Tíminn - 02.07.1987, Side 9

Tíminn - 02.07.1987, Side 9
Fimmtudagur 2. júií 1987 Tíminn 9 AÐ UTAN lllllllllllll! llllllllllll! Illllllllll ■1 Fatasalar veðja nú á pínupilsin - þau eru allsráðandi á markaði í New York í sumar og spáð 5-6 ára líftíma Er pínupilsatískan búin að festa sig í sessi? Þarf að fara að skipta um allt í fataskápnum, varla dugir til að klippa neðan af gömlu fötunum! Fataframleiðendur hugsa gott til glóðarinnar að vera konum hjálplegir við endurnýjunina. „Longuette" er orðið sem notað er í tískuheiminum um það sem á íslensku er kallað hálfsíð pils, þ.e. pilsfaldurinn er um miðjan kálfa eða neðar. Fatasalar og tískuhönnuðir komu sér saman um að þessi pilssídd yrði allsráðandi haustið 1970 og kostuðu miklu til auglýsinga og kynningar á henni. Aðrar pilssfddir voru þá ekki á boðstólum. Fatasalarnir reyndust hafa tekið rangan pól í hæðina, fatnaður af nýju síddinni hrannaðist upp í versl- unum en seldist ekki. Viðskiptavin- irnir höfðu ekki áhuga á þessari nýju tísku. Konur voru einfaldlega ekki lengur reiðubúnar til að hlýða fyrir- skipunum um hvar kjólfaldurinn ætti að vera - né reyndar öðrum fyrirmæl- um tískukónga. Þær vildu geta valið á milli. Þarna fengu fatasalar dýrkeypta lexíu og þegar hálfsíðu pilsin fengu ofurlitla uppreisn æru síðar á 8. áratugnum gættu þeir þess að gefa konum kost á að velja á milli sídda. Nú eru það pínupils - og jafnvel pínupínupils Nú er eins og minnið hafi svikið fatasalana. I sumar hafa fatasalar í New York lagt alla áherslu á stutt pils, allt frá venjulegum stuttum pilsum til pínupilsa og jafnvel pínu- pínupilsa sem ná varla 40 cm sídd. Og núna virðast þeir hafa veðjað á réttan hest, stuttu pilsin renna út. Hvernig nær svona tískufyrir- brigði svo afgerandi undirtökunum? f apríl héldu tískuhúsin í Evrópu sýningar sínar á hausttískunni og þar var pilsfaldurinn greinilega á uppleið. Á tískusýningum aðeins seinna í New York var þetta ferðalag pilsfaldsins upp á við staðfest og þá létu fatasalar til skarar skríða. f Macy's, stórversluninni í New York, var opnuð sérstök deild fyrir ungar konur og var hún sérstaklega helguð stuttu tískunni. „Við fálmuðum eig- inlega út í vindinn eftir einhverju hálmstrái og héngum svo fast á því,“ segir tískuverslunarstjórinn. “Við keyptum allt sem við náðum í í stuttu tískunni og sá klæðnaður fyllti mikið pláss í auglýsingunum okkar. Það er líka allt uppselt hjá okkur sem hefur verið auglýst. Þegar tíska slær svona í gegn getur verið erfitt fyrir verslanir að eiga alltaf nægar vörur til að svara eftir- spurn og í rauninni er tískumarkað- urinn ótrúlega svifaseinn. Það á sérstaklega við þá hönnuði sem vinna með dýrari efni. En þeir sem hafa augun aðallega á ungu kynslóð- inni og nota efni eins og denim, twill, bómull o.fl. í slíkum verð- flokki eru fljótari að taka við sér og eiga auðveldara með að auka fram- leiðsluna með litlum fyrirvara. Fatasalarnir eru auðvitað misfljót- ir að taka við sér, en nú reikna sumir þeirra með því að hlutdeild pínupils- anna í markaðnum í New York í sumar verði 50%, í miðríkjunum eru stúlkurnar heldur seinni að taka við sér og þar er reiknað með 15% hlutdeild pínupilsanna. Tískan gengur í 7 ára bylgjum „Tískan hefur tilhneigingu til að ganga í 7 ára bylgjum,“ segir einn framsýnn fataframleiðandi sem hef- ur sýnt snarræði og náð mikilli sölu á pínupilsum. Hann bætir því við að nú sé 21 ár síðan pínupilsin komust í tísku síðast og þess vegna hefði mátt búast við að þeirra tími væri runninn upp á ný. En bandarískir fatasalar studdust við fleiri tákn þess að pínupilsin yrðu vinsæl. f London og á vinstri bakka Signu í París sáust allt í einu ekki gallabuxur í verslunum, ein- göngu pínupils. Þar að auki hafa síð pils verið mikið í tísku undanfarin 2-3 ár og tískuverslanirnar þrífast nú einu sinni á síbreytilegri tísku. Þó að pínupilsin eigi upp á pall- borðið hjá kaupendum þessa stund- ina er samt of fljótt fyrir fatasalana að hrósa happi í síddamálinu enn sem komið er. íhaldssamari verslan- ir í New York eru enn tregar að bjóða viðskiptavinum sínum ekki upp á aðra sídd og athygli vakti fyrir skömmu þegar útstillingardama var að verki í glugga einnar fínustu verslunar borgarinnar. Sjálf klæddist hún pínutísku, en fatnaðurinn sem hún stillti út var allur í hefðbundnari sídd. Og þegar eru farnar að heyrast raddir í tískudálkum blaða frá vel klæddum konum, sem segjast hafa fengið nóg af því að hafa pilsfaldinn á stöðugri ferð upp og niður. Vel stæðum konum sem vilja halda sig við hefðbundnari sídd er bent á að tískukóngurinn Giorgio Armani er sama sinnis og þær, hann hefur ekki enn ánetjast stuttu tískunni og held- ur sig eingöngu við gamla og góða sídd á pilsfaldinum. Hververða örlög síðbuxnanna? En hver verða örlög síðbuxnanna sem hafa að undanförnu verið ákaf- lega vinsælar? Þeim hefur varla brugðið fyrir á sýningum þar sem hausttískan hefur verið kynnt. En þær eru orðnar svo fastar í sessi að fatasalarnir eru enn á báðum áttum um hvort þeim sé óhætt að segja skilið við þær. En eitt er víst. Þeir sem hafa sitt lifibrauð í fataiðnaði hugsa gott til glóðarinnar. Þegar djarflegar breyt- ingar verða á síddinni á kjólfaldinum fylgja nefnilega geysilegar breyting- ar á öðrum klæðnaði kvenna, jakkar og blússur verða að endurnýjast og ýmsir fylgihlutir. Það eru því blómatímar framund- an í fataiðnaði ef spádómar um algeran sigur pínupilsanna ganga eftir. Bandarískir skólakrakkar heimsækja sovéska jaf naldra - og læra margt skemmtilegt og skrítiö „Gagnfræðaskólakrakkar í Sovétríkjunum eru alvarlegri, gera meiri heimavinnu og eru stoltari af þjóðerni sfnu en bandarískir skóla- krakkar á sama aldri. En þeim þykir líka gaman að skemmta sér.“ Þetta er samdómaálit 48 bandar- ískra gagnfræðaskólanema, sem ný- lega dvöldust í Sovétríkjunum í þrjár vikur og kynntust jafnöldrum sínum. Þetta er í fyrsta skipti sem bandarískir skólanemendur fara í slíka heimsókn til Sovétríkjanna, en vonandi verður framhald á þeim. Þessi reynsla lofar nefnilega góðu. Bandarísku krakkarnir dvöldust í Leningrad og Moskvu og sátu á skólabekk og deildu frístundum með rússneskum jafnöldrum sínum. Margt kom þeim á óvart og þeir urðu fljótlega varir við það að þær hugmyndir sem þeir höfðu með sér að heiman stóðust ekki þegar á reyndi. T.d. höfðu 45% þeirra geng- ið út frá því sem gefnu að rússneskir jafnaldrar þeirra væru frábrugðnir þeim amerísku, en eftir að heim var komið var aðeins 21% enn sama sinnis. Og einn bandarísku nemend- anna sem hafði alltaf ímyndað sér að Rússar væru „kaldir og fráhrindandi og afskaplega strangir í samskiptum sínum við annað fólk" komst að annarri niðurstöðu. Hvað er líkt og hvað er ólíkt með bandarískum og rússneskum krökkum? Þegar heim var komið áttu banda- rísku krakkarnir að gera grein fyrir því hvað væri líkt og hvað ólíkt með rússneskum og bandarískum krökk- um á þessum aldri og hvort það væri ekki fleira sem greindi þá að en hitt. Þá lentu þeir í vandræöum. Einn sagði: Bandarískir krakkar á táningsaldri eru þroskaðri félags- lega. T.d. vilja rússneskir krakkar frekar eyða frístundunum í að lesa bók eða ganga um almenningsgarð- ana eða spila á píanó, þegar amer- ískir krakkar myndu sennilega fara út og horfa á sjónvarp með félögum sínum eða fara í bíó eða taka sér eitthvað annað fyrir hendur í félags- skap annarra. Og ein stúlkan sagðist hafa ætlað að sýna sína bestu hlið og íklæðast pilsi eða kjól, frekar en buxum eins og hún gerir oftast nær. En svo kom í ljós að gallabuxur eru mikið í brúki þarna fyrir austan og hún hefði getað skilið pilsin eftir heima. En nýir siðir eru greinilega ekki alls staðar vel séðir þarna fyrir austan. Þannig varð t.d. ein amer- íska stúlkan fyrir því í neðanjarðar- lestinni í Moskvu að gömul kona sló til hennar fyrir að sitja með kross- lagða fótleggi. Og cinn strákurinn í hópnum, sem fór út að skokka í samfestingi, fékk þau tilmæli frá lögreglunni að hlaupa heldur á stutt- buxum. Sinn er siður í landi hverju Einum bandaríska stráknum kom það á óvart að rússneskir jafnaldrar hans virtust ekkert hafa við það að athuga að eiga að gegna tveggja ára herskyldu. „Þeir löluðu ekki mikið um það,“ segir hann. En hann sagði líka að rússnesku jafnaldrarnir virt- ust hafa mun stcrkari tilfinningu fyrir sögu lands síns og þjóðar og hinni geysilegu eyðileggingu sem Rússar urðu að þola í heimsstyrjöld- inni síðari. „Ég held að þeir séu ekkert æstir í að fara til Afganistan og drepa fólk,“ segir hann. Bandarísku nemendurnir fengu einnar klukkustundar rússnesku- kennslu á hverjum morgni, síðan tóku við tónlistartímar og loks kennslustundir í fögum eins og so- véskri landafræði eða sögu. Þcir voru líka til aðstoðar í enskutímum rússnesku nemcndanna. Rússnesku krakkarnir voru ekkert með á nótunum þegar bandarísku krakkarnir voru að segja þeim frá ýmsum sérbandarískum hátíðisdög- um, en það sama hefur vafalaust gilt um ýmsa rússneska siði sem þcir bandarísku eru alls óvanir. Á sunnudögum og stundum líka á kvöldin var bandarísku krökkunum boðið á heimili rússnesku skólasyst- kinanna. Þar þótti þeirn allt snúast um máltíðina en lítið við að vera þegar hún var afstaðin. „Krakkarnir þar eru ckki mikið úti á kvöldin. Eftir kl. 9 er ekki hægt að kaupa ís neins staðar og það er ekki einu sinni hægt að setjast inn á kaffihús. Það eina sem fullorðnir og krakkar geta gert á kvöldin er að fara heim og sofa svo að allir vakni hressir og kátir í vinnuna og skólann að morgni. Nú eða fara í gönguferðir um Moskvu, og það er reyndar það sem flestir gera á kvöldin," segir ein stúlkan. Misskilningur af ýmsu tagi skaut auðvitað upp kollinum. Eitt kvöldið fóru tvær rússneskar stúlkur út með tveim bandarísku piltanna. Lögregl- an tók þær í sína vörslu og áleit þær vændiskonur. Enn eitt sem bandarísku nemend- unum þótti skringilegt var að heyra yfirmenn skóla eins í Leningrad halda því fram að of náin samskipti einstaklinga af ólíkum þjóðernum væru óheppileg. „Þeir eru sennilega hræddir um að samskiptin verði of náin,“ sögðu krakkarnir spekings- lcga. Leið til friðsamlegrar sambúðar? Þetta eru sýnishorn af því sem bandarísku skólakrökkunum þótti öðru vísi í fari rússneskra jafnaldra þcirra cn þeir eiga sjálfir að venjast. Gaman væri að fá samsvarandi at- hugasemdir frá rússnesku skóla- nemunum, vafalaust hefur ýmislegt í fari bandarísku krakkanna komið þeim líka á óvart. En það hlýtur einmitt að vera tilgangurinn með svona samskiptum að kynnast lífi og siðum fólks í öðrum löndum og að auka skilning á milli þjóða. Það má jafnvel gera sér vonir um að svona persónuleg samskipti séu líklegri leið til friðsamlcgrar sambúðar þjóða í heiminum en eilífar og endalausar viðræður sérfræðinga við borð úti í heimi.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.