Tíminn - 30.04.1987, Síða 19
Tíminn 19
Fimmtudagur 30. apríl 1987
Hjónabönd
sem endast
og endast
-finnast líka í Hollywood
“Það verður að sýna mikla skapfestu í Hollywoodhjónabandi,“ segir
Jolanda Quinn sem er búin að vera gift Anthony í 22 ár.
Larry og Maj Hagman hafa þolað
saman súrt og sætt í yfir 30 ár og
hafa hugsað sér að halda þvi áfram.
Fátt virðist vera merkingar-
lausara og endingarlausara í Holly-
wood en hjónaband. Slúðurdálkar
blaða eru endalaust fullir af frétt-
um af hjónaskilnuðum og nýjum
hjónaböndum hárra sem lágra í
kvikmyndaborginni. Það þykir
minna fréttnæmt að segja frá
hjónaböndum sem endast og end-
ast - jafnvel í Hollywood.
Það er skiljanlegt að mikið reyni
á hjónabönd og heimilislíf í kvik-
myndaheiminum. Vinnudagarnir
eru langir og strangir, þar er á
ferðinni fallegt og föngulegt fólk
og tilfinningar sem tjáðar eru eru
heitar og hugsunarlausar. Það hlýt-
ur að vera meira en lítið erfitt að
koma heim til hversdagslegs maka
og venjulegra barna eftir slíkan
tilfinningastorm og freistingar sem
starfið hefur í för með sér. Oft er
líka rokið í hjónabandið án mikill-
ar umhugsunar-og skilnaðinn líka
án mikillar umhugsunar.
Mel Brooks og Anne Bancroft eiga langt hjónaband að baki og virðist
enginn brestur í því. Hann segir: Mér er það hrein ráðgáta hvernig svona
glæsileg kona getur umborið svona Ijótan karl í svona langan tíma!
Maj og Larry Hagman (JR í
Dallas) hafa verið gift í meira en
30 ár. Maj er sænsk að uppruna og
hefur aldrei látið kvikmyndirnar
slá glýju í augun á sér. Hún hefur
hins vegar ekki látið dyntina í
manninum sínum slá sig út af
laginu í öll þessi ár sem hún segir
að hafi hreint ekki verið árekstra-
laus á heimilinu. En „Larry hefur
aldrei enn sem komið er orðið fyrir
slíkum freistingum að það hafi
hvarflað að honum að yfirgefa mig
og börnin okkar tvö. Heimilið er
honum dýrmætara en það,“ segir
hún.
Anthony Quinn veit að vísu
hvað skilnaður er. Hann yfirgaf
fyrri konu sína Kathryn og fjögur
börn þeirra eftir langt hjónaband
og giftist núverandi konu sinni,
Jolanda, árið 1965. Lífsreynslan
Sean Connery giftist Michcline 1974 og átti þá aðirakreinn skilnað. Síðan
hefur hann ekki litið tvisvar á aðra konu.
hefur kennt honum (hann er orð-
inn 72ja ára) að flestir eigi eitt
misheppnað hjónaband að baki.
Enda geri flest ungt fólk sömu
vitleysuna, það hlýði frekar hjar-
tanu en heilanum. En hjónaband
nr. 2 eigi góða möguieika. „Fólk
verður þá að hugsa sig vel um og
gera sér grein fyrir hvernig sam-
bandið standist þegar erfiðleikar
berja að dyrum,“ segir hann.
Jill Ireland valdi rétt þegar hún
Charles Bronson leikur hörkutól í kvikmyndunum en í hjónabandinu með
Jill Ireland er hann Ijúfur eins og lamb.
giftist Charles Bronson 1968 en þá
átti hún mislukkað hjónaband að
baki. Prófsteinninn á þeirra hjóna-
band var þegar Jill fékk krabba-
mein í brjóst og nema varð það
burt 1968. „Okkar hjónaband
stendur traustari fótum eftir það
áfall,“ segir hún.
Það eru sem sagt líka til end-
ingargóð hjónabönd í Hollywood
þó að sjaldan sé sagt frá þeim í
fréttum.
Fimmtudagur
30. apríl
6.45 Veðurfregnir. Bæn.
7.00 Fróttir.
7.03 Morgunvaktin. - Jón Baldvin Halldórsson
og Jón Guöni Kristjánsson. Fréttireru sagðar kl.
7.30 og 8.00 og veðurfregnir kl. 8.15. Tilkynning-
ar eru lesnar kl. 7.25, 7.55 og 8.25.
Guðmundur Sæmundsson talar um daglegt mál
kl. 7.20.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
9.03 Morgunstund barnanna: „Antonia og
Morgunstjarna" eftir Ebbu Henze. Steinunn
Bjarman þýddi. Þórunn Hjartardóttir les (9).
9.20 Morguntrimm. Lesið úr forustugreinum dag-
blaðanna. Tónleikar.
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Lesið úr forustugreinum dagblaðanna.
10.30 Ég man þá tíð Hermann Ragnar Stefánsson
kynnir lög frá liðnum árum.
11.05 Samhljómur. Umsjón: Anna Ingólfsdóttir.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar.
13.30 í dagsins önn. Umsjón: Anna G. Magnús-
dóttir og Guðjón S. Brjánsson.
14.00 Miðdegissagan: „Fallandi gengi" eftir Er-
ich Maria Remarque. Andrés Kristjánsson
þýddi. Hjörtur Pálsson les (7).
14.30Textasmiðjan. Lög við texta eftir Tólfta
september.
15.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
15.20 Landpósturinn. Umsjón: Sverrir Gauti Di-
ego.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
16.05 Dagbókin.
Dagskrá.
16.15 Barnaútvarpið.
17.00 Fréttir. Tilkynningar.
17.05 Síðdegistónleikar. a. Ensk svíta í d moll
eftir Johann Sebastian Bach. Gísli Magnússon
leikur á píanó. b. „Funérailles" og Konserttet-
ýða nr. 2 í f moll eftir Franz Liszt. Halldór
Harldsson leikur á píanó.
17.40Torgið - Menningarstraumar. Umsjón:
Þorgeir Ólafsson.
18.00 Fréttir. Tilkynningar.
18.05 Torgið, framhald.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar.
Daglegt mál. Endurtekinn þáttur frá morgni
sem Guðmundur Sæmundsson flytur.
19.45 Að utan. Fréttaþáttur um erlend málefni.
20.00 Frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands í Háskólabíói 25. þ.m. Stjórnandi:
Arthur Weisberg. a. Myrkraverk eftir Oliver
Kentish. b. Karnival í Róm eftir Hector Berlioz.
c. Sinfónía nr. 5 eftir Gustav Mahler. Kynnir: Jón
Múli Ámason.
21.40 „Hænan“, smásaga eftir Mercé Rodove-
da. Hólmfríður Matthíasdóttir þýddi. Ari Matthí-
asson les.
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 „Þeir deyja ungir...“ Þáttur um þýska skáld-
ið Karl Georg Buchner. Umsjónm: lllugi Jökuls-
son.
23.00 Kvöldtónleikar. a. Píanósónata í B-dúr op
106 eftir Felix Mendelssohn. Rena Kyriakou
leikur. b. Strengjakvartett nr. 1 í D-dúreftir Pjotr
Tsjaíkovskí. borodin kvartettinn leikur. c. Divert-
imento í B-dúr K. 317 eftir Wolfgang Amadeus
Mozart. Hátíðarhljómsveitin í Luzern leikur;
Rudolf Baumgartner stjórnar.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
Næturútvarp á samtengdum rásum til
00.10 Næturútvarp. Snorri Már Jónsson stendur
vaktina.
6.00 í bítið Erla B. Skúladóttir léttir mönnum
morgunverkin, segir m.a. frá veðri, færð og
samgöngum og kynnir notalega tónlist í morg-
unsárið.
9.05Morgunþáttur í umsjá Kristjáns Sigurjóns-
sonar og Sigurðar Þórs Salvarssonar. Meðal
efnis: Tvennir tímar á vinsældalistum, tónleikar
um helgina verðlaunagetraun og Ferðastundin
með Sigmari B. Haukssyni.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Á milli mála. Leifur Hauksson kynnir létt lög
við vinnuna og spjallar við hlustendur.
16.05 Hringiðan. Umsjón: Broddi Broddason og
Margrét Blöndal.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Vinsældalisti rásar 2. Gunnar Svanbergs-
son og Georg Magnússon kynna og leika
vinsælustu lögin.
20.30 í gestastofu. Sonja B. Jónsdóttir tekur á
móti gestum.
22.05 Nótur að norðan frá Ingimar Eydal. (Frá
Akureyri)
23.00 Við rúmstokkinn. Guðrún Gunnarsdóttir
býr hlustendur undir svefninn með tali og tónum.
-00.10 Næturútvarp. Hreinn Valdimarsson stendur
vaktina til morguns.
02.00 Á frívaktinni Þóra Marteinsdóttir kynnir
óskalög sjómanna (Endurtekinn þáttur frá
mánudagsmorgni, þá á rás 1).
Fréttir eru sagðar kl. 7.00, 8.00, 9.00, 10.00,
11.00,12.20,15.00,16.00 og 17.00,18.00,19.00,
22.00 og 24.00.
Svæðisútvarp virka daga vikunnar.
18.00-19.00 Svæðisútvarp fyrir Akureyri og
nágrenni - FM 96,5 MHz. M.a. er leitað svara
við spurningum hlustenda og efnt til markaðar
á Markaðstorgi svæðisútvarpsins. Umsjón: Þór-
ir Jökull Þorsteinsson.
Föstudagur
1. maí
18.30 Nilli Hólmgeirsson. Fjórtándi þáttur. Sögu-
maður Örn Ámason. Þýðandi Jóhanna Þráins-
dóttir.
18.55 Litlu Prúðuleikararnir. Fyrsti þáttur. Nýr
teiknimyndaflokkur í þrettán þáttum eftir Jim
Henson. Þýðandi Guðni Kolbeinsson.
19.15 Á döfinni. Umsjón: Anna Hinriksdóttir.
19.25 Fréttaágrip á táknmáli
19.30 Poppkom. Umsjónarmenn Guðmundur
Bjarni Harðarson, Ragnar Halldórsson og Guð-
rún Gunnarsdóttir. Samsetning: Jón Egill Berg-
þórsson.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Söngvakeppni sjónvarpsstöðva í Evrópu
1987. Lögin í úrslitakeppninni. Kynnir Kolbrún
Halldórsdóttir.
21.00Göngum í reyklausa liðið. Umsjón: Ingvi
Hrafn Jónsson.
21.10 Landsmót íslenskra lúðrasveita 1986.
Svipmyndir frá landsmóti i Reykjavik í fyrra.
Sveitirnar flytja nokkur lög í Langholtskirkju og
Laugardalshöll.
21.30Mike Hammer Tólfti þáttur í bandarískum
sakamálamyndaflokki. Þýðandi Stefán Jökuls-
son.
22.25 Kastljós Þáttur um innlend málefni.
22.55 Seinni fréttir.
23.05 María Skotadrottning
01.15 Dagskrárlok.
^STÖÐ2
Fimmtudagur
30. apríl
17.00 Myndrokk.
18.00 Knattspyrna.
19.05 Teiknimynd.
19.30 Fréttir.
20.00 Opin lína. Áhorfendur Stöðvar 2 á beinni
línu í síma 673888.
20.25 Ljósbrot. Valgerður Matthíasdóttir kynnir
helstu dagskrárliði Stöðvar 2 næstu vikuna og
stiklar á helstu viðburðum menningarlífsins.
21.05 Morðgáta. (Murder She Wrote) Bandarískur
sakamálaþáttur með Angela Lansbury í aðal-
hlutverki.___________________________________
21.50 Af bæ í borg (Perfect Strangers). Banda-
rískur gamanþáttur.
22.15 Tilgátan (Nosenko). Bandarísk sjónvarps-
mynd með Tommy Lee Jones, Josef Sommer,
Ed Lauter og Oleg Rudnik í aðalhlutverkum.
Þrem mánuðum eftir morðið á John F. Kennedy
er Warren rannsóknarnefndin að kanna allar
mögulegar tilgátur og samsæriskenningar. Var
Lee Harvey Oswald einn að verki eða voru þeir
fleiri? KGB maðurinn, Vuri Nosenko lekur
upplýsingum sem nefndinni finnst ástæða til að
kanna nánar.
23.45 Charley Hannah (Charley Hannah). Banda-
rísk sjónvarpsmynd með Robert Conrad, Red
West, Shane Conrad og Joan Leslie í aðalhlut-
verkum. Leikstjóri er Peter Hunt. Þrautreyndur
lögreglumaður veitir þrem afbrotaunglingum
eftirför. * 01.15 Dagskrárlok.
Fimmtudagur
30. apríl
7.00- 9.00 Á fætur mcó Sigurði G. Tómassyni.
Létt tónlist með morgunkaffinu. Sigurður lítur
yfir blöðin, og spjallar við hlustendur og gesti.
Fréttir kl. 7.00, 8.00 og 9.00.
9.00-12.00 Páll Þorsteinsson á léttum nótum.
Palli leikur uppáhaldslögin ykkar, gömul og ný.
Tapað fundið, opin lína, mataruppskrift og
sitthvað fleira.
Fréttir kl. 10.00,11.00.
12.00-12.10 Fréttir
12.00-14.00Þorsteinn J. Vilhjálmsson á hádegi.
Fréttapakkinn, Þorsteinn og fréttamenn Bylgj-
unnar fylgjast með því sem helst er í fréttum,
segja frá og spjalla við fólk í bland við létta
tónlist.
Fréttir kl. 13.00 og 14.00.
14.00-17.00 Pétur Steinn á réttri bylgjulengd.
Pétur spilar síðdegispoppið og spjallar við
hlustendur og tónlistarmenn.
Fréttir kl. 15.00,16.00 og 17.00.
17.00-19.00 Ásta R. Jóhannesdóttir í Reykjavík
síðdegis. Þægileg tónlist hjá Ástu, hún lítur yfir
fréttirnar og spjallar við fólkið sem kemur við
sögu.
Fréttir kl. 18.00.
19.00-20.00 Anna Björk Birgisdóttirá Flóamark-
aði Bylgjunnar. Flóamarkaður og tónlist.
Fréttir kl. 19.00.
20.00-21.30 Jónína Leosdóttir á fimmtudegi.
Jónína tekur á móti kaffigestum og spilar tónlist
að þeirra smekk.
21.30-23.00 Spurningaleikur Bylgjunnar. Jón
Gústafsson stýrir getraun um popptónlist.
23.00-24.00 Vökulok. Fréttatengt efni og þægileg
tónlist í umsjá Karls Garðarssonarfréttamanns.
Fréttir kl. 23.00.
24.00-07.00 Næturdagskrá Bylgjunnar. Tónlist
og upplýsingar um veður og flugsamgöngur.
Fréttir kl. 03.00.