Tíminn - 28.11.1986, Side 1
^ ^ ^ STOFNAÐUR1917 í
limitinl
SPIALDHAGI
SAMVINNUBANKI ó
ÍSLANDS HF.
FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1986
&
1
ISTUTTU MALI...
HRAFNINN FLÝGUR II, verður
næsta verkefni samnefnds leikstjóra,
Gunnlaugssonar. Stendur til að upp-
taka fari, fram næsta sumar og hún fari
fram á íslandi í Stokkhólmi, Gotlandi
og á Ítalíu. Verðaflestir aðalleikarar af
innlendum uppruna, en aðstoðarleik-
stjóri ber a.m.k. með sér reykinn af
frægðinni, enda sonur Ingmars
Bergman. Svo er bara að bíða og sjá
í hvorn flokk framhaldsbíómynda,
Hrafninn II lendir, þeirra sem „floppa"
eða þeirra sem raka saman milljónun-
um.
KAUPMANNA-
SAMTOKIN hafa sent verðlags-
stjóra bréf þar sem farið er fram á að
hann láti kanna smásöluálagningu
hérlendis og afli jafnframt hliðstæðra
upplýsinga frá nágrannalöndum okkar.
Þetta gera samtökin vegna þess að
talað var um að slíkt yrði gert í haust
þegar þessi mál komu til almennrar
umræðu en eins og segir í bréfinu:
„Þar sem okkur er ekki kunnugt um
hvort slík könnun átti sór stað á
þessum tlma, er þess hér með farið á
leit að þessi mál verði tekin upp aö
nýju, með það fyrir augum að slík
könnun fari fram nú.“
SAMTOK herstöðvaandstæð-
inga sendu frá sér ályktun þann 20.
nóvember sl., þar sem lýst er yfir
eindreginni andstöðu við framkomnar
hugmyndir um að varaflugvöllur við
Sauðárkrók verði kostaður með fé úr
mannvirkjasjóði NATO.
Segir enn fremur aö yfirlýsingar
forsætisráðherra um að ekki verði um
herflugvöll að ræða, bendi til að annað
hvort sé ríkisstjórnin svona illa upplýst
eða hún sé vísvitandi að reyna að slá
ryki í augu almennings. Ljóst sé að
mannvirkjasjóður NATO styrki ekki
gerð millilandaflugvallar hér á íslandi
nema um leið veroi samið um hernað-
arleg not af vellinum.
VERSLUNARMENN hafa
nú stofnað með sér landsbyggðar-
samtök. Markmið þeirra er að efla hag
verslunarmanna á landsbyggðinni
með því m.a. að koma fram fyrir hönd
félaganna sem samningsaðilar þar
sem óánægja er með störf L.f.V. í
kjaramálum. Verslunarmönnum á
landsbyggðinni finnst óviðunandi
hversu mikils misræmis gætir í launa- I
málum milli höfuðborgarsvæðisins og
landsbyggðarinnar.
LAUGARDAGINN 29. nó
vember halda Hið íslenska bók-
menntafélag og Stofnun Jóns Þorláks-
sonar í sameiningu málþing um John
Locke í stofu 101 í Lögbergi, húsi
Lagadeildar Háskóla Islands, kl.
14.30-17.15. Til þess er efnt f tilefni
þess, að út er komin hjá Hinu íslenska
bókmenntafélagi Ritgerð um rfkisvald
eftir Locke í þýðingu Atla Harðarsonar,
en þetta rit er eitt af undirstöðuritum
vestrænnar stjórnmálahugsunar og I
hefur haft ómæld áhrif á stjórnskipan i
lýðræðisþjóðanna.
Á málþinginu verða fluttir tveir fyrir- í
lestrar Dr. Hannes Hólmsteinn Gissur- s
arson lektor talar um „John Locke og
mannréttindahugtakið" og dr. Arnór
Hannibalsson dósent um „John Locke :
í sögulegu ljósi“. Fundarstjóri verður :
prófessor Sigurður Líndal, forseti Hins
íslenska bókmenntafélags. Á eftir
hvorum fyrirlestri verða frjálsar um-
ræður og kaffihlé á milli þeirra, og eru
allir velkomnir á málþingið.
KRUMMIi
“Er þá ekki rétt
skipuleggja verslun-
arferðir til Akureyrar'
fyrir meinatækna á
spítölunum?11
Prófefni tii blóðrannsókna á spítölum:
Islensk vara um300%
ódýrari en innflutt
Um 300% verðmunur kemur í
Ijós á ákveðnum efnavörum til
rannsókna á sjúkrahúsum eftir því
hvort þau eru keypt frá innflutn-
ingsfyrirtæki - eins og minni
sjúkrahúsin hafa þurft að gera til
þessa - ellegar frá fyrirtæki sem
íslenskur lífefnafræðingur hefur
nýlega stofnað á Akureyri til fram-
leiðslu sömu efna. Pöntun sem
sjúkrahúsforstjóri á landsbyggð-
inni sagðist hingað til hafa þurft að
borga um 14 þús. krónur fyrir frá
innflutningsfyrirtæki í Hafnarfirði
kvaðst hann nú geta fengið keypta
fyrir um 3.400 kr. frá hinu nýja
fyrirtæki Skyn hf. á Akureyri og
hefur eðlilega í huga að beina
viðskiptunum þangað.
munurinn felst í gífurlegri álagningu
Hér er um að ræða svonefnd
prófefni, sem er efnablanda tilbúin
til rannsókna og fyrst og fremst
notuð við blóðrannsóknir, til mæl-
inga á ýmsum efnum í blóði, líf-
hvötum og fleiru. Efni þessi eru
mikið notuð á rannsóknarstofum
sjúkrahúsanna.
Björgvin Guðmundsson, lífefna-
fræðingur var spurður hvernig
hann geti boðið sína framleiðslu á
fjórðungi þess verðs sem innflutn-
ingsfyrirtækin selji þau á.
Verð þeirra kvað Björgvin sér
ekki kunnugt um. En samkvæmt
verðskrám stærstu erlendu fyrir-
tækjanna í þessari framleiðslu væri
hann með sín efni á um 10% lægra
verði en þau, þ.e. miðað við milli-
Mikligarður gerður
franskur í vikutíma
Mikligarður mun verða með franskt yfirbragð næstu viku. Þar
stendur yflr sérstök kynning á Frakklandi og frönskum vörum.
Komið hefur verið upp sérstöku frönsku kaffihorni, „Café de
Paris,“ þar sem fólk getur fengið sér sopa af frönsku expressokaffi.
Þá er hluti Miklagarðs nú innréttaður sem „French Boutiqe“. Franska
götusöngkonan Madame Machon, mun syngja franskar vísur fyrir
viðskiptavini. Hún leikur undir á sérstakt franskt götuhljóðfæri, sem
nú verður æ sjaldgæfara, Orgue de Barbarie. - HM
Tímamynd Pjclur
liðalausan innflutning. Fyrirspurn-
um frá stóru sjúkrahúsunum sagð-
ist hann hafa svarað á þann hátt að
hann gæti boðið þeim þessi efni á
verði um 10% undir því verði sem
þeir yrðu að kaupa þau á ef þeir
flyttu þau inn sjálfir beint og þá
reiknað með öllum gjöldum, sölu-
skatti og öðru sem greiða þarf. Sé.
verðmunur svo mikill sem hér að
framan greinir hljóti hann að vera
vegna gífurlegrar álagningar.
Björgvin, sem vann í 10 ár á
Landakotsspítala, sagði stóru
sjúkrahúsin yfirleitt flytja þessi efni
inn beint, án nokkurra milliliða,
ellegar í gegn um innkaupastofnan-
ir ríkisins eða Reykjavíkurborgar.
En smærri sjúkrahúsin út um land
hafi að mestu þurft að treysta á
innflutningsfyrirtækin sem líklega
séu 3 eða 4 í þessum innflutningi.
Efnin sagði hann að mestu koma
frá Danmörku en einnig frá Banda-
ríkjunum. Sjálfur þarf Björgvin að
kaupa öll hráefni til framleiðslunn-
ar erlcndis frá.
Undirbúning að framleiðslu
sagðist Björgvin hafa hafið í byrjun
þessa árs, enda þurfi mikinn tíma
til prófana og athugana áður en
hægt er að fara að setja efnin á
markað. Framleiðslan sé því svona
rétt að fara af stað um þessar
mundir og það verði tæplega fyrr
en eftir áramót sem sala fari al-
mennilega í gang. Björgvin kvaðst
verða með efni til flestra algeng-
ustu rannsókna sem gerðar eru,
eða til unt 20-25 rannsóknarteg-
unda. Hann ætti því að geta séð
minni stöðunum fyrir öllu sem þar
þarf að nota, en stærri spítalarnir
verði áfram að kaupa efni erlendis
frá fyrir sérhæfðari rannsóknir.
Til þessa hefur Björgvin verði
einn, en kvað ljóst að hann yrði að
ráða einhvern mannskap því fram-
lciðslunni sé greinilega vel tekið.
Þess má geta að Björgvin taldi
engin vandkvæði á að vera með
fyrirtæki sitt á Akureyri fremur en
sunnan fjalla. Og gat þess að honum
hefði verið vel tekið og allir viljað
greiða götu hans þar nyrðra.
- HEI
Guðmundur J. Guðmundsson:
“Ljúfur og indæll
Dagsbrúnarfundur'1
Samningaviðræðum haldið áfram.
Árangur í bónusmálum
Aðalkjarasamninganefndin átti
stuttan fund í gær, eða frá 16.30 til
17.15. Fyrirhugað hafði verið að
hefja fund fyrr, en það drógst m.a.
vegna þess að stjórnarfundur
Dagsbrúnar stóð lengur en fyrir-
hugað hafði verið, sem Guðmund-
ur J. Guðmundsson sagði aðspurð-
ur að hefði verið sérstaklega Ijúfur
og indæll. Þar hafi m.a. verið
ákveðið að enginn úr stjórn félags-
ins ræddi við fjölmiðla í gær nema
formaðurinn og þá helst sem
minnst. Lítur nú út fyrir að sá órói
sem komst á viðræður í gær, eftir
að samþykkt stjórnarfundar Dags-
brúnar var kynnt fundarmönnum,
sé nú úr sögunni, í bili að minnsta
kosti.
Guðmundur J. Guðmundsson
formaður Dagsbrúnar sagði að
stjórn félagsins væri einhuga í þess-
um samningaviðræðum og hefði
ákveðið að halda þeim áfram. Sæti
hann samningafundi sem formaður
Dagsbrúnar jafnt sem formaður
Verkamannasambandsins.
Samninganefndin hefur enn ekki
komist að niðurstöðu um hvort eigi
að reyna að ná samningum til
lengri tíma, eða þá að fylgja kröf-
um Dagsbrúnar unt einfaldari
skammtímasamning. Hins vegar
sagði Ásmundur Stefánsson.forseti
ASÍ að gengið væri til samninga
með megináherslu á hækkun
lægstu launa „samhliða með
áherslu á að framfylgt verði samn-
ingsákvæði í gildandi samningi að
flokkakerfið verði stokkað upp,
sem við getum verið sammála um,
öll okkar megin a.m.k. að sé
forsenda þess að við náum að færa
lægsta kaupið upp þannig að það
haldi.“ Virðist hér vera aukin
áhersla á uppstokkun taxtakerfis-
ins á ferðinni af hálfu ASí í átt til
krafna Dagsbrúnar.
„Endurskoðun á bónuskerfinu
og uppstokkun á flokkakerfinu eru
þær aðferðir sem við höfum frá
upphafi miðað við til að ná lægsta
kaupinu upp,“ sagði Ásmundur.
Nokkur árangur mun hafa náðst í
gær í starfi bónusnefndar, eða eins
og Þórarinn V. Þórarinsson,
frkvstj. VSÍ sagði að þá hafi menn
komist niður á eina ákveðna aðferð
við útreikninga bónusins. Sagði
hann að engin frekari formleg svör
hefðu borist frá ríkisstjórninni. Þá
kom fram að fjármálaráðherra hef-
ur lýst fullum vilja að láta sérfræð-
ing fjármálaráðuneytisins skoða
þessi mál frekar og samningsaðilar
muni nota sér það. Yrðu þau mál
skoðuð í sameiningu af samnings-
aðilum. - phh