Tíminn - 08.07.1986, Page 12
,12 Tíminn'
Sumarferð Framsóknar-
félaganna í Þórsmörk
Árleg sumarferð Framsóknarfélaganna í Reykjavík verð-
ur sunnudaginn 20. júlí nk.
Farin verður dagsferð í Þórsmörk.
Sætagjald fyrir fullorðna verður kr. 650 og kr. 450 fyrir 12
ára og yngri.
Upplýsingar og skráning er á skrifstofu Framsóknar-
flokksins að Rauðarárstíg 18, sími 24480.
Nánar auglýst síðar.
Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna í Reykjavík
Barðaströnd -
Jörð óskast
Óskum eftir jörð á Barðaströnd. Þeir landeigendur
sem áhuga hafa leggi vinsamlegast inn svör merkt
„Jörð 100“ til auglýsingadeildarTímans Síðumúla
15 108, Reykjavík. Upplýsingar um stærð, land-
kosti og verðhugmyndir mættu fylgja.
Auglýsingadeild hannar
auglýsingnna fyrir þig
Okeypis þjónusta
ríminn 18300 Timinn
BÍLALEIGA
Útibú í kringum landið
REYKJAVÍK:.....91-31815/686915
AKUREYRI:........ 96-21715/23515 1
B0RGARNES:.............93-7618 ‘
BLÖNDUÓS:........ 95-4350/4568
SAUÐÁRKRÓKUR: ....95-5913/5969
SIGLUFJÖRÐUR:.........96-71489
HÚSAVÍK:........96-41940/41594
EGILSSTAÐIR: ..........97-1550
VOPNAFJÖRÐUR: ... 97-3145/3121
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: . 97-5366/5166
HÖFN HORNAFIRÐI: ..... 97-8303
interRent
Á mölinni mætumst með
Driföxlar, hlífar
og hjöruliðir
á góðu verði
WÉ0Æ&
mSmiusmhf
Jámhálsi 2 Simi 83266 TKDFtvk
Pósthólf 10180
DAGBÓK
Sumarleyfisferðir
Ferðafélagsins
1) 8.-16. júlí (9 dagar): Aöalvík -
liornvík. Gengið með viðleguútbúnað
frá Aðalvík til Hornvíkur á 3-4 dögum.
Skoðunarferðir í Hornvík. Fararstjóri er
Jón Gunnar Hilmarsson.
2) 8.-16. júlí (9 dagar): Hornvík -
Hornbjargsviti - Látrabjarg. Gist í tjöld-
um í Hornvík og daglegar gönguferðir frá
tjaldstað.
3) 2.-9. júlí (ödagar): Landmannalaug-
ar - Þórsmörk. Gengið milli gönguhúsa
F.í. með svefnpoka og mat. Öruggara að
panta tímanlega.
4) 11.-19. júlí (Sdagar): Borgarfjöröur
eystri - Loömundarfjöröur. Flogið til
Egilsstaða og ekið þaðan til Borgarfjarð-
ar. Gist í svefnpokaplássi. Fararstjóri er
Tryggvi Halldórsson.
5) 16.-20. júlí (5 dagar): Eldgjá -
Strútslaug - Álftavatn gönguferð með
viðleguútbúnað.
6) 18.-23. júlí (6 dagar): Landmanna-
laugar - Þörsmörk
7) I8.-24. júlí (7 dagar): Vestfirðir -
hringferð - ekið um Vestfirði, Djúp.
skoðunarferðir frá áningarstöðum. Til
baka cr ekin Streingrímsfjarðarheiði.
Gengið frá Keldudat um Svalvoga, Lokin-
hamradal til Álftamýrar. Upplýsingablað
á skrifstofunni. Fararstjóri er Sigurður
Kristinsson. Hringið og fáið upplýsingar
um ferðirnaráskrifstofu F.í. Öldugötu3.
Minningarkort
Landssamtaka hjartasjúklinga
Minningarkort Landssamtaka hjarta-
sjúklinga fást á eftirtöldum stöðum.
Reykjavik - Skrifstofu Landssamtak-
anna, Hafnarhúsinu, Bókabúð ísafoldar.
Versl. Framtíðin, Reynisbúð, Bókabúð
Vesturbæjar. Seltjarnarnes - Margréti
Sigurðardóttur, Nesbala 7. Kópavogur -
Bókaversl. Veda. Hafnarfiröi - Bókabúö,.
Böðvars. Grindavik - Sigurði Ólafssyni,
Hvassahrauni 2. Kellavík - Bókabúð
Keflavíkur. Sandgerði - Pósthúsinu
Sandgerði. Selfossi - Apótekinu. Hvols-
velli - Stellu Ottósdóttur, Norðurgarði 5.
Olafsvík - Ingibjörgu Pétuysdóttur,
Hjarðartúni 36. Grundarfiröi - Halldór
Finnsson, Hrannarstíg 5. ísafirði - Urði
Ólafsd., Versl. Gullauga. Versl. leggurog
Skel. Vestmannaeyjum - Skóbúð Axels
Ó. Akureyri - Gisla J. Eyl. Víði,.8.
Hlönduúsi - Helgu A. Ólafsd. Holtabr. 12
Sauðárkróki - IMargréti Sigurðard.
Raftahlíð 14.
Gamla ísland í Risinu
í Risinu að Hverfisgötu 105 í Reykjavík
voru sl. sumar haldin sérstök kvöld, sem
báru yfirskriftinu „Old lceland". Þarna
var ferðalöngum gert kleift að fá að
smakka gamlan islenskan þjóðlegan mat
og kynning var á íslenskum þjóðlögum
frá ýmsum tíma. Ennfremur var boðið
upp á tískusýningu.
Þarna er í hnotskurn reynt að kynna
lifnaðarhætti (slcndinga í 11 aldir, húsa-
gerð (frá torfkofum til stórhýsa, íslenskan
heimilisiðnað og íslenska tónlist.
Vegna vinsælda þessara kvölda síðasta
sumar hefur verið ákveðið að halda þeim
áfram í ár á föstudögum og sunnudögum
og hefst dagskráin kl. 19.00.
Þeir sem hafa áhuga hafi samband í
síma 29670 og 22781, en þar verður Pctur
Sturluson fyrir svörum ef ferðaskrifstofur
og aðrir, sem hafa með ferðamenn á
íslandi að gera, vilja fá nánari upplýsingar
um „Old Iceland" í Risinu.
Sýning í Eden í Hveragerði
„Leikur að laufum"
Ingibjörg Ásgeirsdóttir sýnir myndir
sínar í Eden í Hveragerði 1.-14. júlí.
Myndir hennar eru þurrkuð og pressuð
lauf, ýmist á silki, léreft eða karton og
unnar á s.l. 2 árum.
Ingibjörg er fædd og uppalin í Hafnar-
firöi. Hún stundaði nám í ensku í Cam-
bridge í Englandi og síðan leiklist við
Central skólann (School of Speech and
Drama) í London . Hún giftist breska
leikaranum Barry Andrews og fór að
stunda „leik að laufum" eftir að hún varð
húsmóðir með 2 börn og sneri sér frá
leiklistinni.
Laufin í myndunum eru að mestu leyti
frá konunglega trjágarðinum í Kew, þar
sem eru að finna trjátegundir alls staðar
að úr heiminum. Ingibjörg heldur sína
fyrstu sýningu heima á Islandi. Sýningin
stendur til 14. júlí.
Reykjavík
Myndabók með enskum textum
Myndir eftir Pál Stefánsson - texti eftir
Sólveigu K. Jónsdóttur.
Myndabókin er um 100 bls. með
Reykjavíkurmyndum frá öllum árstímum
eftir Pál Stefánsson ljósmyndara. Textinn
er eftir Sólveigu K. Jónsdóttur, en enska
þýðingu annaðist Anna Yates. Bókin er
gefin út á vegum Iceland Review og er
framlag þess til 200 ára afmælis Reykja-
víkurborgar. „Það er endalaust verk að
gera Ijósmyndabók um Reykjavík. Ég
tók að mér að skapa mynd af Reykjavík
sem verður auðvitað aldrei annað en
persónulegt álit mitt á borginni," segir
Páll Stefánsson ljósmyndari í örstuttum
eftirmála sínum að Reykjavík - A Fresh
Portrait of Iceiand’s Capital.
REYKJAVÍK
A livt.lt H )itr.tit
ot kcl.tr K)st.Ápilal
ík Í'jÍÍSírlTiis'wxi
Háls-, nef- og eyrnalæknir
á Norðurlandi eystra
og Austurlandi
Einar Sindrason háls-, nef- og eyrna-
læknir ásamt öðrum sérfræðingum
Heyrnar- og talmeinastöðvar íslands
verða á ferð á Norðurlandi eystra og
Austurlandi dagana 7.-13. júlí n.k. Rann-
sökuð verður heyrn og tal og útveguð
heyrnartæki. Farið verður á eftirtalda
staði.
Kópasker...................... 7. júlí
Raufarhöfn ................... 8. júlí
Þórshöfn...................... 9. júlí
Vopnafjörður...................10. júlí
Egilsstaðir........... 11. og 12. júlí
Seyðisfjörður..................13. júlí
Tekið á móti tímapöntunum á viðkom-
andi heilsugæslustöð og er fólki bent á að
panta tíma sem fyrst.
Dregið í tveimur happdrættum
hjá Ferðafélagi íslands
í fyrsta lagi var efnt til happdrættis á
göngudegi F.í. 25. maí sl. Vinninga
hlutu: Gunnar Tyrfingsson, Stórateig 7,
Mosfellssveit - helgarferð að eigin vali
fyrir tvo. Valdimar Helgason, Rauðalæk
23, R. - dagsferð að eigin vali fyrir tvo.
Þorvaldur Tryggvason, Hvassaleiti 121,
R - dagsferð að eigin vali fyrir tvo.
í öðru lagi var efnt til happdrættis fyrir
þá sem tóku þátt í Esjugöngum Ferða-
félgsins í tilefni af 200 ára afmæli Reykja-
víkur og vinningar voru helgarferðir fyrir
tvo að eigin vali. Þeir sem unnu voru
þessir: Hjalti Kristgeirsson, Njálsgötu 12,
R., Selma Hallgrímsdóttir, Bogahlíð 24,
R., Dóra E. Sigurjónsdóttir, Réttarholts-
vegi 69, Málfríður Konráðsdóttir, Leifs-
götu 24 og Jetta Kjærgárd, Grenimel 7.
Vinningshafar eru beðnir að gefa sig fram
á skrifstofu félagsins, Öldugötu 3 og velja
sér ferðir að eigin vali. - Ferðafélag
Islands.
Minningarkort Áskirkju
Minningarkort Safnaðarfélags
Áskirkju hafa eftirtaldir aðilar til sölu:
Þuríður Ágústsdóttir,
Austurbrún 37, sími 681742.
Ragna Jónsdóttir,
Kambsvegi 17, sími 82775.
Þjónustuíbúðir aldraða,
Dalbraut 27.
Helena Halldórsdóttir,
Norðurbrún 1.
Guðrún Jónsdóttir,
Kleifarvegi 5, sími 681984.
Holtsapótek,
Langholtsvegi 84.
Verslunin Kirkjuhúsið,
Klapparstíg 27.
Þá gefst þeim, sem ekki eiga heiman-
gengt, kostur á að hringja í Áskirkju, sími
84035 milli kl. 17.00 og 19.00 á daginn og
mun kirkjuvörður annast sendingu minn-
ingarkorta fyrir þá sem þess óska.
Nýr Smellur
Að venju er í tónlistartímaritinu ým-
iskonar fróðleikur um tónlist. M.a. er
lauslegt yfirlit um ICY-tríóið og söngva-
keppnina, grein um Söndru Kim, Bryan
Adams, Marillion og Pet Shop Boys.
Einnig viðtal við Eddu Heiðrúnu
Backman, Rúnar Þór Pétursson og
George Michael. Ýtarlegar greinar eru
um David Bowie og Madonnu. Fjallað er
um vinsældalistana, hvernig þeir eru
unnir, aðalhástökkvarana á Rás 2, lög
sem hafa verið lengst á lista Rásar 2,
( Smelli er einnig að finna „annál ársins
1985“ þar sem stiklað er á stóru í poppinu
sl. ár. Krossgátan, dómsorðin oggetraun-
in „hver er maðurinn" er allt á sínum
stað. Þar að auki er glæsileg verðlauna-
getraun, þar sem er í boði mjög vandað
sambyggt stereo kasettu- og útvarpstæki.
lextar viö login Gleðibankann og Eg
elska lífið (Sandra Kim) eru í SMELLI
og stórt plakat af ICY-tríóinu.
Tónlistartímaritið SMELLUR er sent
áskrifendum og til sölu í bókabúðum og
blaðsölustöðum og kostar kr. 115. Áskrift
kostar kr. 495 (5 blöð).
Þriðjudagur 8. júli 1986
Hjúkrun
Tímarit Hjúkrunarfélags íslands
í 2. tölubl. Hjúkrunar 1986 er fyrst
grein eftir ritstjóra, Ingibjörgu Árnadótt-
ur, sem nefnist Brautryðjandi kvaddur,
en það er minningarorð um Sigríði Eiríks-
dóttur hjúkrunarkonu, sem lést 23. mars
sl. á92. aldursári. Hjúkrunarfélag íslands
var stofnað 1919 og var hún fyrsti formað-
ur þess.
Áf öðru efni í blaðinu má nefna:
Fræðsla hjúkrunarfræðinga til foreldra og
barna á sjúkrahúsum í Reykjavík. Grein-
ina skrifar María Finnbogadóttir. hjúkr-
unarfræðingur BA. Þá skrifa þrír hjúkr-
unarkennarar: Þróun náms í barnahjúkr-
un við Hjúkrunarskóla íslands og fjórir
bjúkrunarnema: Fræðsluviðfangsefni á
Barnadeild. Sigríður Snæbjörnsdóttir,
hjúkrunarfræðingur M.Sc. birtir stuttan
úrdrátt úr mastersritgerð: Sambandið á
milli þátttöku í ákvarðanatöku og
hollustu í garð stofnunar. Höfundurstarf-
ar nú sem hjúkrunarframkvæmdastjóri á
Landspítala.
Lilja Þormar, hjúkrunarfræðingur
‘M.S.'N. og hjúkrunarframkvæmdastjóri á
Landakoti og stundakennari við Háskóla
íslands, skrifar: Huglægt mat á þjáning-
um sjúklinga. Jóhanna Stefánsdóttir geð-
hjtiLrunarfræSíngur sfcrifar langa grein:
bjaltseyöandi ttegöun og geöhjukrun - Sá
sem viðheldur voninni hjálpar sjálfum
sér. Séra Sigfinnur Þorleifsson, sjúkra-
húsprestur við Borgarspítalann, skrifar:
Sálgæsla á sjúkrahúsum. Sigríður Jó-
hannsdóttir skólastjóri skrifar um Hjúkr-
unarskóla íslands - Litið yfir farinn veg.
Þá eru minningargreinar um Sigríði Eir-
íksdóttur, fyrrv. form Hjúkrunarfélags
(slands og Aslaugu Johnsen hjúkrunar-
konu. Einnig eru fréttir um félagsmál og
auglýsingar um ráðstefnur um hjúkrun og
lausar stöður.
Á forsíðu er hjúkrunarfræðingur við
störf á vökudeild Landspítalans.
DAGSKRÁ
FRA
Þ-V: >.« :
fomhjólp
Samhjálp
3. tbl. 4. árg. af „Dagskrá frá
Samhjálp" er komið út.Fyrsta greininer
um L.P.stofnunina í Svíþjóð, sem rekin er
á 28 stöðum í landinu til bjargar óreglu-
fólki. Lewi Pethrus heitir sá sem stofnaði
til þessarar hjálparstarfsemi í kristilegum
anda. Anna Árnadóttir segir frá ferð í
útlöndum, en frásögnin nefnist „Svartur
engill". Þá er myndaopna frá því er
Hvítasunnusöfnuðurinn í Kirkjulækjarkoti
í Fljótshlíð þáði boð Samhjálpar um að
koma til Reykjavíkur og sjá um eina
samkomu í Þríbúðum, félagsmiðstöð
Samhjálpar.
Það er vindurinn sem hreyfir trén heitir
viðtal við Pétur Sigurgeirsson biskup,
sem ritstjóri Samhjálpar, Óli Ágústsson,
átti við hann. í blaðinu eru einnig kvæði
félagsfréttir og fleira. Útgefandi blaðsins
er Samhjálp Hvítasunnumanna. Á for-
síðu er mynd af eplatré í blóma, eftir C.F.
Hill (1849-1911).
Opið er allan sólarhringinn, síminn er
21205. Húsaskjól ogaðstoð við konur sem
beittar hafa verið ofbeldi í heimahúsum
eða orðið fyirr nauðgun.