Tíminn - 24.01.1987, Qupperneq 3
Laugardagur 24. janúar 1987
Tíminn 3
Hinrik Greipsson, formaður SÍB:
Leggjum áherslu á að
engum verði sagt upp
- grípum til aðgerða verði það gert
„Stjórn SÍB hcfur ekki tckið neina
afstöðu til neinna þeirra leiða sem
stjórn Seðlabanka mótaði á sínum
tíma. bað sem við höfum samþykkt
er að fylgjast með framvindu mála
og reyna eftir því sem við getum að
gæta hagsmuna allra starfsmanna,"
sagði Hinrik Greipsson. formaður
Sambands íslenskra bankamanna í
samtali við Tímann í gær.
„Við munum leggja á það ríka
áherslu að það vcrði engum starfs-
manni sagt upp. sama hvaða leið
verður valin. Að það njóti allir
áfram þeirra réttinda sem þeir hafa
í dag og að sem minnst röskun verði
fyrir okkar félagsntenn." sagði
Hinrik.
Sagði Hinrik að SÍB reiknaði ekki
með að neinu starfsfólki verði sagt
upp, en hins vegar væri mikil hreyf-
ing á starfsfólki innan bankanna og
því yrði væntanlega farin sú leið, að
ekki yrði ráðið nýtt starfsfólk í stað
Hinrik Greiðpsson, form. SÍB.
þess seni hættir.
Kænii hins vegar til beinna upp-
sagna, sagði Hinrik að hann reiknaði
með að SÍB gripi til aðgerða. „Við
höfum fyrirmyndir frá Norður-
löndununt þar sem bankar hafa vcrið
sameinaðir og þar hefur ekki verið
gripið til uppsagna starfsfólks. Þann-
ig að við hljótum að mótmæla því
harðlega, verði til slíkra aðgerða
gripið."
Sagði Hinrik að stjórn SÍB hefði
rætt við alla þingflokka, nenta þing-
flokk Framsóknarflokksins, sem
yrði þó gert við fyrsta tækifæri,
Hefði stjórn SIB lagt á það sérstaka
áherslu í þessum viðræðum að þess
yrði gætt sérstaklega að starfsfólk
nyti sömu lífeyrisrcttinda og það
hefur í dag, eftir hugsanlegar breyt-
ingar. Sagði Hinrik að viðtökur við
þessum málaleitunum hefðu verið
mjög góðar.
-pph
Sex íslensk tryggingafélög:
Samsteypa stofnuð um
fiskeldistryggingar
Endurtryggt veröur aö hluta innánlands
Sex íslensk tryggingafélög hafa
-sameinast unt stofnun Samstéýpu
íslenskra fiskeldistrygginga. Stofn-
aðilar eru: Almennar tryggingar
hf., Brunabótafélag íslands. Reyk-
vfsk endurtrygging hf. Sjóvátrygg-
ingafélag íslands hf., Tryggingar-
miðstöðin hf. og íslensk endur-
trygging.
Tilgangurinn með stófnun sam-
steypunnar er þríþættur. í fyrsta
lagi til þcss að vinna að því að
samræma skilmála og að ákvarðan-
ir um þá, svo og iðgjöld. verði
teknar hér á landi. í öðru lagi
verður hlutverk samsteypunnar að
sjá til þess að aðildarféfbgin hafi
sem fyllstu tölulegu upplýsingttr
yfir þessar tryggingar. í þriðja lagi
verður miðað að því að fullnýta þá
möguleika sem fyrir hendi cru
innanlands. Aðildarfélögin munu
endurtryggja hjá hvcrt öðru hluta •
af tryggingunum. en það fer eftir
samþykktum samsteypunnar.
Formaður stjórnar samsteyp-
unnar er Einar Sveinsson forstjóri
Sjóvá. Hattn sagði að undirbúning-
ur að þessari samsteypu hefði stað-
ið frá því snemma í fyrra. Sagði
hann að iðgjöld væru mjög há
vegna fiskeldistrygginga og stæði
það í eðlilegu hlutfalli við mikil
tjón og háar fjárhæðir. Einar benti
á að það sem væri ntest áríðandi nú
væri að njörva niður skilmála sem
tækju til íslenskra aðstæðfta.
Fiskeldi á íslitndi býr á margan
hátt við sérstakar aðstæður þar
sent slæmt veður og náttúruham-
farir geta gert alvarleg strik í
reiknjnginn hjá fiskeldis'stöðvum
og mikil hætta er á altjóni og að
fyrirtæki hreinlega verði að leg'gja-
upp laupana.
Sérstök tækninefnd veröur skip-
uð og hefur hún störf innan.
skainms. ( henni munu sérfræöing-
ar a( öllum 'sviðum fiskeldis eiga
sæti og veita upplýsingar til
stjórnar.
Með endurtryggingu innanhmds
ntunu markmið samsteypunnar
vcröa að ná betri skilmálum og
hagstæðari iðgjöldum.
-ES
I . v~
/'
Jóhannes Geir og Sigurður Þórir Sigurðsson vinna að uppsetningu sýningar-
innar í Gamla bíói.
Óperunni gefin
verk listamanna
- 50 myndlistarmenn gefa myndverk sín
„Örlæti, skilning og samstöðu ís-
lenskra listamanna virðast lítil tak-
mörk sett. Um árabil hefur fjöldi
söngvara og tónlistarmanna lagt
fram krafta sína og tíma til að halda
starfsemi íslcnsku óperunnar gang-
andi, oft gegn mjög vægri þóknun.
Og nú hafa 50 íslenskir listamenn
tekið sig saman um að gefa íslensku
óperunni myndverk til fjáröflúnar
fyrir starfsemina,“ segir í frétt sem
(slenska óperan hefur sent frá sér.
Frumkvæðið að þessari höfðing-
legu gjöf myndlistarmannanna átti
Jóhannes Geir Jónsson listmálari,
en eftir að sjónvarpið sýndi í beinni
útsendingu í vetur óperuna II Tro-
vatore eftir Verdi, ákvað Jóhannes
aö gefa óperunni verk eftir sig og
fékk síðan í lið með sér flciri lista-
menn.
Óperan ntun í dag opna sýningu á
þessunt myndum í húsakynnum sýn-
um í Gamla bíói f Reykjavík. Við
opnun sýningarinnar í dag verður
tónlistarflutningur á dagskrá og mun
Sigrún Hjálmtýsdóttir m.a. syngja
við undirleik Önnu Guðnýjar
Guðmundsdóttur.
Evrópumarkaöur:
Góð sala á frystum
sjávarafurðum
- birgöir engar um áramót
Þrátt fyrir mjög harða samkeppni
við ísfisk og gámafisk á síðastliðnu
ári jókst sala á frystum sjávarafurð-
um hjá Iceland Seafood Limited
meir en nokkru sinni á einu ári.
Á árinu 1986 seldi fyrirtækið fryst-
ar sjávarafurðir fyrir 31 millj. sterl-
ingspunda sem er aukning uppá
62,8% frá árinu áður. I magni var
salan 16.800 lestir sem jafngildir
30,8% aukningu frá 1985.
Árið 1981, sem var fyrsta starfsár
fyrirtækisins, var salan rúmar 3 millj.
sterlingspunda og lætur því nærri að
Afkoman í öfugu hlutfalli viö veltuaukninguna
Mestu uppgangsfyrirtækin
1985 Hafskip og A rnarflug
Skipti skins og skúra hafa verið
með eindæmum ör hjá fyrirtækinu
Hafskip hf. Árið 1985 hoppaði
Hafskip upp í sæti 19. stærsta fyrir-
tækis á Islandi úr 62. sæti árið áður.
Mælt í veltuaukningu var Hafskip
í hópi tíu mestu uppgangsfyrir-
tækja landsins með um 103%
veltuaukningu milli ára, sem var
53% umfram veðrlagsbreytingar.
Veltuaukning hjá helstu keppi-
nautunum, Eimskipafélagi (slands
varð hins vegar aðeins 30%, sem
þýddi um 2% samdrátt miðað við
verðlagsbreytingar á vöru og þjón-
ustu. Hafskip fjölgaði einnig
starfsmönnum um nær 4% upp í
287 á meðan
heldur.
Eimskip fækkaði
Samkvæmt skrá Frjálsrar versl-
unar yfir stærstu fyrirtæki á íslandi
var velta Hafskips um 1.918 mill-
jónir árið 1985 og hafði aukist um
973 milljónir frá árinu áður. Velta
Eimskips var 2.714 milljónir en
hafði aðeins aukist um 626 milljón-
ir á sama tíma.
Hjá Eimskip varð um 47 millj.
króna tap á árinu, eða 5,2% af 904
milljóna króna eigin fé. Heildar-
skuldir fyrirtækisins voru 2.880
milljónir. Aftur á móti eru eyður í
skránni hvað varðar allar upplýs-
ingar um Hafskip aðrar en sjálfa
veltuna og veltuaukninguna milli
ára.
Athyglivert er að annað flutn-
ingafyrirtæki sem mikið hefur verið
í fréttum vegna fjárhagsörðugieika
- Arnarflug hf. - sýndi þó mestu
veltuaukningu allra fyrirtækja árið
1985, eða 192%, sem færði fyrir-
tækið í 30. úr 60. sæti stærstu
fyrirtækja. Eru þetta glögg dæmi
um að ekki fara alltaf saman mikil
umsvif og góð afkoma.
Velta Arnarflugs er sögð 1.161
millj. króna 1985. Tapið var hins
vegar rúmar 69 millj., eða um 6%
af veltu og eigið fé neikvætt um 191
milljón króna. Heildarskuldir eru
taldar 554 millj. kr. að lang mestu
leyti til skamms tíma.
Flugleiðir, sem lækkað hafði úr
3. niður í 4. sæti (vegna uppgangs
Landsbankans) hafði 38% veltu-
aukningu milli ára og skilaði 197
millj. kr. hagnaði sem var um
3,4% af 5.783 millj. króna veltu.
Heildarskuldir námu 2.806 millj.
en eigið fé 287 millj. Hagnaður
sem hlutfall af eiginfé nam því um
69%, sem er lang hæsta finnanlegt
hlutfall í skránni ef ÁTVR er
undanskilin.
-HEI
salan hafi tífaldast á þessum sex
árum.
Sölusvæði Iceland Seafood Ltd.
er, auk Bretlandseyja, Frakkland,
Holland, Belgía og Vestur-Þýska-
land. Þess ber þó að geta að sala
Hamborgarskrifstofunnar er ekki
innifalin í tölunum hér að framan. Á
skrifstofum fyrirtækisins í Hull og
Hamborg starfa samtals sex manns.
í byrjun árs 1986 var sala sjávar-
afurða, sem skrifstofa Sambandsins
í Hamborg hafði annast, færð undir
Iceland Seafood Ltd., sem nú rekur
söluskrifstofu þar.
Á árinu 1986 seldi skrifstofan fyrir
10,2millj. marka.enþaðsamsvaraði
103% aukningu frá árinu áður. Að
magni til jókst salan um 57,6% frá
1985 og var 2.265 lestir.
Eins og fram kemur í tölum um
sölu hér að framan virðist fiskncysla
fara vaxandi í þessum löndum. Þá
hefur verðið einnig hækkað talsvert.
Ekki tókst að fullnægja eftirspurn og
voru birgðir engar um áramót ef frá
er talið nokkurt magn af frystri síld.
í sölutölum Iceland Seafood Ltd.
kemur fram að söluaukningin hefur
orðið mest í þorski og rækju, en sala
á rækju meira en tvöfaldaðist á
síðasta ári.
Um nýliðin áramót urðu fram-
kvæmdastjóraskipti hjá Iceland Sea-
food Ltd. Benedikt Sveinsson, sem
verið hafði framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins síðastliðin sex ár, lét af því
starfi og gerðist aðstoðarfram-
kvæmdastjóri í Sjávarafurðadeild
Sambandsins í Reykjavík. Við starfi
Benedikts hjá Iceland Seafood Ltd.
tók Sigurður Á. Sigurðsson, en veitti
áður forstöðu skrifstofu Sambands-
ins í London.
RR