Tíminn - 24.07.1986, Page 16
Skagamenn og Framar-
ar tryggðu sér sæti l undanúrslitum
mjólkurbikarkeppni KSf í knattspyrnu
í gærkvöldi í hörkuleikjum við Blikana
og KR. Báðir leikirnir voru framlengdir
og í Kópavogi unnu Skagamenn á
vítaspyrnukeppni á síðustu stundu.
Pétur Ormslev skoraði hinsvegar
þrennu í sjgri Framara og KR í vestur-
bænum. í kvöld spila FH-ingar og
Keflvíkingar í Krikanum.
Iímiim
Reglugerö um landbúnaðarframleiösluna:
Verið er að gera söluátak til að örva neyslu á lambakjöti. Fjallalambið er orðið
vel þekkt og nú í kjölfar verðlækkunar vegna niðurgreiðslna verður lögð
áhersla á pökkun og frágang dilkakjötsins.
. i. x . x | Tímuinynd: - Sverrir.
Niöurgreiöslur:
Dilkakjöt lækkar
um 20% í smásölu
Niðurgreiðslur á dilkakjöti hafa
nú verið auknar og með þeim kemur
kjöt til með að lækka í smásölu um
20%.
Niðurgreiðslur á hvert kíló í I.
flokki er nú 82,08 en var áður 40,78.
Lækkun þessi gildir út söluárið,
þ.e.a.s. á meðan kjötið verður til.
Þetta er einhver mesta lækkun sem
átt hefur sér stað í einu stökki á
dilkakjöti og kemur það einkum til
af því að niðurgreiðslur voru orðnar
mjög lágar í hlutfalli við söluverð
miðað við það sem oft hefur veriö
áður.
Niðurgrciðslur þessar koma inn í
vísitöluútreikninginn 1. ágúst og
koma til með að halda í við vísitöl-
una um leið og sala ætti að örvast
töluvert mikið, því hér er um mikla
lækkun að ræða.
ABS
Mengun
við Reykja-
víkurhöfn
Mengun við Reykjavíkurhöfn
sést á þessari mynd sem prýðir
forsíðu „Verktækni", blað Tækni-
og verkfræðingafélags Islands.
Myndin er tekin með fjölrófs-
skanna á hita-innrauðasvæðinu.
Myndin er úr tilraun með fjarkönn-
un sem Landmælingar íslands og
Upplýsinga- og merkjafræðistofa
Háskóla íslands hafa staðið að.
Prentist myndin vel í svart-hvítu
má greina hversu mengunina legg-
ur út frá ströndinni.
Matvörur frá Austur-Evrópu:
Innflutnings-
banni aflétt?
Höfö veröur hliðsjón af nágrannalöndunum í því efni
í athugun er að aflétta innflutn-
ingsbanni á matvörum frá Póllandi,
Ungverjalandi, Búlgaríu, Rúmen-
íu ogTékkóslóvakíu. I framtíðinni
yrði þá eingöngu innflutningsbann
á matvörum frá Sovétríkjunum
vegna kjarnorkuslyssins í Cherno-
byl. Þetta er nú í athugun hjá
Hollustuvernd, Geislavörnum
ríkisins og heilbrigðisráðuneytinu.
Að sögn Halldórs Runólfssonar
deildardýralæknis hjá Hollustu-
vernd hefur ekki fundist neitt ath-
ugavert í matvælainnflutningi þess-
um en þetta eftirlit mun verða
áfram að einhverju leyti næsta ár.
Frá því kjarnorkuslysið í
Chernobyl varð, hefur Hollustu-
vernd veitt um 6 undanþágur til
innflutnings matvara frá Austur-
Evrópu. Þar er um að ræða sultur
og niðursoðin ber sem Ó. Johnson
& Kaaber, íslensk-erlenda og Karl
og Birgir hafa flutt inn. Mata hf.
hefur fengið undanþágu til að flytja
inn kartöflur ög tveir rækjufarmar
hafa verið fluttir inn. Annar farm-
' urinn var veiddur fyrir slysið en
hinn var ekki ætlaður til neyslu
innanlands heldur fullvinnslu og
síðan sölu út úr landinu aftnr.
ABS
Skipting búmarks
og fullvirðisréttar
- fariö veröur eftir flóknum skerðingarreglum í kindakjötsframleiöslu ef
kjötinnlegg verður meira en heildarfullviröisrétturinn
Fullvirðisrétti mjólkur og sauð-
fjárframleiðslu er skipt í tveimur
áföngum, annars vegar milli bú-
markssvæðanna 26 og hins vegar
milli einstakra framleiðenda innan
hvers svæðis.
Fullvirðisréttur búmarkssvæöis til
mjólkurframleiöslu fyrir komandi
verðlagsár er fundinn með því aö
heildarfullviröisréttur allra mjólk-
urframlciðenda sem fcngu úthlutað
fullvirðisrétti verðlagsárið ’85-’86 er
margfaldaður með heildarfullvirðis-
rétti til mjólkurfrantleiðslu verðlags-
árið !986-’87 og síðan deilt í mcö
heildarfulIviröisrétti allra mjólkur-
framlciðenda sem úthlutaö var skv.
reglugerðum nr. 37 og 178 frá 1986.
Fullvirðisréttur einstakra bænda
er síðan fundinn út með því að
margfalda fullvirðisrétt sem fram-
leiðanda var reiknaður 1986 með
heildarfullvirðisrétt til mjólkurfram-
leiðslu ’86-’87 sem síðan er deilt í
með heildarfullvirðisrétti allra
mjólkurframleiðenda ’85-’86.
Frá fullvirðisrétti búmarkssvæðis
skal draga fullvirðisrétt sem úthlutað
var til einstakra mjólkurframleið-
enda á árinu ’85-’86 en ekki reyndist
þörf á að nýta á því verðlagsári. Ef
mjólkurframleiðandi nýtir ekki full-
virðisrétt sinn á verðlagsárinu fá
aðrir framleiðendur það sem ónýtt
er, og skiptist það hlutfallslega þann-
ig að fyrst koma þeir sem fengu
lægra hlutfall af búmarki en svarar
til fullvirðismarks svæðisins, sem
skipt er hlutfallslega á milli þeirra
upp að fullvirðismarki. Næstir koma
þeir sem fá úthlutað upp að búmarki
á svæðinu og síðast þeir sem staðsett-
ir eru á öðrum svæðum, en svipað er
ástatt fyrir.
Fullvirðisréttur búmarkssvæðis á
sauðfjárafurðum fyrir verðlagsárið
1986-’87 er fundinn út með því að
heildarfullvirðisréttur til framleiðslu
kindakjöts er margfaldaður með
grunntölu búmarkssvæðis (scm er
innvegið kindakjöt svæðisins verð-
lagsárin 1984-’85 og 1985-’86. Pað ár
sem kjötmagnið er meira er valið
semgrunntala). Samanlagðargrunn-
tölur allra búmarkssvæða landsins
eru síðan notaðar til að deila í
útkomuna úr hinu tvennu. Fullvirð-
ismark svæðis er fundið út með því
að deila samanlögðu sauðfjárbú-
marki allra framleiðenda á svæðinu
verðlagsárið 1984/’85 í fullvirðisrétt
búmarkssvæðis til framleiðslu kinda-
kjöts.
Fullvirðisréttur hvers framleið-
anda kindakjöts er reiknaður ef
kjötinnlegg reynist meira en heild-
arfullvirðisrétturinn. Þá verður fylgt
þeim reglum, að framleiðendum
kindakjöts í þéttbýli verður út-
hlutaður fullvirðisréttur sem nemur
að hámarki 70% af búmarki þeirra,
engum verður veittur meiri réttur en
sem nemursauðfjárbúmarki lögbýlis
hans, nema sérstaklega standi á.
Þurfi að grípa til frekari skerðingar
á fullvirðisrétti en að framan greinir
þá vcrður skert hjá þeim fram-
leiðendum sem nýta meira af sauð-
fjárbúmarki sínu en sem svarar til
fullvirðismarks viðkomandi svæðis,
um það sem innleggið ’86-’87 er
meira en árið 1984-’85 eða 1985-’86
eftir því hvort árið var meira lagt
inn. Ef þessi skerðing dugir ekki til
verður gripið til skerðingar fullvirð-
isréttarfrá búmarki þannig að 95-
100% búmarks skerðist um 10% að
hámarki, 90-95% búmarks skerðist
um 7%, 85-90% búmarks skerðist
um 5%, 80-85% búmarks skerðist
um 3% og 75-80% búmarks skerðist
um 1%
Búnaðarsamböndum er þó heimilt
að ákveða að aðilar sem uppfylla
ákveðin skilyrði samkvæmt reglu-
gerðinni verði undanþegnir þessum
skerðingarákvæðum, en það eru
einkum minnstu búin, þeir sem orðið
hafa fyrir áföllum á árunum ’84-’86,
þeir sem teljast frumbýlingar og þeir
sem stækkað hafa útihús eða stofnað
hafa félagsbú. ABS