Tíminn - 20.03.1987, Blaðsíða 8
8 Tíminn Föstudagur 20. mars 1987
Löngum hefur því verið haldið fram með réttu að
sjávarútvegurinn sé undirstaða efnahagslífs íslendinga.
Afkoma þjóðarinnar hverju sinni ræðst af þvf hvernig staða
sjávarútvegsins er. Lað veltur því á miklu að þeim
málaflokki sé sinnt af kostgæfni.
Nauðsynlegt er að stefnumörkun í sjávarútvegsmálum
nái til langs tíma og því ber að varast hvers konar
skyndiákvarðanir á þeim vettvangi sem lítt eru hugsaðar
og settar eru fram af pólitíkusum í þeim tilgangi að njóta
stundarhylli.
Framsóknarflokkurinn hefur farið með stjórn sjávarút-
vegsmála þetta kjörtímabil. Fyrir forystu sjávarútyegsráð-
herra Flalldórs Ásgrímssonar tókst að samræma ólík
sjónarmið hagsmunaaðila í sjávarútvegi, sem skildu nauð-
syn þess að fiskveiðunum yrði stjórnað betur en fyrr.
Á fundi á Hvammstanga í síðustu viku ítrekaði sjávarút-
vegsráðherra Halldór Ásgrímsson þá stefnu Framsóknar-
flokksins að haldið verði áfram þeirri fiskveiðistefnu sem
mótuð hefur verið og að framlengja beri lög þar um. Stefna
Framsóknarflokksins er því skýr í þessum efnum. Sjávarút-
vegsráðherra taldi hins vegar mikið skorta á að stefna
annarra flokka lægi jafn ljós fyrir, og sagði um það atriði:
„Ég fullyrði að það þýðir ekkert að kjósa í þessu landi
nema flokkarnir séu tilbúnir að segja frá því hvaða stefnu
þeir vilja reka í fiskveiðimálum og stjórnun fiskveiða.“
Sjávarútvegsráðherra bendir réttilega á að formaður
Alþýðuflokksins hefur lýst því yfir að hann vilji brjóta
niður núverandi fiskveiðistefnu en hefur hins vegar bæði
skort hugmyndaauðgi og þor til að segja hvernig Alþýðu-
flokkurinn vill stjórna þessum málum. Stefnuleysi Alþýðu-
bandalagsins er svipað. Þar hafa menn lýst sig „á móti“
núgildandi lögum eins og venja alþýðubandalagsmanna er
þegar um mikilsverð mál er að ræða en tillögur frá þeim
sjást engar.
Sjálfstæðismenn með Matthías Bjarnason viðskipta-
ráðherra í broddi fylkingar telja réttast að sleppa öllu lausu
og stjórna sem minnstu. í sjávarútvegsmálum sem annars
staðar telja þeir vænlegast að gefa allt frjálst og stjórna
hvergi, og láta samkeppnina leysa þá erfiðleika sem fyrir
eru og skapast kunna.
Enginn þessara flokka hefur ákveðna stefnu í sjávarút-
vegsmálum sem þó eru mikilvægust allra mála fyrir
þjóðina. En það eru fleiri flokkar en Alþýðuflokkur,
Alþýðubandalag og Sjálfstæðisflokkur sem ganga stefnu-
lausir til kosninga að þessu sinni. Kvennalistinn telur það
ekki skyldu sína að hafa stefnu í sjávarútvegsmálum og
sömu sögu má segja um önnur smáframboð sem ætla sér
þó stóra sigra.
Kjósendur hljóta og verða að gera þá kröfu til þeirra
aðila sem ætla sér setu á Alþingi og jafnvel ráðherrastóla
að þeir skýri fyrir kosningar hvernig þeir vilja að málefnum
sjávarútvegs verði stýrt.
Framtíð lands og þjóðar byggist á auðæfum hafsins
umhverfis landið og þau eru okkar eign. Þeim er hægt að
spilla og jafnvel eyðileggja ef ekki er farið með gát og horft
fram í tímann. Rányrkja þar sem annars staðar mun koma
okkur í koll síðar.
Auðvitað þurfti að ákveða framhald fiskveiðistefnunnar
á þessu þingi svo sem sjávarútvegsráðherra vildi. Sjálf-
stæðisflokkurinn lagðist gegn því og naut stuðnings stjórn-
arandstöðunnar í þeim efnum.
Eitt fyrsta verk nýrrar ríkisstjórnar verður að taka þessi
mál til meðferðar og nauðsynlegt er að þar ráði ábyrg öfl
ferðinni. Ótvírætt væri þeim málum áfram best borgið í
höndum sjávarútvegsráðherra, Halldórs Ásgrímssonar.
Til þess þarf Framsóknarflokkurinn stuðning kjósenda.
GARRI
..Éger miklu sterkari en þú heidur Steini minn og iáttu mig bara í fríði.
Enn einn stormurinn...
Sjálfstæðismenn eru að ganga til
kosninga cins og aðrir púlitíkusar í
landinu. Þeir vita að forsenda þess
að vel gangi er að láta bera á sér í
fjolmiðlum og skiptir litlu hvert
tilcfnið er.
Löngum hafa þingstörf orðið
tilcfni til framkomu I fjöliniðluni
og margir þingmenn byggja vin-
sældir sínar á skemmtilegum upp-
ákumum i þingsölum.
ÞorSteinn Pálsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins hefur ekki
vakið athygli síðan síðast, eða
nánar tiltckið þegar hann kom frá
París. f gær uppgötvaði hann sér
þaö til skelfingar að Alþingi var að
Ijúka störfum og þar mcð allar
frekari uppákoinur fyrir bí neina
brugðið væri skjólt við.
Nú voru gúð ráð dýr. En hjálpin
var skammt undan. í fyrradag
birtist ncfnilcga í Hclgarpústinum
skattaskýrsla Alberts Guömunds-
sonar frá því hann var fjármálaráð-
herra, og kcinur í henni fram að
Albert hafði kannski ekki lalið
alveg rétt frain til skatts frekar en
aðrir landsmenn.
Þorsteinn sá aö þarna var kjörið
tækifæri, ekki aðeins að komast í
fjöliniðla hcldur einnig að ráðast
gegn skattsvikum cins og hann er
búinn að ætla að gera allt frá því
hann varð ráðhcrra. Og síðast en
ekki síst að ráðast gcgn Albert
Guðinundssyni enda Albert í út-
landinu og vonlaust að hann gæti
knmið sínum sjúnarmiðum á fram-
færi.
Boðað var til blaðamannafundar
í snatri. Fundarstaðurinn var
ákveðinn Alþingi og fundurinn
tímasettur ofaní þingslitaræðu
forseta Alþingis. Fleiri blaðamenn
mættu á staðinn en nokkru sinni
hefur gerst í sögu Sjálfstæöis-
flokksins cnda búist við inikluiu og
Tímamynd Pjetur
stúrum tíðindum úr munni for-
niannsins. En hvað skeði?
... í vatnsglasi
formannsins
í stuttu máli vurð hvorki barn í
brúk né nokkuö á þessum fjöl-
mennasta blaðainannafundi
vetrarins. Forniaðurinn lokaði fyr-
ir spurningar tiltölulega snemma
og hætti við að skainma Albert.
Hann liætti líka við að fárast yfir
skattsvikum manna enda honum
Ijúst að 200 þúsund segja ekkcrt í
ríkiskassanuni og honuni varð
einnig Ijúst að Albert lætur ekki
reka sig úr flokknum, jafnvcl þútt
hann sé ekki heiina til að verja sitt
mál.
Blaðamannafundurinn og allt
tilstandið í kring uin hann varð sem
sé núll. Og þú, - formaðurinn fékk
að koma fram í fjölmiðlum og það
er ýmislcgt tilvinnandi fyrir það.
Garri
VÍTTOG BREITT
Að kjósa um kvótann
Sjávarútvegsráðherra, Halldór
Ásgrímsson, segir í Tímanum í
gær að ekki sé hægt að ganga til
kosninga í þessu landi nema stjórn-
málaflokkarnir stilli upp afdráttar-
lausri stefnu sinni í sjávarútvegs-
málum, og þá sérstaklega hvert
þeir vilja að framhaldið verði á
stjórnun fiskveiða. I blaðinu er
haft eftir Halldóri: „Við framsókn-
armenn höfum sagt það, að við
viljum halda áfram þeirri fiskveiði-
stefnu sem mótuð hefur verið í
öllum megin atriðum og fram-
lengja þau lög sem þar gilda um."
Ráðherrann ætlar greinilega að
standa og falla með fiskveiðistjórn-
un sinni, þó hann virðist gefa
eitthvert svigrúm til breytinga á
kerfinu með orðalaginu „í öllum
megin atriðum".
Verður kosið um
þjóðarsáttina?
Satt best að segja hefur kvóta-
málið næstum gleymst í umræð-
unni síðustu vikur og mánuði og
enginn minnst á það í þeim aragrúa
„tengj umst- fólkinu-símaþáttum"
á útvarpsstöðvum okkar þegar
sauðsvartur almúginn er í þessum
háborgum íslenskrar dagskrár-
gerðar spurður um hver verði aðal
baráttumálin í komandi kosning-
um. Aids er nefnt til, byggðamál í
sínum víðasta skilningi. ellilífeyrir,
og kjarasamningar og gott ef ein-
hver nefndi ekki Eurovision fyrir
nýju kjósendurna. Síðast en ekki
síst ætla menn að kjósa um aðal-
deilumálið: þjóðarsáttina. Enginn
hefur hins vegar talað um kvótann,
enda er þetta hið mesta vand-
ræðamál.
Sighvatur veiðimaður
Þó má nú sjá að einstaka tals-
menn stjórnmálaflokkanna hafa
skoðun á kvótakerfinu og minnist
undirritaður þess að hafa séð kjall-
aragrein í DV fyrr í vikunni þar
sem Sighvatur Björgvinsson, en
hann hyggst reyna að komast á
Alþingi í næstu kosningum, lýsir
því yfir að hann muni ekki styðja
ríkisstjórn sem hafi stjórnun fisk-
veiða á stefnuskrá sinni. Það er svo
önnur saga hvort það í rauninni
skiptir einhverju máli hvort Sig-
hvatur styðji einhverja ríkisstjórn
eða ekki. En ef Sighvatur túlkar
afstöðu Alþýðuflokksins þá virðist
það ljóst að sú afstaða er fjandsam-
leg kvótakerfinu svo ekki sé dýpra
tekið í árinni. Eins og Sighvatur
segir sjálfur þá eru „reiknistokka-
menn“ þeir einu sem styðja það
bjánalega kerfi. Bendir hann á að
það sé á móti „veiðimannaeðlinu"
í íslendingum að stjórna veiðun-
um, barið sé á náttúrulegum hæfi-
leikum manna til að finna fiskinn
og þeim refsað sem stutt eiga á
miðin að sækja. Ekki telur hann þó
ástæðu til að minnast á að veiði-
mennskueðli íslensku sjómanna-
stéttarinnar hefur bæst öflugur liðs-
auki þar sem tæknin er og veiði-
mennskan er ekki lengur einskorð-
uð við að veiða sér til matar,
heldur er hér um atvinnugrein að
ræða, sem meira að segja stendur
undir íslensku efnahagslífi. Vafa-
laust er það óeðli í reiknistokka-
mönnum að ætlast til að skipulag
sé haft á slíku og stofnarnir nýttir
í hlutfalli við afrakstrargetu. Ekki
verður þó komist hjá þeirri grun-
semd að í gegnum málflutning
Alþýðuflokksframbjóðandans
skíni atkvæðaveiðimannseðli
stjórnmálamanns á Vestfjörðum.
í Þjóðviljanum í gær dæmir Skúli
Alexandersson þingmaður Al-
þýðubandalagsins kvótann, þannig
að hann „hafi komið í veg fyrir
eðlilega uppbyggingu í sjávarút-
vegi". Þingmaðurinn talar jafn-
framt um að fiskiskipaflotinn sé
úreltur orðinn og það gerir Sighvat-
ur raunar líka. Þetta eru mikil
sannindi hjá þeim kvótaandstæð-
ingum, og Skúli talar um að endur-
nýja þurfi skipaflotann smám
saman. Svo mætti skilja að mönn-
um væri bannað að endurnýja hjá
sér skipin, vegna þess að á þeim
hverju og einu hvílir ákveðinn
kvóti. Enginn hefur mótmælt því
að fiskiskipaflotinn sé allt of stór,
enda megin ástæðan fyrir því að
takmarka þarf sóknina sú að of
mörg skip eru um of fáa fiska. Því
hefur undirritaður skilið það sem
skynsamlega meginstefnu að ef
nýtt skip bætist í flotann verði
gamalt af hverfa af skipaskrá í
staðinn.
Er ekki best að
um kvótann?
kjósa
En að afloknum lestri á þessari
gagnrýni kvótaandstæðinga er eftir
sem áður áleitinni spurningu ósvar-
að. Hvað á að koma í staðinn?
Ef til vill er það ekki svo ónýtt
hjá ráðherra sjávarútvegsmála að
rukka andstæðinga sína um stefn-
una í þessu máli sem svo mjög
hefur fallið í skuggann upp á
síðkastið. Varla er það verra en að
gera kreditkortin að kosningamáli,
spurningin snýst jú um, þegar allt
kemur til alls, framtíðar inneign
okkar í sjónum í kringum landið,
og hvort sú innistæða dugar til að
borga upp gulu miðana veiðimann-
anna, sem gera vilja út á gleði-
bankamiðin.
- BG
Tíminn
MÁLSVARIFRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU
Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og
Framsóknarfélögin í Reykjavík
Framkvæmdastjóri Kristinn Finnbogason
Ritstjóri: NíelsÁrni Lund
Aöstoðarritstjóri: OddurÓlafsson
Fréttastjórar: BirgirGuömundsson
EggertSkúlason
Auglýsingastjóri: Steingrímur Gíslason
Skrifstofur: Síöumúli 15, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími:
18300. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686306,
íþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild
Tímans. Prentun: Blaðaprent h.f. Kvöldsímar: 686387 (tæknideild)
og 686306 (ritstjórn).
Verð í lausasölu 50.- kr. og 60.- kr. um helgar. Áskrift 500.-
Auglýst er eftir stef nu flokk-
anna í sjávarútvegsmálum