Tíminn - 20.03.1987, Page 4
SVEITARSTJORNARMÁL
4 Tíminn
Föstudagur 20. mars 1987
llllllllllrlll SPEGILL
Ahyggjufullir
stjórnendur
Þær Patty Hearst og
Yasmin Khan vinna af
alefli gegn sjúkdómn-
um Alzheimer.
-enCybillerlukku-
leg;húnávonátví-
burum!
„Moonlighting“
Þarna er Cybill
komin í óléttukjól
þó hún eigi ekki
von á sér fyrr en í
október n.k. - en
hún gengur líka
ineð tvíbura
FRÆGAR KONUR
LEGGJA GÓÐU
A
mmMERÍSKU sjónvarps-
þættirnir „Moonlighting" hafa orð-
ið mjög vinsælir í Bandaríkjunum,
orðið þar efstir á blaði og fengið'
vcrðlaun. Aðalleikarar í þáttun-
um. þau Cybill Shepherd og Bruce
Willis, eru því með meiri háttar
stjörnum þar í landi.
Þættirnir mala gull fyrir fram-
leiðendur og því varð uppi fótur og
fit þegar Cybill og sambýlismaður
hennar Dr. Bruce Oppenheim
gengu í hjónaband með litlum
fyrirvara og tilkynnti um leiö að
hún væri ófrísk, og meira að segja
gengi hún með tvíbura !
Nú var farið að funda í fyrirtæk-
inu um hvcrnig bregðast skyldi við
þessum tíðindum. Upp kom sú
ráðagerð að reyna að „skrifa ólétt-
una inn í þættina", eins og gert var
í Lucy Ball þáttunum hér áður
fyrr. En þá kom upp spursmálið
um hver ætti að vcra pabbinn, því
að Maddie, sem Cybill leikur í
þáttunum, er ofsaklár leynilögga
og það þótti ekki vera í samræmi
við hlutverkiö að Maddie gengi í
hjónaband. Höfundar komu fram
með fjórar hugmyndir um fram-
hald þáttanna, en engin þeirra
þótti góð.
Nú bíða aðdáendur Moonlight-
þáttanna spenntir eftir framvindu
mála.
Cybill og kærast-
inn viö afhend-
ingu sjónvarps-
verðlauna 1986
Mótleikari Cyb-
ill í sjónvarps-
þáttunum licitir
Bruce eins og
eiginmaður
hennar, sem er
auðvitaö til mik-
ils hagræðis
R
MALEFNILIÐ
ITA Hayworth, ein
skærasta stjarna Hollywood á
fimmta áratugnum, þjáist af hinum
illræmda Alzheimer-sjúkdómi,
eins og reyndar fjöldi fólks sem
ekki er eins þekkt. Þetta er sjúk-
dómur sem ekki var talað hátt um
fyrir nokkrum árum, en þegar
þessi fræga kvikmyndastjarna varð
fórnarlamb hans, breyttist afstaðan
til hans og þeirra sem af honum
þjást.
Það er ekki síst að þakka fram-
lagi Yasmin Aga Khan, 37 ára
dóttur Ritu, sem vildi ekki sætta
sig við niðurlægjandi meðferð fjöl-
miðla á móður hennar, þegar hún
var á ferðalagi og bar öll merki
sjúkdómsins. Þá hét það í blöðum
að Rita hefði verið dauðadrukkin
á ferð og hvorki vitað í þcnnan
heim eða annan. Síðan hefur
Yasmin unnið mikið að því að
vekja athygli á þessum sjúkdómi,
sem gerir fólk gamlað fyrir aldur
fram. Og til að vekja athygli þarf
peninga.
Nú hefur Yasmin fengið góðan
liðsmann í baráttunni þar sem
Patty Hearst er. Patty er dóttir
blaðakóngsins Randolphs Hearst
og hefur lifað og hrærst meðal
forríka fólksins í Ameríku. En hún
hefur líka lifað öðru lífi sem frægt
er orðið. Óbótamenn rændu henni
og fengu hana til að taka þátt í
glæpaverkum 1974. Til sönnunar á
þátttöku hennar var sýnd mynd um
víða veröld þar sem Patty Hearst
tók þátt í vopnuðu bankaráni.
Sá tími er löngu liðinn en Patty
finnst hún þurfa að bæta fyrir
sitt og hegðun á þessum árum. Og
það finnst henni hún geta að ein-
hverju marki með því að aðstoða
vinkonu sína Yasmin Khan við að
vinna gegn sjúkdómnum Alzheim-
Keflavík
Frítt fyrir ÍBK
Áfundi íþróttaráðs Keflavíkurbæj-
ar fyrir skömmu var borin fram
tillaga um að ÍBK fái framvegis frí
afnot af öllum íþróttamannvirkjum
bæjarins bæði til æfinga og keppni.
Með tillögunni fylgdi greinargerð
þar sem segir að með samþykkt
þessarar tillögu sé gert ráð fyrir að
sama fyrirkomulag verði á öllum
afnotum ÍBKað íþróttamannvirkjum
bæjarins. Nauðsyn sé að breyta því
fyrirkomulagi sem nú er, til þess að
heildarmynd fáist af því hverframlög
bæjarins eru til íþróttamála.
Fyrir 4 árum eða í febrúar '83 var
samþykkt í íþróttaráði svipuð tillaga
og þessi. í greinargerð með þeirri
tillögu segir m.a. „Allur kostnaður
bæjarsjóðs vegna reksturs íþrótta-
mannvirkja (í hlutfalli við notkun ÍBK
á mannvirkjunum) verði færður sem
framlag til íþrótta- og æskulýðs-
mála“.
Þetta hefur ekki verið gert auk
þess var sú tillaga sem þá var flutt
aðeins samþykkt til reynslu í eitt ár.
Stuðningsfjölskyldur
vegna fatlaðra
í félagsmálaráði hefur verið fjallað
um þá athugun sem Svæðisstjórn
Reykjaness hefur gert að undan-
förnu á því hvernig reglugerð um
stuðningsfjölskyldur fatlaðra verði
best nýtt í þágu fatlaðra á svæðinu.
Fram hafa komið ákveðnir annmark-
ar á þessari reglugerð sem felast
aðallega í því hversu lág laun
(kr.1.020,- á hvern sólarhring) eru
boðin fyrir þjónustu stuðningsfjöl-
skyldna.
Vegna þessa hefur svæðisstjórn-
in leitað eftir samvinnu við sveitarfé-
lögin á svæðinu um það hvort þau
geti lagt fram jafngildi framlags ríkis-
ins til stuðningsfjölskyldna þar sem
um er að ræða einstaklinga með
lögheimili í viðkomandi sveitarfélagi.
Félagsmálaráð benti svæðis-
stjórninni á að Ragnarsel býður upp
á umrædda þjónustu, anni það hins
vegar ekki eftirspurn þá hefur félags-
málaráð lagt til að Keflavíkurbær
verði við þessari beiðni.
Skýrsia Félags-
málastofnunar
Keflavíkur 1986
Fyrir skömmu var skýrsla Félags-
málastofnunar Keflavíkur lögð fram
á fundi Félagsmálaráðs, sem hefur
með yfirumsjón stofnunarinnar að
gera.
Starfssvið Félagsmálaráðs er aö
fara með framfærslumál, félagsmál,
málefni aldraðra, heimilishjálp, dag-
vistarmál barna, atvinnuleysisskrán-
inqu og vinnumiðlun.
í skýrslunni kemur m.a. fram að
ails eru 57 dagheimilispláss og 185
leikskólapláss (hálfsdagspláss) á
dagvistarheimilum í Keflavík.
Starfsmenn eru 47 í 36 stöðugildum.
Á biðlista 31. desember sl. var
181 barn. Þar af biðu 152 börn eftir
leikskólaplássi, en 29 börn biðu eftir
plássi á dagheimili. Á biðlista eftir
dagheimilisplássi var eingöngu um
forqangshópa að ræða.
A árinu 1986 fengu 47 einstæðir
foreldrar greiddan mismun á dag-
heimilisgjaldi og dagmæðragjaldi.
Lengi vel voru 70% þessa mismunar
endurgreidd, en á árinu varð sú
breyting að mismunurinn er greiddur
að fullu.
Gæsluvellir í Keflavík eru nú fjórir,
sá nýjasti var tekinn í notkun 7. júlí
sl. Gæsluvellina sækja börn á aldrin-
um 2-6 ára og sóttu börn gæsluvell-
ina á alls 21.756 skipti.
Þá kemur í Ijós að á árinu 1986
voru 973 skráðir atvinnulausir, konur
voru 682 og karlar 291.
Atvinnuleysisdagar urðu alls
12.012, konur með 8.684 daga og
karlar með 3.328 daga.
- HM