Tíminn - 20.03.1987, Síða 5
Föstudagur 20. mars 1987
Tíminn 5
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra:
Ætla sjálfstæðismenn að
selja aðgang að skólum?
Sífellt talað um skattalækkanir samhliða tillögum um útgjöld
„Það mun verða hluskipti næstu
ríkisstjórnar að takast á við þann
halla sem er á ríkissjóði. Þann halla
verður að leiðrétta og snúa þessari
þróun við,“ sagði Halldór Ásgríms-
son sjávarútvegsráðherra á opnum
fundi nýverið. Hann lýsti jafnframt
ntiklum áhyggjum sínum af þeirri
þróun að reka ríkissjóð með stór-
felldunt halla.
„Það er nú einu sinni svo að
sjálfstæðismenn hafa Iofað miklum
skattalækkunum. Pað virðist vera að
skattalækkanir hljóti mikinn
hljómgrunn hjá fólki. Hver vill ekki
hafa meira handa á milli? Vilja það
yfirleitt ekki allir? Það er ósköp
þægilcgt fyrir stjórnmálaflokk að
spila inn á þær hvatir og segja við
menn, við skulum lækka þessa skatta
og jafnvel Ieggja þá af. En menn
verða þá á sama tíma að tala um
hvað gera eigi við útgjöldin.
Ætla menn til að mynda að selja
aðgang að skólunum, þannig að
ekkert barn geti komið þangað inn
án þess að greiða fyrir það tugþús-
undir? Ætla menn að selja aðgang
að spítölununt? Við viljum ckki gera
það. Hinsvegar sýnist ntér að ef
áfram verður haldið að lækka skatt-
ana þá ntuni þetta gerast," sagði
Halldór. Hann benti á að í hvert
skipti sem hreyft væri við skattalög-
um væri talað um lækkanir. Sagði
hann að hvað varðaði staðgreiðslu-
kerfið þá ættu skattar eitthvað að
lækka. „Öll umræða í nefndum í
þinginu fjallar unt hvort ekki sé hægt
að lækka þetta meira. Á sama tíma
eru rnenn að gera tillögur um ný
útgjöld. Þetta gengur ckki og við
getum ekki staðið að málum með
þessunt hætti áfram. Okkur finnst
sem svo að það sé allt ot' mikil
tilhneiging til þess hjá samstarfs-
flokki okkar í ríkisstjórninni að vera
áhyggjulaus um fjármál ríkissjóös
og þann halla scm þar hefur
myndast. Sá halli er verðbólguhvetj-
andi og veröur jafnframt til þcss að
vextir eru mun Itærri cn þeir ella
hefðu orðið. Hitt er annað mál að
ríkissjóður hefur verið notaður til
þess að ná fram sátt á vinnumark-
aðnum og það var að mínu mati rétt
að setja nokkurn halla á ríkissjóð til
þess að koma í veg fyrir þenslu á
öðrunt sviðunt en ntér hefur blöskr-
að að undanförnu livað þessi til-
hnciging hefur gengið langt," sagði
Halldór.
- ES
Kennaradeilan:
Fundur hefur verið
boðaður síðdegis
„Bíöum eftir nýju tilboði“, segir Kristján Thorlacius. „Viö getum ekki elt
kennara upp stigann,“ segir Indriði H. Þorláksson
Fundur hefur verið boðaður hjá sáttasemjara síðdegis í dag í deilu HÍK og
ríkisins. Óformlegar þreifingar voru milli aðila í gær en þegar Tíminn innti
deiluaðila eftir stöðu mála höfðu þeir enn ekki fengið fundarboðið frá
sáttasemjara.
„Það er enginn fundur í augsýn og
lítið að frétta af okkar samningamál-
um“, sagði Kristján Thorlacius for-
maður HÍK er Tíminn spurðist fyrir
um deilu HÍK og ríkisins.
En hver eru helstu efnisatriði ■
kröfugerð ykkar kennara?
„Við viljum núna fyrst og fremst
ræða um launahækkanir og
samningstímann. Þeir vilja binda
okkur í tvö ár en miðað við það
tilboð sem þeir eru með núna getum
við ekki bundið okkur í tvö ár“.
Á hverju stranda viðræðurnar nú?
„Vegna þess að sanininganefnd
ríkisins hefur ekkert nýtt og það er
nú mat manna að þeir þurfi að koma
með það til þess að við höfum
ástæðu til að halda santningafund."
Teljið þið kcnnarar ykkur búna
að svara síðasta boði þeirra?
„Já, ég held að tómt mál sé að tala
um fund fyrr en þeir hafa haggað sér
út úr þeim ramma sent þeir hafa
verið í undanfarið. Það er auðvitað
alveg Ijóst að þótt þeir séu að semja
við aðra innan einhvers ákveðins
ramnta, að þá erum við að fara fram
á leiðréttingu og viljunt því hreinlega
fá meira. Þær tölur sem llaggað er
frá launadeildinni er óheiðarlegur
leikur að mörgu leyti. Það eru teknar
tölur inn í heildarlaun kennara eins
og til dæmis laun skólameistara,
vinna fyrir ýmsa hluti svo sem próf-
avinnu í samræmdum prófum og
störf sem við skiljum ekki hvaðan
koma eins og nefndastörf. Nefnda-
störf snerta ekki mjög hinn almenna
kennara. Launadeildin segir,meðal-
laun kennara vera um 70 þúsund út
frá þessu, sem þjónar ekki öðrum
tilgangi en þeim að telja fólki trú um
að við höfum hærri laun en við
höfum og við séum bara með
heimtufrekju."
H ver telur þú að meðallaunin séu?
„Ég hef náttúrlega eingöngu yfirlit
yfir laun og meðal yfirvinnutíma í
mínum skóla, Ármúlaskóla, en hann
getur verið nokkuð dæmigerður
bóknámsskóli með um 50 kennur-
um, sumum í hlutastörfum og um
700 nemendur. Meðalyfirvinna í
mínum skóla er um 12 þúsund
krónur á mánuði þegar allt er taiið
með. Ef við gefum okkur að kennari
sé með grunnlaun frá um 34 þúsund
og upp í um 50 þúsund, þá getum við
búist við að þeir hæstlaunuðustu fari
upp í 62 þúsund með yfirvinnunni en
þeir lægstu niður í ca 45 þúsund. Inn
í launum þessum eru öll stjórnunar-
störf í skólunum og vinna í sambandi
við töflugerð.“
Sumir segja þetta ábyrgðarleysi af
ykkur að fara í verkfall og að þið
komið í veg fyrir að nemendur
útskrifist í vor. Hverju svararðu því
að þið séuð þessir vondu menn?
„Við hefðunt nú svo gjarnan viljað
komast hjá því að fara í verkfall og
það segi ég af heilum hug, en þegar
við boðum verkfall og við fáum ekki
neitt á móti sem kentur í veg fyrir að
við blásum slíku af, þá fór þetta nú
svona. Verkfallsvopnið kemur ekki
alltaf niður á sanngjörnum stað og
við erunt því ekki undantekning í
því efni.“
Hve margir félagar í HÍK hafa
ekki kennararéttindi?
„Ætli það sé ekki um þriðjungur
framhaldsskólakennaranna. Þetta
hlutfall hefur ekki lagast þrátt fyrir
að nú sé tiltölulega auðvelt að afla
sér réttinda t.d. að sumrinu til í H.í.
og eins hefur Kennaraháskólinn gert
sitt til þess. Ástæðan fyrir þessu er
hreinlega sú að skólarnir eru í sam-
keppni við þá sem borga betur bæði
innan ríkisgeirans og innan. Það er
nær útilokað að fá kennara með
réttindi í vissar kennslugreinar, svo
sem viðskiptagreinar og raungrein-
ar. Tölvukennslan er með þeim
hætti að kennarar setja sig inn í
tölvuvinnslu um leið og þeir kenna á
tölvu og þegar þeir eru komnir með
einhverja færni þá eru þeir keyptir
annað.“
Tíminn spurði Indriða H. Þorláks-
son form. samninganefndar ríkisins
að því hvort nýtt tilboð væri á
leiðinni eins og kennarar biðu eftir.
„Það er einhver misskilningur hjá
þeim. Við getum ekki elt þá ef þeir
eru á hlaupum upp á við en ef þeir
stefna að samningi erum við tilbúnir
að tala við þá. Við töldum ekki
ástæðu til að halda áfram fundahöld-
um á meðan þeir hækkuðu sínar
kröfur. Þegar þeir komast á sama
flöt og við vorum á áður, þá getum
við farið að tala saman og erunt
tilbúnir að tala við þá um leið og
sáttasemjari telur að viðræður geti
borið árangur. Við munum ekki
leggja fram tilboð. Áður en við
gáturn svarað þeirra síðasta tilboði
komu þeir með Itærri kröfugerð
svoleiðis að við viljunt fá annan brag
á viðræðurnar. Við viljum að menn
stefni að sameiginlcgu markmiði en
ekki burtu frá því,“ sagði Indriði.
ABS
Háskólakosningarnar:
Umbarbjóða
„þjiðstjóm"
Stjórnarmyndunarviðræður inn-
an Háskóla íslands eru nú að
komast á skrið, þó að formlcgar
viðræöurhafi ekki hafist. Umbóta-
sinnar eru í þeirri skemmtilegu
aðstöðu. enn einu sinni, að vera í
oddaaðstööu um hverjir koma til
mcð að mynda meirihluta innan
Stúdentaráðs. Orslit kosninganna
urðu þau að Vaka fékk 5 menn
kjörna, og hefur því 13 ntenn í
Stúdentaráði. Vinstri ntenn fengu
6 ntenn kjtjrna, og hafa því cinnig
13 ntenn. Umbótasinnar fengu 2
menn kjörna og hafa því 3, og eftir
situr einn Stígandi maður.
Bæði Vaka ogvinstri menn hafa
haft samband við Umbótasinna og
biðlað til þeirra um stjórnarsam-
starf, en þeir hafa boðiðþjóðstjórn i
á móti. Með því er átt viö aö
myndað verði ópóilítískt Stúdent-
aráð, sem hafi það að markmiöi
sínu að vinna einungis að málefn-
um Háskólans, en láti málefni sern
viðkoma stúdentum ekki beint
víkja.
Svar hcfur ckki enn borist frá
‘ Vöku cða vinstri mönnum, en
iniklar þreifingar eru í gangi og er
búist við aö formlegar viiSræður
hcfjist þá og þegar.
- SÓL
Ertu að byggja upp
líkamann?
Við leitum að
blaðberum til
starfa víðsvegar
um borgina.
Blaðberar óskast í eftirtalin
hverfi:
Hafnarfjörður:
Norðurbær, Miðbær, Álfa-
skeið og Kinnar.
Garðabær:
Túnin.
Upplýsingar í síma 641195
hjá umboðsmanni.
Hafðu samband.
Tíminn
•SIDUMUL A 1!)
686300
s