Tíminn - 30.04.1986, Blaðsíða 7

Tíminn - 30.04.1986, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 30. apríl 1986 Tíminn 7 Haukur Sigurösson: Opið bréf til alþingismanna Alþingismenn Tilefni þessa bréfkorns er, að í gær lauk vissu tímabili t sögu fjölskyldu minnar. Þetta tímabil má nefna húseig- endatímabilið, þ.e. árin sem við áttum íbúð (a.m.k. að nafninu til). Við seldum nefnilega íbúðina okk- ar og losuðum okkur við megnið af skuldunum. Nú eigum við búslóð- ina og bílinn, sem reyndar er kominn nokkuð til ára sinna en í allgóðu lagi. Svo standa á okkur allnokkrar skuldir, sem eru að upphæð þriðjungur til helmingur af árstekjum fjölskyldunnar. Nú verðum við á næstu dögum að leita til ættingja og vina og fá lánuð veð, því við verðum að fá einhvern tíma til að greiða þessar skuldir niður, og við eigum ekkert til að selja upp í þær. Það sem ég hef sagt hér á undan er lýsing á ástandi, sem ég veit að við í minni fjölskyldu erum ekki ein um að glíma við, ég veit sjálfur um nokkur dæmi og hef heyrt af öðrum. Þetta ástand er ekki nýtt og varð ekki til í gær. Það er orðið nokkurra ára, og svona eftir á séð alveg makalaust, að það varð. „Því hefur verið haldið fram að íslendingar beygi sig lítt fyrir skynsamlegum rökum, fjármuna- rökum varla heldur, en þó enn síður fyrir rökum trúarinnar, en leysi vandræði sín með því að stunda orðheingilshátt og deila um titlíngaskít sem ekki kemur málinu við, en verði skelfingu lostnir og setji hljóða hvenær sem komið er að kjarna málsins." (Halldór Laxness, úr Innansveitarkróníku.) Þessi tilvitnun í Innansveitar- króníku hefur mér stundum komið í hug á umliðnum misserum, þegar ég hef heyrt eða séð frá ykkur, þingmenn, í umræðum um þessi vandamál. Ég tel nefnilega að á háttvirtu Alþingi hafi í umræðum æ ofan í æ verið vikist undan að taka á kjarna málsins en stundaður orðhengilsháttur og deilt um tittl- ingaskít. En þakka ber það sem vel er gert, og þar á ég við hið nýja frumvarp um húsnæðismál, en það er stórt skref í rétta átt og með því er reynt að taka á málum til frambúðar. Þar er m.a. tekið á sumu af því sem hópur áhugafólks um úrbætur í húsnæðismálum hef- ur verið að reyna að koma fram, en öðrurn atriðum er sleppt. Þau Nú veröum við á næstu dögum að leita til ætt- ingjaog vinaog fálán- uð veð, því við verðum að fá einhvern tíma til að greiða þessar skuldir niður, og við eigum ekkert til að selja upp í þær. eru býsna veigamikil og snúa fyrst og fremst að mér og mínum líkum, en það er fólkið, sem hefur verið að ganga í gegnum þessi vandamál undanfarin ár. Þessi vandamál urðu ekki hljóðbær að marki fyrr en „Sigtúnshópurinn" fór af stað. Þáttur hans er þakkarverður og held ég, að hollt hcfði verið fyrir okkur öll íslendinga, og ekki bara baslarana í húsnæðisvandræðum, ef þið, forsvarsmenn þjóðarinnar hefðuð hlustað betur á þetta fólk, og fyrr. Þar sem ykkur er skiljanlega ekki almennilega ljóst af skrifinu hér á undan hvert vandamál mitt og minna er, annað en það, að við erum á hausnum, eins og sagt er stundum, ætla ég að greina frá í stuttu máli hvað gerðist í okkar dæmi og hvers vegna. Við hjónin festum kaup á okkar fyrstu íbúð um mitt árið 1975 og fluttum í hana tæpu ári seinna. Þá voru vaxtaaukalánin að hefja sitt skeið, en þau voru á þeim tíma mjög slæmur kostur miðað við víxlana, sem almennt gengu, eða lánin með föstu vöxtunum. Nú, við höguðum okkur eins og aðrir, áttum ekki neitt og skulduð- um námslán o.fl., en röltum okkur til og keyptum íbúð. í þá daga kom nefnilega aldrei að skuldadögunum, því lántakinn greiddi aldrei nema brot af því sem hann fékk, til baka. En ég þarf ekki að rekja þá sögu, þið þekkið hana vafalaust, ágætu þingmenn, og margir ykkar vænt- anlega af eigin raun. Jæja, lífið hélt áfram, og í árslok 1981 var svo komið að við áttum eign umfram skuld, eða eignar- skattstofn, eins og það heitir á skattframtalinu, sem svarar um 60% af kaupverði tveggja her- bergja íbúðar í fjölbýlishúsi. Þá vorum við fimrn í fjölskyldunni, elsta barnið á fjórtánda ári og það yngsta fimm ára. íbúöin okkar var fjögurra herbergja, um 90m_, í fjölbýlishúsi. Farið var að þrengja að, enda herbergin lítil. Eftir að hafa velt þessum málum fyrir okk- ur var afráðið um haustið 1982 að skipta á þessari íbúð og tæplega þrjátíu ára gömlu einbýlishúsi. Með því að laun minnkuðu ekki og mismunurinn á vcrði eignanna var að mestu lánaður til fimmtán ára, sem var rnjög langur tími miðað við venju, virtist, sem við gætum klofið þetta. Þó var ljóst, að ekki mátti mikið útaf bera. Nú var glatt í höllinni, plássið nóg í fyrsta sinn, bílskúroggarður. En blikur voru á lofti í efnahags- málunum, og forsendur kaupanna á húsinu, góðar eða slæmar eftir atvikum, hrundu gersamlega níu mánuðum cftir kaupin, eða þegar þið, háttvirtir alþingismenn, á- kváðuð að höggva á tengsl launa og lánskjara. Við þessar nýju kring- umstæður kom berlega í Ijós að við höfðum „reist okkur hurðarás um öxl“, cins og einn ykkar benti á fyrir allnokkru. Én við þrjóskuðumst við að viðurkenna þessa augljósu stað- reynd, enda í því fólgin. að manni fannst, uppgjöf, hrikaleg uppgjöf, sem við gætum ekki látið spyrjast En þakka berþað sem vel ergert, og þaráég við hið nýja frumvarp um húsnæðismál, en það er stórt skref í rétta átt og með því er reynt að taka á málum til frambúðar. um okkur. Þv[ var setið áfram í húsinu og stundað „svig" milli lánastofnana, meðan von var að slá lán til að borga önnur lán, eða réttara sagt vexti og vísitölu, því ekki lækkaði höfuðstóll skuldanna, heldur þvert á móti. Þegar kom fram á árið 1984 fór okkur að verða ljóst. að allveruleg- ur hópur fólks var í svipuðum vandræðum. Farið var að ræða opinskátt um „vandamál húsbyggj- enda" og þrýstihópur myndaðist, Sigtúnshópurinn svokallaði. Hátt- virt Alþingi reyndi að koma til hjálpar með því að efla húsnæð- islánakerfið og setja á svokallaða ráðgjafarþjónustu við Húsnæðis- stofnun. Allt var það gott og blessað, en gerðuð þið ykkur ekki Já, þannig fór um sjó- ferð þá. í stuttu máli er dæmið þannig að fyrir fimm árum áttum við sem svarar 60% af kaupverði tveggja her- bergja íbúðar, en nú skuldum við sem svar- ar 40% af kaupverði samsvarandi eignar. grein fyrir, að það var einmitt kostnaðurinn af lánunum og stutt- ur lánstími í bankakcrfinu, sem var að drepa okkur? Mér er ckki grunlaust um, að töluverður hluti þjóðarinnar hafi alls ekki áttað sig á hvað var að gcrast, og þar sé c.t.v. skýringin á því, að það gerðist og hversu seint var brugðist við. Nú, þingmenn góðir, við hjónin og krakkarnir, sem nú voru oröin fjögur, gáfumst upp fyrir húsinu í desember 1984, cftir að hafa búið þar í tvö ár og tvo mánuði. Viö losnuðum við hluta skuldanna og fengurn að auki ágæta þriggja her- bergja íbúð í fjölbýlishúsi. Þangað fluttum við og bjuggum í henni í níu mánúði. Þá lukkaðist okkur að fá stærra húsnæði, cinbýlishús sem hentar okkur, til leigu í tvö ár. Við ákváðum að rcyna að lafa á litlu íbúðinni og sjá hvaö geröist, og leigðum hana því frá okkur til tíu mánaða. Enda visst öryggi að hafa eignarhald í húsnæði að okkur fannst. Auðvitað var Ijóst, að við skulduöum cnnþá of mikiö og til of stutts tíma til að þetta gengi. Viö höfðum sem sé ekki náð okkur fyrir vind með sölu hússins. Þegar svo að því dró, að íbúðin losnaði úr leigu var hún sett á sölu, og hún síðan seld í gær. Við höfum leigu- samning um húsið scm við búum í fram til ágúst 1987 og gctum því vcrið róleg um stund, að öðru leyti en því, að við verðum að leggja allt kapp á að borga niður þessar skuldir okkar, sem verða væntan- lega tryggðar skuldareigendum með veðum í annarra manna eign- um. Já þannig fór um sjóferð þá. í stuttu máli er dæmið þannig að fyrir fimm árum áttum við sem svarar um 60% af kaupverði tveggja herbergja íbúðar, en nú skuldum við sem svarar 40% af kaupverði samsvarandi eignar. Og þið, fulltrúar fólksins, livað er til ráða? Samkvæmt frumvarp- inu um húsnæðismál, sem þið nú eruð að fjalla um, sýnist mér möguleiki á að þeir sem verst hafa farið út úr þessum hrunadansi, geti gengið inn í lánakerfið eins og nýbyggjendur. En sá böggull fylgir skammrifi, að margir eru með skuld á bakinu, og það stundum verulega, sem kemur í veg fyrir, að þeir geti farið af stað aftur. Og hvað með þá mörgu, sem enn hanga á eigin húsnæði, en hafa ekki þurft að selja? Bíður þeirra nokkuð annað en að lepja dauðan úr skel í fyrirsjáanlegri framtíð, mcð þeim geigvænlegu afleiðing- um, sem ljárhagslegt óöryggi leiðir af sér, og hefur reyndar þegar gert í þó nokkrum mæli, eftir því sem ég best vcit. Ég held, að þetta megi, og eigi, að skoðast sem samfélagslegt vandamál og bcri að leysa sem slíkt. Bent hefur veriö á leiöir, sem áhugamenn um úrbætur í hús- næðismálum settu fram, en það er í fyrsta lagi að nota skattakerfið til að endurgreiða a.m.k. hluta þess, scm af Íántakcndum, „skuldurun- um", eins og við erunr stundum kölluð, hefur verið haft, undanfar- in ár. Það, sem hefur gerst er nefnilcga ekkert annað en eigna- upptaka, og við eigum ekki að gjalda fyrir með svona hrikalegum hætti, crlenda skuldasöfnun þjóð- arinnar umfram þá, scm kornu sér vel fyrir í efnalcgu öryggi á verð- bólgutímanum. í öðru lagi þarf að létta af oki bankalánanna með því að veitt verði viðbótarlán úr hús- næðiskcrfinu mcð sömu kjörum og nýbyggingarlán þannig, að fólk geti greitt upp bankalánin og vcröi þannig gcrt jafnsctt þeinr, seni nú fara að byrja að koma sér upp þaki yfir höfuðið. Ég tel, að þessir tveir þættir, til viðbótar frumvarpinu, muni leysa til frambúðar vandamál þeirra, sem sitja nú í súpunni, og geti gcrt þcim kleift að rétta úr kútnum og fara að bcra sig um cins og aðrir þjóðíélagsþegnar, en séu ekki dæmdir til að vera bónbjargar- menn á biðstofum bankastjóranna framvegis. Þið megið ekki. alþingismenn, víkja ykkur undan að taka á málum þcssara aðila Ifka, urn leið og þið gcriö nú, væntanlega. með l'rum- varpi um húsnæðismál, varanlcgar bragarbætur á þessu kerli. Vandamálin í samfélaginu cru mörg og stór, og þannig hlýtur það að vcra. Margt hefur vel tekist, en annað miður, eins og gengur, en það að búa til þurfalinga er fráleitt. Ykkur bcr, ágætu alþingismenn, aö leysa úr þessum linút húsnæðis- málanna sem skjótast, og gera það varanlega, því nú er lag. Haukur Sigurðsson Bogasíðu 7 600 Akureyri TÓNLIST illlllllllllllllllllllll Kór Langholtskirkju, íslenska hljómsveitin og fjórir einsöngvarar undir stjórn Jóns Stefánssonar fluttu Messías eftir Hándel í Langholts- kirkju fyrsta sumardag, 24. apríl. Tónleikarnir voru að flestu leyti hinir ánægjulegustu og hin mikla kirkja troðfull áheyrendum. Kór Langholtskirkju, sem Jón Stefáns- son hefur stjórnað síðan 1964, er löngu kominn í tölu helstu konsert- kóra landsins, enda söng hann þetta fallega og áheyriiega verk afar vel. Einsöngvararnir fjórir voru þau Ólöf Kolbrún Harðardóttir (sópran), Sól- veig M. Björling (alt), Garðar Cort- es (tenór) og Halldór Vilhelmsson (bassi). Að þessu sinni bar Garðar Cortes af þeim, söng bæði fallega, kraftmikið og af miklu öryggi. Sól- veig Björling hefur mjög fallega og athyglisverða rödd, en hana virðist skorta þrótt og raddstyrk til að ná Messías fullum árangri í verki sem þessu. Er það mikill skaði og kann vei að vera að hún gæti bætt úr með tilsögn - hvað veit ég um það? Rödd Halldórs þykir mér á seinni tímum vera orðin nokkuð loðin og hann syngja of mikið fram í nefið. Og hjá Ólöfu, sem ekki vantar raddfegurð eða styrk, hcfur „vfbrató" sem er of þungt fyrir rödd sem hennar, færst í vöxt. Hljómsveitin, sem raunar var einungis kammersveitarhluti úr ís- lensku hljómsveitinni, með 7fiðlum, tveimur lágfiðlum og knéfiðlum og einum bassa auk blásara og orgels (sem Gústaf Jóhannesson lék á) þótti mér yfirleitt spila mjög vel og hreint. Einstöku sinnum voru hljóð- færin ekki alveg samtaka í upphafs- átaki, en þó sjaldan til lýta. Því hefur verið haldið fram að íslendingar hafi ekki ennþá eignast innfæddan meiri háttar hljómsveit- arstjórnanda. Því kann að hafa vald- ið skortur á tækifærum, enda er Guðmundur Emilsson, stofnandi og stjórnandi íslensku hljómsveitarinn- ar, líklega hinn eini sem beinlínis hefur menntað sig í þeirri íþrótt. Jóni Stefánssyni tókst mjög vel upp á þessum tónleikum, eins og raunar oftast endranær, og er ástæða til að fylgjast með þroska hans á þessu sviði. Því Jón virðist hafa ýmsa þá eiginleika sem prýða mega góðan hljómsveitarstjóra, séð utan úr sal: Taktslag hans er skýrt, hann er öruggur og ákveðinn, „veit hvað hann vill“, og er mjög snjall tónlistar- maður. í heild voru þetta prýðilegir tónleikar og meiri háttar. Sig.St. íslenska hljómsveitin

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.