Tíminn - 26.03.1986, Blaðsíða 20
m\
PETUR GUÐMUNDSSON
kom inná í leik L.A. Lakers og San Antonio
Spurs í NBA körfuknattleiksdeildinni í fyrra-
kvöld. Pétur skipti viö ekki ófrægari leikmann
en Kareem Abdul Jabbar. Pétur gerði mikla
lukku og skoraði 14 stig á stuttum tíma auk
þess sem hann blokkaði skot oa tók fjölda
frákasta. Vonandi er þetta upphafio á enn betri
árangri Péturs Guðmundssonar í NBA-deild-
inni sem er sú besta í heiminum.
| ■ I
Timiirn
Þriðjudagur 25. mars 1986
Hæstiréttur hnekkti dómi undirréttar:
RARIK sýknaðar af
skaðabótakröfum
- tveir dómarar af fimm skiluðu séráliti
Þrír af fimm dómurum í
Hæstarétti sýknuðu iðnaðar-
ráðherra fyrir hönd Rafmagns-
veitna ríkisins og fjármálaráð-
herra fyrir hönd ríkissjóðs af
skaðabótakröfu sem undirrétt-
ur hafði dæmt viðkomandi til
að greiða. Skaðabótakrafan
var risin vegna þess að ungur
drengur stórslasaðist, þegar
tímahvellhetta sem hann fann á
ruslahaug í Mývatnssveit,
sprakk í höndum hans. Undir-
réttur taldi ljóst að hvellhettan
væri komin á ruslahaugana fyr-
ir tilverknað starfsmanna frá
Rafmagnsveitum ríkisins, og
var þeim gert skylt að greiða
1,7 milljónir króna í skaðabæt-
ur, og málskostnað.
Sönnunarbyrðin í málinu var
hvort hvellhettan væri komin á
haugana fyrir tilverknað Raf-
magnsveitnaríkisins. Þcgar við
málsflutning í undirrétti kom
fram að fleiri höfðu haft hvell-
hettur undir höndum í Mý-
vatnssveit, um það leyti sem
slysið varð, þó þótti líklegast
að hvellhettan væri komin frá
Rafmagnsveitunum, og var
þeim því gert að greiða skaða-
bætur að kröfu ákærenda.
Hæstiréttur hnekkti þessum
dómi. Tveir dómarar af fimm
skiluðu séráliti og töldu þeir
ástæðu vera til þess að staðfesta
dóm undirréttar og sögðu m.a.
að með tilliti til sönnunarbyrð-
ar í málinu væri búið að leiða
nægilega sterkar líkur að því
að hvellhettan væri frá
Rafmagnsveitum ríkisins og
því bæri að staðfesta fyrri dóm.
í dómsorðum meirihluta
Hæstaréttar segir. „Hvorki er
Seðlabankinn spáir hækkun raunvaxta:
Spennir ríkið
upp vextina?
„Þrátt fyrir þessa vaxtalækk-
un og frekari lækkun nafnvaxta
á næstunni samfara lægri verð-
bólgu, er alls ekki útlit fyrir að
raunvextir muni lækka um
sinn. Þvert á móti bendir allt til
þcss að þeir muni fremur
hækka,“ segir m.a. í nýjum
Hagtölum Seðlabanka. Ástæð-
ur þess eru þær helstar að
nafnvextir lækka yfirleitt ekki
eins hratt og verðbólgan. Þar
við bætist nú áhrif mikillar
innlendrar lánsfjáreftirspurnar
opinberra aðila.
Seðlabankinn telúr að ný-
gerðar efnahagsráðstafanir
auki tekjuhalla ríkissjóðs um
Póstur og sími:
NY GJALD-
SKRÁRSVÆDI
Sjö þingmenn Framsókn-
arflokksins hafa lagt fram á
Alþingi þingsályktunartillögu
um breytt gjaldskrársvæði
Póst- og símamálastofnunar.
Samkvæmt tillögunni á að
fela ríkisstjóminni að gera nú
þegar ráðstafanir til að gjald-
skrársvæði símans verði
stækkuð þannig að í megin-
atriðum gildi sami gjaldflokk-
ur innan sérhvers athafna- og
viðskipta- eða greinistöðva-
svæðis.
Þingmennimir sjö mælast
til þess að iandinu verði skipt
í 20 gjaldskrársvæði. Þannig
yrði t.d. fyrsta svæðið: Reykja-
vík - Kópavogur - Hafnar-
fjörður - Varmá. -SS
sannað, að margnefnd hvell-
hetta hafi verið í eigu Raf-
magnsveitna ríkisins né að hún
hafi borist á sorphaugana fyrir
tilverknað manna, sem þar bera
ábyrgð á.“ Jafnframt sagði að
ekki væri hægt að leiða líkur að
því að gáleysi starfsmanna raf-
magnsveitnanna væri orsök
þess að hvellhettan hefði borist
á sorphaugana.
-ES
DREKIÓGNAÐI
FLUGVELLINUM
Þær eru margar hætturnar
sem steðja að fluginu. Ein ný
var uppgötvuð í gærdag við
Reykjavíkurflugvöllinn. Þar
var ungur flugdrekaáhuga-
maður að leika sér með flug-
drekann sinn. Hann vissi tæp-
ast hvaðan á sig stóð veðrið
þegar tveir lögregluþjónar
komu til hans og báðu hann
um að flytja sig eitthvert
annað með flugdrekann sinn,
því að í Hljómskálagarðinum
gæti hann truflað aðflug að
Reykjavíkurflugvelli. Mað-
urinn varð að vísu hissa fyrst,
þar sem þetta var alveg eðli-
legur flugdreki, en ekki búinn
neinun nýtískulegum útbún-
aði sem stofnað gæti flugum-
ferð í hættu. Hann lét þó til
leiðast og flutti sig um set
með drekann sinn og flugturn
gat aftur einbeitt sér að alvar-
legri málum eftir að skaðvald-
inurh var bægt frá.
-ES
1.650 millj. króna, sem ætlunin
sé að mæta með 1.500 millj.
króna auknum innlcndum lán-
tökum auk þess sem ráðgerðar
séu töluverðar innlendar lán-
tökur húsbyggingarsjóðanna.
Alls er talið að innlendar
lántökur ríkissjóðs og byggingar-
sjóðanna muni nema um 5,4
milijörðum króna, eða um
4,1% af þjóðarframleiðslunni,
á nióti 3,1% árið 1985 og 1,9%
árið 1984. „Vandséð er að svo
mikil aukning innlendrar lán-
töku ríkissjóðs, sem hérergert
ráð fyrir, geti átt sér stað án
hækkunar raunvaxta," segir í
Hagtölum. -HEI
Nýr sorpbrennsluofn á Hólmavík
Frá frcttaritara Tímans í Hólmavík, Stefáni (iíslasyni.
í síðustu viku var tekinn í notkun nýr sorpbrennsluofn við sorphauga Hólmvíkinga. Ofninn er úr járni, um 35 m að stærð og
vegur rúm 6 tonn tómur.
Hingað til hefur sorpi staðarins verið brennt á opnu svæði. Tilkoma ofnsins er því mikil framför. Sorpt eyðist nú mun betur en
fyrr og engin hætta er á að það fjúki af haugunum.
Ágúst Guðjónsson á Hólmavík sá um hönnun og smíði nýja sorpbrennsluofnsins.
Tímamynd: Stefán
Mjólkurframleiðslan 20 millj. lítra umfram neyslu:
Smjörbirgðir um tvö
falt meiri en í fyrra
n
Sntjör- og smjörvabirgðir í
landinu voru nær tvöfalt meiri
þann 1. mars s.l. heldur en
einu ári áður - 691 tonn í stað
393 tonna á sama tíma í fyrra.
Birgðirnar nú samsvara urn 7
mánaða neyslu í landinu, þó
mesti mjólkurframleiðslutími
ársins sé nú framundan, ef að
vanda lætur. Framangreint
kom fram á aðalfundi Osta- og
smjörsölunnar.
Heildarinnviktun mjólkur á
síðasta ári var tæplega 116
milljónir lítra, sem var 7%
aukning milli ára og um 20
millj. lítra umfrant innanlands-
neyslu á árinu. Framleiðsla á
smjöri, ostum og mjólkurdufti
var samtals um 6.645 tonn á
árinu, sem var rúmlega þúsund
tonna cða um 19% aukning
milli ára. Innanlandsneysla
þessara vara stóð hins vegar í
stað - var um 4 þús. tonn. Sala
á smjöri minnkaði um rúm
10% milli ára, en aftur á móti
seldist um 1% meira af ostum
og um 22% meira af undan-
rennudufti.
Af sjálfu leiðir að auka varð
verulega útflutning mjólkur-
vara á árinu. Flutt voru út
1.314 tonn af ostum 'fyrir um
58kr. kgsamkv. Hagt'ðindum)
og um 700 tonn af mjc tkurdufti
(fyrir um 29 kr. kg að meðal-
tali). Þrátt fyrir þail eru nú
verulega meiri birgði>- af þess-
um vörum í landinu en á sama
tíma í fyrra. m.a. um 800 tonn
af ostum.
-HEI