Tíminn - 28.11.1986, Qupperneq 4
fært“
R EYNDAR var nú Dolly
ekki fyrst til að koma með þetta
spakmæli um fertugsaldurinn, en
hún segist geta borið vitni um
réttmæti máltækisins. Á þessu ári .
varð leik- og söngkonan hún Dolly
Parton fertug, og hún segir að við
þau tímamót hafi allt snúist henni
í hag.
S.l. þrjú ár höfðu af ýmsum
ástæðum verið Dolly erfið, og
ýmsir erfiðleikar steðjuðu að
henni. Bæði var heilsan ekki nógu
góð, og vonbrigði og erfiðleikar í
cinkamálum bættu ekki ástandið.
„En nú finnst mér ég vera yngri
en þegar ég var 25 ára,“ sagði
Dolly í nýlegu viðtali. Þar segir
hún frá nýju prógrammi sem hún
ætli að koma fram með á skemmti-
stöðum í Las Vegas, nýju plötu-
albúmi, Trio, sem á að koma út
eftir áramótin - og svo er verið að
ráðgera nýja kvikmynd með þeim
þremur stjörnunum úr „9 til 5“
myndinni: Dolly, Jane Fonda og
Lily Tomlin. Svo stendur til að
opna „Dollywood“ hennar eigin
skemmtistað í Tennessee.
Dolly grennti sig nýlega um 20
pund og um svipað leyti fór hún að
vinna að því að framleiða sérfæði
fyrir þá sem vildu grenna sig, og
það var enginn óþverramatur, því
að þetta var Suðurríkjamatur eins
og hann gerist bestur, en fram-
leiddur þannig að hann innihéldi
sem fæstar hitaeiningar.
Erfiðleikarnir byrjuðu á árinu
1982, þegar verið var að Ijúka við
að kvikmynda „The Best Little
Whorehouse in Texas". Hún veikt-
ist snögglega og var flutt á sjúkra-
hús með hættulegar blæðingar.
Uppskurður tókst vel, en Dolly
gekk illa að hressast. Síðan gerðist
það að hún fór að fá morðhótanir,
og gekk það svo langt, að hún
aflýsti söngskemmtunum sínum
um tíma. Einnig gefur Dolly það í
skyn í viðtalinu, að “góður vinur“
hafi svikið sig, en hún segist ekki
vilja segja neitt meira um það, því
að einhverju verði alltaf að halda
leyndu. En öllum kemur saman
um það, að hið 20 ára hjónaband
hennar og Carl Dean sé trausti
punkturinn í lífi hennar. „Við
erum í hinu besta hjónabandi, en
auðvitað erum við ntikið aðskilin,
það fylgir vinnu okkar beggja,“
segir Dolly. Hún segist eiga góða
hjálparhellu í aðstoðarkonu sinni
Judy Oglemore, „og það er svo ■
mikils virði að hafa alltaf með sér
manneskju, sem er svo traust og
trú og Judy,“ segir Dolly.
Dolly hefur alltaf haft gott sam-
band við fjölskyldu sína, en hún
fæddist á smábýli þar sem foreldrar
hennar bjuggu með 11 börn. Hún
hefur hjálpað ættingjum sínum
mikið síðan hún sjálf varð fræg og
rík. Dolly segist vera mjög lík
mömmu sinni, en hún hafi alltaf
viljað vera miðpunkturinn sem allt
snerist um. Þegar mamma hennar
er spurð um Dolly, segir hún: „Jú,
auðvitað er Dolly stjarna... hún er
alveg eins og ég!“
Að síðustu er Dolly spurð hvort
hún kvíði ekki því að eldast. „Nei,
ég ætla að vera glaðleg og hress
gömul kona og hafa alltaf einhver
ný áhugamál. Ég þekki gamalt fólk
sem er svo skemmtilegt og glatt, að
það lítur út fyrir að vera 20 árum
yngra en það er. Ég ætla að verða
þannig gamalmenni!" sagði hún.
Föstudagur 28. nóvember 1986
Dolly Parton - fertug og í flnu formi
4 Tíminn
Dolly Parton segir:
“Allt er
fertugum
“PLAYBOY"
KÓNGURINN Á
DANSGÓLFINU
SVONA asnalega var ekki
dansað þegar ég var ungur,“
gæti hinn frægi Hugh Hefner
verið að segja við dömuna sína,
því það er eins og “Playboy“-út-
gefandinn og „kanínustúlkustjór-
inn“ sé hálffeiminn við að dilla sér
með vinkonunni Carrie Leigh, sem
er líklega einum 30 árum yngri en
Hugh sjálfur. Carrie er víst að taka
þátt í keppni í grímubúningum, en
ekki er tekið fram hvað hún túlkar
í þessum glitrandi netbúningi.
Elton John og frú á leið í fótboltaklúbbinn
eru
dilla sér í mjöðmunum.
_„tnnHur S£l
AÐ hefur lengi verið haft að orðtaki: Eitt epli á dag kemur heilsunni í
B W lag. En í myndatexta undir myndinni af Elton John og Renötu konu hans
_M_ stóð, að Elton John borðaði eitt epli á dag - til að reyna að koma hárinu
í lag, en söngvarinn hefur lengi haft áhyggjur af því hve hár hans þynnist nú
ískyggilega hratt.
Hvort epli hafa áhrif á hárvöxtinn er vafamál, en þá setur liann Elton John
bara upp einhvern af fínu höttunum sínum og skrautleg gleraugu og hver er þá
að spekúlera í hárinu.
„Cisco Kid-jakka“ kallar söngvarinn þennan útsaumaða suður-ameríska jakka.
Þarna eru þau hjón að storma í klúbb fótboltafélagsins Watford, sem Elton John
er eigandi að.
“Eitt epli á dag...“