Tíminn - 21.11.1986, Page 2
2 Tíminn
Föstudagur 21. nóvember 1986
Hólmavík:
Nýtt fiskverkunar-
hús að rísa
Nú stendur yfir bygging fiskverk-
unarhúss á Hólmavík. Það er hluta-
félagið Hlein hf., sem byggir húsið,
cn þetta félag var stofnað sl. sumar
og er eign útgerðarmanna á
staðnum.
Hið nýja hús er 864 m2 að stærð
og er því ætlað að rúma bæði
veiðarfærageymslu og fiskverkun.
Veiðarfærageymslan leysir því af
hólmi ýmsa skúra, sem komnir voru
til ára sinna og nær ónýtir.
Stefnt er að því að hefja fiskverk-
un í nýbyggingunni í lok janúar á
næsta ári. Síðar er stefnt að uppsetn-
ingu frystitækja.
Að sögn Gunnars Jóhannssonar,
framkvæmdastjóra Hleinar hf., mun
mestur hluti hráefnis í fiskvinnsluna
koma frá línubát, sem að undan-
förnu hefur sent afla sinn í gámum á
Bretlandsmarkað. Samkvæmt því
mun hið nýja fyrirtæki ekki keppa
við frystihús kaupfélag'sins um hrá-
cfni.
Nýbygging Hleinar hf. er reist úr
steyptum einingum frá Loftorku í
Borgarnesi og tók það verk um 6
vikur. Nú cr verið að vinna við gólf
og ganga frá húsinu að innan, en eins
og áður sagði er stcfnt að því að taka
húsið í notkun eftirca. 2 1/2 mánuð.
Framsókn Reykjanesi:
Átta gefa
kost á sér
Frestur til þess að tilkynna að
menn hyggist gefa kost á sér á
lista Framsóknarflokksins á
Reykjanesi rann út sl. laugardag,
en valið verður á listann á fram-
haldsþingi kjördæmasambands-
ins um næstu helgi. Alls munu 8
manns gefa kost á sér, en þau eru:
Elín Jóhannsdóttir, Kópavogi,
Gylfi Guðjónsson, Mosfcllssveit,
HilmarÞ. Hilmarsson, Njarðvík,
Inga Þyrí Kjartansdóttir, Kópa-
vogi. Jóhann Einvarðsson, Kefla-
vík, Níels Árni Lund, Hafnar-
firði, Steingrínrur Hermannson,
Garðabæ, Þorlákur Oddson,
Hafnarfirði.
Tillaga á Kirkjuþingi:
Jöfnunarsjóður
verði stofnaður
Tillaga til þingsályktunar um
jöfnunarsjóð héraðssjóða kirkju-
safnaða var flutt á Kirkjuþingi á
þriðjudag og Kirkjuráð hvatt til þess
að láta kanna hvernig nýsett lög um
sóknargjöld reynast í heild í sóknum
landsins. Jafnframt að hugað verði
að því hvernig bæta megi hag fá-
mennustu safnaðanna.
Samkvæmt nýjum lögum um
sóknargjöld er heimilt að 5% sókn-
argjalda renni í héraðssjóði, en tekj-
ur héraðssjóðanna fara eftir mann-
fjölda hvers héraðs. Það gefur því
auga leið að héraðssjóðirnir fá mjög
mismunandi tekjur þar sem þær fara
eftir fjölda sóknarbarna og tekjum
þeirra.
Hins vegar eru verkefnin oft jafn
mörgogvíðtæk ífámennusöfnuðun-
um. Sum prófastsdæmi eru t.d. með
sameiginleg verkefni, svo sem
kirkjumiðstöðvar. Ein slík er á Aust-
urlandi. { slíkum miðstöðvum fer
fram ýmiss konar starfsemi svo sem
sumarbúðir og öldrunarbúðir þar
sem fólk á þess kost að dvelja sér til
hressingar og skemmtunar. Þar er
einnig hægt að halda kóramót og
margt fleira.
Þessi starfsemi hefur verið í leigu-
húsnæði hingað til og mikið fjár-
magn þarf til þess að koma þeim
upp. Héraðasjóðirnir sem fá fjár-
magn sitt frá fáum sóknarbörnum
hafa ekki mikla peninga til að leggja
í þessi sameiginlegu verkefni og
hugsunin á bak við jöfnunarsjóð er
því sú að stóri maðurinn hjálpi litla
manninum.
Ef að líkum lætur ættu kirkjumið-
stöðvar út um land að vera hags-
munamál allra þar sem ekki yrði
bundið við einstök prófastdæmi
hverjir ættu kost á aðstöðu í þeim,
heldur væri farið eftir svipuðum
reglum og t.d. einstök félagasamtök
nota varðandi úthlutanir á sumar-
búðum sínum.
Ekki var gerð endanleg samþykkt
um málið á þessu Kirkjuþingi en
vísað til nefndar vegna þess hve það
var talið viðamikið.
ABS
Vegna forsíðuviðtals í gær:
Misskilningur á ferð
segir Jóhannes Nordal
Jóhannes Nordal. seðlabanka-
stjóri hafði samband við Tímann í
gær, og vildi koma á framfæri að
einhvers misskilnings hefði gætt milli
hans og blaðamanns í viðtali scnr
birtist á forsíðu Tímans í gær. Þar
lagði blaðamaður eftirfarandi spurn-
ingu fyrir Jóhannes: „En telur þú
yfirtöku Búnaðarbanka á Útvegs-
banka lakari kost cn að hann verði
sameinaður Verslunar- og Iðnaðar-
banka ?“ Þessu svaraði Jóhanncs. i
„Nei, nei, það segi ég alls ekki...
Vildi Jóhannes að það kæmi fram að
hann hefði skilið spurningu blaða-
manns á þann vcg að spurt hafi verið
unr hvort sameining Búnaðarbanka
og Útvegsbanka væri lakari kostur
cn að Búnaðarbankinn yfirtæki Út-
vcgsbankann, cnda hafi viðtalið að
hluta snúist um það. Ekki trcysti
Jóhanncs sér til að skera úr um með.
hverju eða hverjum þessi misskiln-
ingur væri að kenna.
Vcgna þessa vill blaðamaður að-
eins taka fram að ofangreind
spurning, einsoghún birtist íTíman-
unt í gær, var lögð orðrétt fyrir
Jóhannes Nordal, og treystir blaða-
maður sér ekki heldur til að skcra úr
um af hverju þessi misskilningur
kann að stafa. Ritstj.
Póstþjónustan:
Jólapóstflóðið
í uppsiglingu
Fólk hugi að sendingu jólaglaðnings
Nú fer að líða að árlegu jólapóst-
flóði scm hellist vfir starfsmenn
póstþjónustunnar þegar jólin fara
að nálgast. Fyrir þá sem hyggjast
senda vinum og ættingjum í fjar-
lægari heimshlutum jólaglaðning,
þá cr ekki seinna vænna að konta
jójapökkum í póst. Síðustu forvöð
til að koma pökkum í sjópóst til
Ameríku er 11. desember, en fyrir
þá er senda jólapóst um lengri veg
er öruggast að ganga frá sendingum
nú á allra næstu dögum.
Á síðustu árunr hefur innan-
landspóstur sem merktur hefur
vcrið sérstaklega sem jólapóstur,
verið borinn út eftir 18. desember.
Nú mun hann hins vegar vcrið
borinn út unt leið og hann berst
pósthúsunum. Að sögn Björns
Björnssonar póstmeistara, er það
gert til að dreifa álaginu á lcngri
tíma.
Björn sagði að þó nokkrum
mannafla væri bætt í póstþjónust-
una í desember til að mæta jóla-
póstflóðinu. Þar væri yfirleitt urn
að ræða skólafólk sem lengi þar
kærkomna vinnu í jóiafríinu.
Björn hvatti fólk til að vera
fyrirhyggjusamt og vera í fyrra
fallinu með að senda jólapóstinn.
Það gerði póstþjónustunni auð-
vcldara að sinna verki sínu, auk
þess senr það tryggði að pósturinn
kæmist til skila í tæka tíð. Hann
vildi einnig minna á að síðustu
forvöð að senda jólapóst til útlanda
meðflugiværi lS.desember.
-HM
Fyrsta myndband á vegum myndbandaþjónustunnar aflient Námsgagna-
stofnun til afnota.
Myndbandaþjónusta
Sjónvarpsins
Hjá Sjónvarpinu er nú að hefjast
sérstök myndbandaþjónusta Sjón-
varpsins á vegurri Innkaupa og
markaðsdeildar. Meginhlutverk
hennar er að gera innlent sjón-
varpsefni tiltækt almenningi utan
sjónvarpsútsendinga. Mynbanda-
þjónustan mun dreifa efninu á
mypdböndum eftir að hafa gengið
frá samningum við alla rétthafa.
Þýðingarmestu dreifingarleiðir
myndbanda með íslensku efni
verða til skólakerfisins fyrir tilstilli
Námsgagnastofnunar ríkisins og til
annarra alnrennra notenda um al-
menningsbókasöfn í landinu.
Gert er ráð fyrir að starfsemi
myndbandaþjónustunnar verði
komin í fullan gang á fyrsta árs-
fjórðungi 1987. HM
Bakaríið Krás í Seljahverfi
Nýlega var opnað nýtt bakarí í
Seljahverfi, Krás sf. Það er til húsa
í nýju rúmgóðu húsnæði að Hólma-
seli 2. Öll aðstaða er þar eins og best
verður á kosið, enda er húsið frá
upphafi hannað nrcð þarfir bakarís
fyrir augum.
Stefnt er að því að innan skamms
verði hægt að bjóða upp á búðar-
bakstur í nýjutn ofni fram i búð, þar
scm viskiptavinir fá glæný og heit
vínarbrauð, formkökur og fleira,
beint úr ofninunr.
Bakaríið Krás er rekið af Bjarna
Friðfinnsyni og Ingólfi Sigurssyni,
sem jafnframt er bakarameistarinn.
HM
Þrjár af afreiðslustúlkum Krásar.