Tíminn - 30.04.1987, Qupperneq 3
Fimmtudagur 30. apríl 1987
Tíminn 3
Búfiskur hf. og Stangaveiðifélag Rangæinga hefja sleppingar á næstunni:
RANGÁRNARí HÓP
BESTU LAXVEIDIÁA
Næstu daga verður hafist handa
við að koma fyrir tólf seiðabúrum í
Eystri- og Ytri- Rangá. í búrunum
verða vanin þau 25 þúsund seiði sem
ráðgert er að sleppt verði í árnar í
sumar. Það er fiskeldisfyrirtækið
Búfiskur hf. sem hefur veg og vanda
af sleppingum, í sameiningu við
- ef sleppingar takast sem vonir standa til
Stangaveiðifélag Rangæinga. Seiðin
koma úr tveimur stöðvum. 3.800
sjógönguseiði koma frá Búfiski, en
um 21.200 þúsund seiði eru keypt af
fiskeldisstöðinni Smára hf. við Þor-
lákshöfn. Búfiskur og Stangaveiði-
Kvennadeild Skagfirðingafélags-
ins í Reykjavík verður með veislu-
kaffi og hlutaveltu í Drangey, Síðu-
rnúla 35, föstudaginn 1. maí n.k. kl.
14 til eflingar starfsemi sinni, en
deildin hefur gefið til tækjakaupa í
Sjúkrahús Sauðárkróks og til heimil-
is aldraðra í Skagafirði.
En síðastliðin tvö ár hefur verið
aflað fjár til viðgerðar á altarisbrík
Hóladómkirkju, sem er mikið og
vandasamt verk. Um er að ræða
einn dýrmætasta kirkjugrjp á ís-
landi, og talinn gefinn kirkjunni af
Jóni biskupi Arasyni.
Hluti af altarisbríkinni er nú í
viðgerð í Þjóðminjasafni. Miðbríkin
er fyrir norðan og lokið viðgerð á
henni, en vængirnir eru hér til við-
gerðar, sagði Þór Magnússon,
þjóðminjavörður við Tímann í gær,
ásamt myndunum sem í þeim eiga
að vera.
Það eru aðallega þrír menn sem
vinna að þessum viðgerðum, Hall-
dóra Ásgrímsdóttir, Kristín Sigurð-
ardóttir og Ólafur Jónsson. Þór
sagði að það sem einkum væri að
bríkinni væri, að málningin væri
byrjuð að losna. Það á sér ýmsar
orsakir. Aðalorsökin er þó bara elli,
því allt efni missir sitt eðli með
tímanum. Og gömlu bindiefnin
missa smám saman bindikraft sinn
og losna upp, og þá dettur málningin
af, bæði af þessum útskornu mynd-
unt og eins málningin utan og innan
á vængjunum. Utan á vængjunum
eru málaðar myndir, og sumt er
dottið upp úr og horfið með öllu. í
þeim tilfellum er viðgerðin í því
fólgin að festa niður alla málningu
og allt sem hefur verið þessum grip
til skrauts. Þetta verk er gífurlega
seinlegt og mikið þolinmæðisverk og
verður ekki unnið nema á löngum
tíma.
Þór sagðist ekki geta sagt um hvað
verkið tæki langan tíma, en ljóst
væri að það tæki mun lengri tíma en
gert var ráð fyrir í upphafi, sem var
eitthvað tvö ár. Taldi hann að óhætt
myndi að segja að verkinu gæti verið
lokið um 1990.
félagið kaupa seiðin fyrir 1,5 til 2
milljónir króna, og fer verðið eftir
verði á markaðnum hérá landi. Eftir
að seiðin hafa verið vanin í ánni um
mánaðartíma verður þeim sleppt úr
búrum sínum í ána. Strax næsta ár
verður klakfiskur tekinn úr ánurn
sjálfum og aðstaða Búfisks notuð
við framleiðslu á seiðum. Um cr að
ræða mikil fjárútlát fyrir aðstand-
endur þessa umfangsmikla fiskirækt-
arverkefnis, ekki bara í ár heldur á
næstu árum.
„Ætlunin er að Rangárnar verði
orðnar bestu laxveiðiár landsins inn-
an nokkurra ára ef þctta gengur
eftir,“ sagði Aðalbjörn Kjartansson
hjá Búfiski hf. og fyrrverandi for-
maður Stangavciðifélags Rangæinga
í samtali við Tímann í gær. Aðal-
björn sagði mikið starf vera fram-
undan, til að koma allri aðstöðu í
gott horf. Stangaveiðifélag Rang-
æinga á tvö veiðihús, Rangárbakka
og annað sem stendur við Hólsá.
Aðalbjörn sagði að það hús yröi flutt
í sumar að ytri ánni. Þá verður hafist
handa við að merkja veiðistaði á
vatnasvæðinu upp á nýtt og er þar
um rnikið verkefni að ræða, því
svæðið hefur mesta bakkalengd allra
veiðisvæða á landinu.
Fleiri munu njóta góðs af þessu
framtaki en vciðimcnn á Suðurlandi
og landeigcndur. 28 stangir eru á
svæðinu og jafnmargir veiðimenn
munu þurfa þjónustu svo um munar.
Hella og Hvollsvöllur munu njóta
góðs af því.
Að öllum líkindum mun Stanga-
veiðifélag Rangæinga fá uppá skrif-
að samþykki Veiðimálastofnunar
um þessa aðgerð alla og stofna þá
scm slcppa á, í dag, en það eru
stofnar af suðvestur horninu úr
Elliðaánum og af Ölfusar- Hvítár-
svæðinu.
- ES
Samdóma álit sjómanna:
Algert
aflaleysi
- nær enginn afli
eftir páska
„Það er enginn fiskur á svæð-
inu,“ „Lítið um að vera“, „Þetta
er ekki glæsilegt" og „Fiskleysi"
var viðkvæði sjómanna á SV-
horninu og í Vestmannaeyjum er
blaðamaður forvitnaðist um afla-
brögð þeirra eftir páska.
í Grindavík fcngust þau svör
að enginn fiskur væri á svæðinu
og að auki hefði leiðindaveður
verið í dálítinn tíma þar. Ýsan
hefði ekki látið sjá sig og þorskur
fyndist ekki lengur. Þeir hefðu
fengið nokkuð góða viku í mars,
en sfðan ekki söguna meir.
f Sandgerði fengust þau svör
að lítið væri um að vera. Sand-
gerðin hefði aflað 15-17 tonnum.
Annars væri þetta hörmung, veð-
ur hefði verið leiðinlcgt og afla-
leysi eftir páska.
Ástandið er ekki glæsilcgt í
Þorlákshöfn. Vikuna 19.-26. apr-
íl hefði verið landað í heild 514
tonnum og 980 kítóum, sern væri
mjög lélegt. Fiskinn hreinicga
vantaði og sjórinn hefði verið
dauöur eftir páska.
í Vestmannaeyjum fengust
svipuð svör. Veiðin væri ósköp
lítil, nær engin undanfarið og
algcrlcga dautt eftir páska. -SÓL
Umferöarráö:
HJOLREIDAKEPPNI0G
DRÁTTARVÉLANÁMSKEIÐ
Hjólreiðakeppni Umfcrðarráðs
verður haldið í Rcykjavík 2. maí og
á Akureyri 9. maí n.k. Keppendur í
keppninni í Reykjavík eru alls staðar
að af landinu, nema af Norðurlandi
en Norðlendingar keppa í scrstökum
riðli við nýju íþróttahöllina á Akur-
eyri. Keppnin er haldin í framhaldi
af spurningakeppni 12 ára nemcnda
um umferðarmál sem haldin var í
marsmánuði í öllum grunnskólum
landsins og keppendur verða þcir
sem bestum árangri náðu í spurn-
ingakeppninni. Keppt vcrður í góð-
akstri í raunverulegri umferð og í
hjólreiðaþrautum á afmörkuðu
svæði.
Umferðarráð gcngst þessa dagana
fyrir dráttarvélanámskeiði cn slík
námskeið eru haldin árlega á vegurn
Umfcrðarráðs. Námskeiðsstaður er
Dugguvogur 2 við Elliðavog.
Loks skal þess getið að Umferð
arráð hcfur látið búa til vcggspjali
um öryggisbúnað fyrir börn í bílun
og eru myndir af ýmsum gerðun
bílstóla og bílbclta fyrir börn sen
eru allt frá því að vera í vöggu oj
upp í 10 ára og eldri. Þar cr cinnij
vakin athygli á því, að síðustu 5 á
hafi að meðaltali slasast 47 börn sen
hafi verið farþegar í bílum. Ekker
þcirra var í bílstól eða bílbelti. AB:
Ólafur Ingi Jónsson þjóðvörður vinnur hér að víðgerð altarisbríkarinnar.
(Tímamynd Pjetur)
Hjálpað upp á
altarisbrík
Jóns Arasonar
Aðalfundur
Samvinnubankans
Aðalfundur Samvinnubanka íslands hf. verður
haldinn í dag, fimmtudaginn 30. apríl 1987 að
Hótel Loftleiðum, Kristalssal og hefst kl. 14.30.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður lögð
fram tillaga um heimild bankaráðstil útgáfu jöfn-
unarhlutabréfa og tillögur til breytinga á
samþykktum bankans, ef fram koma.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar til fundarins
verða afhentir í aðalbanka, Bankastræti 7, dagana
27. - 29. apríl svo og á fundarstað.
Bankaráð Samvinnubanka íslands hf