Tíminn - 10.09.1987, Blaðsíða 4
4 Tíminn
Fimmtudagur 10. september 1987
Úr ályktunum frá þingi
framsóknarkvenna
Það var mikid unnið á fjölmennu landsþingi Landssambands framsókn-
arkvenna í Varmahlíð í Skagafirði um síðustu helgi. Fyrir þinginu lágu
ítarleg drög að ályktunum sem framsóknarkonur í hverju kjördæmi höfðu
undirbúið. Miklar og kröftugar umræður sköpuðust í kringum ályktanirn-
ar sem sncrtu flest atriði þjóðlífsins í landinu, enda cinkcnndist þingið
öðru fremur af krafti og baráttugleði. Af ályktunum sem samþykktar voru
er fyrst að nefna almenna stjórnmálaályktun sem hér fer á eftir.
3. landsþing LFK
Stjórnmálaályktun
Landsþing framsóknarkvenna haldið í Varmahlíð í Skagafirði
dagana 5.-6. scpt. 1987 fagnar því uö takast skyldi að mynda
ríkisstjórn með tryggan þingmeirihluta eftir alþingiskosningarnar í
apríl. Jafnframt bendir það á þá staðréynd, að þrátt fyrir yfirlýstan
vilja annarra flokka tókst ckki að mynda starfhæfa og ábyrga
ríkisstjórn, án þess að leitaö var til Framsóknarflokksins. Sýnir það
vcl, hver kjölfesta Framsóknartfokkurinn cr í íslensku stjórnmála- og
þjóðlífi og hvcrsu nauðsynlegt er að styrkja það afl, sem haslað hefur
sér v(>ll á miðju íslenskra stjórnmála.
Landsþingið vekur athygli á, að samkvæmt könnununt njóta
cáöhcrrar Framsóknarflokksins mests trausts þjóðarinnar af ráðhcrr-
um ríkisstjórnarinnar. Er það í fullu samrænti við störf þeirra hingað
til og væntir Landssambandið góðs af þeim í nýjum störfum og lýsir
þeim vonum sínum, að stefna Framsóknarflokksins komi sem best
fram í ríkisstjórnarsamstarfinu.
Landssamband framsóknarkvcnna lýsir ámegju sinni með þaö, að í
stcfnuyfirlýsingu og starfsáætlun ríkisstjórnarinnar cndurspeglast
ýrnis stefnumál þess. Leggur landsþingið sérstaka áherslu á að
1 framfylgt vcrði cftirfarandi þáttum:
• Hraðað vcrði uppbyggingu dagvisturheimila til þcss að öll börn eigi
kost á dagvistun, cn jafnframt tryggt að uppeldismenntað fólk fáist
til starfu á viðkomandi stot'nunum. Til að gcfa forcldrum val um
hvort þeir vilji annast uppeldi barna sinna hcima eða greiða fyrir
barnagæslu, vcrði greidd stighækkandi fjölskyldulaun eftir fjölda
barna.
• Komiö verði á samfclldum skóladcgi barna og þcirn gefinn kostur
á að mutast f skölunum, cnnfrcmur eigi börn völ á skóladagvist.
• I.ögð verði áhersla á símenntun og fjarmcnntun, ckki síst mcð tilliti
til þess, að foreldrar sem kjósa að vera heima fyrstu uppvaxtarár
barna sinna geti notað þann tíma til uppbyggíngar og mcnntunar.
Stcfna í rnenntamálum vcrði í stöðugri endurskoðun, þannig að
hún falli sem best að þörfunt almennings, atvinnulífs og mcnningar-
starfsemi í landinu. •
• Aukin áhcrsla veröi lögö á fyrirbyggjandi aðgerðir i heilbrigðismál-
um og athygli beint að ábyrgð hvcrs cinstaklings á heilsuvernd og
eigin heilsufari. Aðgerðir stjórnvalda í skatta- og tollamálunt verði
santræmdar þannig aö framfylgja mcgi ncyslu- og manneldisstcfnu
með heilbrigði landsmanna að leiðarljósi.
• Lokið vcrði samanburðarkönnun á launakjörum kvenna og karla,
og sérstakX átak gcrt til þess að koma á launajafnrétti kynjanna.
Vinnutími verði sveigjanlcgri og þar tckið mið af þörfum
fjölskyldna.
• Stuölaö verði að betra jafnvægi í þróun byggðar í landinu og
skynsantlcgri hagnýtingu auðlinda lands og sjávar. Sérstök áhcrsla
vcrði lögð á bættar samgöngur og varðveislu og ávöxtun fjármuna
þar scm þeir skapast.
• Nauðsyn bcr til aö marka heildarstcfnu í umhverfts- og náttúru-
verndunarmálum, sem miði að því að komandi kynslóðir erfi landið
í betra ásigkomulagi cn nú er.
• Hvarvctna á alþjóðavettvangi beiti íslcndingar sér l’yrir friði og
afvopnun gcgn mannréttindabrotum og kúgun. Kannað verði hvort
á íslandi getur risið miðstöð friðarviðlcitni og betra mannlífs.
Landsþing Landssambands framsóknarkvenna tclur, að meginverk-
efni nýrrar ríkisstjórnar vcrði að varðveita þann árangur sem náðst
hefur í cfnahagsmálum þjóðarinnar, draga úr þenslu, viðskiptahalla,
vcrðbólgu og eriendri skuldasöfnun. Án þess er tómt m'ál að tala urh
raunhæfar umbætur í þjóðfélaginu.
LFK er sá farvegur, sem konur innan Framsóknarflokksins
sameinast í með hugsjónir sínar og markmið. Leggja ber áherslu á
aukið lræöslustarf á vegum sambandsins svo sem námskciðahald,
stjórnmálaskóla og annað það er gerir þær betur í stakk búnar til þcss
að standast þær kröfur sem virk þátttaka í hvers kyns félagsstarfi gerir
til kvcnna.
LFK hefur þcgar rnarkað varanlegspor og unnið brautryðjendastarf
innan Framsóknarflokksins og má t.d. nefna árangur kvcnna í síðustu
sveitarstjórnarkosningum. Að þeirri rcynslu fenginni, sem nú liggur
fyrir, er Ijóst, að það cr ekki einkamál LFK hcldur framtíöarverkefni
og markmiö Framsóknarflokksins alls, að konur og karlar vcrði
jafnvirk og áhrifamikil innan Itans.
LFK telur að þannig verði best tryggt að Framsóknarflokkurinn
verði farsældarafl í framtíðarþjóðfélagi.
Konur taki sæti karla
sem hætta á þingi
Framboðsmál báru mjög á góma
á þinginu og voru þingfulltrúar
almennt sammála um að hlutur
kvenna á framboðslistum Fram-
sóknarflokksins væri ekki sem
skyldi. Landsþingið bcnti á að
jafnrétti við uppröðun framboðs-
lista og val í ábyrgðarstöður á
vegum Framsóknarflokksins væri
alls ekki einkamál framsóknar-
kvenna. Þá kemur fram í ályktun
um framboðsmál sá vilji LFK að
þegar þingmenn flokksins létu af
þingmennsku að eigin ósk tækju
framsóknarkonur sæti þeirra. I því
sambandi bentu konurnar á að
framtíðargengi flokksins meðal
þjóðarinna ylti ekki hvað síst á því
að bæði karlar og konur takist á við
stjórnmálin. Því beinir LFK því til
þjóðhollra framsóknarmanna að
þeir virði þessa nauðsyn flokksins
til endurnýjunar.
Þá ítrekaöi landsþingið þann
yfirlýsta vilja um að nefndir og ráð
flokksins séu að hclmingi skipuð
konum og lýsti óánægju sinni með
hlut kvenna í nefndum sem skipað-
ar cru af Alþingi.
Fjölbreyttari atvinnu
á landsbyggðina
Atvinnumál og byggðamál voru
ofarlcga á baugi á þinginu. Lands-
þingið bcnti á að byggðaröskun
væri óhagstæð fyrir pjóðfélagið í
heild og gegn henni þurfi að vinna.
Þar sem undirstaða byggðar sé að
auka fjölbreytni í atvinnulífi á
landsbyggðinni þurfi að efla
Byggðastofnun þannig að hún geti
tekiö virkan þátt í uppbyggingu
atvinnulífsins. Þingið taldi nauð-
synlegt að með aðgerðum í skatta-
málum veröi þeim aöilum sem vilja
koma á fót atvinnurekstri á land-
byggðinni gert það kleift og undir-
stöðuatvinnuvcgunum gert mögu-
lcgt að greiða mun hærri laun og
gcra störf við þá eftirsóknarverð-
ari. Þingið vildi sérstaklega að
athugað verði hvort ekki bæri að
hvcrfa frá núverandi launakerfi í
fiskiðnaði, þannig að miðað verði
við verðmæti þess sem framleitt er
í stað afkasta.
Landbúnaðarafurðir telja LFK
konur að fullvinna eigi í héraði, cn
ekki flytja þær óunnar í þéttbýli.
Fjármagn og völd
heim í héruðin
Framsóknarkonur leggja áherslu
á að fjármagnið haldist sem mcst
heima í héraði þar scm þess er
aflað. Með bættum samgöngum
verði sveitarfélögum gert kleift að
sameinast þannig að þau geti staðið
sjálfstæðari og öflugri og þannig
færari unt að taka að sér þau
verkefni sem nú eru á vegum
ríkisins, en væru að öllu leyti betur
nær framkvæmdinni og á ábyrgð
heimamanna. Á móti fá sveitarfé-
lögin aukna tekjustofna. Þá lagði
þingið áherslu á að ekki yrði hvikað
frá þeirri stefnu að færa ýmsa
opinbera þjónustu til Iandsbyggð-
arkjördæma.
Menntun grunnur framfara
Á þinginu lögðu framsóknar-
konur áherslu á að ein meginfor-
senda framfara í hverri atvinnu-
grein sé að menntun þess fólks sem
í atvinnugrcininni starfar sé góð.
Þær fögnuðu því áformum ríkis-
stjórnarinnar um fjarkennslu og
töldu þau geta orðið framfaraspor
í endurmenntun landsmanna. Þó
var lögð ríkuleg áhersla á að yfir-
völd menntamála sjái til þess að
ávallt séu í boði námsbrautir fyrir
þá er vilja eða þurfa að skipta um
starfsvið. Þá benti þingið á að án
möguleika til náms og starfs við
flestra hæfi í heimahéraði væri
erfitt að sporna við fólksflótta úr
dreifbýli. Hvað dreifbýlisstyrki
varðar benti þingið á að þcir verði
að miðast við það að öllum
nemendum verði kleift að stunda
framhaldsnám án tillits til búsetu.
Stefnu í umhverfismálum
Umhverfismál voru einnig tekin
fyrir enda telur LFK nauðsynlegt
að marka heildarstefnu í umhverf-
is- og náttúruverndarmálum, sem
miði að því að komandi kynslóðir
erfi landið í betra ástandi en nú er.
í því skyni telja landssambands-
konur að stofna cigi umhverfismál-
aráðuneyti til að fara með heildar-
stjórn þeirra náskyldu sviða sem
teljast til umhverfismála. Þá var
gerð sérstöð ályktun um að bann-
aður verði innflutningur og notkun
þeirra efna, sem vfsindamenn telja
að valdi eyðingu ósonlagsins sem
hjúpar jörðina.
Opinber ferðamálastefna
í ferðamálum lagði þingið til að
mörkuð verði opinber ferðamálast-
efna þar sem ríkisvaldið leggur
fram heildarramma, en hvert
byggðarlag sjái um skipulag og
framkvæmd. Landssambandskon-
ur vilja að settar verði reglur um
livað ferðamenn mega taka með
sér til og frá landinu og haft verði
strangt eftirlit með því. Þær lögðu
áherslu á að bæta þyrfti skipulega
aðstöðu til móttöku ferðamanna
úti á landi og bentu í því sambandi
á ferðaþjónustu bænda.
Neyslustefna og forvarnir
Landssamband framsóknar-
kvenna hefur verið frumkvöðull að
svokallaðri neyslustefnu. í anda
þeirrar stefnu ályktaði þingið að
nauðsynlegt sé að marka heildar-
stefnu í neyslu- og manneldismál-
um hér á landi, í stað þeirrar
hentistefnu sem nú ræður ferðinni.
Minnti þingið í þessu sambandi á
tillögu til þingsályktunar um mótun
opinberrar neyslu- og manneldis-
stefnu sem Ásta R. Jóhannesdóttir
var flutningsmaður að á síðasta
löggjafarþingi. Þingð skoraði á
Guðmund Bjarnason heilbrigðis-
ráðherra að tryggja framkvæmd
málsins.
Þá skoraði þingið á heilbrigðis-
og tryggingamálaráðherra að beita
sér fyrir öflugu upplýsingastarfi á
sviði forvarna sem miða að fækkun
slysa á sjó, í umferðinni og á
vinnustöðum. Þá benda framsókn-
arkonur á að forvarna- og fræðslu-
starf þurfi jafnframt að efla á
öðrum sviðum svo sem gegn ávana-
og fíkniefnum, svo og eyðni. Til
þess starfs telja þær að veita verði
umtalsverðum fjármunum á næstu
fjárlögum.
Þingið treystir á heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra að skipa
nefnd til að endurskoða lög um
almannatryggingar nr. 67/1971. í
því tilliti vísar þingið til þingsálykt-
unartillögu Þórdísar Bergsdóttur
sem hún lagði fram á síðasta lög-
gjafarþingi.
Furðulegir viðskiptahættir
Landsþingið ályktaði sérstak-
lega um tvö málefni sem eru í
umræðunni í dag. Annars vegar
lýsti þingið furðu sinni á því að
viðskiptaráðherra skuli ekki enn
hafa staðfest réttmæt kaup sam-
vinnuhreyfingarinnar á hlutafé í
Útvegsbankanum. Þá lýsti þingið
áhyggjum sínum á því ástandi sem
framundan er í efnahagsmálum og
á vinnumarkaðinum. Þingið lýsti
vonum um að afskipti ríkisvaldsins
af kjaramálum beinist í þá átt að
bæta raunveruleg kjör hinna lægst
launuðu í landinu.
Hugmyndir um starf LFK til
tveggja næstu ára.
Á þinginu voru samþykktar sér-
stakar hugmyndir að starfi LFK til
næstu tveggja ára. Þessar hug-
myndir fylgja hér að lokum.
Hugmyndir um starf LFK
til tveggja næstu ára:
1. Stefnumörkun í stjórnmálum
a) Umræðufundir haldnir vítt og breitt um landið um ákvcðin mál.
Á fundina mæta t.d. fulltrúi í sveitarstjórn, konur af framboðslist-
um og úr stjórn LFK.
b) Skyndifundir. Boðað verði til skyndifunda með litlum fyrirvara,
þegar pólitísk þjóðfélagsmál eru í brennidepli.
c) Þingmaður á fundi. Valgcröur Sverrisdóttir okkar þingmaður
komi á ákveðna fundi sem LFK boðar til.
2. Unniö að framgangi stefnuinála:
- mcð þinginönnum tlokksins.
- með því að kynna mál.
Mikilvægt er að raða málum í forgangsröðogná martækum árangri.
3. Félagsstarf:
Stjórn
a) Verkaskipting stjórnar.
b) Sett markmið.
c) Gerð starfsáætlun.
Starfsmaður
a) Starfslýsing.
b) Markmið starfsins.
Fundir
a) Rabbfundir í heimahúsum - bæði í dreifbýli og þéttbýli.
b) Fundir um áhugaverð mál fyrir hvert byggðarlag.
c) Stofnun kvennadeilda/félög. Möguleiki til þess að fá flciri
konur virkar.
d) Skipaðar verði tenglar í öllum sýslum og þéttbýlisstööum sern
starfi í tengslum við landsstjórn. (
Námskeið
a) Áhersla lögð á framhaldsnámskeiö.
b) Áhersla lögð á byrjendanámskeið.
Stjórnmálaskóli
a) Teknir fvrir ákveðnir þættir í þjóðlíftnu sem mepn á
viðkomandi sviði kynna.
b) Skólinn starfi á nokkrum stöðum á landinu, og námsefni dreift
á myndbandsspólum.
Útgáfumál
a) Kynning á málefnum og starfi LFK fréttatilkynningar - gnjinar
- viðtöl í blöð.
b) reglyleg útgáfa fréttabréfs.
Önnur mál
Upplýsingar í sfma. Á skrifstofu Framsóknarflokksins verði
símatími auglýstur, þar sem konur geta fengið upplý^ngar um
ákveðin mál. /