Tíminn - 11.07.1986, Blaðsíða 1
MBHH
NART kallast mikil samnorræn menn-
ingarhátíö sem stendur fyrir dyrum í
Reykjavík nú á næstunni. Fá þar ýmsar
listgreinar aö njóta sín, en hæst mun
væntanlega bera málverkasýningu sem
verður til húsa í risaskemmu við Sigtún.
ÖKUMAÐUR var stöðvaöur á
Hörgárbraut á Akureyri (gær, eftir að hafa
ekið bifreið sinni á liðlega 100 km hraða
um bæinn. Að sögn lögreglunnar var
hann grunaður um ölvun við akstur.
STJÓRN Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands hefur verið skipuð af menntamála-
ráðherra. Eftirtaldir menn voru skipaðir í
stjórnina. Jón Þórarinsson tónskáld, til-
nefndur af Reykjavíkurborg, Hörður Sig-
urgestsson forstjóri, tilnefnduraf fjármála-
ráouneyti, Elfa Björk Gunnarsdóttir fram-
kvæmdastjóri, tilnefnd af ríkisútvarpinu,
Haukur Flosi Hannesson, tilnefndur af
Starfsmannafélagi Sinfóníuhljómsveitar-
innar og Ólafur B. Thors framkvæmda-
stjóri skipaður án tilnefningar. Ölafur er
jafnframt formaður stjórnarinnar. Skipun-
artími stjórnarinnar er fjögur ár.
COSSIGA Ítalíuforseti hefur beðið
Giulio Andreotti úr flokki Kristilegra demó-
krata að reyna að mynda ríkisstjórn en
stjórnarkreppa hefur ríkt síðan ríkisstjórn
Craxi sagði af sér þann 27. júní síðastlið-
inn. Andreotti er gamall stjórnmálarefur,
hefur verið fimm sinnum forsætisráð-
herra. Hann var utanríkisráðherra í sam-
steypustjórn Craxi.
LE DUAN leiðtogi kommúnista-
flokksins í Víetnam lést í Hanoi í gær 79
ára að aldri. Le Duan var hægri hönd
leiðtoga Norður-Víetnams, Ho Chi Minhs
heitins og barðist fyrir sjálfstæði lands
síns í stríðinu við Frakka 1945-'53. Síðar
hjálpaði hann Norður-Víetnömum í styr-
jöldinni við nágranna sína í suðri og
Bandaríkjamenn. Hann tók við æðsta
embætti flokks síns árið 1969 að Ho Chi
Minh látnum og hafði mikil völd þótt ekki
bæri mikið á honum út á við.
BHMR mun halda almennan félags-
fund í dag kl. 14:00 á Hótel Sögu í
Súlnasal. Þar verða úrslit Kjaradóms
kynnt og ákvarðanir sem samninganefnd
BHMR hefur tekið í framhaldi af þeim. í
gær skoraði samráðsfundur samninga-
nefnda aðildarfélaga BHMR og Launa-
málaráðs á Launamálaráð að segja þegar
í stað upp gildandi samningum og knýja
á um fullan samningsrétt, jafnframt því að
hvetja félagsmenn til að leita allra leiða í
kjarabaráttunni.
UNGMENNAFÉLAGIÐ Vaka
í Villingaholtshreppi verður 50 ára hinn
19. júlí n.k. Félagið hefur haldið uppi
öflugri félags- og íþróttastarfsemi síðan
1936. Á fimmta áratugnum var félagið t.d.
þekkt fyrir mikla glímukappa. í dag er
félagslíf enn með miklum blóma,
skemmtanir og íþróttamót eru haldin
ásamt námskeiðum í ýmsum efnum.
Félagið hefur ákveðiö að halda upp á
afmælið með því að bjóða hreppsbúum,
vinum og vandamönnum til afmælishófs í
Þjórsárveri kl. 21:00 að kvöldi afmælis-
dagsins. Þar verður margt til skemmtunar
og dansleikur um kvöldio.
MADUR varð fyrir bíl á strætisvagna-
skiptistöðinni í Kópavogi í aær. Hann var
að flýta sér yfir götuna til ao ná strætó en
gekk þá í veg fyrir bíl og lenti með fótinn
undir afturhjóli bíls sem kom aðvífandi.
Maðurinn var fluttur á slysadeild en
meiðsli hans voru ekki talin alvarleg og
hann fékk að fara heim að skoðun lokinni.
KRUMMI
Ég flýg alla vega
dag...
Kjaradeila flugvirkja og Arnarflugs seint í gærkvöldi:
Allt bendir nú til
lausnar gerðardóms
Tilboð og gagntilboð ganga hér á milli, sagði Oddur Pálsson
form. Flugvirkjafélags Islands
„Það hafa gengið hérna á milli
tilboð og gagntilboð og í þeim felst
aðallega það, hvort deilunni verður
vísað til gerðardóms, sem báðir
aðilar sætta sig við. Úrskurður
gerðardóms myndi sennilega koma
eftir um mánaðartíma. Þetta er á
hugmyndagrundvelli ennþá, því
það hefur ekki verið samkomulag
um hvað á að taka til grundvallar í
gerðardómsákvörðuninni. í þeim
efnum er ákveðinn ágreiningur.
Það fór tilboð frá okkur um elleíu-
leytið og þeir eru að skoða það
núna,“ sagði Oddur Pálsson for-
maður Flugvirkjafélags íslands í
samtali viðTímann um kl. hálf tólf.
„Ef botninn dettur úr þessum
viðræðum, þá kemur náttúrlega til
verkfalls á miðnætti, en það er
alveg ómögulegt að segja til um
það núna,“ sagði Oddur.
Matthías A. Bjarnason sam-
gönguráðherra sagðist ekki vilja
segja neitt um það hvort ríkis-
stjórnin setti bráðabirgðalög á
verkfall flugvirkja hjá Arnarflugi
ef sættir næðust ekki fyrir miðnætti
þegar boðað verkfall skylli á. „Ég
bíð alveg með slíkar ákvarðanir á
meðan samningafundir standa yfir.
Þeir hafa í nógu að snúast
starfsmenn bifreiðaeftirlits-
ins, ökutækjum hefur fjölgað
mjög á undanförnum mánuð-
um, og þeir eru víst ófáir sem
fá grænan miða eða rauðan í
stað þess hvíta. Hér er Krist-
inn Karlsson að störfum.
Tímamynd-Pétur
Notaðir bílar:
Einn af fjórum fær
ekki hvítan miða
Mikil fjölgun skráninga
Af þeim 514 bifreiðum í landinu
öllu, sem komu inn til skoðunar
síðastliðinn þriðjudag, reyndist
búnaði 98 bifreiða að einhverju
leyti áfátt. Nýskráningar voru 75 af
þcim 416 bifreiðum sem fengu
hvítan miða. Fyrir utan glænýja
bíla reyndist því tæplega fjórðung-
ur bifrciða sem komu til skoðunar
þennan dag ekki fullnægja kröfum
bifreiðaeftirlitsins.
Þessar upplýsingar komu fram
þegar Tíminn ræddi við Lárus
Sveinsson, verkstjóra hjá bifreiða-
eftirlitinu í gær. Taldi Lárus þessar
tölur gefa nokkuð rétta mynd af
ástandi bílaflota landsmanna.
Sagði Lárus að mjög mikil aukn-
ing skráninga hefði orðið eftir að
bílar lækkuðu í verði. Flesta daga
kæmu á milli 40 og 50 nýir bílar til
skráningar og á föstudögum væri
fjöldinn milli 100-150. Ef með
væru taldar eldri bifreiðar af-
greiddu þeir um 260 bíla á dag, en
síðasta föstudag hefðu komið inn
363 bílar.
„Það er mikið vandamál að fólk
kemur ekki með bílana til skoðun-
ar á réttum tíma. Nú í júlí átti t.d.
engin skoðun að vera en þó er
yfirum að gera. Það má segja að
við séum að skoða trassana. þá
sem áttu að vera komnir inn, við
skoðum enga í þessum mánuði
sem hafa númer yfir R-60000."
„Það er feikn mikið af gömlum,
lélegum bílum á götunum núna,“
sagði Kristinn Karlsson, bifreiða-
eftirlitsmaður. Hér eru sumarfrí
og því ekki mannskapur til að fara
út á göturnar, og sama gildir um
lögregluna. En það vcrður bætt úr
þessu fljótlega. Þeir sem fá hjá
okkur grænan miða, fá tveggja
vikna frest til að kippa málum í lag.
Ef þeir koma ekki að þeim tíma
liðnum tekur lögreglan þá þegar
hún hefur færi á, og þeir eru settir
í skoðun aftur. Yfirleitt er þeim
gefinn frestur aftur til að bæta úr
málunum.
Það er lítið um að fólk kvarti
við okkur, það er yfirleitt sann-
gjarnt og við reynum að vera það
líka. “ phh
Ég er í nánu sambandi við sátta-
semjara og vil engar yfirlýsingar
gefa fyrr en samningaumleitanir
, stranda. Það má búast við að samn-
i.ngaviðræður standi fram eftir
nóttu og þá er aldrei að vita nema
semjist," sagði Matthías.
Arnarflug hefur nú þegar samið
við flugfreyjur og flugmenn og
voru þeir samningar án gildistöku
aftur í tímann. Flugvirkjar hafa
hins vegar gert kröfu um aftur-
virkni samninga til 1. janúar.
Ef til verkfalls kemur, stöðvast
! öll starfsemi Arnarflugs um leið og
verkfall skellur á. Vegna erfiðrar
fjárhagsstöðu Arnarflugs er ekki
fyrirsjáanlegt hvaða afleiðingar
það hefði fyrir starfsemi Arnar-
flugs til frambúðar. Margir hafa
látið að því liggja að loforð um
hlutafé í félagið verði drcgin til
baka og hluthafafundi yrði frestað,
ef reksturinn stöðvast.
ABS
Bandaríkjamenn af-
panta angóraband:
Vegna lít-
illa gæða
vörunnar
- tólf mánaða starf
unnið fyrir gýg
Bandarískir kaupendur
handprjónagarns úr angóra, frá
Álafossi, hafa afpantað allar
sínar pantanir, þar sem þeir
telja vöruna ósöluhæfa, vegna
lítilla gæða. Kaupendur setja
fyrir sig að bandið er alsett
hnökrum eða kúlum, vegna
tvíklippinga.
í frétt frá Álafossi segir að
með þessu sé tólf mánaða starf
unnið fyrir gýg, en jafnframt
hyggur fyrirtækið á tilrauna-
starf innan skamms, með nýja
tegund af bandi úr angóra.
Einnig er það ætlun fyrirtækis-
ins að þjálfa betur sína menn í
gæðaeftirliti með bandinu.
Óvíst_ er hvort fyrirtækið get-
ur tekið við meira af angóra-
hári það sem eltir er ársins þar
sem meira en nóg er til af þeim
fyrir tilraunastarfsemina.
-ES