Tíminn - 28.11.1986, Síða 7
Föstudagur 28. nóvember 1986
Tíminn 7
ÚTLÖND
7!:r' ,l
llllllll
Italskt skopskyn fór
illa í íranska ráðamenn
Grín var gert aö Khgmeini í ítölskum sjónvarpsþætti
- Sendiherra írana í Róm kallaður heim
Teheran - Reuter
íranstjórn ætlar að kalla sendi-
herra sinn heim frá ftalíu til að
mótmæla efni sjónvarpsþáttar sem
sýndur var í ítalska ríkissjónvarpinu
um síðustu helgi. Það var hin opin-
bera fréttastofa í íran sem skýrði frá
þessu í gær.
Fréttastofan sagði ákvörðun þessa
hafa verið tekna af stjórnmálaráði
landsins en fundum þess er vanalega
stjórnað af Mir-Hossein Mousavi
forsætisráðherra.
Stjórnmálaráðið ákvað einnig að
láta loka ítölsku menningarmiðstöð-
inni í Teheran.
Fréttastofan hafði áður sagt frá
því að trúarleiðtoginn Ayatollah
Khomeini hefði verið gróflega
móðgaður í ítölskum sjónvarpsfarsa
þar sem fjallað var um fréttir af
leynilegri vopnasölu Bandaríkja-
stjórnar til írans. Skopleikur þessi
var sýndur á stöð eitt í ítalska
sjónvarpinu á laugardaginn var.
ftalska sendiráðið í Teheran hefur
þegar sent frá sér formlega afsök-
unarbeiðni vegna þáttarins en jafn-
framt tekið fram að ítölsk stjórnvöld
hefðu ekkert með þessa útsendingu
að gera.
„Það tekur okkur langan tíma að
gleyma slíkum verknaði", sagði
hinsvegar Mousavi forsætisráðherra
í viðtali við útvarpið í Teheran í
vikunni.
Grín var gert að Khomeini trúarleiðtoga í ítölskum skopleik og hafa franir
tekið grínið illa upp og hyggjast kalla sendiherra sinn heim frá Róm vegna
þessa máls. Já, það er vandlifaö í henni veröld.
Kína:
Bændur skulu
í gróðaleit
Pckíng - Rcuter
Einn af leiðtogum Kínverja hefur
hvatt bændafólk í landinu, sem telur
um 800 milljónir, til að losa sig úr
fjötrum gamalla lénsskipulagskenn-
inga, huga að nýjum lífsstíl og
sækjast eftir gróða og auði.
Fréttastofan Nýja Kína hafði eftir
Wan Li varaforsætisráðherra að kín-
verskt bændafólk á þróaðri svæðum
landsins þyrfti ekki lengur að hafa
áhyggjur af því að fæða og klæða sig
og sína. Það fólk væri nú að leita að
„nýju lífi í samræmi við nútímann*".
Varaforsætisráðherrann hvatti
fólk í dreifbýlinu til að reyna að
auðgast á löglegan hátt. Hann tók
þó fram að fólk ætti eftir sem áður
að leggja sitt af mörkum til samfé-
lagsins og samyrkjubúanna.
Wan Li varaði við gömlum venj-
um og hugsunargangi. Hann sagði
hjátrú, giftingar í auðgunarskyni,
dýrar jarðafarir og giftingar og fjár-
hættuspil vera hina verstu lesti sem
leggja bæri niður.
Nýjar efnahagsáætlanir stjórn-
valda í dreifbýlinu hafa leitt til þess
að bændur geta nú ráðið meiru um
hvað þeir rækta og selja. Hefur þetta
orðið til þess að mikil gróska er nú
á hinum frjálsa markaði.
Heimsókn Sovétleiðtogans til Indlands:
Gorbatsjov vill
draga úr hættu á
stríði í Asíu
Nýja I)clhi - Rcutcr
■\ Mikhail Gorbatsjov ieiðtogi Sov-
étríkjanna hvatti í gær til viðræðna
þar sem reynt yrði að komast að
samkomulagi um leiðir til að minnka
hættuna á því að stríð brjótist út í
Asíu og höfunum sem að álfunni
liggja. Sovétleiðtoginn nefndi meðal
annars að vitneskja yrði látin uppi
um alla flutninga á sjó, landi og í
lofti í sambandi við heræfingar á
þessu svæði.
Áðurnefnt kom fram í ræðu Gor-
batsjovs sem hann hélt í indverska
þinginu í gær og var henni sjónvarp-
að um allt Indland. Þar bauðst
Sovétleiðtoginn til að hefja samn-
ingaviðræður við Bandaríkin og
önnur ríki, er stöðugt hefðu her-
skipaflota á þessu svæði, um tak-
markanir á fjölda skipa og starfsemi
þeirra.
Ræða Gorbatsjovs snérist að
mestu um friðar- og afvopnunarmál
og minnti hann á „Delhiyfirlýsing-
una“ sem þeir Gorbatsjov og Rajiv
Gandhi forsætisráðherra Indlands
skrifuðu undir fyrr í gær. Þar er
hvatt til að gerður verði alþjóðlegur
sáttmáli sem banni bæði noktun og
hótun um að nota kjarnorkuvopn.
Bandaríkin:
Köttur á spiki sínu
lífaðlauna
Tulsa, Oklahoma - Reutcr
Það getur verið gott að vera
feitur, því fékk kötturinn Trixie að
kynnast nú nýlega.
Trixie er svartur köttur sem býr í
Oklahomaríki vestur í Bandaríkjun-
um. Þykir hann með eindæmum
feitur köttur.
í vetur gleymdi eigandi hans hon-
um í skotti bifreiðar sinnar. Trixie
fannst ekki fyrr en eftir 22 daga. En
viti menn, kötturinn var hundhress
er skottið var opnað.
Dýralæknirinn kom á staðinn og
sagði hinn níu ára gamla kött hafa
lifað vegna þess hve feitur hann var.
Namibía:
Jarðsprengja veldur dauða
tveggja barna og asna
Windoek, Namibía - Rcutcr
Bóndi selur hænsni, telur peninga
og glottir ógurlega. Þetta vilja
stjórnvöld að allir bændur fari að
snúa sér að í alvöru
Tvö namibísk börn létu lífið og
eitt særðist er asni, er krakkarnir
riðu, steig ofan á jarðsprengju ná-
lægt landamærunum við Angóla.
Þetta var haft eftir öryggissveitum á
þessu svæði í vikunni.
Suð-vestur afríski svæðisherinn
sagði atvikið hafa átt sér stað nálægt
Nkongo sem er norðarlega á þessu
suður-afríska yfirráðasvæði. Ekki
voru þó nánari skýringar gefnar á
dauða barnanna.
Þá tilkynntu talsmenn svæðishers-
ins einnig um dauða þriggja skæru-
liða Þjóðarhreyfingar Suð-vestur
Afríku(SWAPO).
Það sem af er þessu ári hafa 617
skæruliðar verið drepnir í stríðinu
sem SWAPO hóf fyrir tuttugu árum
til að losa Namibíu(Suð-vestur Afr-
íku) undan stjórn suður-afríska yfir-
valda.
Sameinuðu þjóðirnar styðja
SWAPO og hafa krafist þess að
íbúar hinnar víðáttumiklu Namibíu,
sem telja 1,1 milljón manna, fái
sjálfstæði. Suður-Afríkustjórn hefur
hvað eftir annað frestað því að veita
landinu sjálfstæði.
FIMN Í FyRSTA SÆTI
Kristín, Finnur, Fanný og Ingi Þór.
atorKa
ábyrgd
rcynsla
Finnur Ingólfsson hefur meö störfum sínum
áunniö sér mikið traust. Því hafa honum verið
falin mörg trúnaðarstörf:
• Formaður Stúdentaráðs Háskóla íslands.
Stjórnarformaður Félagsstofnunar stúdenta.
• Formaður Samb. ungra framsóknarmanna.
• í stjórn Framsóknarflokksins.
• Aðstoðarmaður Halldórs Ásgrímssonar.
Styðjum ungan mann með dýrmæta reynslu í
fyrsta sæti í prófkjöri Framsóknarmanna í
Reykjavík 29. og 30. nóv. n.k.
Hafið samband í
síma 24790 eða 24966
Stuðningsmenn