Tíminn - 24.01.1987, Blaðsíða 10
10 Tíminn
Laugardagur 24. janúar 1987
Laugardagur 24. janúar 1987
Tíminn 11
ÍÞRÓTTIR
ÍÞRÓTTIR
Stórkostlegur leikur í höllinni í Wismar í gær:
Golden Cup í Frakklandi:
Höllin táraöist þegar eins marks sigur yfir Klempel og félögum var skráður
gylltum stöfum á spjöld handknattleikssögunnar, 29:28
Það var kátt í íþróttahöllinni í Wismark í Austur - Þýskalandi í gærkvöldi
þegar íslenska landsliðið í handknattleik lagði Pólverja að vclli. Allt frá því
að Sigurður Gunnarsson jafnaði, 14-14 strax eftir leikhlé var leikurinn í
járnum og jafnt nánast á öllum tölum. Spennan var mikil og hávaðinn
óskaplcgur því áhorfendur voru vel með á nótunum og flest allir á bandi
■slenska liðsins.
Strákarnir okkar stóðu sig heldur
betur vel í gær. Svo vel að
blaðamcnn, liðsstjóri, þjálfari og
áhorfcndur sem voru nær allir á
bandi íslenska liðsins táruðust
þegar Islcndingar stóðu uppi sem
sigurvegarar.
Úrvalsdeildin í körfuknattleik:
Það voru Pólverjar sem skoruðu
fyrsta markið, en íslendingar jöfn-
uðu strax og svipað gekk leikurinn
fyrir sig allan tímann, alltaf mjög
jafnt en iiðin skiptust á um að hafa
forystuna. Staðan í hálfleik var 14-13
fyrir Pólverja, en eftir jafnan og
æsispennandi síðari hálfieik tókst
íslendingum að tryggja sér sigur
með stórkostlegri baráttu og endan-
legar tölur urðu 29-28.
Leikurinn var stórvel lcikinn af
beggja hálfu, en sóknarleikurinn þó
betri en varnarleikurinn. íslenska
vörnin opnaðist nokkrum sinnum en
á móti kom gífurleg barátta og
leikgleði íslensku strákanna sem
léku eins og allt annað lið heldur en
í fyrradag. Liðið virðist vera að ná
saman, bæði í vörn og sókn, auk
þess sem stórskytturnar létu skotin
dynja á Goliat í markinu. Sá er
byggður í samræmi við nafnið en
hann snerist hreinlega inn með bolt-
anum í nokkrum þeim tilfella þegar
honum tókst að slæma hendi fyrir
boltann - slíkur var krafturinn í
skotunum. Alfreð Gíslason, Sigurð-
ur Gunnarsson, Sigurður Sveinsson,
og Kristján Arason áttu hvert
þrumuskotið á fætur öðru og léku
stórvel. Páll Ólafsson lék einnig vel
og nýtti færi sín 100%. Þá hjálpuðust
þeir félagar að við að senda á Þorgils
Óttar Mathiesen á línunni, sem fór
í gang í fyrsta sinn á þessu móti og
átti stórleik eins og flestir félagar
hans. Hornamennirnir Guðmundur
Guðmundsson og Bjarni Guð-
mundsson komu venju fremur lítið
við sögu í sókninni.
Varnarleikurinn var eins og fyrr
sagði ekki alveg nógu góður á
köflum, en baráttan ver hreint út
sagt stórkostleg, allir töluðu og
reyndu virkilega að ná saman. Þar
voru þeir sterkastir Geir Sveinsson,
Kristján, Alfreð og Þorgils Óttar
auk Guðmundar. Einar Þorvarðar-
son stóð að baki vörninni allan
lcikinn og varði af snilld. Sem sagt
stórkostlegur leikur, að vísu örlítið
of mörg mistök, en úrslitin sérlega
ánægjuleg.
Mörkin fyrir ísland skoruðu
Sigurður Gunnarsson og Þorgil Ótt-
ar Mathiesen. 6 hvor, Alfreð Gísla-
son 5 mörk, Kristján Arason 5 niörk
og þar af 2 úr vítaköstum, Sigurður
Sveinsson 3 og Páll Ólafsson og
Bjarni Guðmundsson 2 mörk hver.
Markahæstur Pólverja var Bogdan
Wenta 8 mörk, Jersey Klempel kom
næstur með 4 mörk.
Kostaði slæmt
start Eðvarð
verðlaunin?
Rann til í startinu og var
hálfri líkamslengd á eftir
öðrum eftir startið
Tveir íslendingar komust í úrslit í sínum grein-
um í gær á Golden Cup mótinu í Frakklandi. Þau
Eðvarð Þ. Eðvarðsson og Ragnheiður Runólfs-
dóttir. Eðvarð varð fjórði í undanúrslitunum í
hundrað metra baksundi á 59,80. Frank Hofmeist-
er frá A-Þýskalandi var fyrstur í undanúrslitunum
á 58,74. í úrslitum varð Eðvarð Þ. Eðvarðsson
mjög óheppinn, honum mistókst mjög illa í
ræsingu og var það vegna misskilnings Eðvarðs.
Ræsirinn færði sig eithvað til og slappaði Eðvarð
þá af en skömmu síðar heyrðist skotið og Eðvarð
mistókst að spyrna sér frá. Rann hann á bakkanum
og var þegar orðinn hálfri líkamslengd á eftir
keppinautum st'num. Líklega hefur þetta kostað
Eðvarð verðlaun. Sigurvegari varð Frank Hof-
meister. Hann synti á 57,56. Eðvarð synti á 59,47.
Ragnheiður Runólfsdóttir varð í öðru sæti í
sínum riðli í 200 metra bringusundi á 2,45,82. Hún
varð áttunda af þrjátíu keppendum og komst í
úrslit. í úrslitum varð Ragnheiður í sjöunda sæti,
synti á tímanum 2,45,56. Þar sigrað Ingrid Lanib-
hagen frá Belgíu á tímanum 2,34,82.
Nánar verður greint frá úrslituni mótsins á
þriðjudag.
- ES
BOGDAN
ÁNÆGDUR
„Sóknarleikur-
inn varmjög góður
en vörnin brást að
nokkrú leyti. Við
korrrum til þessa
móts með óundir-
búið lið svo það
væri óeðlilegt ef
þeir léku mjög vel.
Ég er þegar orðinn
ánægður með ár-
angurinn og þá sér-
staklega úrslitin.
Það að vinna tvo
leiki á þessu móti er
mjög góður árang-
ur en að sigra í
þremur væri stór-
kostlegt.
Við eigum við
ákvcðin vandamál að stríða. Það gengur illa að ná
tveimur góðum leikjum í röð. Alfreð, Páll og Geir cru
að spila saman í fyrsta skipti og náðu ágætlega saman.
Þá er mikill styrkur f Sigga. Eg held ég geti sagt að
eftir þjálfun alls liðsins á íslandi spili það 30 til 40
prósent betur en nú,“ sagði Bogdan þjálfari eftir
Ieikinn í gær.
Pólski þjálfarinn, Zenon Lakomy:
„Bæði lið gátu sigrað í þessum leik en pólska vörnin
brást. Við reyndum ýmsa nýja hluti sem ekki gengu
upp.
Leikirnir sem við eigum eftir á mótinu verða okkur
mjög erfiðir,“ sagði Lakomy.
Körfukallar Keflavíkur
sigruðu botnlið Framara
Frá IMargréti Sanders á Sudurnesjum:
Körfukallar Keflavíkurbæjar fóru
með sigur af hólmi í viðureign sinni
við Framara í úrvalsdeildinni á
fimmtudagskvöldið. Keflvíkingar
sigruðu 80-60 en ekki var þó leikur
heimamanna mikið til að hrópa
húrra fyrir. Þokkaleg frammistaða
dugði þó gegn botnliðinu frá Reykja-
vík.
Um miðjan fyrri hálfleík var stað-
an 26-26 en þá var Símon Ólafsson
Framari tekinn út af, kominn með
þrjár villur. Eftir það fór að skilja að
Hðin, Símon, hinn gamalreyndi
landsliðskappi, kom að vísu aftur
inn á en fauk fljótt út af aftur með
fimm villur.
Staðan í hálfleik 43-32 fyrir Kefla-
vík og í síðari hálfleik jókst munur-
inn frekar en hitt eins og áðurnefnd-
ar lokatölur gefa til kynna.
Leikinn dæmdu þeir Óntar
Schving og Jón Otti Ólafsson.
Stigin: Keflavík: Jón Kr. Gíslason
21, Hreinn Þorkelsson 18, Sigurður
Ingimundarson 9, Gylfi Þorkelsson
8, Guðjón Skúlason 8, Matti O.
Stefánsson 6, Falur Harðarson 4,
Ingólfur Harðarson 4 og Ólafur
Gottskálksson 2. Fram: Þorvaldur
Geirsson 22, Jón Júlíusson 12,
Símon Ólafsson 8, Ómar Þráinsson
8, Jóhann Björnsson 4, Örn Þórisson
2, Þorsteinn Guðmundsson 2 og
Guðbrandur Lárusson 2.
Staðan á
Eystrasalstmótinu
Þrír leikir fóru fram í gær.
Úrslitin urðu þessi:
Ísland-Pólland......... 29:28
Sovétríkin-V-Þýskal .... 24:18
A-Þjóðverjar-Svíþjóð .. 24:24
Sovétríkin .... 3 2 0 1 72:68 4
A-Þýskaland ..3 1 2 0 68:65 4
V-Þýskaland .3111 64:61 3
ísland....... 3 1 1 1 62:60 3
Svíþjóð ...... 3 0 2 1 68:69 2
Pólland.......3 1 0 2 73:80 2
Eystrasaltsmótið:
Leikir of seint
fyrir heimamenn?
Leikir í Eystrasaltsmótinu hefjast klukk-
an 17:30 að a-þýskum tíma. Frekar dræm
mæting áhorfenda er á fyrri leikina, en á
síðari leikina mæta mun fleiri. Þettagerðist
t.d. þegar íslendingar léku við heimamenn
á miðvikudag. Þá voru ekki nema um 1500
manns í höllinni en hún tekur um 4000
manns. Mun fleiri áhorfendur komu á
seinni leikinn. Helsta skýringin er sú að
almenningur sé ekki búinn að vinna fyrr og
komist því ekki á nema seinni leikinn.
Denver Broncos mæta New York Giants í Super Bowl leiknum um helgi na
Á morgun rennur upp sá dagur
sem er mörgum Bandaríkjamannin-
um hvað heilagastur. Þá fer nefni-
lega fram úrslitaleikurinn í banda-
ríska fótboltanum, svonefndur Sup-
er Bowl leikur og er víst að tugir
milljóna manna verða nær límdir við
sjónvarpsskermi sína þar vestra þá
klukkutíma sem viðureignin stendur
yfir.
Þau lið sem leiða saman hesta sína
á Rose Bowl leikvellinum fræga í
Kaliforníu eru lið Denver Broncos
og New York Giants og þykja þeir
síðarnefndu sigurstranglegri.
FRUMSYNING
að Höfðabakka 9
laugardag 24.jan. og sunnudag 25.jan.kl. 13.00 til 17.00
í annað sinn á þrem árum er nýr bíll frá OPEL valinn
BÍLL ÁRSINS af 57 bílablaðamönnum frá 17 Evrópu-
löndum.
OPEL OMEGA varð fyrir valinu, fremstur 12 annara
bíla, m.a. vegna tæknilegrar fullkomnunar, minnstu
loftmótstöðu, mikils öryggis og sparneytni.
Komið og kynnist því nýjasta frá OPEL, sem hefur verið
sameinað í OPEL OMEGA,og þið verðið sammálaum
að “NÝBÍLATÆKNIN“ er hjá OPEL.
GENERAL MOTORS GERIR GÆFUMUNÍNN
OPELOMEGA
BlLLARSINS 1987
BíLVANGURsf?
HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687300