Tíminn - 10.10.1987, Síða 17
Laugardagur 10. október 1987
Tíminn 17
lllllllllllllllM BÓKMENNTIR llllllllilllllllllllllllilllllllllllllllllll^^^^^^^^^ ^ 'l.
Sitt lítið af hverju
Pétur Gunnarsson, rithöfundur
Pétur Gunnarsson: Sykur og brauö,
þættir og greinar, Punktar, Rv. 1987.
Pétur Gunnarsson rithöfundur sló
eins og menn muna rækilega í gegn
með skáidsögunni Punktur,
punktur, komma, strik fyrir rúmum
tíu árum, og síðan hefur hann lokið
vægast sagt mjög áhugaverðum
skáldsagnaflokki um persónuna
Andra, sem hóf að segja frá í þeirri
bók. í þessunr sögum hefur hann
sýnt ótvírætt að hann er á margan
hátt gæddur fágætum hæfileika til að
túlka ekki síst hin fíngerðari blæ-
brigði skáldsöguformsins, jafnframt
því sem honunr getur verið ákaflega
vel lagið að segja frá í snöggum
svipmyndum og beita óvæntum til-
þrifum í stíl. f síðustu skáldsögu
sinni, Sagan öll, frá því í hitteðfyrra,
gerði hann aukheidur býsna vei
marktæka úttekt á þeim vanda sem
blasir við fólki af Lánasjóðskynslóð-
inni, eftir að það kemur heim frá
námi og hefur allt í einu verið svipt
öryggi stúdentsáranna.
Þó er óneitanlega heldur hætt við
að ýmsir aðdáendur Péturs Gunnars-
sonar falli ekki í stafi yfir þessari
síðustu bók hans. Ekki fyrir það að
hún sé illa skrifuð, því að svo er aiis
ekki og þvert á móti, heldur vegna
þess að hann er nú einu sinni höfund-
ur sem vænta hefði mátt frá átaka-
meiri verka en hér eru á boðstólum.
í Sykri og brauði hefur hann
safnað saman ntargs konar þáttum
og greinum, hinum elstu frá 1972 og
þeim yngstu frá árinu sent leið, en
öðrum frá tímanum þar á milli. Ég
sakna þess óneitanlega að hann skuli
ekki hafa látið eins og örlítið for-
málakorn fylgja með, þar sem hann
hefði gert grein fyrir markmiðum
sfnum og tilgangi með bókinni.
Sannast sagna er að lesandi kemur
hálfgert líkt og álfur út úr hól að
þessari bók og veit ekki meir en svo
hvað höfundur er að vilja honum.
Pó verður fljótlega Ijóst við lestur
í bókinni að hér eru mestpart á
ferðinni margs konar smápistlar af
þeirri tegund sem gjarnan er kennd
við létta blaðamennsku. Svona stutt-
ir pistlar eins og menn skjóta hér oft
inn í blöð þegar þeim liggur eitthvað
sérstakt á hjarta. Eða jafnvel aðeins
þegar þeir fá góða hugmynd að
dálitlu ritkorni, setja það á blað og
vilja síðan leyfa öðrum að njóta
árangursins með sér.
Af þessari síðast nefndu tegund
eru einkum elstu þættirnir, þeir sem
fremst fara í bókinni. Þar ber tölu-
vert á ýmsum sundurlausum
myndum; þær eru kannski ekki allar
svo ýkja langt frá formi lausamáls-
ljóða, og fremur það en af ætt
smásagna. Þegar aftur eftir dregur
breytist þetta hins vegar. Þá víkur
höfundur í vaxandi mæli að ýmsum
málum sem honum liggja á hjarta,
oft dægurmálum hvers konar eða
þjóðmálum, en einnig slæðast þarna
með nokkrir ritdómar. Af sínum
eigin verkum segir hann þarna þó
kannski minna en skyldi; stutt grein
um aðdraganda Punktsins verður
líkt og til þess eins að æsa upp í
okkur hinum forvitnina eftir að fá
meira að heyra.
Aftur á móti verður að setja út á
annað, sem er sparsemi höfundar á
að skýra frá því hvort og hvar þessar
greinar hafi birst áður. Víðast hvar
lætur hann sér nægja að setja við þær
ártöl ein saman. Hins vegar hefði
verið gagnlegur fróðleiksauki í því
að fá til dæmis að vita hvort einhverj-
ar þeirra hafi verið skrifaðar fyrir
dagblöð eða aðra fjölmiðla (þrjár
eru raunar kenndar þarna við
útvarp), og kannski eftir pöntun
sumar hverjar, eða þá aðrar að eigin
frumkvæði höfundarins.
Ef svara á því hvernig tekist hafi
til að öðru leyti, er trúlega fyrst að
nefna að höfundur getur hér yfirleitt
ekki talist hafa sérlega róttækan
boðskap að flytja. Áberandi eru hér
ýmiss konar klassískar aðfinnslur í
gömlum og góðum sósíalískum anda
um brottför varnarliðsins, ósann-
gjarna tekjuskiptingu milli stétta í
landinu, og svo framvegis. Þar eru á
ferðinni efni sem vissulega eiga rétt
á að vera haldið vakandi. en rithöf-
undur þarf þó helst að nálgast út frá
nýjum og óvæntum sjónarhornum,
eigi hann að geta vænst þess að
verða tekinn alvarlegar en venjulegir
pistlahöfundar á Þjóðviljanum.
En að hinu er þó að gæta að víða
tekst honum hér, þrátt fyrir þetta,
að koma fram nteð smellin stílbrögð
og nýstárlegar líkingar sem hljóta að
vekja athygli. Þar má nefna nráls-
greinar eins og þessa; „Stjórnmála-
flokkar þyrla nú frá sér prógrömm-
um og uppskriftum, innan skamms
ganga hæstvirtir kjósendur í kjör-
búðir og velja sér pólitík til næstu
fjögurra ára" (bls. 82). Eða þessa:
„Ég fikta í slökkvaranum og beljandi
stórfljót breytist í rafstraum sem á
sekúndubroti kveikir á hundrað
kertum" (bls. 85). Nú, eða þá þcssa:
„Steypti vegurinn stakk Sunnlend-
ingum í santband við þá staðreynd
að þeir búa á lófastórum bletti þar
sem allt er í hámarks klukkustundar
seilingu" (bls. 86). Svona handbrögð
sýna Pétur Gunnarsson í essinu
sínu, líkt og við þekkjum það til
dæmis úr Punktinum.
í stuttu máli sagt þá getur Pétur
Gunnarsson hvorki talist koma hér
fram sem beittur ádeilusmiður né
boðberi byltingarkenndra hug-
mynda. Þvert á móti er hann er hér
á ferðinni með laglegar myndir og
tiltölulega hógværar vangaveltur. í
ýmsu minna vinnubrögð hans hér
fremur á vandaða blaðamennsku en
markvissan skáldskap, og tek ég
fram að þetta síðast nefnda er síður
en svo sagt í niðrunarskyni heldur
þvert á móti. Ég held að það verði
að líta á Sykur hans og brauð fyrst
og fremst sem eins konar millispil
rithöfundar á milli stærri afreka.
Hér er vissulega á ferðinni vel skrif-
uð og að mörgu leyti áhugaverð bók,
en vonandi á höfundur hennar þó
eftir að senda aftur frá sér átakameiri
verk en þetta áður en langar stundir
líða. - esig
111 LESENDUR SKRIFA
Friðarsókn frá Islandi
Sú kemur tíð,
að Sáleyjar ljómi
verður hæstur í heimi.
(Sáley: tsland)
Porsteinn Björnsson lír Bæ
Friðarstefna, sem hefst á því að
skera niður kjarnorkuvígbúnað, en
færir sig síðan niður stig af stigi,
kynni að vera framundan á þessari
jörð, og verði þetta að veruleika, þá
er óhætt að segja, að slíkt hefði
aldrei getað gerst, án þess að ísland
og íslendingar ættu þar hlut að máli.
Þetta er nú svo kunnugt, augljóst og
viðurkennt, að ekki þarf að fara um
það fleiri orðum. Það er líka víst, að
verði þetta, þá eru það mestu tíð-
indi, sem gerst hafa í sögu hnattarins
frá því að líf kviknaði hér fyrir
3-4000 milljón árum. Lífið hefur
verið á helstefnuleið æ síðan, en hér
gætu orðið vatnaskil. Og þau skil
verða í hugsun mannanna, lífteg-
undar sem ekki hefur gengið sent
best með, svo að ekki sé meira sagt.
Allt, sem gerist. á sér aðdraganda
í því sem áður var og gerðist, og í
rauninni í öllu, sem á undan er
gengið. En ef ég ætti að nefna
eitthvað eitt, sem mér virðist hafa
sérstaklega leitt til þess, að nú, ári
eftir fundinn f Reykjavík, er farið að
tala eins og hann hafi breytt mestu,
- þá er það sú ákvörðun þáverandi
forsætisráðherra, Steingríms, að
hlaupast ekki frá setningu Alþingis í
Reykjavík til þess að fara suður á
Völl á móti Gorbatshev sem áður
hafði verið látinn vita, að þessi stund
væri frátekin. Þarna sýndi íslenski
forsætisráðherran þá reisn, sem þarf,
til þess að geta heitið íslendingar -
og það, sem þarf til þess að geta beitt
sér fyrir friðarstefnu. Því að það eru
svona atvik, sem skera úr um það,
hvort tekið er mark á mönnum eftir
á.
En ef rekja skal lengra aðdragand-
ann til þess, að Reykjavík varð að
vera staðurinn, þarsem friðarsóknin
skyldi byrja, þá mætti fyrst minna á
þau orð Magnúsar Jónssonar (pró-
fessors, alþingismanns), að Reykja-
vík sé eina borgin á jörðinni, sem
byggð sé að tilvísun Óðins, Alföður.
í öðru lagi ber að minna á það, að
skáld og spámenn hafa farið hinum
lofsamlegustu orðum um landið,
þjóðina og höfuðborg þess, og væri
það vottur um mikla andans fátækt
að virða það einskis. Jónas Hall-
grímsson og Einar Benediktsson,
William Morris og Adam Ruther-
ford, og skáldið sem ég vitna í hér
að ofan, viðhöfðu slík orð, og jafnvel
Kínverja (Sturlungufróða) mun
mega finna í hópi þeirra, sem hafa
spáð fyrir hinni stórkostlegu framtíð
íslands. En umfram allt var það
Helgi Pjeturss, sem sagði það fyrir,
að hér yrði að byrja, og það var
hann, sem öllum öðrum fremur hélt
á loft spádómi Rutherfords um fs-
land og Reykjavík sem aflstöð fyrir
alla þessa jörð.
Þegar þess er gætt, að Dr. Helgi
hafði, þegar árið 1918, sett kjarn-
orku, sem þá var ekki meir en svo
uppgötvuð, í samband við hugsanleg
endalok mannkynsins, verður ekki
hjá því komist að ætla, að hans nafns
beri að minnast öðrum nöfnum
fremur, þegar rætt er um friðarsókn
frá íslandi.
Þorsteinn Guðjónsson
HH REYKJHJÍKURBORG
’l'
Valhöll
Dagvist barna
Fóstrur og aðstoðarfólk vantar á dagheimilið
Valhöll, nú þegar.
Upplýsingar gefa forstöðumaður í síma 19619.
»*fl REYKJMJÍKURBORG 1*1
K H _______________________ 2
Dagvist barna 11 f
Fólk með táknmálskunnáttu óskast til stuðnings
heyrnarskertum börnum.
Upplýsingar veita forstöðumaður á skóladagh./
leiksk. Hálsakoti, Hálsaseli 29 og Málfríður Lor-
ange sálfræðingur skrifstofu Dagvistar barna í
síma 27277.
1*1 REYKJKÚKURBORG l*fl
z 22 á- ----- -2 22 a
MT AciUMVl
Skóladagheimili Austurbæjarskóla óskar eftir
starfsmanni hálfan eða allan daginn. Upplýsingar
veitir skólastjóri í síma 12681.
fl*fl REYKJKJÍKURBORG fl*l
«»* xs »*» «7»7 H
W Joudor Sttáur MP
Þjónustuíbúðir aldraðra, Dalbraut 27.
Laust er til umsóknar 100% starf á vakt, 2x75%
starf í eldhúsi og 2x100% starf í heimilishjálp.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 685377
alla daga.
Framkvæmdastjóri
Framkvæmdastjóra vantar að Sjúkrahúsi og
heilsugæslustöð á Hvammstanga frá 1. janúar
1988.
Framkvæmdastjóri sér um daglegan rekstur stofn-
ana, annastfjármáiaskýrslu og áætlanagerð, fram-
kvæmd ákvarðanastjórnar o.fl.
Allar nánari upplýsingar gefa framkvæmdastjóri í
síma 95-1348, heimasími 95-1629 og formaður
stjórnar í síma 95-1353, heimasími 95-1382.
Umsóknir sendist til stjórnar Sjúkrahúss Hvamms-
tanga 530, Hvammstanga.
Umsóknarfrestur um stöðuna er til 20. október
1987.
Stjórn Sjúkrahúss Hvammstanga
QJvarahlutir
Hamarshöfða 1
Simai:: 83744 og 36510
Nýr hjólatjakkur
Þriðjungi styttri en lyftir þó
sömu þyngd í sömu hæð. Verð
aðeins kr. 4.870,- i sérstöku
plastboxi. Gerið verðsaman-
burð.
Lyftigeta: 1,5 tonn.
Lyftisvið 13-39 cm.
Þyngd: 9 kg.
Lengd: 47 cm.
Breidd: 32 cm.
Hæð: 17 cm.