Tíminn - 28.11.1986, Page 12
12 Tíminn
Föstudagur 28. nóvember 1986
BÆKUR
III
Hermann, Eysteinn og Bjarni í sextugsafmæli Eysteins
Sókn og sisrar
Annað bindi sögu Framsóknarflokksins,
skráð af Þórarni Þórarinssyni,
er komið út. Það nær til
áranna 1937-1956 og er jafnframt
stjórnmálasaga landsins.
Þeir, sem vilja gerast áskrifendur, snúi
sér til Magðalenu Thoroddsen á
skrifstofu Framsóknarflokksins
milli klukkan 13.00 og 17.00.
Bókin er seld á lægra verði til áskrifenda.
Bókin er 280 lesmálssíður og
32 myndasíður.
Á árunum 1937-1956 varð mesta
þjóðlífsbreytingin á íslandi.
Pöntunarsími 91-24480
PÓST- OG
SÍMAMÁLASTOFNUNIN
Símaskráin 1987
Tilkynning til símnotenda.
Breytingar í símaskrá 1987 þurfa að berast fyrir
15. desember n.k.
Breytingar á heimilisfangi frá seinustu símaskrá
þarf ekki að tilkynna sérstaklega.
Ritstjóri símaskrár.
BÍLALEIGA
Útibú í kringum landið
REYKJAVÍK:.... 91-31815/686915
AKUREYRI:...... 96-21715/23515
BORGARNES:.............. 93-7618 j
BLÖNDUÓS:........ 95-4350/4568
SAUÐÁRKRÓKUR:.... 95-5913/5969
SIGLUFJÖRÐUR:........ 96-71489
HÚSAVÍK:........96-41940/41594
EGILSSTAÐIR: ......... 97-1550
VOPNAFJÖRÐUR: ... 97-3145/3121 ,
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: . 97-5366/5166
HÖFN HORNAFIRÐI: ..... 97-8303
interRent
Ljós fyrir
vinnuvélar
/S BÚNABMUMEILO
BAMBANDBINB
ARMÚLA3 REYKJAVtK SlM* 38900
Dráttarvélar
Sannarlega
peninganna virði.
Vélaborg
Bútækni hf.
TJími 686655/686680
B&tUP fáísMq
Ást við
íyrstn sýn
Ný bók frá
Hörpuútgáfunni
Ást við
fyrstu sýn
Hörpuútgáfan á Akranesi hefur
sent frá sér nýja ástarsögu eftir
Bodil Forsberg. Þetta er 18. bókin
sem út kemur hjá Hörpuútgáfunni
eftir þennan vinsæla höfund.
Á bókarkápu segir m.a.:
Pia Skov fletti dagblaðinu. Á
þriðju síðu blasti við henni mynd
og fyrirsögn: „Þekktur Dani ferst
í bíl sínum í Frakklandi." Hún
stirðnaði upp er hún las fréttina.
Tom Törring dáinn? Það gat ekki
verið satt. Hvað yrði nú með
brúðkaupið þeirra og barnið sem
hún bar undir belti?
Hún hafði hitt hann á Mallorca.
Hann var auðugur listaverkasali,
17 árum eldri en Pia. Þau urðu
ástfangin. Nú var hann dáinn.
Ýmsir atburðir gerðust næstu
vikurnar, sem bentu til þess að
einhverjir vildu koma í veg fyrir að
erfingi Toms fæddist.
...Byssuskot kvað við og á eftir
kom hvínandi hljóð frá byssukúlu,
sem þaut framhjá höfði Piu. Hún
fleygði sér til jarðar. Nýtt skot
kvað við og þaut rétt við eyra
hennar...
Pia naut verndar Jans, sem var
lögfræðingur Toms Törring. Hann
vakti hjá henni heitar tilfinningar.
Hann var mjög ólíkur Tom, sem
hún syrgði mikið. Kvöld nokkurt
heyrði nún hvíslandi rödd úti í
myrkrinu. Það hlaut að vera
blekking: „Pia, ástinmínl" Þetta
var rödd Toms!
Ást við fyrstu sýn er 182 bls.
Prentun og bókband annaðist
Prentverk Akraness hf. Þýðandi er
SkúU Jensson.
Kristján J. Gunnarsson:
Refska
Bókaútgáfa Menningarsjóðs
hefur gefið út skáldsöguna
Refsku eftir Kristján J.
Gunnarsson fyrrum skólastjóra og
síðarfræðslustjóraíReykjavík, og
er þetta fyrsta skáldverk höfundar
sem kemur á prent, en Kristján er
þjóðkunnur af öðrum störfum.
Undirtitili Refsku er sönn
lygisaga, og bregður hann nokkru
ljósi á efni sögunnar og aðferð
höfundar.
Á kápu segir á þessa lund um
Refsku og bókarhöfund:
„Refska gerist í orði kveðnu í
árdögum íslandsbyggðar og
minnir víða á íslendingasögur um
brag og túlkun, en reynist
margslungin og engan veginn öll
þar sem hún er séð í fljótu bragði,
enda þreytir höfundur tvíræðan
leik og kemur lesendanum í opna
skjöldu með óvæntum
sjónhverfingum. Hann setur á
svið atburði og viðhorf
samtíðarinnar innan lands og
utan og býr söguna listrænu
dulargervi. Kennir því margra
grasa i þessari sönnu lygisögu
sem vafalaust mun þykja
tíðindum sæta. Refska telst eins
konar spéspegill, en alvara
höfundar leynist samt hvergi, og
íþrótt sú sem Kristján J.
Gunnarsson hefur í frammi byggir
á fornri íslenskri hefð ásamt
frumleik og nýstárlegri
hugkvæmni. Einsætt er að Refsku
verður skipað í flokk með
sérkennilegustu og
metnaðarfyllstu skáldsögum í
íslenskum nútímabókmenntum.
Höfundur Refsku, Kristján J.
Gunnarsson, erkennari að mennt
og var lengi skólastjóri og síðar
fræðslustjóri í Reykjavík. Auk
þess hefur Kristján tekið virkan
þátt í stjórnmálum og fengist við
ritstörf og bókmenntaiðju í
tómstundum, en Refska er fyrsta
skáldverk hans sem kemur á
prent. Lesendur munu hins vegar
undrast að sagan skuh vera
frumsmíð. Byggingarlag hennar,
atburðarrás og persónusköpun,
svo og mál og stíll, ber glöggt
svipmót af sjálfstæðum og
þroskuðum listamanni sem fjallar
um erfitt og torrætt verkefni líkt
og höfundar fornrita okkar er
frægust hafa orðið og bera
íslenskri menningu órækast
vitni."
Refska er 391 bls. í stóru broti.
Kápu gerði Sigurður Örn
Brynjólfsson, en bókin er unnin í
Prentsmiðju Hafnarfjarðar.
Björg Einarsdóttir.
Útgáfufélagið Bókrún hf.:
Úr ævi og
starfi ís-
lenskra
kvenna
Væntanlegt er á bókmarkaðinn
fyrir jólin þriðja og síðasta bindi
safnritsins „Úr ævi og starfi
íslenskra kvenna" eftir Björgu
Einarsdóttur.
í þriðja bindinu eru sextán
þættir þar sem sagt er frá yfir
tuttugu konum, æviferh þeirra og
lífsstarfi. Fyrsta bindið kom út í
desember 1984. Upplag þess
hefur tvívegis þrotið hjá forlaginu
1 en er nú komið á markað í þriðju
prentun. Annað bindi þessarar
þáttaráðar kom í mars 1986 og nú
í desember er von á þriðju og
síðustu bókinni.
Hver bók er sjálfstæð heild og í
hverjum þætti sérstaklega eftir
atvikum greint frá einni eða fleiri
konum. öll saman eru bindin þrjú
sórstætt úrtak sem Björg
Einarsdóttir hefur unnið um líf
íslenskra kvenna og viðfangsefni
þeirra, einkum á fyrri hluta
þessarar aldar.
Óvenju mikið og fjölbreytt
myndefni prýðir bækurnar.
Margar myndanna eru fáséðar og
sumar sérstaklega teknar vegna
útgáfunnar.