Tíminn - 11.07.1986, Blaðsíða 15
Tíminn 19
Föstudagur 11. júlí 1986
lllllllllllllllllHlllllllll HELGIN FRAMUNDAN llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
Símon ívarsson frumflytur m.a. verk
eftir John Speight á tónleikunum.
Viktoría Spans er ættuð frá Patreks-
fírði en er að konta þangað í fyrsta
sinn þegar hún heldur þar tónleika
nk. fímmtudag.
Kaffi-konsertar
íslensk-hollensk söngkona Vikt-
oría Spans og gítarleikarinn Símon
ívarsson hafa verið á tónleikaferða-
lagi um Norðurland undanfarna
daga. Síðustu tónleikar þeirra á
Norðurlandi verða í Zontahúsinu á
Akureyri laugardaginn 12. júlí kl.
15.30. en þaðan halda þau til Vest-
fjarða.
Fyrstu tónleikarnir þar verða
mánudagskvöldið 14. júlí kl. 20.30 í
sal Frímúrarahússins á ísafirði. Þess-
ir tónleikar eru haldnir á vegum
Tónlistarfélagsins og Listasafns ísa-
fjarðar í tilefni 200 ára afmælis
ísafjarðar. Næstu tónleikar Viktoríu
og Símonar eru í Félagsheimilinu í
Bolungarvík þriðjudagskvöldið 15.
júlí kl. 20.30. Miðvikudagskvöldið
16. júlí kl. 20.30 leika þau í mötu-
neyti Hjálms hf á Flateyri. Síðustu
tónleikarnir á Vestfjörðum eru síðan
á Patreksfirði fimmtudaginn 17. júlí
kl. 20.30 í Félagsheimilinu.
Fyrirkomulag og titill þessara tón-
leika Viktoríu og Símonar er „Kaffi-
konsert", en það er þannig að tón-
leikagestir geta fengið sér Diletto-
kaffi óg meðlæti í hléi og á eftir
tónleikana ásamt flytjendum. Þetta
fyrirkomulag er vinsælt í Hollandi,
og er án efa til þess fallið að veita
meiri fjölbreytni í mannlífið.
Á efnisskránni eru íslensk og
spænsk lög, meðal verka eru þjóðlög
og lög eftir Pál ísólfsson, Emil
Thoroddsen. Gunnar Reyni Sveins-
son. Isaac Albeniz, Manuel de Falla
o.fl.
Sýning í Eden í Hverageröi:
„Leikur að laufum“
Ingibjörg Ásgeirsdóttir sýnir
myndir sínar í Eden í Hveragerði
1.-14. júlí. Myndirhennareru þurrk-
uð og pressuð lauf, ýmist á silki,
léreft og karton og eru unnar á sl. 2
árum.
Ingibjörg er fædd og uppalin í
Hafnarfirði. Hún stundaði nám í
ensku í Cambridge í Englandi og
síðan fór hún í leiklistarskóla í
London. Hún giftist breskum
leikara, Barry Andrews, og fór að
stunda „leik að laufum'* - þ.e. að
gera myndir sínar úr þurrkuðum og
pressuðum laufum, þegar hún varð
húsmóðir með 2 börn og sneri sér frá
leiklistinni.
Svavar Guðnason listmálari.
Norræna húsið:
Svavar Guðnason, næst-
síðasta sýningarhelgi
í Norræna húsinu stendur enn yfir
sýning á verkum Svavars Guðnason-
ar, en senn fer að styttast í, að henni
ljúki. Sýningin, sem opnuð var 14.
júní, gefur gott yfirlit um list
Svavars, einkum áratuginn 1940-50.
Þessi helgi er næstsíðasta sýningar-
helgi, því að sýningunni lýkur sunnu-
daginn 20. júlí og hún verður ekki
framlengd. Aðsókn hefur verið góð
allan sýningartímann. einkum um
helgar og má því búast við nokkurri
örtröð síðustu dagana. Það er því
ráðlegt fyrir þá, sem ætla sér að sjá
sýninguna að draga ekki of lengi að
notfæra sér þetta einstaka tækifæri
til þess að skoða úrval verka eftir
Svavar Guðnason.
Sýningineropindaglegakl. 14-19.
Hana nú-
gangan
í Kópavogi
Hin vikulega laugardagsganga
Frístundahópsins Hana nú í Kópa-
vogi verður á morgun, laugard. 12.
júlí. Lagt afstað frá Digranesvegi 12
kl. 10.00.
Rölt verður um bæinn í klukku-,
tíma. Markmiðið er: Samvera, súr-
efni, hreyfing. Allir aldurshópar.
Athugið: Fyrri stórferð heildar-
samtaka Hana nú verður einnig
farin á morgun. Lagt af stað frá
Digranesvegi 12 kl. 09.00. Farið
verður til Borgarfjarðar og í Borg-
arnes. Leiðin liggur um Þingvelli,
Kaldadal, Húsafell, Barnafossa,
Reykholt og Borg á Mýrum. Aðal-
leiðsögumenn verða Jón Böðvarsson
cand. mag. og Gylfi Þ. Einarsson
jarðfræðingur, en heimamenn munu
að venju taka á móti Hana nú
félögum eins og venja er í slíkum
ferðum.
Rúturnar verða við Digranesveg
12 kl. 09.00.
Sumarsýning
Listasafns
A.S.Í.
Á morgun, laugardaginn 12. júlí,
byrjar í Listasafni A.S.Í. „Sumar-
sýning“ en þar verða sýnd 40 verk
í eigu safnsins. Sýningin verður
opin alla daga vikunnar kl. 14.00-
18.00 og henni lýkur sunnudaginn
24. ágúst.
Árbæjarsafn
Nýopnuð sýning í Prófessorshús-
inu frá Kleppi er opin alla daga kl.
13.30-18. Lokuð á mánudögum.
Sunnudaginn 13. júlí leikur gítar-
leikarinn Þórarinn Sigurbergsson á
gítar kl. 15-17 hér á staðnum.
Upplyfting á
Vestfjörðum
I kvöld, föstudagskvöldið 11. júlí
leikur hljómsveitin Upplyfting fyrir
dansi á Flateyri kl. 23.00-03.00.
Á morgun, laugardag, verður
hljómsveitin í Félagsheimilinu í
Hnífsdal og spilar á dansleik til
03.00 um nóttina.
Hljómsveitarmeðlimir hafa hugs-
að sér að hafa barnaskemmtun á
Hnífsdal á laugardaginn kl. 17.00-
19.00.
Leyndarmálið um langlífí mitt og háan aldur, - góður kokkur, nóg hvfld og
nógir peningar.
Skopteikningar úr
New Yorker Magazine
sýndar í Menningar-
stofnun Bandaríkjanna
Opnuð hefur verið sýning í Menn-
ingarstofnun Bandaríkjanna á skop-
teikningum, sem hafa birst í hinu
þekkta ameríska tímariti The New
Yorker Magazine sfðastliðin 60 ár.
Sýningin er opin á fyrstu hæð í
Menningarstofnun Bandaríkjanna,
Neshaga 16, kl. 08.30-17.30daglega,
nema á fimmtudögum kl. 08.30-
20.00. Allir eru velkomnir.
Prófessorshúsið frá Kleppi í Árbæjarsafni hefur verið opnað almenningi til sýnis,
(Tímamynd Pctar)