Tíminn - 02.07.1987, Page 4

Tíminn - 02.07.1987, Page 4
4 Tíminrr Fimmtudagur 2. júlí 1987 RauoakrosshúS' ið vekur athygli Rauðakrosshúsið hefur nú verið starfrækt frá því í des. 1985 og veitt neyðarþjónustu fyrir börn og ung- menni að 18 ára aldri. í upphafi var tilgangurinn að koma ungum vímu- efnaneytendum til hjálpar og kanna um leið umfang „vfmuefna- vandans" sem svo rnjög var umtal- aður á þeim tíma sem starfsemin hófst. Reynslan hefur sýnt að vandi barna og unglinga í samfélagi nú- tímans er flóknari en svo að hann megi skrifa á kostnað vímuefnanna einna. Oftast liggja þar að baki flóknari, sálrænir, félagslegir og umhverfislegir þættir. Fljótlega kom í ljós að þeir sem höfðu glímt við vandamálin í skamman tíma gátu nýtt sér þá fyrstu hjálpar þjónustu sem boðið er uppá með betri árangri. Rauði kross íslands hefur staðið einn að rekstri stöðvarinnar en’ ríkisstjóm íslands ákvað að tillögu framkvæmdanefndar ríkisstjórnar- innar í fíkniefnamálum, sem skip- uð var fulltrúum einstakra ráðu- neyta að veita 2,5 millj. kr. til rekstursins á þessu ári og sömu upphæð á því næsta. Hildur Rós Ragnarsdóttir frá Akur- eyri fékk viðurkenningu fyrir bestu ásetu í yngri flokki. Hiidur var einnig í þriðja sæti í barnaflokki á Herði frá Höskuldsstöðum. Hér heldur hún kampakát á verðlaunun- um. Áhugamenn um bók- menntir og Vaka-Helga- fell: Málþing um verk Halldórs Laxness Félag áhugamanna um bókmennir og bókaforlagið Vaka-Helgafell gangast fyrir málþingi sem ber yfir- skriftina Laxness-þing 1987. Málþingið verður haldið að Hótel Esju, laugardaginn 4. júlí n.k. og fjallað verður um verk Halldórs Laxness og stöðu skáldsins í íslensk- um bókmenntum og menningu. Sér- stakur gestur þingsins verður sænski bókmenntafræðingurinn Peter Hall- berg sem manna mest hefur rannsak- að verk Halldórs og skrifað um þau margar bækur. Laxness þingið er haldið í tilefni af 85 ára afmæli nóbelsskáldsins á þessu ári og bæði lærðir og leikir munu flytja ávörp og erindi. Mál- þingið er opið öllum en þátttakendur þurfa að skrá sig gegn sérstöku þinggjaldi. Skráning fer fram hjá Vöku-Helgafelli. ABS Frá sýningu ræktunarhópa á fjórðungsmóti norðlenskra hestamanna á Melgerðismelum Tímamvndir: Ö.I». Fjóröungsmót norðlenskra hestamanna á Melgeröismelum: Nös frá Stokkhólma fékk heiðursverðlaun Fjórðungsmóti norðlenskra hesta- manna lauk á Melgerðismelum sl. sunnudag. Kynbótahrossin á mótinu voru mörg og sjaldan eða aldrei verið betri að áliti mótsmanna. Ein hryssan, Nös 3794 frá Stokk- hólma fékk heiðursverðlaun fyrir afkvæmi. Eigandi hryssunnar er Leifur Þórarinsson Keldudal. Eink- unn fyrir fjögur afkvæmi var gefin 8,13 og 1. heiðursverðlaun. Hryssur með afkvæmi sem fengu I. verðlaun voru Snælda frá Argerði, Rós frá Hvassafelli og Hrund frá Keldudal. Stóðhestar með afkvæm- um sem fengu 1. verðlaun voru Hervar frá Sauðárkróki, Fáfnir frá Fagranesi, Freyr frá Akureyri og Fengur frá Bringu. í 150 metra skeiði sigraði Seifur frá Keldudal á 15,3 sek, í 250 metra skeiði sigraði Leistur frá Keldudal 22,0 sek., í 250 metra stökki sigraði Elías frá Hjallanesi á 18,0 sek., í 350 mctra stökki sigraði Lótus frá Götu á 25,0 sek., í 800 metra stökki sigraði Lýsingur frá Brekku á 62,4 sek. og í 300 metra brokki sigraði Erró, eigandi Ríkharður Eiríksson, á 38,6 sek. í víðavangshlaupi sigraði Sonja Grant á Örvari á 2.34.3 mín. f A flokki gæðinga var Seifur frá Kelduda! hæstur. Móðir Seifs er Nös frá Keldudal en faðir Þáttur 722. í B flokki gæðinga fékk Aron frá Litlu Gröf hæsti einkunn. Móðir hans er Grá frá Litlu-Gröf en faðir Sörli 653. í unglingaflokki sigraði Heiðdís Smáradóttir á Drottningu frá Brún við Akureyri en í barnaflokki sigraði Júlíus Jóhannesson á Blakk frá Starrastöðum. Ný kirkja á Ströndum Fimm ár eru liðin frá því safn- aðarfundur var boðaður og hald- inn um framtíð Árneskirkju í Árneshreppi á Ströndum. - Á þeim fundi ar það mál rætt í bróðerni og samhug. Samþykkt var að byggja nýja kirkju í stað þeirrar gömlu, sem að dómi þar til kvaddra manna var orðin svo hrörleg að viðgerð hennar mundi kosta meira en ný kirkja er svar- aði betur þörfum og kröfum nú- tímans. Aðeins eitt mótatkvæði kom fram. Jafnframt lagði sóknarnefndin fram teikningu að fyrirhugaðri sóknarkirkju, en hún var ekki endanlega samþykkt. Lögð var áhersla á að hraða þyrfti þeirri framkvæmd og var fullur samhug- ur um það. En áður en til framkvæmda kom, eins og ætlað var, komu í spilið ný og annarleg sjónarmið um ágæti gömlu kirkjunnar. Hana bæri að gera upp og við- halda henni sem sóknarkirkju safnaðarins vegna aldurs hennar og byggingarstíls. - Um þetta hefur verið staðið í stappi þar til á almennum safnaðarfundi þann 3. maí 1986, að yfirgnæfandi meirihluti safnaðarins (33 gegn 13) samþykkti á ný að byggja nýja kirkju. - Síðan hefur verið unnið að undirbúningi þess, teikningar gerðar og kostnaðar- áætlun. Á almennum safnaðarfundi, þann 3. þessa mánaðar, voru lagðar fram til umræðu og sam- þykktar teikningar af kirkjunni og staðarval. Enginn ágreiningur kom fram við umræðu um málið. En óskað var atkvæðagreiðslu um þessi atriði. Við atkvæða- greiðsluna kom fram 6 mótat- kvæði, án rökstuðnings. Þar með er yfirstiginn síðasti þröskuldur- inn á vegi þessarar framkvæmdar. Framkvæmdir hafnar: f framhaldi af því sem hér hefur verið rakið eru fram- kvæmdir að hinni nýju kirkju hafnar. - Búið er að taka grunn að kirkjunni. Næstu daga verða undirstöður hennar og grunnur steyptur. Fyrirhugað er að koma kirkjubyggingunni undir þak á þessu sumri. Nýju kirkjunni er valinn staður utan kirkjugarðs, skammt frá veginum að Árnesi. Teikning að hinni nýju kirkju er gerð af Guðbergi Gauta Jónssyni arki- tekt, í Reykjavík. Hún er í þeim stíl að hún tekur snið af hinu stórbrotna og sérstæða landslagi byggðarlagsins. I stórt er ráðist af fámennum söfnuði, en með samstilltu átaki safnaðarins yrði það viðráðan- legt. En það tekur sinn tíma þar til fullgert verður. Þess er vænst, að burtfluttir Árneshreppsbúar og aðrir velunnarar hinnar sér- stæðu byggðar bregðist vel við og leggi sitt lið til að létta undir með þessa mikilsverðu framkvæmd, minnugir þess að margt smátt gerir eitt stórt. Á Jónsmessudag Guðmundur P. Valgeirsson. Tónlistarskóli Kópavogs: tónlist fýrir fullorðna Nemendur Tónlistarskóla Kópavogs voru 440 síðasta starfsár. Þar af var 101 nemandi í forskóla Tónlistarskólans en 6 menntaskólanemar stunduðu nám í tónlistarvali og 1 útskrifað- ist af tónlistarbraut. Síðasta haust var sú nýlunda tekin upp við skólann, að bjóða upp á námskeið í tónlist fyrir fullorðna. Námið er í fyrirlestra- formi og ætlað fólki sem hefur áhuga á tónlist en hefur ekki haft tök á að læra á hljóðfæri. Helstu undirstöðuatriði tónlistar eru kynnt svo og hljóðfærafræði. Einnig er gefið yfirlit yfir helstu tónlistarstefnur og skóla í tónlist. Tónlistarskólinn lagði mikla áherslu á tónleikahald í skóla- starfinu eins og jafnan áður. Síð- asta vetur heimsóttu nemendur skólans nokkur dagheimili og á næsta ári er ráðgert að heimsækja öll dagheimili kaupstaðarins og halda tónleika. Á hverju ári eru haldnir jóla- og vortónleikar svo og tónleikar fyrir nemendur og aðstandendur þeirra. ABS Símskeyti lesin viðtakanda í síma Símskeytaþjónusta verður með öðrum hætti en tíðkast hefur frá og með 1. júlí nk. Þá verður hringt til viðtakanda venjulegs símskeytis og textinn lesinn fyrir hann. Skeytið er svo póstlagt, en sýnist viðtakanda svo getur hann einnig sótt það á símstöðina. Óski hins vegar viðtakandi eða sendandi venjulegs skeytis að það sé afhent samdægurs verður það sent gegn hraðboðagjaldi, kr. 90,00. Óski sendandi einnig eftir því að skeytið sé afhent gegn kvittun er gjald fyrir það kr. 15,00. Framangreind gjöld eru án söluskatts. Heilla- og samúðarskeyti verða þó áfram borin út til viðtakenda án hraðboðagjalds. þj

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.