Tíminn - 28.11.1986, Side 11
Molar 1-
Erla Rafnsdóttir var atkvæðamikil í íslenska liðinu og skoraði 5 mörk. Hér er eitt þeirra í uppsiglingu en Sam Jones
virðist eitthvað annars hugar í vörninni. Tímamynd Pjetur.
Kvennakarfan:
KR á toppinn
KR sigraði Hauka með 60 stigum
gegn 36 í 1. deild kvenna í körfu-
knattleik í gærkvöld. Staðan í leik-
hléi var 34-17. Linda Jónsdóttir átti
stórleik í liði KR og skoraði 26 stig
en Cora Barker og Kristjana Hrafn-
kelsdóttir skoruðu 8 stig. Hjá Hauk-
um voru Sigrún Skarphéðinsdóttir
og Sólveig Pálsdóttir stigahæstar
með 11 stig.
Þá sigraði ÍR Grindavík með 54
stigum gegn 35.
Staðan í deildinni er þannig að
KRerefst með 12 stig, ÍS erí2. sæti,
einnig með 12 stig en lakara marka-
hlutfall, ÍBK hefur 8 stig, Haukar og
ÍR 6, UMFN 2 og UMFG ekkert.
Ísland-Bandaríkin í handknattleik:
Skoruðu ekki í 10 mínútur
og þær bandarísku unnu með 8 marka mun
„Jú, ég á von á betri leik á
morgun, þetta getur varla versnað,"
sagði Hilmar Björnsson landsliðs-
þjálfari eftir að íslenska kvenna-
landsliðið í handknattleik tapaði fyr-
ir því bandaríska með 8 marka mun
að Varmá í gær. „Stelpurnarvirkuðu
mjög þungar og þreyttar, kannski
leikirnir í gær sitji í þeim“ sagði
Hilmar og á hann þar við leiki f
íslandsmótinu í fyrrakvöld.
íslenska liðið var mjög seint í
gang og fyrstu 15 mínúturnar kom
ekki skot á markið nema frá Guðríði
Guðjónsdóttur sem skoraði 5 mörk
á þessum tíma, þar af 3 víti. Heldur
hresstust stúlkurnar þó við og náðu
að jafna 9-9 þegar rúmar 6 mínútur
voru fram að leikhléi. Kanarnir sigu
aftur framúr og staðan í leikhléi var
10-12.
Enn náði íslenska liðið að jafna,
14-14 en þá komu 10 daprar mínút-
ur, ekkert gekk upp og þær banda-
rísku skoruðu 8 mörk í röð, flest úr
hraðaupphlaupum eftir mistök hjá
íslenska liðinu. Það sem eftir var áf
leiknum hélst munurinn og lokatölur
18-26.
Kolbrún Jóhannsdóttir stóð sig vel í markinu
og bjargaði oft múlum þegar allt opnadist upp á
gátt. Hún varði 18 skot í leiknum. Af öðrum
leikmönnum voru það Erla Rafnsdóttir og
Guðríður Guðjónsdóttir sem stóðu uppúr en í
heild átti liðið dapran dag.
Mörkin skoruðu: Guðríður Guðjónsdóttir
9(6), Erla Rafnsdóttir 5, Erna Lúðvíksdóttir og
Katrín Fríðríksen 2 hvor.
í bandaríska liðinu eru nokkrír skemmtilegir
leikmenn, en Sam Jones - sem uppnefnd hefur
verið Gracc Joncs vegna hárgreiðslunnar - ber
þó af, hún hcfur veríð atvinnumaður í Þýskalandi
og ber þess merki, skot hennar eru gífurlega föst
og hún átti margar fallegar sendingar.
Mörkin skoruðu: Stingcr 5(3), Gallagher, De
la Rive og Jones 4 hver, Lack 2, Clarke 1 og
Coencn markvörður 1 yfir endilangan völlinn.
Liðin leika aftur í kvöld kl. 20.00 í Seljaskóla.
Föstudagur 28. nóvember 1986
ÍÞRÓTTIR
Tíminn 11
■ Mike Hazard, Chelsea er í
tveggja vikna æfingabanni og hef-
ur verið sektaður um 1000 pund
(600 þús. ísl. kr.) fyrir að gagn-
rýna framkvæmdastjóra sinn,
John Hollins í blöðunum.
Hazard hefur farið fram á að
vera settur á sölulista.
■ Framkvæmdastjóri Bríghton
er óhress með leikmenn sína eftir
tap liðsins gegn Blackburn í 2.
deildinni á laugardaginn. Hann
lét þá alla spila með varaliðinu í
fyrrakvöld.
■ Bryan Robson, Manchestcr
United er byrjaður að æfa á fullu
eftir meiðsli en ekki er reiknað
með að hann spiii um helgina.
■ Svo gæti farið að Andy Gray
Aston Villa verði næsti fram-
kvæmdastjóri skoska úrvalsdeild-
arliðsins Hibernian. Aston Villa
mun að sögn ekki standa í vegi
fyrir því.
■ Wolves féll út úr enska deild-
arbikarnum á dögunum, stein-
lágu fyrir utandeildaliðinu Chorl-
ey, 3-0 í 1. umferð. Wolves leika
í 4. deild í fyrsta skipti í vetur.
Þetta var versta tap félagsins í
109 ár.
■ Graeme Souness lét hafa eft-
ir sér í vikunni að hann hefði
frekar kosið að lenda á móti
Barcelona en Borussia Mönc-
hengladbach í UEFA keppninni.
„Barcelona hefði hentað okkur
betur“ sagði hann. Fyrri leik
Glasgow Rangers og Gladbach í
fyrrakvöld lauk með 1-1 jafntefli
en leikið var í Skotlandi.
■ Alex lliggins, einn af betri
billjardleikurum í Bretlandi átti á
dögunum að fara í lyfjapróf.
Þegar hann heyrði þetta varð
hann æfur og sló dómarann. Svo
gæti farið að hann fengi lífstíð-
arbann frá íþrótt sinni.
Jan Mölby skoraði þrennu í leik
Liverpool og Coventry í 4. umferð
enska deildabikarsins í fyrrakvöld.
Liverpool sigraði í leiknum með
þremur mörkum gegn einu og skor-
aði Mölby öll þrjú mörkin úr víta-
spyrnum. Dave Bcnnett skoraði
mark Coventry.
Tottenham komst einnig í 5. um-
ferð deildarbikarsins, eins og Li-
verpool, þeir unnu fjórðudeildarlið-
ið Cambridge 3-1. Clive Allen skor-
aði fyrsta markið, sitt 19. á tímabil-
inu, en Shaun Close og Chris
Waddle bættu hinum tveimur við.
Mark Cooper skoraði fyrir Cam-
bridge.
í 5. umferð, fjórðungsúrslitum,
mætir Tottenham West Ham en
Liverpool keppir við samborgara
sína, Everton.
Úrvalsdeildin:
Njarðvík-ÍBK
í kvöld verður sannkallaður
Suðurnesjaslagur í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik, Njarðvík og Kefla-
vík eigast við í „Ijónagryfjunni" í
Njarðvík kl. 20.00. Liðin hafa mæst
einu sinni í vetur, þá í Keflavík og
sigruðu heimamenn þá með 71 stigi
gegn 64. Á eftir leika Njarðvík og 1S
í 1. deild kvenna.
Reykjavíkurmótiö í keilu:
Úrslitin ráðast
um þessa helgi
Úrslitaleikirnir í Reykjavíkur-
móti 1986 í keilu verða spilaðir um
helgina. Lokastaðan fyrir úrslit er
þannig:
Einstaklingskeppni karla:
stig
Alois Raschhofer......................2.708
Þorgrímur Einarsson ..................2.680
Halldór R. Halldórsson ..............2.581
Höskuldur Höskuldsson ................2.548
Guðjón Ó. Davíðsson ..................2.546
Einstaklingskeppni kvenna:
Dóra Sigurðardóttir...................2.278
Birna Þórðardóttir....................2.183
Sólveig Guðmundsdóttir................2.171
Emilía Vilbjálmsdóttir ...............2.114
Björg Hafsteinsdóttir.................2.074
Parakeppni:
Björg Hafsteinsdóttir
Halldór. R. Halldórsson...............3.767
Hrafnhildur Ólafsdóttir
Alois Raschhofer......................3.695
Emilía Vilhjálmsdóttir
Þorgrímur Einarsson ..................3.682
Dóra Sigurðardóttir
Höskuldur Höskuldsson........... 3.678
Birna Þórðardóttir
Helgi G. Ingimundarson...............3.641
Liðakeppni:
Þröstur..............................5.868
P.L.S.................................5.810
Víkingasveitin5.772
T-bandið5.756
Fellibylur...........................5.751
í íslandsmótinu í liðakcilu er stað-
an þannig þegar ein umferð er eftir
í fyrri hluta:
I. dcild:
Kcilubanar................................50
Þröstur.................................. 42
Fellibylur................................42
Víkingasveitin............................36
P.L.S.....................................34
Keilubanar sitja hjá í síðustu
umferð fyrri hluta og Þröstur og
Fellibylur leika ekki innbyrðis svo
3 lið gætu verið í 1. sæti eftir fyrri
hluta mótsins.
Við erum að spá í fyrsta vinninginn í Lottóinu.
Pú þarft ekki lengur að spyrja: Hvarr hvernig, hvenær?
Á morgun, laugardaginn 29. nóvember, verður dregið
í fyrsta skipti í beinni útsendingu í Ríkissjónvarpinu.
Fáðu þér miða og finndu happatölurnar þínar!