Tíminn - 23.12.1986, Side 7

Tíminn - 23.12.1986, Side 7
Þriðjudagur 23. desember 1986 ÚTLÖND Tíminn 7 Hermann, Eysteinn og Bjarni í sextugsafinæli Eysteins Sókn og sigrar Annað bindi sögu Framsóknarflokksins, skráð af Þórarni Þórarinssyni, er komið út. Það nær til áranna 1937-1956 og er jafnframt stjórnmálasaga landsins. Þeir, sem vilja gerast áskrifendur, snúi sér til Magðalenu Thoroddsen á skrifstofu Framsóknarflokksins milli klukkan 13.00 og 17.00. Bókin er seld á lægra verði til áskrifenda. Bókin er 280 lesmálssíður og 32 myndasíður. Kína: Ferdinand Marcos: Hótar heimkomu Filippseyjar: Marcos vill snúa aftur Á árunum 1937-1956 varð mesta þjóðlífsbreytingin á íslandi. Pöntunarsími 91-24480 Lögregla á götum úti í Shanghæborg - Fjölmennustu mótmælaaðgerðir í langan tíma áttu sér stað um helgina Manila - Rcuter Ferdinand Marcos fyrrum forseti Filippseyja sem nú er í útlegð hefur að undanförnu verið með háværar hótanir um að snúa heim. Marcos hefur með þessu móti haldið sig á forsíðum dagblaða auk þess sem yfirlýsingarnar hafa verkað sem vít- amínsprauta á hina dyggu stuðnings- menn hans á Filippseyjum. Ekki er þó með fullu vitað hvers vegna Marcos, sem komið var frá völdum í febrúarmánuði eftir miklar kröfugöngur og síðan byltingu hersins, vill snúa aftur. Hann segir sjálfur að hann vilji koma aftur til að hitta aldraða móður sína, vera viðstaddur jarðarför syst- ur sinnar og berjast gegn kommún- istum. Hinsvegar draga margir í efa að Marcos vilji í raun snúa aftur á þessum tíma til að hafa afskipti af innanríkismálum. Einn náinn ætti- ngi konu forsetans fyrrverandi, Imeldu Marcos, sagði reyndar í blaðaviðtali að eina ástæða þessara yfirlýsinga Marcosar-væri sú að hann vildi halda uppi bssáttuanda stuðn- Shanghai - Reuter Kínversk yfirvöld komu í gær í veg fyrir frekari mótmæli stúdenta í Shanghæ og voru 200 lögreglumenn á verði við staðinn þar sem mótmæl- in áttu sér stað um helgina. Þá var gefin út tilkynning þess efnis að í framtíðinni þurfi samþykki yfirvalda að koma til eigi að halda kröfugöng- ur. Þúsundir manna kröfðust aukins lýðræðis og frjálsari fjölmiðlunar á Torgi alþýðunnar í Shanghæ á sunnudaginn og voru það fjölmenn- ustu mótmælin sem sést hafa í Kína á síðustu árum. í gærdag birtust 200 lögreglumenn á torginu og var hver sá sem staðinn nálgaðist spurður um skilríki. Þá var einnig hafin skipulögð aðför í fjöl- miðlum að þeim sem þátt tóku í mótmælunum. Helsta dagblað borgarinnar Wen Hui Bao sagði glæpamenn hafa grip- ið tækifærið á síðustu tveimur dögunum sem mótmælin stóðu yfir og hefðu gerðir þeirra haft áhrif á framleiðslustörf og valdið öðrum truflunum í samfélaginu. Útvarpið í Shanghæ sagði að í framtíðinni þyrfti leyfi frá yfirvöld- um til að halda kröfugöngu eða mótmælafundi. Fréttirnar í gær voru þær fyrstu sem opinberir fjölmiðlar birtu um mótmælin og ókyrrðina sem verið hafa í háskólum víða um landið síðustu þrjár vikurnar. Mótmælaaðgerðirnar I Shanghæ stóðu yfir í þrjá daga og auk stúdent- anna tóku þúsundir almennra borg- ara þátt í kröfugöngunum. Leiðtog- ar stúdentanna fóru fram á við Jiang Zemin borgarstjóra að lýðræði yrði aukið svo og frelsi fjölmiðla. Auk þess var farið fram á að litið yrði á kröfugöngurnar sem löglegar og engar handtökur yrðu gerðar í kjöl- far þeirra. Borgaryfirvöld hafa lofað því að ekkert verði um handtökur þar sem samkvæmt stjórnarskránni megi menn fara í kröfugöngur. Hinsvegar hefur fréttastofan Nýja Kína sakað mótmælendur um að berja 31 lög- regluþjón og brjótast inn í skrifstof- ur stjórnvalda. Kínversk eining: Stjómvöld saka nú þá sem mótmæltu í Shanghæ um að vinna gegn þjóðareiningu ingsmanna sinna. Snúi Marcos aftur til heimalands síns getur farið svo að hann verði handtekinn. Talsmenn stjórnar Corazonar Aquino forseta hafa að vísu ekki gengið svo langt að segja þetta beint en það er hinsvegar ekkert leyndarmál að heima fyrir er Marcos sakaður um að hafa misnot- að almannafé og erlenda styrki sem nema milljónum dollara. Hann er nú í útlegð í Honolulu á Oauaeyju, sem er hluti af Hawaii eyjaklasan- um. Marcos sat við stjórnvölinn á Fil- ippseyjum í tuttugu ár, þar af stjórn- aði hann í níu ár með herlögum. Hann segist vilja koma heim til að vera viðstaddur útför yngri systur sinnar, sem lést þann 14. desember, heimsækja 94 ára gamla móður sína og „vinna á friðsamlegan hátt við að útrýma kommúnisma". Jarðarför yngri systur og heim- sókn til aldraðrar móður eru hlutir sem snerta hvern Filippseying djúpt þar sem virðing fyrir fjölskyldunni á sér djúpar rætur í þjóðarsálinni. Belgía: Lélegir falsarar Brussel - Reuter Peningafölsurum í Belgíu urðu á mikil byrjendamistök í fagi sínu nú nýlega. Þeir fölsuðu 500 franka seðla ekki betur en svo að þeir gleymdu að setja á þá undirskrift yfirgjaldkera og bankastjóra Seðlabanka þeirra Belgíumanna. Það var gjaldkeri í banka einum í bænum Termonde sem komst ekki hjá að taka eftir fölsuðu seðlunum og var lögreglu þegar gert viðvart. Hún leitar nú að lélegum fölsurum.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.