Tíminn - 24.10.1986, Side 11

Tíminn - 24.10.1986, Side 11
SVONA GERUM VIÐ Tíminn 11 Föstudagur 24. október 1986 llllllllllllllllllllllll BÆKUR Alkóhólistar segja frá Bókaútgáfan Forlagið hefur sent frá sér bókina Og svo kom sólin upp. Hún hefur að geyma frásagnir ís- lenskra aikóhólista og aðstandenda þeirra, sem segja frá í viðtölum við Jónas Jónasson, rithöfund og út- varpsmann. Þau sem segja sögur úr lífi sínu eru Anna Þorgrímsdóttir og Ragn- heiður Guðnadóttir. sem báðar gegna ábyrgðarstöðum á vettvangi SAÁ, læknarnir Þórarinn Tyrfings- son og Guðbrandur Kjartansson, íþróttakappinn Gunnar Huseby, Þórunn H. Felixdóttir kennari, Þrá- inn Bertelsson, ritstjóri, séra Hall- dór Gröndal, Jóhanna Birgisdóttir, blaðamaður, Tómas Agnar Tómas- son, iðnrekandi, Tómas Andrés Tómasson, veitingamaður, Helga Björnsdóttir kennari og tónlistar- mennirnir Ólafur Gaukur, Pálmi Gunnarsson og Sigfús Halldórsson. Loks segir Jóhannes Bergsveinsson læknir frá starfi sínu í þágu íslenskra alkohólista. 1 upphafi bókarinnar segir Jónas Jónasson m.a.: „Hér getur að lesa af fólki sem barðist ogsigraði. Það lifði í myrkri, vonleysi veikinda og ein- semdar, það lifði í ótta. Af hverju á þetta fólk erindi við þig? Það ætlar ekki að segja þér ævisögu sína, heldur brot úr sögu þegar dagar voru dimmir. Og svo kom sólin upp. Þar sem er vilji, jíar er von. Leitaðu ekki langt yfir skammt að friði. Það eru til þekktar leiðir. - Það góða fólk serri kom til að segja frá í þessari bók sannar það. Eg virði hugrekki þess og drengskap. Á kápubaki bókarinnar segir m.a.: Hér er áhrifamikil bók sem á erindi við alla sem láta sig mannleg örlög cinhverju varða. Hér er lýst átakanlegri lífsreynslu, langri og strangri baráttu fólks sem sigraði að lokum. Einlægni þess oghispursleysi snerta tilfinningar allra þeira sem finna þörf til að lifa betra og auðugra lífi - í sátt við sjálfa sig og aðra. Og svo kom sólin upp er 202 bls. Margrét Helgadóttir hannaði kápu. Prentsmiðjan Oddi hf. prentaði. Jónas Jónasson. Auglýsing frá fjárveitinganefnd Alþingis Fjárveitinganefnd Alþingis mun sinna viðtölum vegna afgreiðslu fjárlaga 1987 frá 27. okt. - 14. nóv. nk. Beiðnum um viðtöl við nefndina þarf að koma á framfæri við starfsmann nefndarinnar, Runólf Birgi Leifsson, í síma 11560 eftir hádegi eða skriflega eigi síðar en 7. nóvember nk. Skrifleg erindi um fjárveitingabeiðnir á fjárlögum 1987 þurfa að berast skrifstofu Alþingis fyrir 14. nóvember nk. ella er óvíst að hægt verði að sinna þeim. Fjárveitinganefnd Alþingis Nei takk ég er á bílnum * 3c{, 7* ’ii Íl ■3V IU. 'Í.iií * i;» is 6- l <7lh BAIIKURINN, KJÖRBÓKIN OG LANDSBANKINN HJÁLPA ÞÉR AÐNÁENDUNI SAMAN Þegar lítið fólk ræðst í stórar fjárfestingar er gott að minnast þess að margt smátt gerir eitt stórt. Smámynt sem safnað er í sparibauk og síðan lögð á Kjörbók stækkar og ávaxt- ast hraðar en þig grunar. Bangsa baukurinn fæst í öllum sparisjóðsdeildum Lands- bankans. Þegar spariféð úr honum er lagt inn er Kjörbók- in vísasta leiðin að settu marki. Barnið, baukurinn og bankinn leggjast á eitt; tölurnar hækka og að lokum ná enda.r saman. Kennum börnunum okkar að spara peninga og ávaxta þá, það er gott veganesti og gagnlegt. Landsbanki íslands Banki allra landsmanna í 100 ár

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.