Tíminn - 24.01.1987, Síða 14

Tíminn - 24.01.1987, Síða 14
14 Tíminn Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiöar og tæki sem verða til sýnis þriðjudaginn 27. janúar 1987 ki. 13.00-16.00 í porti bak við skrifstofu vora að Borgartuni 7 og víðar. 1 stk. Ford Bronco 4x4 árg. 1982 1 stk. Isuzu Trooper4x4 árg. 1982 3 stk. Volvo Lapplander 4x4 árg. 1980-81 Land Rover4x4 árg. 1976 1 Pontiac Pariseanne fólksb. sk. e/umferðaróh. árg. 1983 1 stk. Peugout 505 station árg. 1983 1 Mazda 929 fólksb. árg. 1981 1 stk. Volkswagen Golf fólkb. árg. 1981 1 stk. Ford Econoline e-150 fólksfl. 8 farþega árg. 1981 1 stk. Man vörubifreið árg. 1975 3 stk. Vélsleðar Kawasaki Drifter 440 árg. 1980 Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins Akureyri 1 stk. Mitsubishi L-300 Mini Bus árg. 1981 Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins Reyðarfirði 1 stk. Ford Econoline E-250 fólksfl. 8 farþega árg. 1979 Til sýnis hja Síldarverksmiðju ríkisins Reyðarfirði 1 stk. UAZ 452 4x4 árg. 1979 Tilboðin verða opnuð sama dag kl. 16.30 að viðstöddum bjóðendum. Réttur er áskilinn að hafna tilboðum sem ekki teljast viðunandi. Auglýsing um starfslaun bæjarlistamanns Kópavogs Lista- og menningarráð Kópavogs auglýsir eftir umsókn- um um starfslaun til listamanna samkvæmt reglum sem samþykktar voru 16.12.1986 í bæjarstjórn Kópavogs. Heimilt er að veita starfslaun fyrir 6-12 mánaðatímabil. Launin miðast við 8. þrep, 139. launaflokki samkvæmt kjarasamningi Bandalags Háskólamanna. Að jafnaði koma þeir einir listamenn til greina við úthlutun starfs- launa, sem búsettir eru í Kópavogi. Listamenn skulu skuldbinda sig til þess að gegna ekki fastlaunuðu starfi á meðan þeir njóta starfslauna. Listamaður sem starfs- launa nýtur skal að loknu starfstímabili gera grein fyrir starfi sínu. Starfslaun verða veitt frá 1. júní n.k. Umsóknarfestur er til 1. mars n.k. Umsóknir um starfslaun listamanns samkvæmt framanskráðu sendist Lista- og menningarráði Kópavogs, Hamraborg 12, 200 Kópavogi. LAUSAR STÖÐURHLIÁ REYKJAVIKURIBORG Félagsstarf aldraðra hjá Reykjavíkurborg Félags- og tómstundastarf aldraðra hjá Félags- málastofnun Reykjavíkurborgar auglýsir eftir for- stöðumanni í Furugerði 1. Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi reynslu og þekkingu í félagsmálum. Laun skv. kjarasamningum starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Staðan er 50% og vinnutími frá 13:00-17:00. Umsóknarfrestur er til 2. febrúar. Upplýsingar gefur Anna Þrúður Þorkelsdóttir í síma 36040 eða 39225. Umsóknum ber að skila til Starfsmannahalds Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð á sérstökum eyðublöðum sem þar fást. Laugardagur 24. janúar 1987 lllllllM ÁRNAÐ -HEILLA ' llllllllllllilllllllllllllllllllllllllllllllllllllllíilllilllílliiilíllliilllllllllllllllllllliliillilllillllliy Sextugur Jóhann Þórðarson hdl. frá Laugalandi, N.-ís. Þegar mér barst til eyrna í haust, að góðvinur minn Jóhann Þórðarson frá Laugalandi í Dj úpi, yrði sextugur á þessu ári, nánar tiltekið 25. þ.m. varð það mér enn ein sönnun þess hve tíminn rennur skjótt í sínum hljóðleik. Jóhann er af grónum ætt- um hér við Djúp, bæði af Snæfjalla- strönd í móðurætt og Langadals- strönd og var Halldór á Rauðamýri afi hans í föðurlegg. Leiðir okkar lágu fyrst saman síðla vetrar 1947 og lukum við saman gagnfræðaprófi er voraði það ár frá M.A. Engin kynni tókust þó með okkur að sinni og eigi heldur í háskóla og vorum við þó samtíða þar nokkur ár. En er ég tók brauð við Djúp 1956, með aðsetri í Vatns- firði og kom að Melgraseyri minna erinda var hann þar mættur og flest sumurþaðan upp. Þeirgömlusögðu, að römm væri taug sú, er rekka drægi föðurtúna til og fannst mér þetta sannmæli áþreifanlega sannast á Jóhanni. Alla tíð mun hann hafa fylgst með málum hér og framgangi þeirra hluta, er nauðsyn eru hverju byggðarlagi og kemur hér fram vænt- umþykja hans um það hérað og þá sveit, sem hann er úr runninn, taugin sem þeir gömlu vissu, að ekki er neinn bláþráður í innra Iífi margs mannsins, heldursnarþáttur, römm, lifandi, aflvaki góðra hluta. Vil ég í því sambandi minna á mikinn og góðan stuðning hans við kirkjú á Melgraseyri, er byggð var og mun aðstoð hans vera nokkru þyngri á metum en almennt er vitað. Minnist ég þess með gleði, er hið nýja hús var vígt fámennum söfnuði til notk- unar við hið bjarta Djúp, að þar var mættur Jóhann Þórðarson við altari að lesa úr helgum ritningum svo sem kirkjulegt ritúal útheimtir á slíkum stundum. Man ég eigi hver orð okkar hafa í miilum farið við það tækifæri á Melgraseyri, sennilega fá: við höfum báðir skilið án orða það sem þarna var að gerast. Skal honum nú þakkað ailt hans framlag til kirkjunnar og alla aðstoð við söfnuð- inn fyrr og síðar. Vil ég færa þér hinar bestu þakkir vorar, prests og safnaðar svo og allra velunnara Mel- graseyrarkirkju nær og fjær fyrir þitt óeigingjarna starf, sem þú engin laun hefur hlotið fyrir utan þá gleði að sjá rísa af grunni gamla bænahúss- ins, er varð vindum að bráð, nýtt og veglegt guðshús, prýði sveitar þinnar. Fleira mætti til tína er speglar áhuga Jóhanns á velferð héraðsins og íbúa þess, m.a. mátti stundum sjá í blöðum ábendingar í greinum hans um vegi og brýr, en fáum byggðar- lögum er nú meiri nauðsyn á góðum samgöngum, er voru, og kunnum vér þakkir öllum þeim er þar að huga eða að vinna og gildir slíkt eigi síður nú á tímum nokkurra erfið- leika í búskap og uggs nokkurra um búsetu. - Það gladdi mig, að vera staddur á æskuheimili þínu - Lauga- landi í Skjaldfannardal, - þann 3ja jan. síðstliðinn, degi Enoks, að vígja í hjónaband ungt par, brúðurin af þinni ætt, og söfnuðurnir báðir á „Ströndinni" þar saman komnir að verulegu leyti auk gesta aðkominna, finna að hér hafði ekkert breyst er máli skiptir. Fólk að vísu færra, en við vígslu er við báðir voru viðstadd- ir vetrardag einn fyrir 3 áratugum eða svo, er faðir þinn sat í öndvegi, nú bróðir þinn. Húsið traust sem fyrr með sínar gömlu bækur á loft- inu, dalurinn fagur, tunglið samt við sig og jökullinn í nánd. Hvað vill maðurinn á þessari jörð? - En sleppum frekari hugleiðingum um guð og eilífð að sinni. Jóhann lauk prófi í lögum frá Háskóla fslands á vordögum 1958 og hefur síðan stundað lögfræðistörf. Hafa margir héðan úr héraði til hans leitað með sín mál, og þótt ég sé ókunnugur störfum hans á lögfræði- legu sviði er mér eigi erfitt um þá ályktun af kynnum mínum við ætt- menn hans, að hann mun snjall vera í sinni fræðigrein og halda fast á því máli er hann að sér tekur. Jóhann gekk að eiga myndarkonu, Guðrúnu Halldórsdóttur frá Isafirði 1959 og eiga þau hin mannvænleg- ustu börn. Kveðjur til ykkar allra á afmælinu! Lifið heil! Vatnsfirði á Antóníusarmessu 1986, síra Baldur Vilhelmsson. Illllllllllllllllllll MINNING Björn J. Blöndal í Laugarholti Fæddur 10. septcmber 1902 Dáinn 14. janúar 1987 , Að minnast þín vinur á vegamótum er vandi, sem kallar á mig. I sjötíu ár er samleiðin orðin við sólskin um gengin stig. Hugurinn mœtir þar heiðríkjumyndum sem hvarvetna minna á þig. Þarersvo margháttuð minningsem gleður svo margt þar sem gleymist ei. Hugur þinn átti svo víðfleyga vœngi og víðreist þitt siglandi fley. Heimili bernskunnar brœðurnir allir allt bundið við StaPioltsey. Þú áttir svo mikið af áhugamálum um eilífðar spurnir og svör. Blómjurtir allar og fuglarnir fleygu um farkost sem lætur úr vör. Um frceið sem dafnar, um ferðir og œfi um forlög og torskilin kjör. Og tímarnir líða og vandamál verða og veröldin slík sem hún er. Ef gáta er ráðin hefst önnur upp aftur um undrin sem blasa við þér. Það bendir svo margt á langferðaleiðum um löndin sem maðurinn fer. Svo namstu þér land og byggðir þér býli og bjöst þar til akurlönd. Þar blessast þitt starf og búið þróast og brúðurin gékk þér á hönd. Þú skráðir myndir af minningum þínum sem minna oss á rósavönd. Til leigu Til leigu er einstaklingsíbúð í kjallara í Smáíbúða- hverfi. Leigutími eftir samkomulagi. Fyrirframgreiðsla. Upplýsingar í símum 688608 og 53809. Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem glöddu okkur á afmælum okkar 30. desember og 2. janúar sl. Guð biessi ykkur öll Jóhanna St. Guðjónsdóttir og Halldór D. Gunnarsson, Króksfjarðarnesi En alltaf var spurnin í augum þínum um aðskilin vandamál. Þú gœttir að lífí við götu þína °g greindir þar leitandi sál. En frœgastur varstu með fiskilínu viðfljótsins blikandi ál. Nú ertu farinn til fjarlœgra stranda þar sem fegurðin bíður vor. Þar trúðum við báðir að biði okkar hið blikandi eilífa vor. Nú ber þig leiðið að landinu helga. Við leysum öll festar við Skor. Nú skiljum við vinur á vegaótum, vinirnir horfnu fagna þér, semfóru á undan þéryfirhafið sem okkar á milli ber. Við þökkum þér árin og árnum þér heilla um undrið sem kemur og fer. Með hluttekningu til vandamanna. Þorsteinn Guðmundsson.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.