Tíminn - 16.04.1987, Blaðsíða 20
20 Tíminn
Páskablað
Marc Almond
merkisberi
Kl. 21.00 á föstudaginn langa
er á Rás 2 þáttur Skúla Helga-
sonar Merkisberar, en þar eru
sem kunnugt er kynntir tónlist-
armenn sem fara ekki troðnar
slóðir.
1 þetta sinn kynnir Skúli merk-
isberann Marc Almond og leyfir
hlustendum að heyra viðtal sem
hann átti við hann i London fyrir
skömmu. Þriðja breiðskífa Marcs
Almonds er nýkomin út en hann
mun aðallega vera kunnur sem
aðalsprautan í hljómsveitinni
Soft Sell.
Andri Már Ingólfsson ræðir við
íslendinga erlendis á föstudag-
inn langa.
íslendingar erlendis
um páska
Kl. 10.00 að morgni föstudags-
ins langa á Bylgjunni er Andri
Már Ingólfsson sestur við hljóðn-
emann og leikur þar ljúfa tónlist
og spjallar við hlustendur næstu
þirjá tímana.
Andri Már hringir líka í Islend-
inga erlendis og kannar hvernig
þeir halda páska fjarri ættjörð-
inni.
Bergþór Pálsson barítónsöngv-
ari syngur á Rás 1 kl. 17 í dag.
Bergþór Pálsson
syngur ljóðasöng
Kl. 17.00 í dag á Rás 1 flytja
Bergþór Pálsson barítónsöngv-
ari og Jónas Ingimundarson
pianóleikari ljóðasöngskrá. Á
söngskránni eru lög eftir
Schubert, Resphighi og Ravel.
Bergþór Pálsson hefur verið í
iöngnámi og almennu tónlistar-
íámi í tónlistardeild Indiana-
láskóla og er nú að ljúka MM-
orófi. Jafnhliða útskrifast hann
ir viðskiptadeild skólans með
itjórn listastofnana sem auka-
grein. Hann fékk í vetur viður-
itenningu háskóla síns sem örfá-
Jm nemendum er veitt árlega
fyrir afburða tónlistarflutning.
Bergþór er giftur Sólrúnu
Bragadóttur söngkonu og
syngja þau nú tvö aðalhlutverk-
in í óperunni Saltanas keisari
eftir Rimsky-Korsakoff í Indiana.
Starfsemi prestsins stofnar öllum í hsattu og í páfagarði eru ýmsar blikur á lofti.
Hempan og hervaldið
Kl. 22.50 á laugardagskvöldið
sýnir Sjónvarpið verðlauna-
myndina Hempan og hervaldið
(The Scarlet and the Black), sem
gerð er í samvinnu Breta, ítala
og Bandaríkjamanna. Myndin er
byggð á sannsögulegum atburð-
um.
1 myndinni er lýst „leik kattar-
ins að músinni". írskur prestur í
páfagarði virðir að vettugi fyrir-
skipanir hernámsyfirvalda nas-
ista í Róm. Hann hefur komið á
fót flóttaaðstoð við þá sem þurfa
og sleppur oft naumlega frá
löngum krumlum Gestapó.
Höfuðóvinur hans í herbúðum
nasista er ofursti sem lætur ein-
skis ófreistað til að koma hönd-
um yfir þennan baldna þjón kir-
kjunnar.
Það er Gregory Peck sem fer
með hlutverk írska prestsins
Monsignor Hugh O'Flaherty og
erkiandstæðinginn, þýska ofur-
stann leikur Christopher
Plummer. í hlutverki Píusar páfa
XII er John Gielgud.
Kl. 22.40 á annan í páskum
verður í Sjónvarpinu sýndur
franskur sjónvarpsþáttur með
leikaranum og söngvaranum
Yves Montand sem er á f erð um
heiminn og kemur fram í ýms-
um helstu stórborgum austan-
hafs og vestan.
76.TÓNLISTAR-
KROSSGÁTAN
Kl. 15.00 á páskadag verður
76. Tónhstarkrossgátan á Rás 2
og er stjórnandi að venju Jón
Gröndal.
Edda Heiðrún Backman leikur
Maju öskubusku en Bessi
Bjarnason leikur Nikulás.
Margir aðrir leikarar koma við
sögu.
Öskubuska
og maðurinn
sem átti engar buxur
— eftir Gísla J. Ástþórsson
Kl. 21.10 á páskadagskvöld
sýnir Sjónvarpið nýtt íslenskt
leikrit eftir Gísla J. Ástþórsson.
Leikstjóri er Hilmar Oddsson og
hann samdi einnig tónlistina og
annaðist klippingu og upptöku-
stjórn.
Maja vinnur í öskunni og er
ekki í stjörnuher nútímans. Leið-
ir hennar og Nikulásar, athafna-
mannsins harðskeytta sem
„nennir ekki lengur að lifa“,
liggja saman og þau reynast
eiga býsna mikið að gefa hvort
öðru.
Dregin verður upp mynd af
listamanninum Árna Kristjáns-
syni á Rás 1 á páskadag kl. 15.
Mynd af listamanni:
Árni Kristjánsson
píanóleikari
Kl. 15.00 á páskadag á Rás 1
bregður Sigrún Björnsdóttir upp
mynd af Árna Kristjánssyni
pianóleikara og fyrrverandi tón-
listarstjóra Ríkisútvarpsins í
þáttaröðinni Mynd af lista-
manni.
í þættinum lætur Árni hugann
reika um liðna tíð; um bernsku-
árin á Akureyri, þar sem hann
faldi sig uppi í brekkunni fyrir
ofan Hótel Akureyri og hlustaði
á Noctúrnu Chopins í Es-dúr
berast út um opinn gluggann,
um árin í Berlín millistríðsár-
anna, og um langan starfsdag
þegar heim var komið. Jón Þórar-
insson tónskáld segir nokkur
orð um hlut Árna- í tónlistarlífi
íslendinga og Rögnvaldur Sigur-
jónsson rifjar upp minningar um
hann sem píanókennara. Einnig
fáum við að heyra Árna leika
verk eftir Brahms og Mozart í
þættinum.
1 sjónvarpsþættinum verða
sýndar upptökur með Mariu
Callas sjálfri, þar sem hún
syngur m.a. Habanera úr Carm-
en eftir Bizet.
MARIA CALLAS
Kl. 22.30 á föstudaginn langa
sýnir Sjónvarpið þátt frá tónleik-
um í minningu Mariu Callas,
sem haldnir voru í Alte Oper í
Frankfurt í desember sl. og sjón-
varpað beint víða um megin-
landið.
Þar flytja söngvararnir Paata
Burchuladze, Anne Sophie von
Otter, Thomas Hampson og Apr-
ile Millo úrval atriða úr ýmsum
þeim óperum, þar sem Callas
vann minnisverða söngsigra.
Einnig er brugðið upp gömlum
upptökum með Callas sjálfri.
Stjómandi á tónleikunum er
James Levine.