Tíminn - 10.10.1987, Qupperneq 4
4 Tíminn
Laugardagur 10. október 1987'
Heilbrigöisráöherra vinnur aö nýrri 5 ára áætlun um öldrunarmálefni:
Þeir sem mest þarfnast
vistunar njóti forgangs
Fimm ára áætlun um uppbygg-
ingu öldrunarstofnana og sam-
ræmdar reglur um vistunarmat er
eitt þeirra málefna sem nú eru í
undirbúningi í heilbrigðisráðu-
neytinu, að því er fram kom í
samali við Guðmund Bjarnason,
heilbrigðisráðherra.
Núverandi löggjöf um málefni ald-
raðra, m.a. innheimta á gjaldi til
Framkvæmdasjóðs aldraðra, gildir
aðeins til næstu áramóta.
„Ef okkur tekst að koma upp
áætlun til 5 ára um uppbyggingu
þessarar þjónustu, þá held ég að
við ættum að ná langt í að byggja
upp aðstöðu fyrir aldraða. Sömu-
leiðis held ég að það sé mjög
mikilvægt að reyna að koma á
skipulegu mati á því hverjir hafi
mesta þörf fyrir pláss á öldrunar-
stofnunum - og að þeir hafi síðan
forgang á að njóta þeirrar þjón-
ustu. Slíkt mat hefur til þessa ekki
verið nægilega virkt og því ekki
enndilega verið þeir sem mesta
þörfina hafa sem vistaðir eru inn á
stofnanirnar. Þar hafa ýmis önnur
sjónarmið ráðið“, sagði Guðmund-
ur.
Jafnhliða sagði hann nauðsyn á
að auka aðstoð við aldraða á
heimilum sínum -bæði hjúkrunar-
þjónustu og heimilisþjónustu,
þannig að aldraðir geti búið lengur
á sínum eigin heimilum. Bæði hafi
komið í ljós að margir kjósi helst
að búa sem lengst út af fyrir sig og
sömuleiðis sé það mun ódýrara
fyrir opinbera kerfið í heild að
auka heimilisþjónustu heldur en
að byggja stofnanir fyrir fólk sem
gæti verið heima ef það fengi
nokkra aðstoð.
Framangreinda áætlun og endur-
skoðun núverandi laga sagði Guð-
mundur að verði unnin í samráði
við fulltrúa sveitarfélaganna. Enda
nauðsynlegt að samræma betur
verkaskiptingu ríkis og sveitarfé-
laga á þessu sviði sem fleirum.
Þá kom fram í samtalinu við
Guðmund að hann vill að mark-
vissar verði unnið að heilbrigðum
liínaðarháttum þjóðarainnar, og
þannig reynt að draga úr þörf á
kostnaðarsamri „viðgerðarþjón-
ustu“ sjúkrastofnana. í því skyni
sagði hann í undirbúningi að sam-
ræma hin ýmsu forvarnarstörf og
sameina sem flesta þætti þeirra
undir sérstakri forvarnarstofnun
sem hefði þá heildaryfirsýn yfir
þessa hluti. Þarna er m.a. um að
ræða áfengisvarnir, tóbaksvarnir,
tannvernd og annað heilbrigðiseft-
irlit í skólum, almennar slysavarnir
og jafnframt ráðgjöf um heilbrigða
lifnaðarhætti. „Við gætum nefnt
þetta neyslu- og manneldisstefnu,"
sagði Guðmundur.
- HEI
Fjármálaráðherra útdeilir gjöfum í Háskólabíó:
60 milljónum
veitt til SÁÁ
í ávarpi Jóns Baldvins Hannibals-
sonar, fjármálaráðherra, á afmælis-
fundi SAÁ í Háskólabíó í tilefni I0
ára afmælissamtakanna á laugardag-
inn var, sagði hann að ríkisstjórn
íslands hefði ákveðið að leggja til
við Alþingi íslendinga í fjárlögum
næsta árs að á árinu 1988 og næstu
árum verði varið til samtakanna 15.
milljónum króna á ári. Tíminn hefur
fyrir því staðfestar heimildir að í
tillögunni felist að fjárupphæðin alls
nemi 60 milljónum króna og greiðist
til SÁÁ á næstu fjórum árum.
„SÁÁ hefur lagt í miklar
byggingaframkvæmdir á sl. áratug
(þ.e. Vogur) og notið til þess óveru-
legra ríkisframlaga," sagði Jón
Baldvin m.a. “Greiðslubyrðin af
skuldum vegna þessara byggingar-
framkvæmda er því orðin helst til
þung og hamlar starfsemi samtak-
anna.“
Pétur Maack hjá SÁÁ sagði skýr-
inguna á hinum miklu byggingar-
skuldum samtakanna að rekja til
vanskila úr gjafabréfasöfnuninni.
„Bréfin voru með fimm jöfnum
afborgunum og þcgar gjafaloforðin
fóru að skila sér var ákveðið að
byggja hratt, því að það er ódýrara,"
sagði Pétur. „Við slógum þá
skammtímalán miðuð við verðandi
gjalddaga." Síðar stóðu starfsmenn
samtakanna frammi fyrir miklurn
vanskilum á gjafabréfum og þrátt
fyrir áminningar skiluðu sér Iangt í
frá allar greiðslur. Tekin var ákvörð-
un um að fara ekki í harðar inn-
heimtuaðgerðir, þrátt fyrir að SÁÁ
gæti ekki greitt skammtímalánin.
Vanskilin voru að núvirði á bilinu
20 til 22 milljónir króna.
Að auki hafa fjáröflunarleiðir
samtakanna aðrar brugðist, m.a.
hafa happdrættin ekki skilað þeim
ágóða sem vænst var. Svo samtökun-
um auðnist að halda áfram starfsemi
sinni er lagt til að Alþingi veiti til
þeirra 60. milljónum króna á þessu
kjörtímabili.
„Fjárveitingin er eyrnamerkt byg-
gingarskuldunum og verður notuð
til þess eins að hjálpa okkur við
byggingu á Vogi,“ sagði Pétur.
Vogur er að verðmæti í dag um
130. milljónir króna og skuldirnar af
Páll Jóhannesson á hljómplötu:
Eg syng um þig
Út er komin hljómplatan „Ég
syng um þig“ með söng Páls Jóhann-
essonar tenórs. Ólafur Vignir Al-
bertsson leikur með á píanó.
Á plötunni eru 17 lög, m.a. eftir
Sigvalda Kaldalóns og Sveinbjörn
Sveinbjörnsson, einnig þekkt lög frá
Ítalíu s.s. O Sole Mio, Rondine al
Nido og Core n'Grato. Tvö síðustu
lögin syngur Páll með Karlakór Ak-
ureyrar og Karlakórnum Geysi undir
stjórn Atla Guðlaugssonar.
Frá árinu 1981 hefur Páll verið við
söngnám á Italíu. Meðal kennara
hans þar var Pier Miranda Ferraro.
Þá hefur Páll unnið til verðlauna í
hinni alþjóðlegu söngkeppni í Siena
á Ítalíu sem kennd er við bassbaryt-
oninn Ettore Bastianini.
Hljóðritun plötunnar sem nú er
gefin út í dreifingu Fálkans annaðist
Halldór Víkingsson með stafrænni
tækni. Platan er þrykkt hjá hinu
virta fyrirtæki Teldec í V-Þýska-
landi. þj
Fiskmarkaðir:
Fyrsta uppboð
Fiskmarkaðs
Norðurlands
Fyrsta uppboð hjá Fiskmarkaði
Norðurlands fór fram í gær. Þar
voru einungis fáeinar bröndur í
boði, l,8tonnafþorskiog2,l tonn
af grálúðu. Fyrir kíló af þorski
voru hæst boðnar 38 krónur. Það
boð kom frá Birgi Þórhallssyni
nýbökuðum saltfiskverkanda á
Akureyri.
Sigurður P. Sigmundsson fram-
kvæmdastjóri Fiskmarkaðar
Norðurlands sagði að 38 krónur
fyrir þorskkíló væri ívið lægra en
það sem gengi fyrir sunnan. Þar
væri verðið um það bil 43 til 44
krónur á hvert kíló. Hins vegar
væri það hærra en gerðist og gengi
á Norðurlandi þar sem 32 til 33
krónur væru greiddar fyrir þorsk-
kíló.
Frystihús KEA á Dalvík hreppti
grálúðuna og greiddi 22 krónur
fyrir kílóið. Töldu margir það
spottprís þar sem rúmar 30 krónur
fengj ust fyrir grálúðu á Suðurlandi.
Þetta fyrsta uppboð Fiskmark-
aðar Norðurlands gekk ekki áfalla-
laust, því að tvívegis á meðan á
uppboðinu stóð datt tölvukerfi sem
tengir uppboðsaðila saman út
vegna bilana í gagnaneti Pósts og
síma. Sigurður sagði að margir
hefðu litið inn til að fylgjast með
og greinilegt væri að áhuginn væri
fyrir hendi. Hins vegar væri fiskirí
lítið og því lítil von til að hægt væri
að bjóða upp á verulegt magn, að
minnsta kosti ekki næstu daga.
honum á bilinu frá 50 til 60 milljónir
króna.
- Aðrar skuldir?
„Þær eru ekki óyfirstíganlegar fyr-
ir SÁÁ,“ sagði Pétur. „Það eru
venjulegar rekstrarskuldir. Dag-
gjöldin standa undir daglegum
rekstri."
Það fé sem þó hefur borist eftir
ýmsum leiðum til samtakanna hefur
byggingin á Vogi gleypt. Á meðan
hefur fræðslu- og útgáfustarfsemi
samtakanna legið að mestu leyti
niðri. Mjög umfangsmikil skólafræð-
sla var eitt sinn rekin, en samtökin
hafaekki haft efni á henni sl. þrjú ár.
Pétur Maack vonar að framlag
ríkisins, ef Alþingi leyfir, verði til að
rétta við fjárhag SÁÁ.
Varðandi þann orðróm að fé það
sem veitt er til SÁÁ verði tekið frá
áfengisvarnarráði, sem starfar skv.
lögum um áfengisvarnir frá árinu
1985, og ráðið lagt niður segir Guð-
mundur Bjarnason, heilbrigðisráð-
herra, að rætt hafi verið um að
samræma öll slík ráð og nefndir í
eina forvarnarstofnun. Hins vegar
sé enga peninga að sækja til áfeng-
isvarnarráðs sem fær ekki nema úr 3
milljónum króna að moða í ár skv.
fjárlögum.
„Ég frétti um að fjármálaráðherra
væri að útdeila slíkum gjöfum, en
peningana verður hann að sækja
annað en til áfengisvarnarráðs,“
sagði heilbrigðisráðherra.
Þj
Jón Þorstcinn Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri.
Ráðinn fram-
kvæmdastjóri
Jón Þorsteinn Gunnarsson,
rekstrarhagfræðingur, hefur verið
ráðinn framkvæmdastjóri Sápugerð-
arinnar Frigg. Tekur hann við starf-
inu af Gunnari J. Friðrikssyni for-
stjóra sem hefur verið stjórnandi
fyrirtækisins síðastliðin 45 ár.
Jón Þorsteinn er 33 ára gamall og
útskrifaðist sem viðskiptafræðingur
frá Háskóla íslands árið 1982. Hann
stundaði framhaldsnám í rekstrar-
hagfræði við Schiller International
Universitet í V-Þýskalandi og lauk
þaðan MBA prófi í júlí á þessu ári.
Jón Þorsteinn starfaði sem markaðs-
stjóri hjá Frigg á árunum 1982 til
1986. Eiginkona hans er Margrét
Birgisdóttir.