Tíminn - 10.10.1987, Síða 23
Þessa mynd tóku sjálfvirkar mvndavélar af bankaráninu, en Claudia elti
hins vegar ræningjann.
Beint úr Guinness-metabókinni:
STÆRSTA
ÚTIAUGLÝSING
í HEIMI!
Studebaker - nafnið Hflr góðu lífi í tráplöntunum, þó engir nýir
Studebaker-bílar séu framleiddir.
Það eru yfir 50 ár síðan Stude-
baker-fyrirtækið í Bandaríkjunum
lét gera þessa frumlegu auglýsingu
í um 20 km fjarlægð frá verksmiðj-
unni.
Studebaker-nafnið var þá, árið
1936, búið til úr litlum furuplóntum
á landssvæði í New Carlisle.Ind.
Plönturnar þöktu yfir 700 metra
breitt svæði og stafirnir eru um 60
m á hæð. Nú eru litlu plönturnar
orðnar um 20 m há tré en nafnið
stendur skýrum stöfum ennþá - þó
að Studebaker-fyrirtækið hafi hætt
störfum fyrir 23 árum.
SKIPADEILD
SAMBANDS/NS
LINDARGÖTU 9A -SÍMI 698100 28200
TÁKN TRAUSTRA FLUTNINGA
Claudia Röhrenbacher er bara
níu ára, en hún er fræg sem hetja í
heimaborg sinni, Salzburg í Aust-
urríki, eftir að hún kom upp um
bankaræningja þar á dögunum.
Hún var að leika sér að bolta í
almenningsgarði rétt hjá bankan-
um í Bessarabíugötu og leiddist að
vera ein þá stundina. Skyndilega
munaði minnstu að maður hlypi
hana um koll. Hann var með
skíðahettu fyrir andlitinu og plast-
poka í hendi. - Hypjaðu þig,
hvæsti hann, um leið og hann hljóp
framhjá.
Andartak stóð Claudia kyrr.
Svona náunga hafði hún séð í
sjónvarpinu og þar voru þeir alltaf
bankaræningjar. Hún lagði af stað
í humátt á eftir kauða, en fór
varlega. Loks sá hún hann stíga inn
í bláan bíl handan garðsins. Annar
maður var í bílnum og óx strax af
stað. Claudia sá að þetta var alveg
eins bíll og pabbi hennar átti,
nema að lit. Hún setti á sig númer-
ið, en þar sem hún hafði ekkert ti!
að skrifa með, tautaði hún það
stöðugt þangað til hún var viss um
að muna það.
Nú fannst henni rökrétt að fara
til lögreglunnar. Skömmu síðar
rakst hún á lögreglumenn, sem
starfsfólk bankans hafði kallað til.
Claudia var ekki lengi að skýra frá
því sem hún hafði orðið vitni að.
Það tók laganna verði ekki nema
nokkrar mínútur að hafa uppi á
bláa bílnum og eiganda hans. Þcg-
ar ruðst var inn í íbúð hans, sátu
félagarnir við að telja ránsfeng
sinn, um það bil jafnvirði milljónar
ísl.
Bankinn vcitti Claudiu vegleg
verðlaun, sem hún lagði auðvitað
inn á bók. - Ég varð hrædd, segir
hún, - en ekki fyrr en á eftir, þegar
ég fór að hugsa um, hvað þeir
hefðu getað gert, ef þeir hefðu séð
mig.
Claudia litla cr hugrökk telpa mcð
athyglisgáfuna í lagi.
Laugardagur 10. október 1987
r
Tíminn 23
SPEGILL
DRAUMARJ0EYS
Joey Tempest hinn feikidáði í
hljómsveitinni Europe, er bæði
feiminn að eðlisfari og orðinn allt
að því mannfælinn, síðan hann og
félagar hans urðu heimsfrægir.
Hann fæddist fyrir 23 árum og
heitir að réttu Joackim Larsson.
Þegar hann ákvað að gerast rokk-
stjarna. skipti hann um nafn. Það
þótti ekki nógu gott að fara út í
hinn stóra heim með nafn, sem
engir nema landar hans gátu borið
skikkanlega fram. Joey Tempest
hljómar mun betur á heims-
markaðnum.
Sagt hefur verið um Joey, að
hann sé einfari og blandi lítt geði
við annað fólk og hann viðurkennir
það. - Já, mér líður best með
sjálfum mér. Ég er fæddur feiminn
og hef alltaf forðast margmenni.
Vissulega er góður hæfileiki að
geta lokað sig af frá amstrinum, en
oft vildi ég þó óska, að_ ég væri
félagslyndari, segir hann. - Ég hef
rneira að segja reynt að gera eins
og Ian og Kee í hljómsveitinni,
þeir spjalla frjálslega við hvern
sem er. Kannske get ég einhvern-
tíma lært það.
Joey dreymdi lengi um að verða
stjarna, en viðurkennir að raun-
veruleikinn núna og stjörnudraum-
arnir eigi harla fátt sameiginlegt,
- Allar rokkstjörnur eru sælar í
draumunum, en það er allt annað
en sæla að vera heimsfrægur og
eiga nóga peninga, segir hann. -
Svangt barn verður tniklu ánægö-
ara með venjulega brauðsneið, en
ég, þegar ég borða íburðarmikla
og rándýra máltíð.
En hvernig skyldi honum geðjast
að því að þúsundir ungra stúlkna
dreymi um hann og skreyti her-
bergi sín með myndum af honunt?
Hann bítur á vörina og brosir
eilítið. - Ég vona að þær dreymi
mig ekki á næturnar. Líklega á
þetta fólk plötuna okkar líka og þá
er ég ánægður, því þrátt fyrir allt
er það tónlistin, sem málið snýst
um. Við reynurn líka að gefa gott
fordæmi, til dæmis göngum við
alltaf vel um á hótelum, drekkum
aldrei áfengi á sviðinu og sérstak-
lega ég gæti þess að láta enga
óhollustu ofan í mig.
Vegna þungra skatta í hcima-
landinu, Svíþjóð, býr Joey Tem-
pest á Bahamaeyjum, en ætlar að
flytja heim seinna. Um þrítugt vill
hann endilega vera búinn að fá sér
konu og vill eignast mörg börn og
stóran hund. - Ég á nóga peninga,
en eyði engu í óþarfa, ætla að
fjárfesta erlendis, til að njóta góðs
af á efri árum, segir Joey. Það
mikilvægasta þessa stundina er að
semja fleiri góð lög, svo Europe
geti haldið sig á tindinum eitthvað
framvegis.
,
- Við í Europe erum góðir |
strákar, og reynum að lifa heil-
brigðu lífi, því það cr ótrúlcga I
crfitt að vera á hljómleikaferð-
um.
ara
borgarahetja