Tíminn - 24.01.1987, Qupperneq 2

Tíminn - 24.01.1987, Qupperneq 2
2 Tíminn Laugardagur 24. janúar 1987 Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar: Davíð viídi ráð- hússjóð frekar en öldrunarsjóð Telur 60 milljónum betur variö í ráöhús en byggingu leiguíbúöa aldraðra Davíð Oddsson borgarstjóri og meirihlutinn í borgarstjórn vildu ráðhússjóð frekar cn öldrunarsjóð við afgreiðslu fjárhagsáætlunar í fyrrinótt. Minnihlutinn stóð að tillögu um að stofnaður yrði sérstakur öldrun- arsjóður og til hans varið þeirri upphæð, sem í frumvarpi meirihlut- ans var ráðgert að vcita í ráðhússjóð, samtals 60 milljónum króna. Minnihlutinn gerði ráð fyrir því að sjóðurinn yrði nýttur til þess að fjármagna byggingu vistheimilis og/ eða þjónustuíbúða til útlcigu á veg- um borgarinnar. Með stofnun sjóðs- ins yrði hluti af tckjuaukningu á árinu 1987 varið til að fjármagna fjárfrekar en óhjákvæmilegar fclags- legar framkvæmdir á næstu árum. Davíð Oddsson fylgdi frávísunar- tillögu sjálfstæðismanna úr hlaði. I umræðum um málið sagðist hann telja þá hugmynd að stofna sérstak- an sjóð, -öldrunarsjóð-, án þess að greina frá fyrirkomulagi um stjórn eða starfscmi, nema að fjármagna eigi með honum byrjunarfram- kvæmdir við cina byggingu fyrir vistheimili eða þjónustuíbúðir, vera allsendis óábyrga. Ingibjörg Sólrún benti á að for- sendurnar væru nákvæmlega þær sömu og gert væri ráð fyrir í stofnun ráðhússjóðs. Mcirihlutinn samþykkti frávísun- artillögu sjálfstæðismanna gegn at- kvæðum minnihlutans. Tillaga sjálf- Borgarstjóri i stjórnarfundi ræðustól á borgar- Tímamynd: Sverrir stæðismanna um ráðhússjóð varsíð- an samþykkt af meirihlutanum. - HM Dagvistun barna í Reykjavík: 1200 börn á biðlista, 17 ný pláss á árinu - sagöi Kristín Ólafsdóttir í borgarstjórn „Það eru 1200 börn á biðlista eftirdagvistunarplássi í Reykjavík. Fyrir þann hóp ætlar meirihíutinn að opna 17 nýpláss á árinu 1987," sagði Kristín Olafsdóttir í umræð- um um fjárhagsáætlun í borgar- stjórn, þegar hún fylgdi tillögum rninnihlutans um aukin framlög til dagvistarmála úr hlaði. „Fólki er gert erfiðara að lifa mannsæmandi lífi en nauðsyn er hér í borginni. Tillögur okkar í minnihlutanum eru ætlaðar til að brcyta því. Tillögurnar eru góðar og marktækar og gera glundroða- kenningu Sjálfstæðisflokksins hlægilega. Við þettaerborgarstjór- inn og meirihlutinn hræddur," sagði Kristín einnig í ræðu sinni. „í dag eru aðeins til dagvistun- arpláss fyrir 14% barna og skóla- dagheimilispláss aðeins fyrir 5% 6-9 ára barna. I ár á að vcita 48 milljónum króna í dagvistun barna, sem er sama tala og fyrir árið 1986. Því eru orð borgarstjóra þegar hann segir að framlög til stofnkostnaðar dagvistarstofnana hækki unt tæp 50%, hlægileg." - HM Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar: Hljóðar upp á 5,5 m illjarða - rúmir 4 milljaröar í rekstrargjöld en 1,5 milljarðar í eignabreytingar Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborg- ar sem samþykkt var í borgarstjórn í fyrrinótt hljóðar upp á rúma 5,-5 milljarða króna. Þar af er gert ráð fyrir að rúmir 4 milljarðar fari í rekstrargjöld, en um 1,5 milljarður í eignabreytingar. 1 fjárhagsáætlun er gert ráð fyrir rúmum 700 milljónum til gatnagerð- ar og um 600 milljónum í fræðslum- ál. í heilbrigðismál fara rúmlega 330 milljónir, þar af 126 milljónir í tannlækningar í skólum sem er lang- hæsti einstaki rekstrarliður heil- brigðismála. í stjórn borgarinnar fara unt 250 milljónir króna. Eins og áður segir munu 1,5 milljarðar króna fara í eignabreyt- ingar, en það er svipuð upphæð og fer til allra félagsmála. Hæsti eign- abreytingaliðurinn er liðurinn ýmsar fasteignir sem hljóðar upp á tæpar 250 milljónir. Borgarleikhús fær 130 milljónir og framlag til stofnana f þágu aldraðra er 118 milljónir. í skólabyggingar eru áætlaðar 110 milljónir á næsta ári, í ráðhússjóð til seinni nota 60 miljónir. Þá má geta þess að 20 milljónir eru ætlaðar til kaupa á leiguíbúðum. -HM Kanínukögglar Fóðursam- I hvert kg setning % er bætt Maís 5,5 Vítamín A 10000 AE Bygg 18,63 Vítamín D3 1000 AE Hafrar 18,0 Vítamín E 20,0 mg Fiskimjöl 8,0 Vítamín K 1,0 mg Grasmjöl 35,0 Vítamín B2 2,0 mg Hveitiklíð 5,0 Vítamín B12 4,0 mcg Sykur 2,0 Colin 250,0 mg Sojamjöl 4,45 Nicotin 15,0 mg Fita 1,70 Pantoten 8,0 mg Kalk 1,37 Auk þess snefilefnin Salt 0,10 kopar, mangan, járn, Vítamín 0,25 selen, joð og zink. 100,0 Fóðurgildi í kg Fóðureiningar 0,88 Hráprótein 16,0 % Kalsíum 12,0 g Fosfór 6,0 g Natríum 2,0 g Lysin 7,0 g Metionin 3,0 g Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar: Samheldinn minni- hluti kaf- sigldur i fyrrinótt Áhersla á málefni aldraðra, dagvistarmál og húsnæöismál átti ekki upp á pallborö meirihlutans VELJUM ÍSLENSKT Notkun: Heilfóður fyrir ullarkanínur. Kögglastærð: 3 mm. 40 kg Samheldnir fulltrúar minnihluta- flokkanna í borgarstjórn voru kaf- sigldir af meirihluta sjálfstæðis- manna við afgreiðslu fjárhagsáætl- unar Reykjavíkurborgar í fyrrinótt. Minnihlutinn hafði sameinast um ýtarlegar breytingartillögur á fjár- hagsáætlun, þar sem sérstök áhersla var lögð á málefni aldraðra, dagvist- armál og húsnæðismál. Tillögur þessar áttu ekki upp á pallborðið hjá meirihlutanum, sem samþykkti aðeins eina tillögu minnihlutans, 30.000 króna framlag vegna íþróttaiðkana aldraða. Þá var tillaga um að hús yrði keypt til að reka dagþjónustu fyrir aldraða r' einhverju af eldri hverfum borgar- innar vísað til borgarráðs og tillögu um að sérstakt átak skuli gert til að ráða bót á ástandinu á Miklubraut við Rauðagerði og á gatnamótum Sogavegar og Réttarholtsvegar var vísað til umferðarnefndar. Hins vegar var ályktunartillaga Sigrúnar Magnúsdóttur borgarfull- trúa Framsóknarflokksins, um að verja 20 milljónum króna í sérstakan sjóð til að auðvelda foreldrum ungra barna að vera heima hjá þeim fyrstu æviárin, vísað til stjórnar dagvistar barna. Bjarni P. Magnússon borg- arfulltrúi Alþýðuflokksins fékk ein- nig tillögu sinni um að Bylgjan, Stöð 2 og Helgarpósturinn njóti undan- þágu vegna aðstöðugjalda vísað til borgarráðs. Sú varð einnig raunin með tillögu Alþýðubandalags er varðaði minnkun tckna hitaveitu. Allar aðrar tillögur minnihlutaflokk- anna, nær 80 að tölu voru felldar eða þeim vísað frá. -HM Verð pr. tonn sekkjað kr. 12.900,- fæ FJÓRÐUNGSS JÚKRAHÚSIÐ Á AKUREYRI Óskar aö ráöa sjúkraþjálfara til starfa. Upplýsing- ar veitir Ankie Postma, sjúkraþjálfari í síma 96-22100. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist Ankie Postma, fyrir 1. mars nk. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.