Tíminn - 28.11.1986, Page 15
Tíminn 15
Föstudagur 28. nóvember 1986
.III.Illllll MINNING lllll!lllli. '"lilHlllllllllllllllllliln... '::l:i;iilllll|llllllllllllllil..:
Inga Rún Vigfúsdóttir
Fædd 26. seplember 1935
Dáin 3. nóvember 1986
3. nóvember síðastliöinn andaðist
á sjúkrahúsi í Bandaríkjunum Inga
Rún Vigfúsdóttir. Banamein hennar
var krabbamein. Inga Rún er fyrst
úr hópi stúdenta MA 1958 að deyja
á sóttarsæng.
Inga verður bekkjarsystkinum
sínum minnisstæð fyrir margra hluta
sakir. Hún var tveimur árum eldri en
flestir í bekknum, - hafði ferðast
erlendis og unnið á skrifstofu. Þegar
hún kom nítján ára inn í hóp sextán
ára bekkjarsystkina þá fann hún til
aldurs síns og sármóðgaði meðal
annars bekkjarfélaga sína með því að
segja að þeir væru „krakkar á tyggi-
gúmmístiginu“. Annars gleymdist
þessi aldursmunur fljótt, hún varsvo
glaðlynd og vakti líka eftirtekt útlits-
ins vegna. Hún var lítil og grönn, létt
á sér og stælt með geysimikið, rauð-
brúnt, þykkt hár sem hún tók saman
í tagl. Þeir voru ófáir piltarnir sem
féllu í þá freistni að grípa í þetta
fallega hár.
Inga var listræn, atorkusöm og
hugmyndarík í besta lagi og til
dæmis ætíð valin í hópa sem áttu að
sjá um skreytingar fyrir skemmtanir
og þess háttar. Hugur hennar stóð
líka til náms í listum. Þannig fór að
Inga Rún giftist úr landi og settist að
í Bandaríkjunum. Þar Iætur hún nú
eftir sig eiginmann, John Garcia, og
fjögur börn á aldrinum 9-26 ára.
Síðast fengum við bekkjarfélag-
arnir að sjá Ingu 1983 þegar hún
kom til Islands með eiginmanni
sínum og kom í hóp 25 ára stúdenta
þegar þeir héldu hátíð í tilefni
afmælisins. Þá var hún enn eins
grönn og stælt og á menntaskóla-
árunum og sama skemmtilega
stelpan.
Það er alltaf tómarúm eftir þegar
góðir vinir flytja úr landi og auðvitað
enn tilfinnanlegra þegar fréttin berst
að vinurinn sem fór komi ekki oftar
í heimsókn. Meira er þó misst fyrir
nánustu ástvini.
Við vottum fjölskyldu og aðstand-
endum Ingu Rúnar í Bandaríkjun-
um og hér heima samúð okkar.
Aðalsteinn Davíðsson.
Frumraun
Hallgrímskirkju
Hallgrímskirkja á Skólavörðuhæð
hlaut eldskírn sína sem tónleikahús
sunnudaginn 23. nóvember þegar
Mótettukór Hallgrímskirkju flutti
Sálumessu Mozarts ásamt hljómsveit
og einsöngvurum. Stjórnandi var
Hörður Áskelsson, organisti kirkj-
unnar og listrænt gangverk.
Eins og fram kom í heldur smekk-
litlum fréttaþætti í útvarpinu á
vígsludegi Hallgrímskirkju hefur
þetta hátimbraða guðshús verið
mjög umdeilt þá mörgu áratugi sem
það hefur verið í byggingu. Þó hefur
sú von músíkalskra manna jafnan
fylgt kirkjunni að hún mætti verða
mikilvægt hljómlistarhús fyrir
kirkjutónlist. Páll ísólfsson, fyrsti
stór-organisti vor og sá sem fyrstur
manna flutti tónlist Bachs á íslandi,
var áhugamaður um þessa kirkju-
byggingu því hann taldi að þar
mundi fyrst opnast vettvangur fyrir
fullkominn flutning þeirrar háleitu
tónlistar. Ennþá vantar að vísu orgel
sem sæmir kirkjunni, og munu 30
milljónir standa milli draums og
veruleika í því efni, en bæði Bach og
aðrir Hallgrímar Péturssynir kirkju-
tónlistar hafa látið eftir sig mörg
stórvirki sem þarna munu heyrast á
næstu árum - nú Sálumessa Mozarts
og 11. desember Messías eftir
Hándel, svo nærtæk dæmi séu nefnd.
Á fyrstu tónleikunum í Hallgríms-
kirkju ríkti andrúmsloft eftirvænt-
ingar og hátíðleika. Og kirkjan, þétt
setin áheyrendum, brást ekki, því
flutningur sálumessunnar var mjög
áhrifamikill. Hörður Áskelsson
skrifar litla grein í tónleikaskrá um
hljómburð í kirkjunni, sem mjög
hefur verið vandað til. Þar hefur
verið lögð höfuðáhersla á þarfir
kirkjutónlistar, en „talið er að slík
tónlist njóti sín betur við lengri
eftirhljóm en almennt er talinn æski-
legur, t.d. fyrir sinfóníska tónlist.“
En jafnframt hefur því verið fórnað,
a.m.k. að sinni, að hljómburðurinn
sé heppilegur fyrir talað mál. Margir
telja að kristindómi hafi farið sí-
hrakandi hér á landi í lúthersku, en
með henni var Biblían þýdd á ís-
lensku og prestar hættu að. þylja
„hókus pókus“ á latínu. Er það mál
manna, að hvergi lifi kristnin betra
lífi en einmitt þar sem söfnuðurinn
skilur ekki guðsmennina og jafn-
framt það, að ekki gefi háleitari
prédikanir eða innblástur guðs anda
en einmitt tónlist trúartónskáld-
anna. Hörður Áskelsson lýsir því
reyndar í grein sinni, að unnið sé að
alefli að því að koma upp talkerfi
sem tryggi það að talað mál berist til
allra ekki síður en tónlist, en þangað
Frá vígslu Hallgrímskirkju.
til það tekst (og vonandi lengur) má
ætla að kristnihald verði með mikl-
um ágætum á Skólavörðuholti.
Frá sjónarmiði hljómburðarfræð-
anna hefði auðvitað verið æskilegt
að hlaupa fram og aftur um kirkjuna
meðan á flutningi Sálumessu Moz-
arts stóð til að reyna hljómburðinn.
En slíkt var ekki viðeigandi: Hall-
grímskirkja var að vísu í prófi, en
jafnframt var verið að flytja stór-
kostlegt tónverk, hið síðasta sem
Mozart samdi svo sem frægt er, og
fékk ekki lokið við. Mótettukórinn
naut sín mjög vel, og sömuleiðis
hljómsveitin; einsöngvararnir bárust
hins vegar ver fram eftir kirkjunni,
að því er heimildarmenn mínir þar
segja, og kann hvort tveggja að vera
að þeir ættu að taka meira á, og að
öðruvísi mætti stilla þeim upp miðað
við kór og hljómsveit. Ekki er ég
dómbær á það hvort eftirhljómur í
Hallgrímskirkju er lengri en í þeim
gotnesku kirkjum Evrópu sem fræg-
astar eru fyrir hljómburð; eftir-
hljómurinn heyrðist vel þegar
skyndilega var „slegið af“, og hann
veldur því að sjálfsögðu að texti er
ekki sérlega skýr. Samt þótti mér
það ekki til baga, enda verður tæp-
lega á hvort tveggja kosið, langan
eftirhljóm og stuttan.
Einsöngvarar voru þau Sigríður
Gröndal (sópran), Sigríður Ella
Magnúsdóttir (alt), Garðar Cortes
(tenór) og Kristinn Sigmundsson
(bassi). Sigríður Gröndal hefur lag-
lega rödd en er líklega meira efni í
ljóðasöngkonu en óperu- eða órator-
íusöngkonu, því hún er ekki radd-
mikil. Hinir söngvararnir, sem allir
eru margreyndir, virtir og vinsælir,
hefðu líka mátt taka meira á til að
eiga í fullu tré við kór og hljómsveit.
Tónlistar er hægt að njóta með
ýmsu móti. Sumir liggja uppi í rúmi
með „artitúr", aðrir sitja í hæg-
indastól og hlusta á glymskratta, enn
aðrir spila Bach með einum fingri,
eins og Nóbelsskáldið segist eiga til
að gera, og loks má hlýða á tónlistina
á hljómleikum. Það er að sjálfsögðu
hið fullkomnasta form, glitrandi
demantur í sæmandi umgjörð.
Þannig var Sálumessa Mozarts í
Hallgrímskirkju.
Sig. St.
PROFKJOR
ÁSTU RAGNHEÐI
í Annað Sætð
Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir er
landsþekkt fyrir farsœl
störf að fjölmiðlun og
ferðamólum.
Fylkjum okkur um Ástu
Ragnheiði í 2. sœti í
prófkjöri Framsóknar-
manna í Reykjavík
29.-30. nóvember.
Stuðningsmenn.
FRAMSÓKNARFLOKKSINS
Alhliða múrbrot og fleygun
Vanir menn - Leitið tilboða
Opið allan sólahringinn
Símar 77638-82123
STE/NSTEYPUSÖGUN
Kjarnaborun • Múrbrot
P.O.BOX 8432 • 128 REYKJAVÍK • S 82123 / 77638
Suðurland - happdrætti
Drætti í skyndihappdrætti Kjördæmasambands framsóknarmanna er
frestað til 8. des. n.k.
Enn er hægt að fá miða í þessu einstæða happdrætti. Sölumenn í
hverjum hreppi í kjördæminu.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma
Sæmunda Þorvaldsdóttir
Silfurgötu 28, Stykkishólmi
verður jarðsungin laugardaginn 29. nóvember frá Stykkishólmskirkju
kl. 13.30.
Þeir sem vilja minnast hinnar látnu, vinsamlega láti Hjartavernd njóta
ÞeSS Páll Oddsson
Áslaug Pálsdóttir Ólafur Gústafsson
Sesselja Pálsdóttir Þorbergur Bæringsson
Ásgerður Pálsdóttir Rósa Marínósdóttir
Þorvaldur Pálsson
og barnabörn.
t
Eiginmaður minn og faðir okkar
Björn Bergsteinn Björnsson
Sólheimum 30
lést af slysförum 26. þessa mánaðar.
Ólöf Helgadóttir og börn.