Tíminn - 03.06.1987, Blaðsíða 15

Tíminn - 03.06.1987, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 3. júní 1987 Tíminn 15 ARNAÐ HEILLA llilill iiPimiiii Áttræöur Leifur Eiríksson, kennari í dag er frændi minn Leifur Eiríks- son, kennari, áttræður. í tilefni af því langar mig til að skrifa nokkrar línur á blað, enda þótt vera megi að það sé honum lítt að skapi. Veit ég þó að hann mun færa mér það til betri vegar svo sem önnur verk hingað til. Leifur Eiríksson er fæddur á Harðbak á Melrakkasléttu í Norður- Þingeyjarsýslu, 3. júní 1907, sonur hjónanna Eiríks Stefánssonar vita- varðar og bónda á Rifi og konu hans Ingibjargar Jóhannsdóttur. Þau hjón voru síðustu ábúendur á Rifi, sem er ein af þeim harðbýlu jörðum sem nú þykir lítt búandi á en framfleytti áður stórum fjölskyldum með ágæt- um. Um Rif á Sléttu og ábúendur þar hefur Brynjólfur Sigurðsson á Kópa- skeri skrifað fróðlegan sagnaþátt sem okkur yngri Sléttungum er þörf á að lesa. (Bóndi er bústólpi VI). Fyrir nokkrum vikum heimsótti ég Leif og gaf hann mér að skilnaði þennan sagnaþátt ásamt öðrum fróð- leik um Rif og ættir sínar og að hluta til okkar beggja. Þar er m.a. ættartala Leifs í móð- urætt allt til Ingólfs Arnarsonar okkar fyrsta landnámsmapns og ætt- artala í föðurætt (Skinnalónsætt) til Halfdáns hvítabeins Upplendinga- konungs. Ættir hans eru því stórar og sterkar. Einnig fylgdi með vísa eftir Leif um Rifstanga á Sléttu sem ég læt hér fylgja: Klettar sterkir standa stormi og brimi móti. Undan aldrei láta, árásir þótt hljóti. Eiga sína sögu, samt þeir flestu leyna. Nyrzt við íslands odda Ægir lemur steina. Leifur fór í Gagnfræðaskóla Ak- ureyrar og útskrifaðist þaðan 1927. Kennaraprófi lauk hann frá Kennaraskóla íslands 1944 en hafði áður kennt bæði við barnaskólann í Núpasveit og unglingaskólann á Raufarhöfn í 10 vetur. 13. nóvember 1932 kvæntist Leif- ur föðursystur minni Lúðvíku Lund dóttur hjónanna Maríusar Jóhanns Lund bónda og póstafgreiðslumanns á Raufarhöfn og konu hans Rann- veigar Grímsdóttur Laxdal. Lúðvíka eða Lúlla eins og hún var ávallt kölluð, lést fyrir aldur fram 15. ágúst 1977. Þau Leifur og Lúlla hófu sinn búskap á Raufarhöfn og byggðu sér þar hús sem bar heitið Harðangur. Þar bjuggu þau til ársins 1958 er þau fluttu að Faxatúni 14 í Garðabæ. Á Raufarhöfn tók Leifur virkan þátt í öllu félagsmálastarfi og var einn af þeim athafnamönnum sem mótuðu Raufarhöfn á uppgangsár- um þess staðar. M.a. var hann oddviti hreppsins í 8 ár eða frá 1950 til 1958. Þá var hann í stjórn lirað- frystihússins Frosta h/f frá stofnun. Hann var einn af stofnendum Spari- sjóðs Raufarhafnar og sat í stjórn hans frá 1940 eða frá upphafi og þar af sem formaður frá 1950. Formaður skólanefndar 1936-1943 og sýslu- nefndarmaður Presthólahrepps og Raufarhafnarhrepps í mörg ár. í þessum trúnaðarstörfum reyndi mikið á framsýni og framtakssemi Leifs og á hann þakkir skildar fyrir sinn þátt í uppbyggingu Raufarhafn- ar. Leifur hefur ætíð haft mikinn áhuga fyrir málefnum ungs fólks. Hann var um tíma formaður Umf. Austra á Raufarhöfn og stofnaði unglingaskóla þar. Leifur gekkst fyr- ir byggingu sundlaugar á Raufarhöfn með skátadrengjum og kenndi þar sund í 14 ár. Sundlaugin var upphit- uð með gufu frá Síldarverksmiðj- unni enda laugin á lóð verksmiðj- unnar. Ein fyrsta minning mín af Leifi er einmitt frá þeim tíma. Ég man.eftir honum þar sem hann stóð á laugar- bakkanum, með heljarinnar bamb- usstöng segjandi krökkunum til. Það var annars ekki ætlun mín að rekja æviferil Leifs enda ofverk mitt á allan máta. Miklu fremur vildi ég minnast á nokkur önnur atriði og þakka Leifi fyrir skemmtilegar sam- verustundir á lífsleiðinni sem að sjálfsögðu hafa verið of fáar. Allt frá fyrstu tíð hefur Leifur verið okkur Miðtúnsbræðrum mikill frændi. Á Raufarhöfn tók hann á móti okkur sem slíkur og sömu sögu er að segja héðan að sunnan. Það er annars svo eins og allir vita að nú á dögum gefst of lítill tími til að heimsækja ættingjana og langt er á milli þeirra stunda sem ég hitti Leif. Samt sem áður eru þær stundir ánægjulegar og ætíð fylgja heit- strengingar af minni hálfu um að gera betur. Leifur er ávallt hress á slíkum fundum og reynir jafnan kraftana hjá manni. Fyrst voru það glímutök- in en nú er það handtakið sem hann prófar. Handtak Leifs er fast og eins gott að vera viðbúinn ef ekki á að kveinka sér undan því. Þá segir Leifur manni gjarnan sögur af Slétt- unni og fólkinu þar fyrr á tímum. Ég man að eitt sinn er ég gisti hjá þeim Lúllu og Leifi í Garðabænum spjall- aði Leifur við mig fram eftir nóttu. Lúlla var löngu sofnuð en hann langt frá því að vera syfjulcgur. Þannig gekk fram undir morgun, þá bauð hann gestinum góða nótt. Varla var ég sofnaður þegar Lúlla frænka mín kom, að mér fannst fyrir allar aldir, og bauð góðan dag og nýbakaðar kökur,- og spjall um Sléttuna hófst að nýju. Leifur er ágætlega hagmæltur og oft leitar hann fanga til þeirra hluta norður á Sléttu. Fyrir nokkrum árum barst honum í hendur sæsorfinn steinn norðan af Rifstanga. Um þann stein orti Leif- ur: Upprunanum aldrei gleymi er sem hlýir geislar streymi köldu, gráu grjóti frá. Oft um vor í unaðs heimi undradýrð þar mesta sá. Eitt sinn sagði Lcifur mér að hann færi aldrei að sofa fyrr en hann hefði heyrt veðurfregnirnaf kl. 1:00 til þess að vita hvernig veður væri fyrir norðan. Já, Sléttan er Leifi kær og frændur hans þar. Eftir að þau Lúlla og Leifur fluttu í Garðabæinn hélt Leifur áfrant kennslu en hafði síðar umsjón með bókasafni skólans. Þau ár annaðist Lúlla kaffið fyrir kennarana ásamt því að vera virk í mörgum félaga- samtökum. Andlát Lúllu var mjög þungt áfall fyrir Leif enda var hún hans stoð og stytta gegn um árin. Hún var ekki síður gestrisin en hann og hvarvetna hrókur alls fagnaðar. Börn þeirra Leifs og Lúllu eru 4, Eysteinn, Rannveig, Ingibjörg og Erlingur. Nú býr Leifur að Fannborg I í Kópavogi. Honum ásamt fjölskyldu hans færi ég mínar bestu kveðjur í tilefni dagsins og vona að ég megi enn um langa hríð finna sterkt handtak frænda míns. Að lokum vil ég birta eina vísuna enn eftir afmælisbarnið sem hann orti fyrir nokkrum mánuðum: Aukið göfgar ættir við, örvið frændræknina. Allra heilla eg þeim bið, sem efla mannkostina. Lifðu heill, kæri frændi. Níels Árni Lund Illllllllllllllllllll LESENDUR SKRIFA lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllÍIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIll ÖLL ALMENN PRENTUN LITPRENTUN QtranrlhAfln TÖLVUEYÐUBLÖÐ virciiiuiiuyy • Hönnun á Reykjanesi • Setning • Filmu- og plötugerð Þegar Steingrímur Hermannsson hafði unnið sinn mikla sigur í • Prentun kosningunum, 25. apríl s.l. á Reykjanesi, kvað undirritaður þessa stöku: • Bókband Frægur að sér fylgi dró, fyrr þó öndvert blési, Steingrímur þá strandhögg hjó, stæltur að Reykjanesi! PRENTSMIÐJAN | (^lÁÁcL hf. Til hamingju, Steingrímur! Auðunn Bragi Sveinsson SMIÐJUVEGI 3, 200 KÓPAVOGUR SÍML 45000 Grasfræ Grasfræ Höfum til afgreiðslu strax: ADDA-vallarfoxgras í 50 kg. sk., kr. 83.- pr. kg LEIK-túnvingull í 25 kg. sk., kr. 130.- pr. kg PIMO-vallarsveifgras í 50 kg. sk., kr. 288.- pr. kg. Gerið verðsamanburð. Hafið samband við sölumenn til að tryggja tímanlega afgreiðslu. Bygging K á Landspítalalóð Tilboð óskast í innanhússfrágang á hluta byggingar K á Landspítala- lóð í Reykjavík. Húsið, sem er fjórar hæðir, auk þakhæðar, er nú uppsteypt með ísettum og glerjuðum gluggum og fullfrágengið að utan. Stærð hússins er 19.060 m3 og heildargólfflötur um 4.600 m2. Verkið felur í sér fullnaðarfrágang á tveimur neðstu hæðum hússins, innrétting og lagnir, einangrun og múrhúðun útveggja tveggja efri hæðanna með ofankerfi og fullnaðarfrágang á þakhæð sem lagna- rými. Auk þess uppsteypu á lagnastokk og loftinntaki. Verkinu á að skila í tvennu lagi, svæði A, sem skilgrein er nánar í útboðsgögnum, skal skila fullgerðu og lögnum að því svæði, eigi síðar en 1. maí 1988, en verkinu öllu fulllokið 1. september 1988. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri Borgartúni 7, Rvk. gegn 30.000,- kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 7. júlí n.k., kl. 11.00. Lausar stöður Við námsbraut í hjúkrunarfræði við læknadeild Háskóla íslands eru lausar til umsóknar eftirtaldar stöður: 1. ) Staða dósents í hjúkrunarfræði, 50% staða. Aðalkennslugrein: Hjúkrunarstjórnun 2. ) Staða dósents í sýkla- og ónæmisfræði, 37% staða til fimm ára. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf umsækjenda, ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil og fyrri störf, skulu sendar til mennta- málaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 1. júlí 1987. Menntamálaráðuneytið, 1. júní 1987. PÓST- OG SÍMA MÁLASTOFNUNIN óskar að ráða Loftskeytamann/ símritara/ritsímaritara til starfa í Vestmannaeyjum. Nánari upplýsingar verða veittar hjá stöðvarstjóra Pósts og síma í Vestmannaeyjum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.