Tíminn - 10.09.1987, Síða 15
Fimmtudagur 10. september 1987
Tíminn 15
MINNING
Þórður Ögmundur
Jóhannsson
Fæddur: 19.04. 1914
Dáinn: 31.08.1987
í dagfimmtudaginn 10. september
verður til moldar borinn einn frum-
byggja Hveragerðis, Þórður Ög-
mundur Jóhannsson. Pórður var
fæddur í Sogni í Ölfusi hinn 19. apríl
1914 og voru foreldrar hans Jóhann
Bergsteinsson og Guðrún Ögmunds-
dóttir búendur þar. Þórðurvaryngra
barn þeirra Sognshjóna, en systir
hans, Guðrún Þjóðbjörg, er fædd
1912.
Árið 1930 fór Þórður þá 16 ára á
vertíð í Þorlákshöfn. Sjómennska
Þórðar varð ekki löng en þó afdrifa-
rík þar sem hann lenti í slysi, sem
hafði mikil áhrif á lífshlaup hans.
Brákaðist Þórður það illa í mjaðm-
arlið að hann átti upp frá því erfitt
með gang þó að hann fengi umtals-
verða bót með aðgerð, sem gerð var
rúmlega 20 árum síðar. Þetta leiddi
til þess að Þórður hóf gagnfræðanám
við Flensborgarskóla í Hafnarfirði
og lauk kennaraprófi frá Kennara-
skóla Islands vorið 1935. Sama' ár
flutti Þórður ásamt foreldrum sínum
ogsysturtil Hveragerðis. Þarbyggðu
þau hús er nefnt var Grund og var
Þórður oft kenndur við þann stað
síðan. Þar heitir nú Þórsmörk 1 í
Hveragerði.
Þórður stundaði kennslu árin
1935-’39 og var farkennari í Selvogi
og Grafningi. Þá hóf hann akstur á
vöruflutningabifreið og síðan fólks-
og vöruflutninga hjá Guðmari
Stefánssyni sérleyfishafa á leiðinni
Reykjavík - Ölfus.
Þórður hóf kennslu á ný við barna-
skólann í Hveragerði 1953 og tók þá
jafnframt við vörslu bókasafnsins
þar. Bókasafninu þjónaði hann af
einstakri alúð allt til síðasta vors og
naut þar aðstoðar fjölskyldu sinnar.'
Sem áður sagði bjó Þórður með
systur sinni og foreldrum. 1942 bætt-
ist systursonurinn Jóhann Ragnar
Ragnarsson í hópinn og ntá segja að
Þórður hafi gengið honum í föður
stað.
Árið 1959 urðu enn þáttaskil í lífi
Þórðar er hann kvæntist eftirlifandi
eiginkonu sinni Þórunni Ástríði
Björnsdóttur fæddri 1919 að Skarði
í Grýtubakkahreppi í Suður-Þing-
eyjarsýslu. Þau Þórður og Þórunn
eignuöust þrjár dætur en þær eru:
Guðrún fædd 1960 bókasafns-
fræðingur, Svava Hólmfríður fædd
1962 við nám í lyfjafræði og Arn-
heiður fædd 1964 í búfræðinámi.
Á Þórð hlóðust ótal trúnaðarstörf,
sem of langt mál yrði upp að telja.
Hann sat m.a. í hreppsnefnd Hvera-
gerðishrepps, gegndi hreppstjóra-
stöðu og starfaði mikið að málefnum
fatlaðra í félaginu Sjálfsbjörg.
Kynni okkar Þórðar hófust fyrst
fyrir 13 árum og í mínum huga
verður hann ætíð ímynd hins þjóð-
lega fræðaþuls. Hann var sjófróður
og minnugur einkum um allt er
viðkom hans nánasta unthverfi.
Hveragerði, Ölfus, umhverfi ogsaga
hlaut Iíf í frásögn hans og ef leita
þurfti sögulegra upplýsinga um
eitthvað þótti sjálfsagt að ganga í
smiðju til Þórðar. Aldrei var hann
svo störfum hlaðinn að hann gæfi sér
ekki tíma til að leysa vanda spyrj-
andans og gilti þar einu hvort um var
að ræða skólabarnið við ritgerðar-
smíð eða fræðimanninn frá Örnefna-
stofnun. Veit ég að margur gekk vel
nestaður fróðleik af fundi Þórðar en
sjálfur spurði hann aldrei um hver
hirti launin eða heiðurinn af elju-
verkum hans.
Þegar Þórður fann að heilsan var
að bila ákvað hann að losa sig við
umsýslu bókasafnsins og hugðist
helga sig rit- og fræðastörfum þann
tíma sem ef til vill enn gæfist. Er við
áttum síðast viðræðustund rakti
hann af eldlegum áhuga sögu Grýlu
og annarra goshvera í nágrenninu.
Þá sagðist hann ætla að fara að skrá
sögu mjólkurbús Ölfusinga enda mál
til komið að hann færi sjálfur að
skrásetja eitthvað af þeim fróðleik,
sem hann hefði að sér dregið. Einnig
tók hann vel þeirri hugmynd að fara
að flytja inn á hljóðband helstu þætti
úr sögu Hveragerðis, sem hann
geymdi í minni. Nú aðeins nokkrum
vikum síðar er hann hins vegar
horfinn af sviðinu þannig að þær
áætlanir verða ekki framkvæmdar.
Auðugasta uppsprettan unt sögu
Hveragerðis er þorrin þannig að hún
verður ekki sú sama og orðið hefði
ef Þórðar hefði notið lengur við. Það
má vera okkur sem eftir lifum
áminning urn að vera betur á verði
um vörslu sögulegra minja og gæta
þess betur að týna ekki reynslu
þeirrar kynslóðar, sem lifað hefur
mestar breytingar íslandssögunnar.
Þórðar yrði best minnst ef hafist
yrði markvisst handa um söguritun
Hveragerðis og í því starfi hygg ég
að menn muni hitta hann oft fyrir.
Mér er ljúft að minnast allra þeirra
stunda ánægju og fræða, er ég naut
hjá Þórði.
Hafi hann þökk fyrirsamfylgdina.
Fjölskyldu hans og ástvinum öll-
um votta ég mína innilegustu samúð.
Björn Pálsson
VIÐSKIPTALÍFIÐ
Enn um samruna Asea
og Brown Boveri
Samruni Asea og BBC er fyrsta
mikla nýja samsteypan í rafmagns-
iðnaði í áratugi, en í iðnaðinum er
hörð samkeppni á ntilli evrópskra,
bandarískra og japanskra fyrirtækja.
Helstu markaðssvæði Asea eru
Norðurlönd, nálæg Austurlönd og
Norður-Ameríka, en BBC , Vestur-
og Suður-Evrópa.
Á síðasta áratug kreppti að Asea,
en það rétti úr kútnum í upphafi
þessa áratugar og hefur afkoma þess
á síðustu árum verið góð.
Á þessum áratugi hefur hins vegar
þrengt að BBC, og réð það til sín
nýjan forstjóra fyrir 2 árum, dr.
Leutwiler, sem breytt hefur skipu-
lagi þess.
Fram á síðasta ár voru dótturfyrir-
tæki þess rekin nálega sem sjálfstæð
fyrirtæki, en miðstýring hefur nú
verið aukin. Þá hefur BBC haft enn
stærri hluta tekna sinna af útbúnaði
til raforkuvera en Asea.
Um fjölda starfsmanna og rckstr-
arafkomu - sjá töflur.
Fáfnir
Járnhálsi 2 Sími 83266 110 Rvk.
Pósthólf 10180
a
T h e n e w t o p t e n I
SaJnln hoavy electrlcaJ eh^ineerlnf Tota) (roup aaln(im) Numberof employeet
Company SKbn SKbn 11904)
Atea/BBC 100 100 140.000
Sltment M 145 343,000
Slement M 145 343,000
Hltachi M 213 144.000
General Electrle M 214 304,000
Wettlnghoute 57 73 125,500
CGE 49 04 150,000
Mlttubiihl 42 90 71,001)
Tothiba J7 144 110,000
AEG 23 39 78,000
GEC 21 47 145,000
Source: Asct
RHI REYKJNJÍKURBORG *■*
5 SS 3-----------------2 22 3
Skammtímavistunin
Álfalandi 6
Viltu vinna á litlum heimilislegum vinnustaö?
Heimilið er skammtímavistun fyrir fötluð börn. Á
heimilinu dvelja 6 börn í senn og okkur bráðvantar
starfsmann til að elda matinn okkar.
Um er að ræða 40% og 50% starf. Vinnutími er
virka daga frá 16-20 2 eða 3 daga í viku og
aðrahverja helgi frá 11-19. Tilvalið fyrir þá sem
vilja vinna með skóla.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 32766 og
18089.
Umsóknum ber að skila til Starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð á
eyðublöðum sem þar fást.
SEXTÍU OG SEX NORÐUR
Framleiðslustörf
1. Óskum að ráða konur til framleiðslu á „Bláa
Vinyl glófanum", góð laun í boði. Upplýsingar
í síma 12200.
2. Óskum einnig að ráða konu hálfan daginn við
stjórnun á sjálfvirkri saumavél. Vinnutími frá
12-17 eða eftir samkomulagi. Góð laun í boði.
Upplýsingar í síma 12200.
SJÓKLÆOAGERÐIN HF
Skúlagöt'j 51 - Reykjavik - Simi 1-15-20
Hafnarfjarðarbær
Áhaldahús
Verkamenn óskast í almenna útivinnu og á
loftpressur. Mötuneyti á staðnum. Hagstæður
vinnutími.
Upplýsingar í síma 53444.
Yfirverkstjóri
Til sölu
Citroen BX 14 5 gíra árg. ’86
Upplýsingar í síma 79616.
TÖLVUNOTENDUR
Við í Prentsmiðjunní Eddu
hönnum, setjum og prentum
allar gerðír eyðublaða fyrir tölvuvinnslu.
PRENTSMIÐIAN
Smiðjuvegi 3, 200 Kópavogur. Sími 45000