Tíminn - 10.10.1987, Side 2
2 Tíminn
Laugardagur 10. október 1987
Um helmingur spariinnlána bankanna kominn á sérkjarasamninga:
Milljarður „brann upp“
á gömlu bankabókunum
frá júní 1986 til 1987
Sparifjáreigendur virðast í aukn-
um mæli farnir að forðast hinar
„hripleku" almennu sparisjóðs-
bækur bankanna og koma meiru
og meiru af peningunum sínum fyrir
á reikningum scm „baktryggöir"
eru gegn verðbólgunni, þ.e. ef
verðbólgan reynist meiri en „há-
vextirnir“ sem bankarnir bjóða á
þessum reikningum. A þessu ári
mun eimitt verulega hafa reynt á
þá tryggingu. Nú á miðju ári voru
hátt í 60% allra spariinnlána í raun
orðin vísitölutryggð. Rúmlega
fjórðungur spariinnlána bankanna
var þó ennþá „ávaxtaður" á al-
mennu sparisjóðsbókunum. Bank-
arnir hafa verið afar „sparsamir"
við ákvörðun „vaxta“ á þær inn-
eignir, þannig að ekki mun vanta
mikið á að verðmæti þessa sparifj ár
hafi minnkað um 1.000 milljónir
frá miðju ári 1986 til sama tíma í ár.
Minnkandi tiltrú
á sparibókunum
Þar sem innlán á almennu spari-
reikningunum hafa aðeins aukist
um 3% í krónum talið á fyrra
helmingi þessa árs virðist þeim þó
fara ört fjölgandi sem farnir eru að
sjá við þessari „sparnaðar/gróða-
leið“ bankanna. Á sama tíma juk-
ust hins vegar inneignir á sérkjara-
reikningunum um 31%. Nærri
helmingur allra spariinnlána í
bönkum og sparisjóðum var kom-
inn á þessa sérkjarasamninga nú á
miðju ári 1987. Það er hins vegar
athyglisvert að aðeins innan við 6.
hluti spariinnlánanna er á beinum
verðtryggðum reikningum, þegar
haft er í huga hvað það virðist
almenn trú að helv... lánskjaravísi-
talan hækki allar skuldir langt um-
fram það sem laun og annað
hækka. - En lánskjaravísitalan
hækkar vitanlega óhreyfðar inni-
stæður jafn mikið/lítið og skuldirn-
ar.
Um 166 millj. kr.
vaxtatap í júní
Enn voru þónær 12.880 milljónir
króna á almennum sparisjóðsbók-
um í júnílok, eða um 27% af öllum
spariinnlánum í bankakerfinu. Það
svarar til um 53 þús. króna á hvert
mannsbarn í landinu að meðaltali,
sem bendir til þess að margir geymi
umtalsverðar fjárhæðir á þessum
reikningum. Vextir á þessu fé í
júní voru í kring um 1% á mánuði
eða tæplega 129 milljónir þennan
eina mánuð. Lánskjaravísitalan
hækkaði hins vegar um 2% milli
júní og júlí. Sama upphæð á 6
mán. verðtryggðum reikningi hefði
því hækkað um 295 milljónir kr. í
júnímánuði. Má því segja að eig-
endur almennu sparisjóðsbókanna
hafi tapað, eða bankarnir sparað
sér, 166 millj. króna ávöxtun á
þeim bara á þessum eina mánuði.
...og 924 milljónir
á einu ári
Um mitt ár í fyrra voru um 10,7
milljarða innistæður á almennu
bókunum, en tæplega 12,9 millj-
arðar á sama tíma í ár. Þarna gæti
því verið um 11.500 milljóna króna
innistæður að ræða að meðaltali
yfir árið. Vextir á almennu spari-
Þingflokkurinn komist að niðurstöðu:
Þorvald Garðar
sem þingforseta
Ákvörðun um þann þingmann
Sjálfstæðisflokks sem þingflokkur-
inn tilnefnir til kjörs á forseta Sam-
einaðs Alþingis var tekin á fundi
þingflokksins í gær. Ólafur G. Ein-
arsson, formaður þingflokksins,
sagði að ákveðið hefði verið að
tilnefna Þorvald Garðar Kristjáns-
son.
Þorvaldur Garðar gegndi þessu
sama embætti liðið kjörtímabil.
Við stjórnarmyndun leiddu fáir
hugann að því að um annan þing-
mann gæti verið að ræða þegar svo
var samið að Sjálfstæðisflokkur fengi
þetta embætti í sinni hlut. Enda
herma fregnir að Þorvaldur Garðar
hafi sótt það stíft að fá að halda
forsetaembætti sínu.
Heimildir Tímans fullyrtu að
Framsóknarmenn hefðu fallist á að
Sjálfstæðisflokkurinn fengi embætt-
ið gegn því skilyrði að Þorvaldi
Garðari yrði fengið. Þetta hefur
Ólafur G. Einarsson sagt að væri
fjarstæða og að hann kannaðist
hreint ekki við slíkan samning um
.einstakan þingmann.
Nú verður að koma í Ijós hvort
sjálfstæðiskonur sitja á strák sínum
eftir ákvörðun þingflokksins, en þær
höfðu látið í ljósi eindregna ósk um
að konu yrði fengið forsetadæmið.
Um Þorvald Garðar Kristjánsson
verður kosið á Alþingi á mánudag.
Þj
Þrjú sækja um 6 brauð
Út er runninn umsóknarfrestur
um sex prestaköll, sem auglýst voru
laus af biskupsembættinu í haust.
Um þrjú þeirra sótti enginn, en það
voru Patreksfjörður, Breiðabóls-
staður í V-Húnavatnssýslu og Rauf-
arhöfn.
Hvað hin þrjú varðar, sótti einn
um Bjarnarnes (Höfn í Hornarfirði),
tveir um Ólafsvík og einn um Háls í
Fnjóskadal. Biskupsstofa vildi ekki
gefa upp nöfn umsækjendanna, þar
sem það væri orðin ákveðin vinnu-
regla þar á bæ.
Hins vegar hefur Tíminn þær
fréttir umfram þetta og eftir öðrum
leiðum, að sr. Baldur Kristjánsson,
sem nú er settur prestur að Bjarnar-
nesi, hafi sótt um það brauð. Þá hafi
sr. Friðrik Hjartar, sóknarprestur í
Búðardal, sótt um Ólafsvík, ásamt
Yrsu Þórðardóttur, sem varð guð-
fræðingur nú í september. Yrsa
Þórðardóttir sækir einnig um Háls í
Fnjóskadáí og verður það að teljast
til nokkurra nýmæla að sami maður
sæki um tvö brauð í einu. Þegar
þetta atriði var borið undir sr. Magn-
ús Guðjónsson, biskupsritara, sagði
hann að þetta væri einn af þeim
möguleikum sem opnast hefðu við
tilkomu nýju laganna um veitingu
prestakalla frá í vor.
KB
reikningunum hafa þetta ár verið í
kringum 9,55% að meðaltali, eða
um 1.100 milljónir á 11.500 millj.
kr. innistæðu. Lánskjaravístitalan
(verðbólgan) hækkaði hins vegar
um 17,6% á sama tíma, sem skilað
hefði 2.024 millj. króna verðbótum
á sömu upphæð og um 2.295 millj-
ónum ef 2% raunvextir hefðu bæst
við að auki. Vantar því um 924
milljónir kr. á að fjármunir þeir
sem landsmenn fólu bönkunum að
„ávaxta“ fyrir sig á almennu spari-
sjóðsbókunum hafi haldið verðgildi
sínu á þessu eina ári, eða sem
svarar um 15 þús. kr. að meðaltali
á hverja fjölskyldu í landinu.
Betur má ef duga skal
Fyrir aðeins þrem árum var hins
vegar yfir helmingur allra spari-
innlána á almennu sparibókunum,
eða 52%. Það hlutfall lækkaði
síðan í um 39% árið 1985, áfram
niður í um 31% um síðustu áramót
og niður í 27% nú á miðju ári sem
fyrr segir. Vísitölutryggðar inni-
stæður eða með vísitölubaktrygg-
ingu hafa á sama tíma hækkað úr
20% á miðju ári'1984, upp í 48%
ári síðar, 54% um síðustu áramót
og tæplega 60% nú í lok júní s.l.
Almennu sparisjóðsbækurnar
verða sjálfsagt áfram þægilegur
geymslustaður fyrir peninga sem
fólk þarf að hafa handbæra innan
nokkurra daga eða vikna eða nota
jafn óðum. Innistæður á þeim sem
svara til yfir 50 þús. króna á hvert
mannsbarn í landinu sýnast hins
vegar vera nokkuð rífleg upphæð í
slíka „varasjóði". Ekki síst þegar
haft er í huga að upphæðin miðast
við lok mánaðar, þannig að ætla má
að þar sé um einna lægstu inni-
stæðu hvers mánaðar að ræða.
Jafn margar nýkrónur
nú og gamlar krónur
árið 1975
Það sýnist athyglisvert dæmi uin
verðlagsþróunina undanfarin ára-
tug, að spariinnlán í bankakerfinu
voru nær sama upphæð í árslok
1988 eins og þau voru í gömlum
krónum í árslok 1975, eða um 40
milljarðar. Verðlag hefur á þessu
tímabili u.þ.b. 45 faldast, þannig að
sparnaðurinn er nú rúmlega tvöfalt
meiri. Þótt verðlag (vísitölur) hafi
45 faldast á tímabilinu hefur
„ávöxtun" á fé sent geymt hefur
verið á alntennri sparisjóðsbók
aðeins rúmlega tífaldað höfuðstól-
inn á sama tíma.
Bankarnir skila sumum
aðeins fjórðungi spari-
fjár þeirra til baka
Sá sem í árslok 1975 hefði t.d.
átt 1 gamla milljón í almennri
sparisjóðsbók í banka, og geymt
hana þar óhreyfða hefði um síð-
ustu áramót átt um 10,2 millj.
gamlar, eða um 102 þúsund nýjar
krónur á sparibókinni sinni. Sá
sem hins vegar hefði getað geymt
gömlu milljónina sína á verðtryggð-
um reikningi hefði á sama tíma
hækkað upphæðina í rúmlega 450
þús. nýjar krónur (45 millj. gkr.).
Af gömlu milljóninni hefðu því
tæplega 350 þús. nýjar krónur
„brunnið upp í verðbólgunni" -
eða réttara sagt færst úr eigu þess
sem geymdi milljónina í bankan-
um, í eigu þess sem fékk hana „að
láni“. Ef verðtryggði reikningurinn
hefði auk þess borið 3% árlega
raunvexti á tímabilinu hefði gamla
milljónin orðið í kringum 620 þús.
kr. um síðustu áramót í stað 102
þús. kr. á „gömlu góðu bankabók-
inni“.
Má nokkuð ráða af þessu dæmi
hversu gífurlega fjármuni „hriplek-
ir" bankar og sjóðir hafa fært á
milli manna í þjóðfélaginu á þess-
um tíma. Sú tilfærsla kemur fram í
bankainnistæðum sem sífellt verða
verðminni þrátt fyrir „ávöxtun"
bankastofnana og hins vegar í
peningasöfnun bæði einstaklinga
og fyrirtækja - einstaklinga sem
söfnuðu meiri eignum árlega en
þeir höfðu í brúttó tekjur og fyrir-
tækja sem safnað hafa stórum eign-
um þrátt fyrir stöðugan taprekstur,
jafnvel í áratugi.
Tímakaupið 35 kr. ef það
hefði hækkað í takt við
„bankavexti“ frá 1975
Annað dæmi sem gaman getur
verið að rifja upp varðandi verð-
þróunina:
Dagvinnukaup (taxti) í hafnar-
vinnu, var 338,44 kr. gamlar á
tímann í árslok 1975 (3,38 kr.).
Með hækkun í takt við almenna
bankabókavexti frá ársbyrjun 1976
hefði tímakaupið verið um 35 kr.
um síðustu áramót. Með hækkun í
takt við vísitölu hefði það verið um
150 kr.
Verkamaður sem „ávaxtað“
hefði sem nam árslaunum sínum
fyrir dagvinnuna 1975 á almennri
sparisjóðsbók ætti nú um 65 þús. í
bókinni. Sá sem geymt hefði upp-
hæðina á verðtryggðum reikningi,
án vaxta, ætti um 290 þús, en frá
630-795 þús. kr. ef hann hefði
getað ávaxtað á þeim kjörum sem
ríkissjóður býður nú á spariskírt-
einum sínum, sem þó hefur gengið
fremur treglega að selja.