Tíminn - 10.09.1987, Qupperneq 4

Tíminn - 10.09.1987, Qupperneq 4
4 Tíminn Fimmtudagur 10. september 1987 Úr ályktunum frá þingi framsóknarkvenna Það var mikid unnið á fjölmennu landsþingi Landssambands framsókn- arkvenna í Varmahlíð í Skagafirði um síðustu helgi. Fyrir þinginu lágu ítarleg drög að ályktunum sem framsóknarkonur í hverju kjördæmi höfðu undirbúið. Miklar og kröftugar umræður sköpuðust í kringum ályktanirn- ar sem sncrtu flest atriði þjóðlífsins í landinu, enda cinkcnndist þingið öðru fremur af krafti og baráttugleði. Af ályktunum sem samþykktar voru er fyrst að nefna almenna stjórnmálaályktun sem hér fer á eftir. 3. landsþing LFK Stjórnmálaályktun Landsþing framsóknarkvenna haldið í Varmahlíð í Skagafirði dagana 5.-6. scpt. 1987 fagnar því uö takast skyldi að mynda ríkisstjórn með tryggan þingmeirihluta eftir alþingiskosningarnar í apríl. Jafnframt bendir það á þá staðréynd, að þrátt fyrir yfirlýstan vilja annarra flokka tókst ckki að mynda starfhæfa og ábyrga ríkisstjórn, án þess að leitaö var til Framsóknarflokksins. Sýnir það vcl, hver kjölfesta Framsóknartfokkurinn cr í íslensku stjórnmála- og þjóðlífi og hvcrsu nauðsynlegt er að styrkja það afl, sem haslað hefur sér v(>ll á miðju íslenskra stjórnmála. Landsþingið vekur athygli á, að samkvæmt könnununt njóta cáöhcrrar Framsóknarflokksins mests trausts þjóðarinnar af ráðhcrr- um ríkisstjórnarinnar. Er það í fullu samrænti við störf þeirra hingað til og væntir Landssambandið góðs af þeim í nýjum störfum og lýsir þeim vonum sínum, að stefna Framsóknarflokksins komi sem best fram í ríkisstjórnarsamstarfinu. Landssamband framsóknarkvcnna lýsir ámegju sinni með þaö, að í stcfnuyfirlýsingu og starfsáætlun ríkisstjórnarinnar cndurspeglast ýrnis stefnumál þess. Leggur landsþingið sérstaka áherslu á að 1 framfylgt vcrði cftirfarandi þáttum: • Hraðað vcrði uppbyggingu dagvisturheimila til þcss að öll börn eigi kost á dagvistun, cn jafnframt tryggt að uppeldismenntað fólk fáist til starfu á viðkomandi stot'nunum. Til að gcfa forcldrum val um hvort þeir vilji annast uppeldi barna sinna hcima eða greiða fyrir barnagæslu, vcrði greidd stighækkandi fjölskyldulaun eftir fjölda barna. • Komiö verði á samfclldum skóladcgi barna og þcirn gefinn kostur á að mutast f skölunum, cnnfrcmur eigi börn völ á skóladagvist. • I.ögð verði áhersla á símenntun og fjarmcnntun, ckki síst mcð tilliti til þess, að foreldrar sem kjósa að vera heima fyrstu uppvaxtarár barna sinna geti notað þann tíma til uppbyggíngar og mcnntunar. Stcfna í rnenntamálum vcrði í stöðugri endurskoðun, þannig að hún falli sem best að þörfunt almennings, atvinnulífs og mcnningar- starfsemi í landinu. • • Aukin áhcrsla veröi lögö á fyrirbyggjandi aðgerðir i heilbrigðismál- um og athygli beint að ábyrgð hvcrs cinstaklings á heilsuvernd og eigin heilsufari. Aðgerðir stjórnvalda í skatta- og tollamálunt verði santræmdar þannig aö framfylgja mcgi ncyslu- og manneldisstcfnu með heilbrigði landsmanna að leiðarljósi. • Lokið vcrði samanburðarkönnun á launakjörum kvenna og karla, og sérstakX átak gcrt til þess að koma á launajafnrétti kynjanna. Vinnutími verði sveigjanlcgri og þar tckið mið af þörfum fjölskyldna. • Stuölaö verði að betra jafnvægi í þróun byggðar í landinu og skynsantlcgri hagnýtingu auðlinda lands og sjávar. Sérstök áhcrsla vcrði lögð á bættar samgöngur og varðveislu og ávöxtun fjármuna þar scm þeir skapast. • Nauðsyn bcr til aö marka heildarstcfnu í umhverfts- og náttúru- verndunarmálum, sem miði að því að komandi kynslóðir erfi landið í betra ásigkomulagi cn nú er. • Hvarvctna á alþjóðavettvangi beiti íslcndingar sér l’yrir friði og afvopnun gcgn mannréttindabrotum og kúgun. Kannað verði hvort á íslandi getur risið miðstöð friðarviðlcitni og betra mannlífs. Landsþing Landssambands framsóknarkvenna tclur, að meginverk- efni nýrrar ríkisstjórnar vcrði að varðveita þann árangur sem náðst hefur í cfnahagsmálum þjóðarinnar, draga úr þenslu, viðskiptahalla, vcrðbólgu og eriendri skuldasöfnun. Án þess er tómt m'ál að tala urh raunhæfar umbætur í þjóðfélaginu. LFK er sá farvegur, sem konur innan Framsóknarflokksins sameinast í með hugsjónir sínar og markmið. Leggja ber áherslu á aukið lræöslustarf á vegum sambandsins svo sem námskciðahald, stjórnmálaskóla og annað það er gerir þær betur í stakk búnar til þcss að standast þær kröfur sem virk þátttaka í hvers kyns félagsstarfi gerir til kvcnna. LFK hefur þcgar rnarkað varanlegspor og unnið brautryðjendastarf innan Framsóknarflokksins og má t.d. nefna árangur kvcnna í síðustu sveitarstjórnarkosningum. Að þeirri rcynslu fenginni, sem nú liggur fyrir, er Ijóst, að það cr ekki einkamál LFK hcldur framtíöarverkefni og markmiö Framsóknarflokksins alls, að konur og karlar vcrði jafnvirk og áhrifamikil innan Itans. LFK telur að þannig verði best tryggt að Framsóknarflokkurinn verði farsældarafl í framtíðarþjóðfélagi. Konur taki sæti karla sem hætta á þingi Framboðsmál báru mjög á góma á þinginu og voru þingfulltrúar almennt sammála um að hlutur kvenna á framboðslistum Fram- sóknarflokksins væri ekki sem skyldi. Landsþingið bcnti á að jafnrétti við uppröðun framboðs- lista og val í ábyrgðarstöður á vegum Framsóknarflokksins væri alls ekki einkamál framsóknar- kvenna. Þá kemur fram í ályktun um framboðsmál sá vilji LFK að þegar þingmenn flokksins létu af þingmennsku að eigin ósk tækju framsóknarkonur sæti þeirra. I því sambandi bentu konurnar á að framtíðargengi flokksins meðal þjóðarinna ylti ekki hvað síst á því að bæði karlar og konur takist á við stjórnmálin. Því beinir LFK því til þjóðhollra framsóknarmanna að þeir virði þessa nauðsyn flokksins til endurnýjunar. Þá ítrekaöi landsþingið þann yfirlýsta vilja um að nefndir og ráð flokksins séu að hclmingi skipuð konum og lýsti óánægju sinni með hlut kvenna í nefndum sem skipað- ar cru af Alþingi. Fjölbreyttari atvinnu á landsbyggðina Atvinnumál og byggðamál voru ofarlcga á baugi á þinginu. Lands- þingið bcnti á að byggðaröskun væri óhagstæð fyrir pjóðfélagið í heild og gegn henni þurfi að vinna. Þar sem undirstaða byggðar sé að auka fjölbreytni í atvinnulífi á landsbyggðinni þurfi að efla Byggðastofnun þannig að hún geti tekiö virkan þátt í uppbyggingu atvinnulífsins. Þingið taldi nauð- synlegt að með aðgerðum í skatta- málum veröi þeim aöilum sem vilja koma á fót atvinnurekstri á land- byggðinni gert það kleift og undir- stöðuatvinnuvcgunum gert mögu- lcgt að greiða mun hærri laun og gcra störf við þá eftirsóknarverð- ari. Þingið vildi sérstaklega að athugað verði hvort ekki bæri að hvcrfa frá núverandi launakerfi í fiskiðnaði, þannig að miðað verði við verðmæti þess sem framleitt er í stað afkasta. Landbúnaðarafurðir telja LFK konur að fullvinna eigi í héraði, cn ekki flytja þær óunnar í þéttbýli. Fjármagn og völd heim í héruðin Framsóknarkonur leggja áherslu á að fjármagnið haldist sem mcst heima í héraði þar scm þess er aflað. Með bættum samgöngum verði sveitarfélögum gert kleift að sameinast þannig að þau geti staðið sjálfstæðari og öflugri og þannig færari unt að taka að sér þau verkefni sem nú eru á vegum ríkisins, en væru að öllu leyti betur nær framkvæmdinni og á ábyrgð heimamanna. Á móti fá sveitarfé- lögin aukna tekjustofna. Þá lagði þingið áherslu á að ekki yrði hvikað frá þeirri stefnu að færa ýmsa opinbera þjónustu til Iandsbyggð- arkjördæma. Menntun grunnur framfara Á þinginu lögðu framsóknar- konur áherslu á að ein meginfor- senda framfara í hverri atvinnu- grein sé að menntun þess fólks sem í atvinnugrcininni starfar sé góð. Þær fögnuðu því áformum ríkis- stjórnarinnar um fjarkennslu og töldu þau geta orðið framfaraspor í endurmenntun landsmanna. Þó var lögð ríkuleg áhersla á að yfir- völd menntamála sjái til þess að ávallt séu í boði námsbrautir fyrir þá er vilja eða þurfa að skipta um starfsvið. Þá benti þingið á að án möguleika til náms og starfs við flestra hæfi í heimahéraði væri erfitt að sporna við fólksflótta úr dreifbýli. Hvað dreifbýlisstyrki varðar benti þingið á að þcir verði að miðast við það að öllum nemendum verði kleift að stunda framhaldsnám án tillits til búsetu. Stefnu í umhverfismálum Umhverfismál voru einnig tekin fyrir enda telur LFK nauðsynlegt að marka heildarstefnu í umhverf- is- og náttúruverndarmálum, sem miði að því að komandi kynslóðir erfi landið í betra ástandi en nú er. í því skyni telja landssambands- konur að stofna cigi umhverfismál- aráðuneyti til að fara með heildar- stjórn þeirra náskyldu sviða sem teljast til umhverfismála. Þá var gerð sérstöð ályktun um að bann- aður verði innflutningur og notkun þeirra efna, sem vfsindamenn telja að valdi eyðingu ósonlagsins sem hjúpar jörðina. Opinber ferðamálastefna í ferðamálum lagði þingið til að mörkuð verði opinber ferðamálast- efna þar sem ríkisvaldið leggur fram heildarramma, en hvert byggðarlag sjái um skipulag og framkvæmd. Landssambandskon- ur vilja að settar verði reglur um livað ferðamenn mega taka með sér til og frá landinu og haft verði strangt eftirlit með því. Þær lögðu áherslu á að bæta þyrfti skipulega aðstöðu til móttöku ferðamanna úti á landi og bentu í því sambandi á ferðaþjónustu bænda. Neyslustefna og forvarnir Landssamband framsóknar- kvenna hefur verið frumkvöðull að svokallaðri neyslustefnu. í anda þeirrar stefnu ályktaði þingið að nauðsynlegt sé að marka heildar- stefnu í neyslu- og manneldismál- um hér á landi, í stað þeirrar hentistefnu sem nú ræður ferðinni. Minnti þingið í þessu sambandi á tillögu til þingsályktunar um mótun opinberrar neyslu- og manneldis- stefnu sem Ásta R. Jóhannesdóttir var flutningsmaður að á síðasta löggjafarþingi. Þingð skoraði á Guðmund Bjarnason heilbrigðis- ráðherra að tryggja framkvæmd málsins. Þá skoraði þingið á heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra að beita sér fyrir öflugu upplýsingastarfi á sviði forvarna sem miða að fækkun slysa á sjó, í umferðinni og á vinnustöðum. Þá benda framsókn- arkonur á að forvarna- og fræðslu- starf þurfi jafnframt að efla á öðrum sviðum svo sem gegn ávana- og fíkniefnum, svo og eyðni. Til þess starfs telja þær að veita verði umtalsverðum fjármunum á næstu fjárlögum. Þingið treystir á heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra að skipa nefnd til að endurskoða lög um almannatryggingar nr. 67/1971. í því tilliti vísar þingið til þingsálykt- unartillögu Þórdísar Bergsdóttur sem hún lagði fram á síðasta lög- gjafarþingi. Furðulegir viðskiptahættir Landsþingið ályktaði sérstak- lega um tvö málefni sem eru í umræðunni í dag. Annars vegar lýsti þingið furðu sinni á því að viðskiptaráðherra skuli ekki enn hafa staðfest réttmæt kaup sam- vinnuhreyfingarinnar á hlutafé í Útvegsbankanum. Þá lýsti þingið áhyggjum sínum á því ástandi sem framundan er í efnahagsmálum og á vinnumarkaðinum. Þingið lýsti vonum um að afskipti ríkisvaldsins af kjaramálum beinist í þá átt að bæta raunveruleg kjör hinna lægst launuðu í landinu. Hugmyndir um starf LFK til tveggja næstu ára. Á þinginu voru samþykktar sér- stakar hugmyndir að starfi LFK til næstu tveggja ára. Þessar hug- myndir fylgja hér að lokum. Hugmyndir um starf LFK til tveggja næstu ára: 1. Stefnumörkun í stjórnmálum a) Umræðufundir haldnir vítt og breitt um landið um ákvcðin mál. Á fundina mæta t.d. fulltrúi í sveitarstjórn, konur af framboðslist- um og úr stjórn LFK. b) Skyndifundir. Boðað verði til skyndifunda með litlum fyrirvara, þegar pólitísk þjóðfélagsmál eru í brennidepli. c) Þingmaður á fundi. Valgcröur Sverrisdóttir okkar þingmaður komi á ákveðna fundi sem LFK boðar til. 2. Unniö að framgangi stefnuinála: - mcð þinginönnum tlokksins. - með því að kynna mál. Mikilvægt er að raða málum í forgangsröðogná martækum árangri. 3. Félagsstarf: Stjórn a) Verkaskipting stjórnar. b) Sett markmið. c) Gerð starfsáætlun. Starfsmaður a) Starfslýsing. b) Markmið starfsins. Fundir a) Rabbfundir í heimahúsum - bæði í dreifbýli og þéttbýli. b) Fundir um áhugaverð mál fyrir hvert byggðarlag. c) Stofnun kvennadeilda/félög. Möguleiki til þess að fá flciri konur virkar. d) Skipaðar verði tenglar í öllum sýslum og þéttbýlisstööum sern starfi í tengslum við landsstjórn. ( Námskeið a) Áhersla lögð á framhaldsnámskeiö. b) Áhersla lögð á byrjendanámskeið. Stjórnmálaskóli a) Teknir fvrir ákveðnir þættir í þjóðlíftnu sem mepn á viðkomandi sviði kynna. b) Skólinn starfi á nokkrum stöðum á landinu, og námsefni dreift á myndbandsspólum. Útgáfumál a) Kynning á málefnum og starfi LFK fréttatilkynningar - gnjinar - viðtöl í blöð. b) reglyleg útgáfa fréttabréfs. Önnur mál Upplýsingar í sfma. Á skrifstofu Framsóknarflokksins verði símatími auglýstur, þar sem konur geta fengið upplý^ngar um ákveðin mál. /

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.