Tíminn - 10.09.1987, Side 12

Tíminn - 10.09.1987, Side 12
12 Tíminn Fimmtudagur 10. september 1987 FRÉTTAYFIRLIT RÓM — Ríkisstjórn Ítalíu fór fram á atkvæöagreiöslu um traustsyfirlýsingu í ítalska þinginu vegna ákvöröunar sinnar að senda herskip tii Persaflóa. Atkvæöagreiöslan mun fara fram í báðum deild-1 um þingsins. Heimildir herma ; aö hin fimm mánaða gamla ríkisstjórn muni auðveldlega i bera sigur úr býtum í atkvæða- j greiðslunni. BAGHDAD — Aö sögn írak- skra stjórnvalda geröu flugvél- ar þeirra árás á skotmörk innan landamæra írans í hefndar- skyni fyrir eldflaugaárás á Kuwait í síðustu viku. MANILA — Allir ráöherrar ríkisstjórnar Corazon Aquino, > 26 aö tölu, sögöu af sér til aö gefa forsetanum frjálsar hend- ur um aö skipa nýja einstakl- inga til ráðherraembætta eftir byltingartilraunina í síöustu viku, sem er alvarlegasta áfall-, iö i átján mánaöa stjórnartíð í Aquinos. Afsagnirnar koma í kjölfar ásakana nánasta að- stoðarmanns Aquinos á hend- ur þremur kunnum kaupsýslu- mönnum og háttsettum for-1 ingja í hernum þess efnis aö | þessir aðilar heföu unniö aö því aö grafa undan stjórninni. BELFAST — Ekkert lát er á ofbeldisverkum á Noröu-ír- landi. Maður mótmælendatrú- ar var í gær skotinn til bana í hefndarskyni fyrir morð á ka- þólskum manni fáeinum klukk- ustundum áður. Alls hafa nú, 69 Norður-írar látiö lífiö í átök-1 um þaö sem af er árinu. PEKING — Lagt hefur verið opinberlega til í Kína að rótt- tækar breytingar veröi gerðar' á stefnunni varðandi sölu korns þar í landi. Tillagan felur í sér aö kínverskum bændum veröi leyft aö selja korn sitt á markaðsverði í staö hins opin- bera verös. BRUSSEL - Belgísk stjórnvöld munu taka um það ákvöröun eftir helgina hvort sendir veröa tundurduflaslæð- arar til Persaflóa til aðstoðar' þeim bandarísku, bresku, frönsku, ítölsku og hollensku herskipum, sem þar eru til aö halda opnum siglingaleiöum fyrir oliuskip. KOINDE, NÝJU KALEDÓNÍU — Kanakar, innfæddir íbúar landsins sem berjast fyrir afkomu sinni í hinni velstæðu nýlendu Frakka í Kyrrahafi, hafa lýst því yfir aö þjóðaratkvæðagreiðslan um sjálfstæði n.k. sunnudag muni i engu hafa áhrif á kröfur þeirra um sjálfstjórn og jafnan rétt á viö hvíta ibúa landsins. ÚTLÖND lllllillll ll!!lllllll!!l!!l!!lllll!ll!llll!lll! Poul Schluter fékk fyrstur boltann: Erfið stjórnarmyndun framundan í Danmörku Tekst Poul Schliiter það ólíklega, að mynda stjórn? Angóla: Þrír Svíar í haldi hjá UNITA Poul Schliiter formaöur fhalds- flokksins hefur fengið umboð frá Margréti Danadrottningu til að reyna myndun nýrrar ríkisstjórnar, þrátt fyrir að flokkur hans hafi orðið að þola talsvert tap í kosningunum á þriöjudag. En fyrr um daginn hafði Schluter öllum að óvörum sagt af sér þrátt fyrir orö sín á kosninganóttina að hann myndi freista þess að halda minnihlutastjórn sinni áfram við völd.- Endanleg niðurstaða kosninganna var sú, að mið- og hægri flokkarnir fengu alls 90 þingsæti, en vinstri flokkarnir 83 þingmcnn, og er þá nýi flokkurinn á þingi, Fælles Kursen, talinn til vinstri blokkarinnar, en sá flokkur byggði stefnu sína á aukn- ingu opinberra útgjalda -til að ná niður atvinnuleysi. Athyglisvert er að fylgisaukningin er mest hjá þeim flokkum, sem standa yst til hægri og vinstri á næsta þingi. Prátt fyrir að Schlútcr hafi fyrstum vcrið falin stjórnarmyndunartilraun- in, í krafti samkomulags þess cfnis meðal mið- og hægriflokkanna sex, þá bíður hans ákaflega erfitt hlutverk. Til að ná þingmeirihluta þarf hann að ná stuðningi Róttæka vinstri flokksins og Framfaraflokks- ins. Þessir flokkar eru um flest ef ekki allt ólíkir enda lýstu þeir fyrr- nefndu því yfir að flokkurinn kæmi aldrei til með að styðja stjórn, sem háð væri Framfaraflokknum. Það er a.m.k. ljóst að ef svo færi að Schlúter tækist að mynda stjórn með stuðningi þessara tveggja flokka, þá yrði það mun veikari stjórn en áður vegna þeirra samn- inga, sem Schlúter yrði að gera við flokkana. Þá er ákaflega hæpið að Anker Jörgensen takist að ná stuðningi flokka úr mið-hægri blokkinni. Þrátt fyrir að Róttæki vinstri flokkurinn sé andvígur aðild að Atlantshafsbanda- laginu og Evrópubandalaginu, þá ríkir þar engin hrifning á sósíalisma vinstri flokkanna. Þá hafa frétta- skýrendur bent á að jafnvel geti orðiö erfitt fyrir Jafnaðarntenn og Sósíalíska þjóðarflokkinn að ná saman um myndun stjórnar, svo ólíkar séu áherslur þeirra, s.s. í afstöðunni til Nato. Margir danskir stjórnmála- skýrendur eru á því að nokkur tími líði áður en tekst að mynda starfhæfa ríkisstjórn, sérstaklega í ljósi þess að fyrir nýrri ríkisstjórn liggur að taka óvinsælar efnahagsákvarðanir. Þá eru margir þeirra skoðunar að það stefni í nýjar kosningar innan skamms. Það liggur því í loftinu að alvarleg stjórnarkreppa myndist í Danmörku, nema þá Schlúter takist það ólíklega, að semja við bæði Framfaraflokkinn og Róttæka vinstri flokkinn um stuðning við gömlu minnihlutastjórn sína. Fréttir berast einnig um að niður- stöður kosninganna hafi valdið áhyggjum bæði í höfuðstöðvum Atl- antshafsbandalagsins og Evrópu- bandalagsins, en Danir hafa með forsetaembætti síðarnefndu samtak- ÚTLÖND Flokkur Þingsæti 1984 1987 Ihaldsflokkurinn 38 42 Venstre 19 22 Miðdemókratar 9 8 Kristil. þjóðarfl. 4 5 Róttæki vinstri fl. 11 10 Framfaraflokkur 9_____________6_ Jafnaðarmenn 54 56 Sósíal. þjóöarfl. 27 21 Fælles Kurs 4 0 anna að gera næstu 6 mánuðina. Evrópubandalagsmenn hræðast veika forystu Dana þennan tíma, einmitt þegar verið er að fást við mikilvæg mál innan bandalagsins. Þá hafa Danir ekki notið sérstakra vinsælda innan Nato undanfarið vegna sífellds niöurskurðar á út- gjöldum til varnarmála, einkum til að friöa Róttæka vinstri flokkinn. Stokkhólmur: Stríð gegn veggjakroti Yfirvöld í Stokkhólmi hafa bann- að farþegum í neðanjarðarjárn- brautum borgarinnar að hafa með sér tússpenna eða úðunarbrúsa um borð í lestarnar. Markmiðið með banninu er að koma í veg fyrir veggjakrot og aðra skreytilist, sem Stokkhólmsbúar iðka mjög í hinum opinberu flutningatækjum. Skreytilist áhugalistamannanna hefur í för með sér mikinn hreinsun- arkostnað og nam hann um fjörutíu milljón króna árið 1986, en hefur tvöfaldast það sem af er þessu ári. Bannið, sem tekur gildi 15. scpt- ember, felur í sér að sérhver sem gripinn er með tæki til skreytingar og er grunaður um slíka ætlan verður sektaður um jafngildi 6000 ísl. króna. Það verður hins vegar lög- reglunnar að meta hvort þeir, sem hafa á sér tússpenna eða úöunar- brúsa, ætla sér að fremja slíkan verknað. Skæruliðahreyfingin UNITA, sem berst gegn stjórninni í Angóla. nam á brott þrjá Svía í fyrirsát nálægt Luanda. höfðuborg landsins á mánu- daginn. Svíar þessir hafa starfað við sænskt þróunarverkefni og voru á ferð undir vernd stjórnarhermanna sl. mánudag. UNITA kveðst hafa drepið 11 stjórnarhermenn í fyrirsát- inni. Þessi skæruliðasamtök, sem notið hafa drjúgrar aðstoðar frá Suður-Afríku og Bandaríkjunum, hafa staðið í stöðugri baráttu gegn hinni sósíalísku stjórn í Angóla síðan skömmu eftir að þessi fyrrum portúgalska nýlenda fékk sjálfstæði 1975. Svíþjóð hefur stutt stjórnina í Angóla dyggilega og veitt til hennar mikilli þróunaraðstoð. Sænsk félagssamtök, sem berjast gegn aðskilnaðarstefnu stjórnarinn- ar í Suður-Afríku, hafa farið þess á leit við Ingvar Carlsson forsætisráð- herra Svíþjóðar, sem nú er í opin- berri heimsókn í Bandaríkjunum, að hann tæki málið upp viö Reagan forseta þegar hann ætti fund með honum sem var í gær. Carlsson sagði fréttamönnum að það væri ekki tímabært þar sem hann hefði ekki nægar upplýsingar um atburðina. Sovétríkin: ANDÓFSMADUR FÆR AD FLYTJA Eistlenski andófsmaðurinn Tiit Madisson sagðist í gær rnundu flytjast frá Sovétríkjunum til Sví- þjóðar um næstu helgi. Að sögn Madisson hafði KGB samband við hann fyrir fáeinum dögum og gaf honum tvo kosti, annars vegar að flytjast úr landi eða þá að snúa aftur til Síberíu, en þar hefur hann eytt sex árum í útlegð og nauðungarvinnu vegna ásakana um starfsemi gegn sovéska ríkinu. Madisson, sem er kaþólikki, er einn af áhrifamestu leiðtogunum í eistlensku þjóðernishreyfingunni, sem staðið hefur fyrir mótmælaað- gerðum gegn innlimuninni í So- vétríkin, en Eistland ásamt Lett- landi og Litháen voru lögð undir Sovétríkin 1940. Annar andófs- maður, Rolands Silaraups, var neyddur til að flytjast til Austurrík- is fyrir skömmu.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.