Tíminn - 08.07.1986, Side 11

Tíminn - 08.07.1986, Side 11
Þriðjudagur 8. júli 1986 AÐ UTAN Aids árið 1991 Spáð mannsköðum í Bandaríkjunum Ný tegund Aids-veiru komin upp í Afríku þar sem bæöi kynin smitast jafnt Á ráðstefnu um Aids, sem haldin var í París í Frakklandi sátu nokkr- ir fulltrúar frá íslandi. Þar var nánast fjaliað urn allt sem lýtur að sjúkdómnum, veiruna sjálfa, urn faraldsfræði, ónæmisfræði og með- ferð sjúkdómsins. Einnig var fjall- að um tilraunir í sambandi við nýtt bóluefni sem hugsanlegt væri við sjúkdómnum, og auk þess var komið inn á félags- og sálfræðilega þætti sem tengjast sjúkdómnum. Erindin voru um 1000 talsins. Tíminn hafði samband við einn læknanna sem fór á ráðstefnuna, Sigurð B. Porsteinsson vcirusér- fræðing á Landsspítalanum og bað hann að skýra frá ráðstefnunni. Upplýsingar frá honum fara því hér á eftir. Veiran og afbrigði hennar Mjög mikið er þegar vitað urn veiruna sem veldur sjúkdómnum Aids. Hún hefur hins vegar þann hæfileika að breyta sér mjög ört og margir stofnar cru til á veirunni sem eru örlítið frábrugðnir hverjir öðrum. 1 Senegtú í Afríku er svo komin upp ný veira sem ekki hefur verið gcfið nafn, en hún virðist valda svipaðri ónæmistæringu og gamlaveiran. Hún hefur aðra sam- setningu og myndar annars konar mótefni heldur en Aids-veiran. Vegna þess hversu vcirurnar eru frábrugðnar er vandkvæðum bund- ið að þróa bóluefni og lyf gcgn þeini. Útbreiðsla sjúkdómsins Því var spáð fyrir nokkrum árum, að um 20.000 sjúklingar í Bandaríkjunum yrðu komnir með veiruna á þessum tíma. Þessi spá- dómur hefur ræst því miður og nýir spádómar gera ráð fyrir því að árið 1991 verði ný tilfelli lokastigs Aids í Bandartkjunum 74.000 og heild- arfjöldi lokastigs því um 174.000. Sama ár muni um 54.000 Banda- ríkjamenn deyja. Þetta eru stórar tölur og því má bæta við að búist er við að þetta muni kosta banda- rískt heilbrigðiskerfi um 8 millj- arða dollara. Læknar eru ekki sammála um lífslíkur þeirra sjúkl- inga sem smitast. Sumir telja að 10% smitaðra fái lokastig sjúk- dómsins innan 5 ára, en aðrir telja að á 6 árum fái 20-25% smitaðra lokastigið. Talið er að heterosexual fólk muni fá sjúkdóminn í auknum mæli á komandi árum og bent er á afrísku reynsluna þar sem sjúk- dómurinn er nær eingöngu hetero- sexual. Smitleiðin þar er hetero- sexual kynmök, en í Bandaríkjun- urn og Evrópu er þetta enn sem 'komið er sjúkdómur homma og eiturlyfjasjúklinga að stórum hluta. Jákvæðar hliðar sem komu fram, voru hejstar þær að með skipulögð- um aðgerðum og fræðslu sé mögu- legt að hægja á útbreiðslu sjúk- dómsins. Stcrkari rök eru að koma fram þess efnis að þeir sem hafa smitast geti haft meiri áhrif á það sjálfir mcð líferni sínu hvort þeir fá lokastigið eða ekki. Fólk getur komið í veg fyrir ýmsar sýkingar, einkum kynsjúkdóma, lifrarbólgu og ýmsa veirusjúkdóma og lengt þannig lífslíkursínar. Á móti þessu kernur síðan. að það er stór hluti heimsins sem ekki hefur heyrt minnst á sjúkdóminn og á meðan svo er, getur fólk ekki passað sig. Meðferð Rannsóknir á ýmsum lyfjum hafa sýnt fram á, að hægt er að hafa áhrif á fjölgun veirunnar í tilrauna- kringumstæðum. Hins vegar þegar lyfin eru prófuð á einstaklingum sem hafa fengið sjúkdóminn er árangurinn sorglega lítill. Lífslíkur þeirra sern ná lokastigi virðast ekki breytast mikið þrátt fyrir þessa lyfjagjöf. Lyt’in hal’a einhver áhrif á veiruframleiðsluna, hafa áhrif á ýmsa efnahvata sem kannski draga úr skiptingu veirunnar, en ekki nægilega mikið til þess að lengja líf viðkomandi. Þau lyf sem helst hafa verið notuð hingað til eru Interfer- on. Ríbavirin, Azidothymidine, Hpa 23 og Fosfocarnet. Nýtt bóluefni Ekki er fyrirsjáanlegt á næstunni neitt bóluefni sem getur komið í veg fyrir útbreiðslu sjúkdómsins en á ráðstefnunni voru uppi hug- myndir um hvernig slíkt bóluefni ætti að verða. Það þyrfti að hafa þá hæfileika að vinna gegn svokölluð- um viðtækjum sem binda veiruna upphaflega við frumuyfirborðið, þannig að jafnvel þótt veiran kom- ist í snertingu við frumuyfirborðið, þá geti þær ekki bundist og þar af leiðandi ekki sýkst. Lyfið yrði notað til þess að bólusetja þá áhættuhópa sem taldir væru vera fyrir hendi. Ekkert er vitað um árangur þeirrar vinnu sem fram hefur farið til þróunar þessa bólu- efnis og þar af leiðandi ekki vitað hvenær slíkt bóluefni gæti komið á markað. Samtök homma í San Fransisco Á ráðstefnunni kom fram stað- festing á því sem áður var fyrirfram vitað að sjúkdómnum fylgir gífur- legt andlegt álag á sjúklinga, að- standendur og hjúkrunarfólk. Það verður því með öllum ráðum að styðja við bakið á sjúklingum og öðrum sem hafa með sjúklinginn að gera. Fulltrúar homma sem sátu ráðstefnuna gagnrýndu m.a. lækna fyrir það að vinna ekki markvissar að útrýmingu fordóma sem notaðir væru gegn hommum vegna þessa sjúkdóms. Margir af þeim eigi sér cnga stoð í raunverulcikanum. Hommar í San Fransisco hafa stofnað öflug samtök þar sem liald- ið er uppi prógrammi fyrir Aids- sjúklinga. Þetta er alls herjar með- ferð sem þeir eru með í gangi og m.a. reyna þeir að halda sjúkling- um mun lengur utan sjúkrahúsa heldur en tíðkast annarsstaðar. Þeir hafa yfir að ráða íbúðum fyrir Aids sjúklinga þar sem þeir gcta verið í eðlilegu umhverfi mun leng- ur en ella. Yfirvöld borgarinnar í San Fransisco og heilbrigðisyfir- völd þar eru mjög skilningsrík málefnum Aids-sjúklinga og hefur það m.a. skapað visst vandamál, því sjúklingar víða að. úr Banda- ríkjununt flykkjast þangað af þeim sökum. Fólk á að koma til mótefnamælingar „Það er full ástæða til þess að hvetja fólk sem telur sig vera í minnstu óvissu um það livort það hefur smitast af sjúkdómnum eða ekki, að koma til mælingar. Á ráðstefnunni fengust staðfest ýrnis rök þess efnis að því fyrr sem sjúklingur kemur til meðferðar, þeim mun betur gengur að gefa honunt gagnleg ráð varðandi mót- efnaástand hans. Þetta er í rauh eina vopnið nú til þess að minnka útbreiðsluhraðann. V'itað er um ákveðna tortryggni gagnvart kerf- inu og þeim sem eru meðferðar- aðilar. Við getum ekki annað en reynt að vinna traust þeirra sem cru í áhættu og ég veit ekki til að nein áföll hafi verið á því trausti. Við getum ekki veitt fólki neina allsherjar lausn, en ég held að við getum gert því eitthvað gagn og ráðstefnan gaf okkur frekari vonir í því efni," sagði Sigurður B. Þorsteinsson að lokum. -ABS Á tímabilinu 1. maí til 30. sept. A tímabilinu 1. júni til 31. ágúst Mánudaga: Frá Stykkishólmi kl. 09.00 Þrið|udaga:“ Frá Stykkishólmi kl 14 00 Frá Brjánslæk kl. 14.00 eftir komu rútu Til Stykkishólms kl. 18.00 Frá Brjánslæk kl. 18.00 fyrir brottför rútu til Rvk Til Stykkishólms kl. 21.30 Fimmtudaga Samatimataflaog Laugardaga: Frá Stykkishólmi kl. 09.00 mánudaga Sigling um suðureyjar. Fostudaga: Frá Stykkishólmi kl. 14.00, eftirkomu rútu. Frá Brjánslæk kl. 15.00 Til Stykkishólms kl. 19.00 Viðkoma i inneyjum Á tímabilinu 1. júlí til 31. áqúst Frá Brjánslæk kl. 19.30 Miðvikudaga: Frá Stykkishólmi kl. 09.00 Til Stykkishólms kl. 23.00 Frá Brjánslæk kl. 14 00 Til Stykkishólms kl 18 00. fyrir brottför rútu Viðkoma er ávallt i Flatey á báðum leiðum. / Bílaflutninga er nauðsyniegt aö panta með fyrirvara. Frá Stykkisholmi: Hjá afgreiðslu Baldurs Stykkishólmi, s.: 93-8120 Fra Brjanslæk: Hjá Ragnari Guðmundssyni Brjánslæk, s.: 94-2020. Tíminn 11 VEIÐIHORNIÐ j Umsjón: Eggert Skúlason Hann er vænn þegar hann gefur sig hálendisurriðinn SLORUGUR UPP FYRIR HAUS „Þetta er eins og að vera á vertíð," sagði Runólfur veiðivörð- ur við Langá í samtali við Veiði- hornið í gær. Föstudag, laugardag og sunnudag veiddust 107 laxar á fimm stengur, í neðsta svæðinu í Langá. Það er því óhætt að trúa Runólfi, þegar hann segist vera slorugur upp fyrir haus þessa dag- ana. Fyrstu þrjá tímana í gærmorg- un veiddust tíu laxar. Mjög kröftug smálaxaganga gekk í ána á föstudag og þann dag veiddust 32 laxar. Daginn eftir fengust 35 laxar og fjörutíu lágu eftir sunnudaginn. Runólfur sagð- ist búast við áframhaldandi góðri veiði, þar sem stórstreymt verður á miðvikudag og sterkar göngur eru yfirleitt í kringum stórstreym- ið. Um tuttugu prósent af aflanum eru merktur fiskur, sem er að skila sér í ána, eftir að sleppt var tíu þúsund seiðum í fyrra. Sá fiskur var úr Þverá. Runólfur sagði að menn væru að vonum ánægðir með hversu stórt hlutfall skilaði sér í ána. Spánverjar veiða nú í Langá og sagði Runólfur að hálfgerður tryll- ingur hefði hlaupið í menn, þegar vart varð við fyrstu gönguna á föstudag. Sæmilegt í Veiðivötnum Margt hefur verið um manninn í Veiðivötnum síðustu daga. Veiði hefur verið ágæt síðustu daga, en um helgina setti livöss norðan átt strik í reikninginn. Stóra-Fossvatn hefur gefið best nú í sumar og hafa veiðst þar tæplega tvö hundruð silungar og eru mjög vænir innan um. Síldar- planið og Bátseyrin hafa gefið hvað best, og er síld eins og nafnið gcfur til kynna vinsælust beita hjá vatnabúum. Stærsti fiskurinn í sumar hefur veiðst í Hraunvötnum, og vó hann tólf pund. Alls hafa veiðst um fjörutíu fiskar í Hraunvötnum og er meðalstærð um fjögur pund. Veiðileyfi í Veiðivötn kosta níu hundruð krónur fyrir daginn og fást veiðileyfi að Skarði í Land- sveit. Vissara er að panta veiðihús með fyrirvara. Sjávarútvegsráöuneytiö: Grásleppuhrogn og greiðslumiðlun Samkvæmt lögum nr. 24 frá 7. maí 1986, um skiptaverðmæti og greiðslumiðlun innan sjávarútvegs- ins sem tóku gildi frá og með 15. maí 1986, féllu úr gildi lög nr. 43/1982 um útflutningsgjald af grásleppuafurðum, sem framleidd- ar hafa verið fyrir 15. maí 1986, en fluttar eru út eftir þann dag. Af grásleppuhrognum sem land- að eru eftir 14. maí 1986 skal kaupandi hrognanna (saltandi) greiða til greiðslumiðlunar innan sjávarútvegsins með eftirfarandi hætti: 1. Hafi grásleppuhrognum verið landað af báti undir 10 brl. skal kaupandi hrognanna greiða 10% af hráefnisverði hrognanna inn á sérstakan greiðslumiðlunarreikn- ing smábáta hjá Stofnfjársjóði fiskiskipa. Hráefnisverðið miðast við 97.00 kr. pr. kg. og skulu því greiðast kr. 1.350.- fyrir hverja gráslepputunnu. 2. Hafi grásleppuhrognum verið landað af bátum 10 brl. eða stærri skal kaupandi hrognanna greiða 15% af hráefnisverði hrognanna, sem skiptast þannig: a) 7% inn á stofnfjársjóðsreikning skipsins hjá Fiskveiðasjóði íslands. b) 6% inn á vátryggingareikning skipsins hjá Landssambandi ís- lenskra útvegsmanna. c) 2% inn á sérstakan greiðslumiðl- unarreikning fiskiskipa hjá Stofn- fjársjóði fiskiskipa. Heildargreiðsla fyrir hverja gráslepputunnu, sem aflað er af bátum 10 brl. ogstærrierkr. 2.000. Greiðast því 1.200 kr. tii Stofnfjár- sjóðs fiskiskipa og 800 kr. til Landssambands tslenskra útvegs- manna. Ofangreindar greiðslur skal inna af hendi innan fjórtán daga frá því er hrognin voru afhent og skal greiðslunni fylgja yfirlit yfir hversu mikið fékkst frá einstökum báti og hverjir eigendur þeirra fiskibáta eru. Stunginn með skrúfjárni Karlmaður var fluttur á slysa- deild Borgarspítalans um helgina með sár á kviðarholi, eftir skrúfjárn. Lögregla var kvödd til og málið rannsakað og kom þá upp úr kafinu að nágrannaerjur höfðu leitt til stungunnar, sem við athug- un lækna reyndist ekki alvarleg. -ES

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.