Tíminn - 24.01.1987, Qupperneq 4
4 Tíminn
NÝLEG A var unnið að upp-
töku kvikmyndar um hinn
fræga ítalska ævintýra-
mann Giovanni Jacopo
Casanova (1725-1798), sem víð-
frægur er af rituðum endur-
minningum sínum.
Myndin var tekin á Spáni og
þangað kom leikarinn Richard
Chamberlain, því hann var fenginn
til að leika kvennagullið.
„Það er verið að segja við mig að
ég sé dæmigerður Casanova, og
hafi þess vegna verið fenginn í
hlutverkið", sagði Chamberlain á
blaðamannafundi við komuna til
Spánar. Hann bætti því við, að
reyndar hefði hann átt í mörgum
ástarævintýrum og þeim mörgum
dásamlegum, en hann hefði aldrei
bundist einni konu og því ekki
gifst, „en ég er ekki líkur honum
eins og hann kemur fyrir í sög-
unni",ítrekaöi hann. Hann sagði,
að þá mætti alveg eins segja að
liann væri dæmigerður Bricassart
kardináli, sem sjónvarpsáhorfcnd-
ur muna eftir úr „Þyrnifuglunum.“
Það passar auðvitað ekki heldur",
sagði lcikarinn.
Richard Chamberlain er um
fimmtugt en lítur út fyrir að vera
a.m.k. 10 árum yngri. Hann bregð-
ur sér í gervi kvennabósans Casa-
nova og virðist kunna vel við sig í
hlutverkinu. Upp úr árunum 1960
var Chamberlain þekktastur sem
Kildare læknir, en hann lék í
mörgum myndum, sem sncrust um
þá vinsælu persónu.
Leikarinn sagði í viðtalinu, að
hann væri orðinn svolítið þreyttur
á þessum stöðugu ferðalögunt sem
fylgdu kvikmyndaleik víða um
heim,- og kannski er það þessu
flakki að kenna að ég hef ekki
getað haldið „föstu sambandi'" við
eina konu, sagði hann. Annars
sagðist hann ánægður með lífið.
Hann ætti marga vini og félli yfir-
leitt vel sín vinna. Richard sagði,
að sér líkaði vel að vera í London,
en þar stundaði hann mikið
leikhúsin og þar hafi hann kynnst
Shakespearesýningum.
í aðalkvenhlutverki í myndinni
um Casanova er ítalska leikkonan
Ornella Muti. Þegar hún kom til
Spánar var mikið skrifað um hana.
Hún kom með ógnarlega mikinn
farangur og tvær dætur sínar með
sér, Naike sem er 10 ára og Carol-
ina 2ja. Ornclla ætlaði þó aðeins
að dveljast í 10 daga á Spáni
meðan væri lokið við að taka upp
atriðin sem hún á að koma frant í.
Hún sagðist mjög hrifin af því að
leika á móti Richard Chamberlain
og þetta yrði áreiðanlega spenn-
andi mynd.
Blaðamcnn og ljósmyndarar
lögðu áherslu á að hin 29 ára gamla
leikkona hefði aldrei verið jafn
fögur og nú. en hún sjálf hló að
þessu og sagði: “Ég er nú engin
stelpa lengur!"
Ornella hel'ur unnið á Italíu,
Sviss og Los Angeles, en hún segir:
„Ég kýs helst að eiga heima sem
næst fjölskyldu minni. hitta hana
oft og borða spaghetti." Síðustu 8
árin hefur Ornella og sambýlis-
maður hennar og umboðsmaður.
lögfræðingurinn Frederico Fachin-
etti og dætur þeirra búið í Los
Angeles, en nú ætla þau að flytja
til Sviss. „Gott upp á skattana, og
stutt til Ítalíu!".
Ricliard Chaniberlain í
hlutverki
kvennahósans Iræga
Casanova
/ hi
Ornclla IMuti leikur aðalhlutverkið í myndinni um Casanova,
- en sjálfsagt koma margar aðrar konur þar við sögu
Góð
sam-
vinna
r
A
M m þessu farartæki er ekki hægt að ferðast nema að samvinnan sé í lagi, ef svo er ekki, - hvar
lenda þessir þrír heiðursmenn þá? Þeir smíðuðu sjálfir þetta stóra og skrýtna hjól fyrir þrjá og svo
verða þeir að koma sér saman um hver eigi að stýra og hversu hratt skuli fara og æfa sig í að bremsa
samtaka. •
Þeir eru góðir kunningjar og þess vegna ætla þeir að hætta á að halda í sumarfrí saman á hjólinu
sínu, og vonandi verða þeir sammála um leiðina, svo þeir rembist ekki við að hjóla sinn í hvora áttina.
Þarna verður samvinnan að vera í fyrirrúmi.
Enn ein útgáfa af
lífi kvennabósans
Laugardagur 24. janúar 1987
SVEITARSTJÓRNARMÁL
Enn um fjórð-
ungsþing
Norðlendinga
Áður en litið er á hinar ýmsu
fundargerðir sveitarstjórna sem
safnast hafa fyrir um og upp úr
áramótunum, þá munu birtast þær
samþykktir sem fjórðungsmála- og
allsherjarnefnd lagði fyrir fjórð-
ungsþing Norðlendinga. Eftir það
verður sagt skilið við þetta merka
þing.
Átak í
samgöngumálum
Fjórðungsþing Norðlendinga
hvetur til þess að hagstætt verðlag
á olíuvörum á heimsmarkaði verði
nýtt til að auka framlög til vegagerð-
ar í landinu, einkum til lagningar
bundins slitlags, þannig að þessara
áhrifa gæti til frambúðar, með bættu
vegakerfi.
Stórauka verður framlag ríkisins
til hafnarframkvæmda. Niðurskurð-
ur fjármagns til þeirra undanfarin ár
hefur orsakað mikinn samdrátt fram-
kvæmda og nauðsynlegs viðhalds
og stefnir afkomu margra byggðar-
laga sem byggja tilveru sína á
sjávarfangi, í verulega hættu.
Hér er ekki um sparnað að ræða,
heldur frestun vanda sem eykst
með hverju ári og verður ekki unað
lengur.
Gera verður átak í uppbyggingu
flugvalla og öryggisbúnaðar þeirra
og væntir þingið þess að séð verði
fyrir sérstöku fjármagni til þessa
verkefnis, sem miðist við fullbúna
áætlunarflugvelli, svo að þeirstand-
ist öryggiskröfur og að þeir verði
lagðir bundnu slitlagi.
Stjórnsýslustöövar
Fjórðungsþingið felur fjórðungs-
stjórn að knýja á um að gerðar verði
sérstakar ráðstafanir af hálfu hins
opinbera til uppbyggingar stjórnsýsl-
umiðstöðva á landsbyggðinni.
Millistjórnstig
Fjórðungsþingið telur brýnt að
sett verði löggjöf um millistjórn-
sýslustig sem sæki vald sitt til kjós-
enda í beinum kosningum. Þetta
stjórnsýslustig fái sjálfstæða tekju-
stofna og hafi umsjón með þorra
þeirra verkefna sem nú eru í hönd-
um ríkisvaldsins og eðlilegt er að
fela lýðræðiskjörinni heimastjórn.
| Fræðsla sveitar-
stjórnarmanna
Fjórðungsþingið styður hugmynd
Sambands íslenskra sveitarfélaga
um að komið verði á námskeiðum
fyrir framkvæmdastjóra sveitarfé-
laga og sveitarstjórnarmenn í sam-
vinnu við landshlutasamtökin.
Endurskoöun
skipulagslaga
Fjórðungsþingið leggur til að
frumvarp til skipulagslaga sem sent
hefur verið fjórðungsstjórn til um-
sagnar, verði breytt í veigamiklum
atriðum. í því sambandi bendirþing-
ið á fyrri samþykktir um að Skipulag
ríkisins stofni til útibúa, eða kostaðir
séu sérstakir skipulagsráðgjafar í
tengslum við landshlutasamtökin,
sem starfi jöfnum höndum fyrir
Skipulag ríkisins og einstök sveitar-
félög.
Fjórðungsþing Norðlendinga telur
nauðsynlegt að álagningarstigar
tekjustofna sveitarfélaga séu lög-
bundnir. Þingið styður hugmyndir
um að að hækka hlutdeild aukafram-
lags í tekjum Jöfnunarsjóðs sveitar-
félaga.
Bendir þingið á nauðsyn þess að
í lögunum séu viðmiðunarákvæði
um nýtingu allra tekjustofna sveitar-
félaga þegar aukaframlag er ákveð-
ið.
Fjórðungsþingið telur eðlilegast
að Jöfnunarsjóður sveitarfélaga hafi
sjálfstæðan tekjustofn, sem inn-
heimtur sé í tengslum við tekju-
stofna ríkisins, en verði ekki háður
skattastefnu ríkisins á hverjum tíma,
sem hluti skatttekna ríkisins.
- HM