Tíminn - 20.03.1987, Blaðsíða 2
2 Tíminn
Föstudagur 20. mars 1987
Neytendasamtökin:
Herða þarf eftirlit með
innlendri framleiðslu
- ákvæöi um merkingar þverbrotin
Ákvæði reglugcrða um umbúða-
merkingar á drykkjarvörum eru
meira og minna brotin hér á landi,
samkvæmt könnun sem Félag ísl-
enskra iðrekenda og Neytendas-
amtökin létu gera fyrir skömmu. Á
þetta bæði við um innflutning og
innlcndar vörur.
Könnunin tók til 128 sýna af
drykkjarvörum ýmis konar,
hrcinna ávaxta- og grænmetissafa,
gosdrykkja, svaladrykkja, „djúsa“
og drykkjardufts. Sýnin voru tekin
af handahófi í 38 verslunin á höfuð-
borgarsvæðinu í janúar og febrúar
sl.
Þessi sýni skiptust þannig að 63
þeirra voru innlend, en 65 erlend.
Sýnin voru eingöngu skoðuð með
tilliti til merkinga umbúða og þau
sýni sem ekki voru merkt sam-
kvæmt ákvæðum heilbrigðisyfir-
valda þar um, flokkuð sem gölluð.
Hlutfall gallaðra sýna af innlendri
framleiðslu reyndist vera 25,4%
sem er töluvert hátt hlutfall.
Alvarlegustu sýnin verða að telj-
ast þar sem innihaldslýsing er ófull-
nægjandi, aukaefna ekki getið, eða
um ólöglega notkun aukaefna er
að ræða. Er í niðurstöðunum mælst
til þess að þau sýni sem fela í sér
verstu brotin verði skilyrðislaust
fjarlægð af markaðnum. Undir
þessa flokka falla 25 erlendu sýn-
anna og 15 þeirra innlendu.
í greinargerð með könnuninni
kemur fram að eftirlit með innflutt-
um matvælum og öðrum neyslu-
vörum er mjög bágborið og hið
sama gildir um eftirlit með inn-
lendri vöru. Bent er á að eftirlit fer
ekki fram fyrr en vörum hefur
verið dreift í verslanir, sem verður
að teljast ófullnægjandi. Sam-
kvæmt lögum ber innflytjendum,
framleiðendum eða þeim sem
pakka vörunum, skylda til að
merkja þær í samræmi við reglu-
gerðir.
Að lokum segir í könnuninni að
greinilegt sé að eftirlit með inn-
flutningi verði að komast á sem
fyrst og herða þurfi eftirlit með
innlendri framleiðslu. - SÓL
HAFNAREY HAFDI
ENGAN KVÓTA
Yfirlýsing frá Björgunarfélagi Hornafjaröar::
Vegna ótrúlegrar fréttamennsku í
Þjóðviljanum þann 4/3 1987 um að
sjávarútvegsráðherra, Halldór Ás-
grímsson, hafi stolið aflakvóta Hafn-
areynnar sem sökk hér í höfninni
13/1 1986 og var seld til Keflavíkur,
vill stjórn Björgunarfélags Horna-
fjarðar taka fram eftirfarandi.
Báturinn var dæmdur ónýtur þar
sem hann var brotinn ogsokkinn, og
tekinn af skipaskrá.
Eigendur hans fengu innflutnings-
leyfi fyrir öðrum bát og samþykki
ráðuneytis að færa aflakvótann á
þann bát.
Við í Björgunarfélagi Hornafjarð-
ar fengum flakið gefið á botninum í
höfninni, gegn því að fjarlægja það
og máttum síðan nýta það að vild.
Þegar báturinn náðist á flot og
virtist minna skemmdur en ætlað
hafði verið, vélarnar svo til
óskemmdar og voru gangsettar, þá
kom upp mikill áhugi víða af landinu
að fá bátinn keyptan.
Allir drógu sig til baka er þeim
varð Ijóst að báturinn hafði ekki
kvóta, þangað til Magnús Axelsson
í Keflavík kom í maí og keypti
bátinn og virtist hann ekki hlusta á
eða taka neitt til athugunar að
báturinn væri kvótalaus.
Eins og lýst hefur verið var öllum,
sem áhuga sýndu að kaupa, gerð
grein fyrir að ekki fylgdi bátnum
Búist við góðæri
í sjónum áfram
kvóti, Magnúsi Axelssyni sem
öðrum, og virðist okkur alveg ótrú-
legt hvað menn leggjast lágt í sorp-
blaðamennskunni þegar þeim verð-
ur ljóst að ekki tekst að græða stórfé
með því að selja það sem aðrir eiga.
Stjórn Björgunarfélags Horna-
fjarðar
Hér má sjá Hafnareyna eftir að togarinn Þórhallur Daníelsson sigldi á hana í
Hornafjarðarhöfn. límamynd: S. Aðalsteinsson.
Eitthvað nýtt fyrir eðlis- og efnafræðiunnendur
efstu bekkja grunnskólanna:
Ný kennslubók í
eðlis-ogefnafræði
Nýlega kom út hjá Námsgagna-
stofnun ný kennslubók í efnafræði
fyrir efstu bekki grunnskóla.
Námsefninu fylgja sérstakar
kennsluleiðbeiningar með ýmsum
upplýsingum um efnið, ítarefni og fl.
Höfundur námsefnisins er Þórir
Ólafsson. Kennslubókin er 96 bls.,
prýdd fjölda skýringarteikninga og
ljósmynda, ásamt verkefnum og
leiðbeiningum um tilraunir. Lotu-
kerfið fylgir hverri bók, litprentað
innan á kápusíðu.
Þá hefur Námsgagnastofnun gef-
ið út endurskoðað hefti, Orkan og
orkunotkun, sem upphaflega var
gefið út af orkusparnaðarnefnd
iðnaðarráðuneytisins. Að endur-
skoðuninni unnu tveir höfunda,
Jón Ingimarsson og Sigurður G.
Tómasson. Heftið sem er 31 bls.
með fjölda verkefna er ætlað til
kennslu í 7.-9. bekk grunnskóla.
-ARI-Starfskynning.
Ástand sjávar var hagstætt í vetur
eins og verið hefur á þessum árstíma
síðan í nóvember árið 1983. Ástæða
er til að ætla að ástand sjávar í vor á
norðurmiðunum haldi áfram að vera
gott og þá lífsskilyrðin í sjónum
yfirleitt, þótt ekki sé hægt að fullyrða
um það fyrir víst.
Þetta kom fram er rannsóknar-
skipið Árni Friðriksson fór í rann-
sóknarleiðangur dagana 9.-22. fe-
brúar.
Einnig var farið í fyrsta sinn í nýtt
verkefni í ísafjarðardjúpi. Eru það
ítarlegar vistfræðirannsóknir en þær
er áætlað að endurtaka u.þ.b. mán-
aðarlega á árinu 1987. Einnig voru
settir niður síritandi hitamælar til
langs tíma við bryggjur í Æðey á
ísafjarðardjúpi og í Grímsey. Leið-
angursmenn voru Svend-Aage
Malmberg, leiðangursstjóri, Ólafur
S. Ástþórsson, Erlendur Jónsson,
Stefán S. Kristmannsson og Guð-
mundur Skúli Bragason. Skipstjóri
var Sigurgeir Ingi Lárusson.
-Ó.K.Á/Starfskynning.
Vilja stjórnvöld
bætt kjör kennara?
í nýlegri stuðningsyfirlýsingu KÍ
segir að í samningaviðræðum ríkis-
ins og stéttarfélaga kennara hafi
stjórnvöld sýnt lítinn vilja til að bæta
kjör kennara. Þannig að stjórn KÍ
lýsir fullum stuðningi við félagsmenn
HÍK. Stiórnin skorar á fiármála- oe
menntamálaráðherra að beita sér
þegar í stað fyrir samningum við
stéttarfélög kennara og standa við
gefnar yfirlýsingar um að bæta kjör
þeirra.
ÓKÁ/Starfskynning.
Leikhús í hádeginu:
bMM (ÍMvícfl Iiiv ■ Knnnn<(
n cru iignsci lyi i ivungu
- leikrit um eyðni sýnt í Kvosinni
Alþýðuleikhúsið frumsýndi í há-
deginu í gær fyrsta leikrit hádegis-
leikhússins, „Eru tígrísdýr í
Kongó". Þetta er gert í samvinnu við
veitingahúsið í Kvosinni.
Leikritið gerist á veitingahúsi og
fjallar um tvo rithöfunda sem fá það
verkefni að skrifa gamanleikrit um
eyðni. Þeir hefja skrifin með kímni-
gáfuna að leiðarljósi en fljótt verður
þeim ljóst að það eru staðreyndirnar
sem gilda. Þeir reyna að setja sig í
spor fórnarlambanna og vclta upp
ýmsum hliðum málsins sem þeim
finnst miður fyndin.
Leikrit þetta er samið af Finnun-
um Bengt Ahlfors og Johan Bargum
og hefur leikritið verið flutt í Finn-
landi. ísland er annað landið á
Norðurlöndunum sem tekur leikritið
til sýningar, en öll Norðurlöndin
hafa ákveðið að taka það til sýning-
ar.
Leikarar eru tveir, Harald G.
Haraldsson og Viðar Eggertsson en
leikstjórn annast Inga Bjarnason.
Miðaverð og léttur hádegisyerður
er kr. 750,- og tekur sýningin um
þrjú korter. -ABS