Tíminn - 23.07.1987, Page 12
12 Tíminri
Fimmtudagur 23. júlí 1987
FRETTAYFIJRLIT
BAGHDAD — Þingiö í írak
samþykkti yfirlýsingu Öryggis-
ráðs Sameinuóu þjóöanna um
tafarlaust vopnahlé í stríði ír-
anaog íraka. íranskir fjölmiölar
höföu hins vegar eftir Ali
Khamenei forseta írans aö
stjórn sín myndi aldrei sam-
þykkja yfirlýsinguna og halda
áfram stríöinu „þar til harö-
stjórninni í Irak hefði verið
útrýmt".
HÖFÐABORG — Sprengja
sprakk á alþjóöaflugvellinum í
Höföaborg, rétt eftir aö mörg
hundruð farþegar höföu yfir-
gefið flugstööina til aö fara í
næturflug til Jóhannesarborg-
ar. Miklar skemmdir uröu á
byggingunni.
KARACHI — Lögreglan í
Karachi, stærstu borg Pakist-
an, gekk berserksgang í gær
til að hefna fyrir óeirðir almenn-
ings aö undanförnu. Aö
minnsta kosti tuttugu manns
slösuðust í ofbeldisaögeröum
lögreglumannanna en tveir
þeirra voru skotnir til bana og
fjórir stungnir meö hnífum í
mótmælaaögeröum gegn
stjórnvöldum.
MAPUTO — Skæruliöar í
Mósambik, sem studdir eru af
Suður-Afríkustjórn, drápu aö
minnsta kosti 380 manns, þar
á meðal börn, í árásum sínum
á bæ um 500 kílómetra norður
af Maputo um helgina. Það var
hin opinbera fréttastofa Mós-
ambik sem skýröi frá þessu í
gær.
SEOUL — Hátt í áttatíu
manns létust og margir slösuð-
ust þegar flóö og jarðskriður
flæddu yfir árbakka og jöfnuðu
hús við jörðu.
MANILA - Margir gagn-
rýndu hin nýju lög um eignar-
rétt á landi sem Corazon Aq-
uino forseti Filippseyja skrifaói
undir í gær og sögöu þau ekki
ganga nógu langt.
LUNDÚNIR — Viðskipta-
jöfnuður Breta varð óhagstæð-
ur í maímánuði þar sem neyt-
endur höföu meiri pening milli
handanna og eyddu miklu í
kaup á innfluttum vörum.
Eyðsla neytendanna hefur
vakiö ótta um aö vextir veröi
bráðlega hækkaöir.
MOSKVA — Fyrsti Sýrlend-
ingurinn til aö fara út í geiminn
var ásamt tveimur sovéskum
geimförum í Soyuz geimflaug
er skotiö var á loft í gærmorg-
un. Geimförunum er ætlað aö
fara til sovésku geimstöðvar-
innar Mir og koma aftur til
jaröarinnar eftir níu daga.
ÚTLÖND
Mikhail Gorbatsjov Sovétleiðtogi:
Vill fjarlægja allar
meðaldrægar
flaugar frá Asíu
Reuter -
Mikhail Gorbatsjov leiðtogi Sov-
étríkjanna bauðst til þess í gær að
láta fjarlægja allar meðaldrægar
kjarnaflaugar Sovétmanna frá Asíu.
Gorbatsjov sagðist með öðrum orð-
um vera reiðubúinn til þess að
samþykkja „tvöfalda núlllausn" í
þessu sambandi þ.e.a.s. fjarlægingu
allra meðaldrægra kjarnaflauga frá
Evrópu sem og Asíu.
Sovétmenn höfðu áður haldið fast
við það að bæði risaveldin fengju að
geyma hundrað kjarnaodda í með-
aldrægum flaugum á sínu landi eftir
að samkomulag hefði verið gert um
fjarlægingu meðaldrægu flauganna
frá Evrópu.
Gorbatsjov sagði hins vegar í gær,
í samtali við dagblað í Indónesíu, að
„Sovétríkin væru einnig reiðubúin
til að fjarlægja allar meðaldrægar
flaugar frá Asíuhluta landsins“.
Sovétleiðtoginn sagði stjórn sína
þannig hafa tekið upp stefnu þar
sem allar skammdrægar og meðal-
drægar kjarnflaugar, hvar sem í
heiminum væri, yrðu fjarlægðar.
Sérfræðingar í afvopnunarmálum
sögðu í gær að þessi yfirlýsing Gor-
batsjovs virtist ryðja úr vegi helstu
hindruninni sem viðræðunefndir
stórveldanna í Genf hafa þurft að
glíma við að undanförnu í viðræðum
sínum um afvopnunarsamkomulag.
Sovétríkin:
Lög gegn vændi
Vændiskonur í Moskvu telja að ríkið hafi meira upp úr því að
lögleiða og skattleggja starf þeirra
Moskva - Reuter
Fyrstu lögin sem beint er gegn
vændisstarfsemi hafa verið sam-
þykkt í Sovétríkjunum en vændis-
konur í Moskvu telja að ríkið ætti að
lögleiða atvinnugrein þeirra og
skattleggja hana þar af leiðandi.
Það var vikublaðið Literary Ga-
zette sem skýrði frá þessum lögum
er samþykkt voru af forsætisnefnd |
sovéska þingsins í Rússlandi, stærsta
lýðveldi Sovétríkjanna. Þau munu
senn taka gildi í hinum fjórtán
lýðveldunum.
Samkvæmt lögunum mega vænd-
iskonar eiga von á viðvörun eða sekt
upp á hundrað rúblur (sex þúsund
íslenskar krónur) í fyrsta skipti sem
þær eru staðnar að verki. Verði þær
teknar í annað sinn innan árs geta
þær þurft að borga allt að 200 rúblur
í sekt.
Greinin í Literary Gazette var sú
nýjasta í röð greina sem birst hafa að
undanförnu í Moskvublöðunum og
fjalla um vændi. Yfirvöld neituðu
því í marga árutugi að vændi væri til
staðar í Sovétríkjunum en síðan
Mikhail Gorbatsjov komst til valda
og hóf baráttu sína fyrir opnara
þjóðfélagi hefur vændið verið tekið
til umræðu og viðurkennt sem þjóð-
félagslegt vandamál.
Lögreglan í landinu hefur hingað
til aðeins getað handtekið vændis-
konurnar á þeim forsendum að þær
hefðu enga aðra vinnu, væru „blóð-
sugur“ sem lifðu á ríkinu og leggðu
ekkert fram til þjóðfélagsins, eða
væru drukknar.
Literary Gazette taldi þó að nýju
lögin myndu ekki draga úr vændi í
landinu enda gætu tekjuhæstu kon-
urnar náð sér í fjörtíu dollara hjá
einum viðskiptavin, skipt þeim síðan
á svörtum markaði og fengið 160
rúblur fyrir eða hátt í tíu þúsund
íslenskar krónur.
Vikublaðið hafði eftir „hámennt-
aðri vændiskonu" að betra væri fyrir
ríkið að lögleiða vændi og skatt-
lcggja það verulega. Þessi kona
sagðist vera reiðubúin að borga allt
upp í 40% af innkomu sinni í skatt.
Gazette hafði samband við fleiri
vændiskonur sem flestar voru í al-
mennri launavinnu að auki. Meðal
þeirra sem talað var við var 32 ára
byggingaverkfræðingur, þjónustu-
stúlka, fararstjóri og 37 ára gjald-
keri.
Ein kvennanna var ntjög hneyksl-
uð þegar henni voru sýndar fréttir af
útbreiðslu eyðnisjúkdómsins á Vest-
urlöndum: „Jæja, þið vitið að þeir
eru alveg siðlausir þarna hinum
megin, eru jafnvel með vændishús“,
sagði konan.
„Það er fyndið að heyra þetta frá
vændiskonu", sagði í grein Literary
Gazette og síðan hnýtt við: „Áróður
okkar hefur tekist fullkomlega, en
engu að sfður eru vændishús hér...
og eins mikið siðleysi eins og hver
vill“.
Italía:
Erfið
stjórnar-
fæðing
- Goria myndar líklega
stjórn í næstu viku þótt
varla verði hún traust
Róm-Keutcr ' SeSSÍ
Ný ríkisstjórn mun líklega taka
við völdum á Ítalíu í næstu viku
eftir stjórnarkreppu og óvissu
síðustu fintm mánuðina. Ekki er
þó búist við að stjórnin verði
einhuga og öflug og pólitísk
óvissa verður þvf að öllum líkind-
um áfram við lýði í landinu.
Giovanni Goria er forsætisráð-
herraefni þessarar stjórnar en
hann hefur að undanförnu unnið
að myndun hennar og er búist við
að hann láti Francesco Cossiga
forseta vita í byrjun næstu viku
að ný samsteypustjórn geti tekið
við völdum. Það yrði 47 stjórnin
sem mynduð hefur verið í landinu
síðan eftir síðari heimsstyrjöld-
ina.
Goria er 43 ára að aldri og
setjist hann í forsætisráðherras-
tólinn verður hann yngsti maður-
inn sem tekið hefur að sér það
hlutverk eftir stríð. Goria er
kristilegur demókrati og sam-
steypustjórn hans verður líklega
samansett af sömu fimm flokkun-
um og hafa stjórnað undanfarin
ár. Deilur milli stærstu flokk-
anna, kristilegra demókrata og
sósíalista, hafa hins vegar eyði-
lagt fyrir samstarfinu og stjórn-
málaskýrendur telja að ef Goria
myndi stjórn, sem flest bendir til,
muni hún varla halda saman í eitt
Kúvaitsk olíuflutningaskip sigldu í fylgd með bandarískum herskipum í
gegnum hið þrönga Horinuz-sund í gær.
Bandarísk herskip í fylgd meö kúvaitskum
olíuflutningaskipum:
Siglt inn í
Persaflóann
Frá Mercury næturklúbbnum í Moskvu: Sovétmenn hafa sitt næturlíf eins og
aðrir og allt sem því fylgir.
Dubai - Rcuter
Þrjú bandarísk herskip fylgdu
tveimur kúvaitskum olíuflutninga-
skipum gegnum hið þrönga Hormuz-
sund í gær án þess að verða fyrir árás
eða áreitni að hálfu írana.
Ferð skipanna jók þó cnn ntögu-
leikann á átökurn írana og Banda-
ríkjamanna þar sem stjórnvöld í
íran hafa ekki samþykkt að verða
við tilmælum Öryggisráðs Samein-
uðu Þjóðanna og slíðra vopnin taf-
arlaust í stríðinu við íraka.
Olíuflutningaskipin munu að lík-
indunt koma til Kúvait á morgun
þ.c.a.s. ef allt gengur santkvæmt
áætlun.
Fari svo að til átaka komi milli
bandarísku herskipanna og írans-
hers er víst að olíuverð mun hækka
og sögðu sumir sérfræðingar að verð-
ið gæti farið upp í 25 til 40 dollara á
tunnu en það er nú 20,22 dollarar.
Einn sjötti allrar olíu sem vestræn
lýðræðisríki nota kemur frá ríkjun-
um við Persaflóann.
íranar hafa hingað til ekki veigrað
sér við að gera árásir á olíuflutninga-
skip frá Kúvait vegna stuðnings
furstadæmisins við höfuðandstæð-
inginn, (raka. íranskir ráðamenn
hafa á undanförnum dögum varað
Bandaríkjamenn við að vernda sigl-
ingar kúvaitskra skipa og sagt að
Iranar muni ekki hika við að skjóta
á bandarísk skip í flóanum.
Caspar Weinberger varnarmálar-
áðherra Bandaríkjanna hefur einnig
vcrið stórorður og sagt Bandaríkja-
menn geta mætt öllum hugsanlegum
árásum írana, hvort sem það er í
lofti eða á sjó.