Tíminn - 24.01.1987, Side 1

Tíminn - 24.01.1987, Side 1
í STUTTU MÁLI... KENNARAR á Austurlandi § hafa sent forsætisráöherra bréf þar sem þeir fordæma „þvergiröingshátt" I menntamálaráöuneytis í málefnum 8 Sturlu Kristjánssonar og telja aö meö | | aögerðum sínum hafi menntamálaráö- | f herra hafnað því grundvallarsjónar- í miöi að jafnrétti skuli ríkja til náms. Þá §j | telja kennarar að ríkisstjórnin öll sé ;; ábyrgfyrirmálinuogteljaaöframkoma j i ..Sverris Hermannssonar í máli I i þessu gefi tilefni til áleitinna efasemda | 1 um hæfni hans til aö gegna ráðherra- is I embætti". | LOÐNUVEIÐIN var dræm í I | gær og fyrrinótt, en sólarhringinn þar y á undan tilkynntu 14 bátar um 8 þús. 1 tonn. Aö sögn Ástráös Ingvarssonar eru miöin útaf Berufirði viö svokallaöan „fót“ sem er um 50-70 mílur undan landi. Kom' fram hjá Ástráði aö loönan hverfi oft þegar hún er svona djúpt og því verra viö hana að eiga en ef hún erpær landi. í gær bárust svo fregnir af þvi aö menn hefðu verið aö finna torfur útaf Dalatanga og Sléttu. Heildarveiöin frá uþphafi vertíöar í haust er orðin 590 þús. tonn, þar af 38 þús. tonn frá áramótum. Þá var eftir aö veiða um 370 þús. uppí heildarkvótann og sagði Ástráöur aö þaö færi allt eftir tíðinni hvort tækist að fylla hann en veiðarnar standa fram í mars. FJÖLDI SLYSA varð í Reykjavík seinnipartinn í gær. Á einum og hálfum klukkutíma voru sex mann- eskjur fluttar á slysadeild eftir þrjá mjög haröa árekstra. Ekki var um lífshættuleg meiösli aö ræöa í þessum slysum en til marks um hörku árekstr- anna má geta þessa aö öll sex ökutæk- in sem voru í þessum árekstrum voru tekin með kranabíl af slysstað. Þá var ein kona flutt á slysadeild snemma í gærmorgun eftir aö ekið var á hana á Suðurlandsbraut. STEFÁN Valgeirsson hefur lýst 1 því yfir aö hann muni áfrýja úrskurði kjördæmissambands Framsóknar- flokksins í Noröurlandi eystra frá því í fyrrakvöld, sem veitti honum ekki heimild til aö bjóöa fram í nafni Fram- sóknarflokksins undir merkjum BB framboös. FARMANNADEILANernú komin í enn einn hnútinn, en upp úr viöræðum slitnaði í gærkvöld hjásátta- semjara eftir aö fundur haföi staðiö frá því kl 14:00 í gærdag. Samningamenn vinnuveitenda lögðu fram nýjar tillögur á fundinum í gær en þessum tillögum var síðan hafnaö af sjómönnum. Allt var á huldu meö framhald þessarar langvinnu deilu og hefur nýr samninga- fundur ekki veriö boöaöur. SAMTÖKIN 78 hafa komið | sér upp starfsmanni til þess aö annast fræðslu og ráögjöf fyrir homma oa lesbíur. Starfsmaourinn, sem er ætlað að reka áróöur fyrir og kynna hvernig þessir hópar geti lifaö hættulausu kynlífi og forðast aö smitast af eyðni, heitir Böövar Björnsson. Einnig mun hann veita ráögjöf smituðum og sjúk- um einstaklingum og fylgjast meö andlegri líðan þeirra og hjálpa þeim aö leita aösoöar opinberra aöila. Jafn- framt hafa samtökin gefið út bækling undir nafninu „Hættulaust kynlíf" og er hann ætlaður samkynhneigöum karl- mönnum. KRUMMI „Ég vona að niður- skurðurinn verði í takt við tímann". Niðurskuröur hjá Ríkisútvarpinu. „Sumardagskrá" allt árið: Innlend dagskrárgerð verður skorin niður „UndarJeg framkvæmd á útvarpslögum,“ segir Hörður Vilhjálmsson, fjármálastjóri RUV Gert er ráð fyrir stórfelldum niðurskurði á fjárveitingum til Ríkisútvarpsins á þessu ári. Að- spurður sagði Hörður Vilhjálms- son fjármálastjóri RUV að það væri fyrirsjáanlegt að spara þyrfti mjög mikið í rekstri á árinu. Að jafnaði yrði um að ræða 8-10% samdrátt í rekstri, en það væri þó misjafnt á milli deilda. Ákveðið hefur verið að fréttastofur stofnun- arinnar haldi sem næst óbreyttum styrk, sem aftur kemur því Wröar niður á rekstrarumsvifum annarra deilda. Harðast mun þessi samdráttur þó koma niður á framkvæmdum á vegum stofnunarinnar. Endurnýj- un tæknibúnaðar sjónvarps og hljóðvarps auk framkvæmda við dreifikerfi verða stórlega skertar. Þá munu byggingarframkvæmdir við nýja útvarpshúsið stöðvast inn- an skamms. Þó er gert ráð fyrir að starfsemin á Skúlagötunni flytjist þangað í febrúar eða mars en síðan verði framkvæmdum nánast hætt. Það er því allt óljóst um flutning sjónvarpsins, en miðað við þær áætlanir sem uppi voru hefði það átt að geta flutt um mitt næsta ár. Stofnuninni er ætlað að bera 103 millj. af eigin fé til að tekjur mæti gjöldum. Að sögn Harðar verður erfitt að ná þessu markmiði, en allt verði þó gert til þess að það takist. Innlend dagskrárgerð mun að öllum líkindum minnka og dagskrá sjónvarpsins verða svipuð og verið hefur á sumrin. Hvað tekjuöflun á árinu varðar þá gera menn ráð fyrir talsvert minni auglýsingatekjum og er það byggt á reynslu undanfarinna ára, að viðbættri aukinni samkeppni. Annar tekjuliður, aðflutnings- gjöld af sjónvarps og hljóðvarps- tækjum, var fyrirvaralaust tekinn af stofnuninni og gerði upphafleg tillaga meira að segja ráð fyrir því að sviptingin skyldi vera afturvirk um eitt ár. Það varð þó að sam- komulagi að hún gilti frá síðustu áramótum. Kom fram hjá Herði að þessi tekjustofn hafi gefið 12- 13% af heildartekjum. Útvarpsmenn eru ekki allskostar sáttir við þennan niðurskurð og sagði Hörður þetta heldur „undar- lega framkvæmd á útvarpslögum". „í allri umræðu unt lögin tóku fulltrúar allra flokka undir það að Ríkisútvarpið ætti að halda fullum mætti sínum í samkeppninni, en síðan er það sett í vissan vanda strax í upphafi þessarar sam- keppni." RR Það sést greinilega á niyndinni hvernig nef- hjól vélarinnar snýr til hægri. Þegar vélin lenti féll það í miðjustöðu aftur og alll reyndist fara vel. Á innfelldu myndununi sést liluti viðbúnaðarins. Á myndinni til vinstri sést hvar Arnþór Ingólfs- son yfirlögregluþjónn er í talstööinni en hann stjórnaði aðgerðum á jörðu niðri. Magnús Einarsson fylgist með fránuni aiigum. I íinamyndir Svcrrir Gífurlegur viðbúnaður vegna Árfara: NEFHJÓLIÐ 0LLIHRÆDSLU EN LENDINGIN TÓKST VEL Hætt við lendingu í Reykjavík og farið til Keflavíkur Gífurlegur viðbúnaður var á Reykjavíkurflugvelli í gær laust fyrir hádegi eftir að flugstjóri TF-FLO, Arfara, hafði tilkynnt um að eitthvað væri athugavert við nefhjól vélarinnar. Grænt Ijós í mælaborði kviknaði ekki og hjólið fór ekki að fullu upp í hjólahús vélarinnar. Flugstjóri Árfara tilkynnti þetta til flug- stjórnar og jafnframt að hann hygðist snúa af áætlun til ísal'jarð- ar og lenda á Rcykjavíkurflug- velli. Slökkvilið var kallað út og sérstök læknavakt af Borgarspí- tala. Lögreglan mætti og var í fararbroddi Arnþór Ingólfsson yfirlögregluþjónn. í samráði við flugvirkja ákvað flugstjórinn að halda til Keflavík- ur og freista þess að lenda þar þrátt fyrir að ncfhjól vísaði aðeins til hægri. Flogið var lágflug yfir Reykjavíkurflugvöll og fylgdust flugvirkjar með nefltjólinu. Ákveðið var að fara til Keflavtk- ur eftir að menn höfðu séð nef- hjólið. Þar var mikill viðbúnaður og öryggisbúnaður betri að sögn Jóns Óttars Ólafsson deildar- stjóra Flugleiða. Vélin lenti heilu og höldnu á Keflavíkurflugvelli klukkan 11:27 og var þá búin að vera á lofti frá því klukkan 10:10. 49 manns voru um borð í vélinni, með áhöfn og sýndu allir mestu stillingu. Árfari fór aftur í áætlunarflug síðdegis eftir að flugvirkjar höfðu kannað nefhjól- ið og flugvélina. - ES

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.