8. Margrét Tómasdóttir, fulltrúi
9. Kristín H. Tryggvadóttir, deildar-
stjóri
10. Hörður Sumarliðason, járnsmið-
ur
11. Valborg Böðvarsdóttir, fóstra
12. Hilmar Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri
13. Páll Garðar Ólafsson, læknir
14. Eggert G. Þorsteinsson, forstjóri
Framboðslisti
Alþýðubandal.
og Óháðra kjós-
enda á Húsavík
1. Kristján Ásgeirsson, útgerðar-
stjóri
2. Valgerður Gunnarsdóttir, skrif-
stofumaður
3. Örn Jóhannsson, múrari
4. Hörður Arnórsson, forstöðumað-
ur
5. Regína Sigurðardóttir, launafull-
trúi
6. Einar Jónasson, rafvirki
7. Þuríður Freysdóttir, fóstra
8. Hermann Jóhannsson, mjólkur-
fræðingur
9. Aðalsteinn Baldursson, verka-
maður
10. Elín Kristjánsdóttir, bókasafns-
vörður
11. Árni Sigurbjörnsson, tónlistar-
kennari
12. Jóhanna Magnea Stefánsdóttir,
verkamaður
13. Guðmundur Eiríksson, verka-
maður
14. Rannveig Benediktsdóttir,
verkamaður
15. Magnús Hreiðarsson, sjómaður
16. Aðalbjörg Sigurðardóttir, ritari
17. Þórarinn Vigfússon, skipstjóri
18. Jóhanna Aðalsteinsdóttir, hús-
móðir
Frambjóðendur
Kvennalistans
I Reykjavík
Framboðslisti Kvennalistans
vegna borgarstjórnarkosninganna í
vor er skipaður á eftirfarandi hátt:
1. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.
2. Elín G. Ólafsdóttir
3. Kristín Blöndal
4. Hulda Ólafsdóttir
5. María Jóhanna Lárusdóttir
6. Eygló Stefánsdóttir
7. Kristín A. Árnadóttir
8. Helga Thorberg
9. Kristín Jónsdóttir
10. Guðrún Halldórsdóttir
11. Sigrún Ágústsdóttir
12. Kristín Ástgeirsdóttir
13. Þórhildur Þorleifsdóttir
14. Málhildur Sigurbjörnsdóttir
15. Kicki Borhammar
16. Ina Gissurardóttir
17. Margrét Sæmundsdóttir
18. Borghildur Maack
19. Helga Sigrún Sigurjónsdóttir
20. Hólmfríður Árnadóttir
21. Dóra Guðmundsdóttir
22. Bergljót Baldursdóttir
23. Guðný Guðbjörnsdóttir
24. Guðrún Kristmundsdóttir
25. Kristín Einarsdóttir
26. Ingibjörg Hafstað
27. Fanney Reykdal
28. Þórunn Benjamínsdóttir
29. Laufey Jakobsdóttir
30. Elín Guðmundsdóttir