Tíminn - 06.09.1987, Side 10
10 Tíminn
Sunnudagur 6. september 1987
SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL1 SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL\ SAKAMÁL SAK\
M
á tveimur bílum.... og hurfu
Meðal manna í Kongunglegu
kanadísku fjallalögreglunni er
þetta talið eitt óhugnanlegasta og
torveldasta morðmál, sem til þeirra
kasta hefur kontið. Leitað var að
morðingjunum um landið þvert og
endilangt og svo virtist sem í þetta
sinn ætlaði ekki að sannast, að
fjallalögreglan næði alltaf söku-
dólgunum að lokum.
Upphafið var að Johnsonfjöl-
skyldan frá Kelowna í Bresku Col-
umbíu fór í útilegu. Bob Johnson
setti það sem komst af viðlegubún-
aðinum í skottið á nýja bílnum,
Plymouth Caravelle og afganginn
á toppgrindina.
Eiginkona Bobs, hin 41 árs
gamla Jackie Johnson og dæturnar
Janet og Karen, 13 og 11 ára,
hlökkuðu mjög til ferðarinnar.
Áfangastaðurinn var hin hrjós-
trugu Cariboo fjöll, allt að Jasper
þjóðgarðinum. Viðkomustaðir
voru Banff og Louisevatn.
Fjölskyldan ætlaði að hitta for-
eldra Jackie, George og Edith
Bentley á hjólhýsasvæði við Clear-
water. Bentley var nýlega kominn
á eftirlaun og h'afði keypt sér
nýjan, rauðan og silfurlitan Ford
pallbíl, útbúinn til fjallaferða.
Hann setti stórt hús aftan á hann,
batt álbát á þakið og hengdi utan-
borðsvélina aftan á.
Þegar Johnsonfjölskyldan lagði
af stað, lofuðu nágrannarnir að slá
og vökva garðinn og gæta hússins í
tvær vikur. Janet og Karen lofuðu
að senda vinum sínum póstkort frá
áhugaverðum stöðum.
F
I ARIl
ARIÐ var að hafa áhyggjur
af Johnsonfjölskyldunni á mánu-
dagsmorgun 16. ágúst 1982, þegar
Bob Johnson kom ekki til vinnu
sinnar. í þau 25 ár, sem liann hafði
starfað hjá sögunarmyllunni,
mundi enginn eftir að hann hefði
David Shearing sagðist
hafa keypt illa fengið segul-
bandstæki af manni á knæpu. Sá
maður var aldrei til.
AMERIKA - ISLAND
brittlu hverja viku
M/S JÖKULFELL lestar í